Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 64

Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 64
64 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                         ! "   #  % &  &    &                 '  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ er hreinn og beinn útúrsnún- ingur hjá Birni Bjarnasyni í fréttum á miðvikudag, að halda því fram að starfsmenn Sjálfstæðisflokksins tryggi lýðræðislega framkvæmd kosninganna. Hann veit að þessi umræða snýst um skipulagða njósnastarfsemi Sjálfstæðisflokks- ins og þykist því ekki skilja hvað um er að ræða. Starfsmenn kjördeilda eru þar til að tryggja að kosningar fari fram að lögum lýðveldisins og að ekki kjósi aðrir en þeir sem kosningarétt hafa. Til þess þurfa þeir ekki aðstoð Sjálf- stæðisflokksins, enda um að ræða starfsfólk undir stjórn kjörstjórnar viðkomandi kjördæmis. Snápar Sjálfstæðisflokksins hafa ekkert hlutverk hér. Þeir eru í kjördeildum fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að fylgj- ast með hverjir hafa kosið, svo hægt sé að beina persónulegum pólitísk- um þrýstingi að þeim sem ekki hafa kosið. Reynt er t.d. að hafa áhrif á þessa kjósendur með því að bjóða þeim akstur á kjörstað. Mér er spurn: Flokkast það undir mútur eða bara hlunnindi kjósenda af Sjálfstæðisflokknum? Telja þeir, sem Sjálfstæðisflokkurinn býður greiða á kjördag, sig skulda flokkn- um fyrir greiðann? Snápar stjórn- málaflokka í kjördeildum heyra til liðinni tíð, þegar það þóttu gildir sið- ir að hýða börn fyrir óþekkt og að lúta höfði vegna þjóðfélagslegrar yf- irburðarstöðu sem þeir höfðu. Snáp- ar þessir þykja mér ánauð á kosn- ingafrelsi mínu. Þeir skerða rétt minn til leynilegrar þátttöku í kosn- ingunum. Þeir eiga að hverfa með öllu úr kjördeildum. Þótt þessir augljósu annmarkar verði á kosningum hvet ég menn til að mæta snemma á kjörstað og kjósa eftir sannfæringu sinni. Það má aldrei bregðast. HAFSTEINN HJARTARSON, formaður Vinstri grænna í Kópavogi. Mannréttindabrot í kjörklefum Frá Hafsteini Hjartarsyni: ÁRIÐ 1949 gaf borgarstjórn Reykjavíkur skriflegt loforð þess efnis að land barnaheimilisins Steinahlíðar yrði aldrei skert. Land- ið var þá fjórir hektarar að stærð. Þetta skriflega loforð borgarstjórn- ar er áritað á þinglýsta eignarheim- ild fyrir eigninni sem varðveitt er hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Fyrir nokkrum árum samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur undir stjórn R-listans að taka um einn hektara af landi barnaheimilisins Steinahlíðar. Þar með vanvirti R- listinn hið gamla skriflega loforð borgarstjórnar. Landið var fjórir hektarar en er nú aðeins um þrír hektarar. Hinn brottnumdi hektari var síðan notaður til að flytja inn- keyrslu frá Sæbrautinni til hliðar um nokkra metra og að leggja gangstíg og gera stóran hól, allt saman framkvæmdir sem engin þörf var á. Gangbraut hefði mátt leggja meðfram innkeyrslu Sæ- brautar eins og hún var, nóg var pláss til þess utan girðingar Steina- hlíðar. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að loforð yfirvalda séu virt. Færa verður lóðarmörkin og girðinguna aftur á sinn gamla rétta stað og leggja veginn og gangstíginn utan girðingar. Þá fá börnin aftur skíða- brekkuna sem af þeim var tekin. R-listinn hefur sýnt að hann virð- ir ekki loforð borgarstjórnar og heldur ekki eigin kosningaloforð frá 1994 um að hækka ekki skatta. Með fyrstu verkum hans eftir hinn illa fengna kosningasigur var að bæta við holræsagjaldi og svíkja þannig sitt eigið loforð. Þessum peningum ber R-listanum auðvitað að skila aft- ur til húseigenda. CARL J. EIRÍKSSON, Skólagerði 48, Kópavogi. Siðleysi R-listans Frá Carli J. Eiríkssyni: SIGURÐUR Thoroddsen skrifar ágæta grein í Morgunblaðið 15. maí um verndun fyrrum lóðar Alaska í Breiðholti. Við það, sem hann segir um sögu Breiðholtsbæjar, má bæta að þar bjó Árni Helgason dómkirkjuprestur og síðar biskup og kennari við Bessa- staðaskóla. Þegar búskap var hætt á bænum hóf Jón H. Björnsson, fyrsti íslenski landslagsarkitektinn, uppbyggingu gróðrarstöðvar og síðan blómabúð- ar. Þarna plantaði Jón ýmsum trjám og runnum úr söfnunarferð sinni til Alaska árið 1951. Á lóðinni eru því tré og runnar sem varla eiga sinn líka hérlendis. Það er því sannarlega hægt að taka undir hugmynd Sigurðar um lysti- garð sem staðnum hæfir. Ég vil reyndar bæta því við að þar væri gott að byggja stóran gróður- skála sem fatlaðir og aldraðir gætu rölt um í vondum veðrum. Þar mætti einnig vera innanhúss skólagarður, fyrir ungviðið, sem ÍR hefur sinnt svo vel hinum megin við götuna – og alla hina. Breiðholtsbú- ar, „Við mótmælum allir“ fjölbýlis- húsum á staðnum. SVEINN INDRIÐASON, Þingaseli 9, Reykjavík. Verndum sögustaðinn Breiðholt Frá Sveini Indriðasyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.