Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 47
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
www.bmvalla.is
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 Sími 585 5050 Fax 585 5051
sala@bmvalla.is
Það liggur í loftinu hvernig þú vilt
skipuleggja garðinn þinn.
BM Vallá býður þér ókeypis ráðgjöf
landslagsarkitekts til að útfæra hugmyndir
þínar, hvort sem þú ert að skipuleggja
nýjan garð eða gamlan.
Bókaðu tíma hjá BM Vallá í síma 585 50 50.
Ráðgjöfin er veitt í lystihúsinu í
hjarta Fornalundar.
Söludeildin er opin
alla virka daga frá kl. 8 - 18
og á laugardögum frá kl.10 - 14 í allt sumar.
Sumar
hugmyndir
þurfa að komast niður á jörðina
Fúsir til framkvæmda með þér
UM 12 ára skeið hafa framsóknar-
og sjálfstæðismenn farið með völd í
Kópavogi. Engum ætti lengur að
blandast hugur um að nú þarf því
samstarfi að ljúka. Það er enginn drif-
kraftur í þeim lengur. Þeir lifa í fortíð-
inni. Hugmyndir þeirra einkennast af
sjálfumgleði, fortíðarhyggju og inn-
antómum auglýsingavaðli. Nú fyrir
kosningar bjóða þeir kjósendum upp
á glansmyndir af sjálfum sér, blöðrur
og sjónhverfingamenn.
Þau 12 ár sem meirihlutinn hefur
setið að völdum hafa þeir aftur og aft-
ur lofað að klára að endurbyggja
gamlar götur í bænum. Þeir eru ekki
enn búnir. Þeir hafa margsinnis lofað
að ljúka við búningsklefana við Sund-
laug Kópavogs. Enn böðum við bæj-
arbúar okkur í bráðabirgðaaðstöð-
unni þar. Þeir hafa lofað að ganga frá
skólalóðum. Þeir hafa ekki staðið við
það. Þeir hafa lofað að lækka skuldir
bæjarins. Allir vita hvernig staðan er
þar. Þeir hafa lofað fjölskyldugarði í
Fossvogsdal. Það er enn ógert. Þeir
hafa lofað lystigarði í Kópavogsdal.
Ekkert hefur til hans sést. Þeir hafa
lofað að bæta aðstöðu siglingamanna.
Það er ógert. Þeir reyndar lofa þessu
einu sinni enn núna, en er ástæða til
að trúa þeim? Svo lofa þeir að klára
það sem byrjað er á og verður hvort
sem er klárað.
Framsóknar- og sjálfstæðismönn-
um er ekki treystandi til að efla innra
starf skólanna í Kópavogi, en það
verður meginverkefnið í skólamálum
næsta kjörtímabil. Þá skortir framtíð-
arsýn, dug og getu til að ráða við það
verkefni. Þeir grípa klisjur á lofti, éta
upp eftir öðrum og skreyta sig með
annarra fjöðrum. Þeir tala um að
auka sjálfstæði skólanna á sama tíma
og skólastjórar hafa ekki einu sinni
völd til að ráða starfsfólk að skólun-
um. Í blaði sínu, Vogum, höfnuðu
sjálfstæðismenn í lok apríl alfarið
hugmynd okkar Samfylkingarmanna
um þróunarsjóð fyrir skóla. Nú er
hún komin í stefnu þeirra. Þeir settu
af stað nefnd um stefnumótun í tón-
listarkennslu í september s.l., sem er
nýbúin að skila af sér, en hefði getað
verið búin að því fyrir löngu. Skólar
geta því ekki nýtt sér niðurstöður
hennar fyrir næsta skólaár. Þeir tala
um tilraunaverkefni í tónlist í Sala-
skóla og Kársnesskóla í vetur, og
hengja þau við stefnu sína, en minn-
ast hvergi á að þau verkefni eru al-
gjörlega að frumkvæði skólanna og
Tónlistarskólans. Þeir hafa hvergi
komið nærri þessum verkefnum með
stuðningi af neinu tagi. Þeir hafa
heldur ekki lagt mat á þessi tilrauna-
verkefni og hafa ekki sýnt áhuga á að
draga lærdóm af þeirri reynslu sem
með þeim fékkst. Gaman væri t.d. að
heyra frá þeim hvernig þeir ætla að
gera skólunum í Kópavogi mögulegt
að sinna þessu brýna verkefni, t.d.
næsta skólár.
Samfylkingin er eina aflið í Kópa-
vogi sem hefur lagt fram raunhæfar
og ábyrgar hugmyndir í skólamálum
sem og mörgum öðrum málum. Þar
er engu lofað sem ekki er hægt að
standa við. Þar er innistæða fyrir mál-
unum og traust fólk sem mun fylgja
þeim eftir af atorkusemi. Þeir sem
vilja góða stjórn á málum í Kópavogi
næsta kjörtímabil kjósa því Samfylk-
inguna.
Nýja og ábyrga
forystu í Kópavogi
Hafsteinn
Karlsson
Kópavogur
Samfylkingin,
segir Hafsteinn
Karlsson, er traust afl.
Höfundur skipar 3. sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi.