Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 45

Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 45
máli. Konur og karlar hafa í flest- um greinum ekki leyfi til þess að keppa saman í íþróttum og það er því óréttlátt að stelpur og strákar keppi hvert við annað um hver hlýtur titilinn. Með þessu móti þá eignumst við fleiri kvenfyrirmynd- ir í íþróttum og þá aukast líkur á að fleiri stelpur leggi stund á íþróttir. Þetta skref var síðan upp- hafið að því að ÍTK hefur stutt myndarlega við bakið á kvenna- íþróttum í Kópavogi. ÍTK hefur styrkt sérstök verkefni til upp- byggingar í kvennaíþróttum bæði hjá Breiðablik og HK og er þessi þróun það sem koma skal. Hér hef ég farið yfir mikilvæg mál sem tengjast uppbyggingu íþrótta- og tómstundamála í Kópa- vogi og ég vil hvetja þig til þess að tryggja okkur brautargengi til þess að halda uppbyggingunni áfram. Kjóstu forystu Kópavogs – XB. Höfundur er formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 45 STAÐBUNDIN þjónusta hins opinbera við íbúa sveitarfélaga er margvísleg og sitt sýnist hverjum um gæði hennar og þjónustufram- boð, allt eftir því við hvaða að- stæður hver og einn býr. Ríki og sveitarfélög hafa komið sér upp verkaskiptingu þessarar þjónustu sem hefur oft tekið breytingum í tímans rás og ekki sjálfgefið að fólk átti sig á henni. Þannig geta málaflokkar sem varða beint stað- bundna þjónustu við íbúa verið á hendi ríkisins og sveitarfélög átt í erfiðleikum með að hafa stjórn á þjónustustigi gagnvart íbúum sín- um. Undanfarið hafa ríki og sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu átt í samskiptum vegna kröfu sveitarfé- laga um úrbætur í slíkum mála- flokkum, svo sem löggæslu, heilsu- gæslu, framhaldsskólum o.fl. Aukið þjónustustig Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrýst á ríkið um úrbætur í ýmsum málaflokkum sem það hefur með höndum svo sem úrbætur í þjóð- vegagerð, uppbyggingu framhalds- skóla og nú síðast eflingu lögregl- unnar í Kópavogi á sviði forvarna. Á næsta kjörtímabili hefur Sjálf- stæðisflokkurinn hug á því að end- urbæta þjónustu heilsugæslunnar og auka áherslu á málefni fatlaðra og aldraðra en þau mál eru í dag að mestu leyti í höndum ríkisins. Til þess að skapa bænum aukið svigrúm til athafna hefur Sjálf- stæðisflokkurinn í hyggju að ger- ast reynslusveitarfélag á þessu sviði á grundvelli laga um reynslu- sveitarfélög. Aukið samstarf heimaþjón- ustu og heilsugæslu Með því að færa staðbundna þjónustu frá ríki til sveitarfélags getur það betur mótað áherslur af aðstæðum, aukið hagræðingu með samstarfi þjónustuþátta og varið skattfé íbúa af meiri skynsemi þar sem sveitarfélagið hefur betri yf- irsýn yfir þjónustustig einstakra málaflokka. Með því að færa ákvörðunarvald heilsugæslu til Kópa- vogs verður hægt að færa þjónustu hennar nær íbúum bæjarins sem eru nú að stórum hluta heimilislækna- lausir. Ennfremur verður samstarf heilsugæslunnar og heimaþjónustu við aldraða eflt með litlum tilkostnaði. Þannig nýtast fjár- munir betur til að ná nýjum markmiðum. Eftirsóknarvert er að draga úr stofnanadvöl aldraðra og efla getu þeirra til sjálfsbjargar. Í reynslu- sveitarfélögum hefur verið sýnt fram á að þörf fyrir hjúkrunar- og dvalarheimilisrými hefur dregist saman en á móti hefur fram- boð þjónustu gagn- vart öldruðum aukist. Þar af leiðandi hefur bið eftir dvalarheim- ilisplássi styst vegna þess að fólki er gert kleift að búa lengur heima hjá sér. Upp- stokkun á ríkjandi verkaskiptingu við ríkið er kostur sem nauðsynlegt er að skoða. Aukin áhersla á almenna heilsugæsluþjónustu Sigrún Tryggvadóttir Kópavogur Eftirsóknarvert er að draga úr stofnanadvöl aldraðra, segir Sigrún Tryggvadóttir, og efla getu þeirra til sjálfs- bjargar. Höfundur skipar 9. sæti D-listans í Kópavogi. Reykjavík sími 580 0500 Selfossi sími 480 0800 www.blomaval.is Stjúpu tilboð ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S BL O 17 86 4 05 /2 00 2 20 stk. 1.199 kr. (Hreinir lit ir, stakir pottar) 30 stk. aðeins 1.199 kr. (Blandaðir litir) DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.