Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 49
ÁGÆTU Akureyringar!
Á kjördag er um 5 lista að velja
hér á Akureyri. Ljóst er að fylgi
þessara lista er mismunandi og hef-
ur sveiflast mikið að undanförnu, ef
marka má skoðanakannanir. Velta
má fyrir sér hvernig á þessum
sveiflum standi. Ein tilhneiging
virðist mér augljós, kjósendur vilja
breytingar og umfram allt breyt-
ingar til vinstri. Fylgið sveiflast frá
vinstri grænum yfir til lista fyrr-
verandi framsóknarfólks, þ.e. L-
listans, og framsóknarmanna.
Sjálfstæðismenn tapa aftur á móti
hlutfallslega og Samfylkingin
stendur í stað. Hvers vegna?
Tveir nýir listar
í boði á Akureyri
Að þessu sinni bjóða fram tveir
nýir listar við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Akureyri. Vinstri græn-
ir eru að bjóða fram í fyrsta skipti.
Samfylkingin er einnig að bjóða
fram í fyrsta skipti. Fulltrúar þess-
ara framboða störfuðu áður með
meirihlutanum í bæjarstjórn Akur-
eyrar undir merkjum Akureyrar-
listans. Samfylkingarfólk vann vik-
um saman að málefnalegum
undirbúningi fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar og kjósendum hefur
verið kynnt stefna listans í ræðu og
riti. Auk þess hefur málefnaskráin
verið birt á netinu. Hefur árangur
málefnavinnunnar ekki birst kjós-
endum?
Akureyringar vilja
vinstri breytingu
Skoðanakannanir undanfarinna
mánaða sýna að Akureyringar vilja
breytingu. Þeir eru orðnir þreyttir
á stjórnsýslu núverandi meirihluta,
einkum augljósum meirihluta sjálf-
stæðismanna. Kjósendur vilja nýtt
blóð, nýtt afl til forystu í bæjar-
félaginu. Þetta má skýrt greina af
skoðanakönnunum. Gallinn er bara
sá að grundvöll þessa nýja afls er
ekki að finna í stefnuskrá vinstri
grænna né framsóknarmanna af
ýmsu tagi heldur í stefnu Samfylk-
ingarinnar á Akureyri. Vita kjós-
endur ekki um þetta?
Ráða fordómar stjórnmála-
skoðunum Akureyringa?
Tilfinning mín er að kjósendur
viti um vandaða málaskrá Samfylk-
ingarinnar á Akureyri en sniðgangi
listann vegna fordóma í garð ein-
stakra frambjóðenda á listanum.
Vilja Akureyringar láta persónu-
fordóma ráða pólitískri afstöðu
sinni í stað málefna og stefnu?
Þessu vil ég ekki trúa að óreyndu
og hvet því alla réttsýna Akureyr-
inga, sem hafa jöfnuð og fé-
lagshyggju að leiðarljósi, að láta
ekki illkvittinn áróður formælenda
annarra lista villa sér sýn. Kjósum
Samfylkinguna á kjördag. Leggj-
um þannig grunn að fjögurra ára
tímabili samfylkingar um málefni
jöfnuðar, kvenfrelsis og fé-
lagshyggju á Akureyri í stað sér-
hyggju, eiginhagsmunagæslu og
einkavinavæðingar.
Tveir listar bjóða
fram í fyrsta skipti
Hermann
Óskarsson
Akureyri
Ráða fordómar, spyr
Hermann Óskarsson,
stjórnmálaskoðunum
Akureyringa?
Höfundur er 13. maður á lista Sam-
fylkingarinnar á Akureyri.
Forðafjör Líf og fjör
Nýtt fjölvítamín sem gefur þér
góðan forða af öllum vítamínum
og steinefnum í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
alltaf á föstudögum
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111