Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Skeifan 17 • Sími 5504000 •www.atv.is KOSIÐ verður til sveitarstjórna í dag í 105 sveitarfélögum en þau voru 124 í sveitarstjórnarkosning- unum 1998. Alls eru 204.923 á kjör- skrá, 101.837 karlar og 103.086 kon- ur, og hefur þeim fjölgað um 5,8% frá síðustu sveitarstjórnarkosning- um. Að þessu sinni eiga 17.400 kost á að kjósa í fyrsta sinn, sem eru 8,5% af heildarfjölda kjósenda. Flestir eru á kjörskrá á höfuðborgarsvæð- inu, 129.214, og af þeim 82.508 í Reykjavík. Í Kópavogi eru 17.580 á kjörskrá, 13.989 í Hafnarfirði og 11.245 á Akureyri. Í ellefu sveit- arfélögum eru 50 eða færri á kjör- skrá. Fjöldi kjósenda er mjög mis- jafn eftir landshlutum, flestir á höfuðborgarsvæðinu en næstflestir á Norðurlandi eystra, 18.915. Á Suðurlandi eru 14.760 á kjörskrá, á Suðurnesjum 11.435, 10.061 á Vest- urlandi, 8.391 á Austurlandi, 6.669 á Norðurlandi vestra og 5.478 á Vest- fjörðum. Á kjörskrá eru 1.611 manns með lögheimili annars staðar á Norð- urlöndum, ríkisborgarar annarra ríkja á Norðurlöndum sem búsettir eru hér eru 907 og borgarar ann- arra ríkja eru 1.554. Kjörfundur hefst víða klukkan 9 Kjörfundur hefst á flestum stærri stöðunum klukkan 9 eða 10 og eru kjörstaðir opnir til kl. 22. Á minni stöðum verða kjörstaðir opn- aðir kl. 10 eða 12 og unnt að kjósa fram að kvöldmat. Í Reykjavík er kosið á ellefu stöðum. Búist er við fyrstu tölum í Reykjavík fljótlega upp úr klukkan 22 en aðsetur kjör- stjórnar er í Ráðhúsinu og þar verða atkvæðin talin. Alls eru 182 framboðslistar í boði. Eru boðnir fram listar í 66 sveitarfélögum og af þeim er sjálf- kjörið í sjö sveitarfélögum. Í 39 sveitarfélögum komu engir listar fram og verður þar óbundin kosn- ing. Í leiðbeiningum félagsmála- ráðuneytisins um óbundnar kosn- ingar segir að við óbundna kosningu séu allir kjósendur í sveit- arfélaginu í kjöri. Við kosningu skrifar kjósandi nöfn á kjörseðil, nöfn aðalmanna á efri hluta seðils- ins og nöfn varamanna á neðri hlut- ann. Konur skipa 41% af sætum fram- boðslistanna og karlar 59% en karl- ar eru í efstu sætum á 146 af list- unum 182. Fleiri kosið utankjörfundar en við seinustu þingkosningar Skv. upplýsingum Þóris Hall- grímssonar kjörstjóra utankjör- fundarkosningar í Reykjavík, höfðu ríflega 8.200 manns kosið utankjör- fundar um kvöldmatarleytið í gær. Eru það 1.500 fleiri atkvæði en á sama tíma fyrir seinustu alþing- iskosningar. Um 17.400 eiga kost á að kjósa í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningunum í dag Yfir 204 þúsund kjósend- ur í 105 sveitarfélögum HRAFNAGALDUR Óðins var frumfluttur á Íslandi á tónleikum Listahátíðar í Reykjavík í Laug- ardalshöll í gærkveldi fyrir fullu húsi áhorfenda. Var flytjendum, hljómsveitinni Sigur Rós, Hilmari Erni Hilmarssyni, kvæðamann- inum Steindóri Andersen, strengjasveit og kórnum Schola cantorum, ákaflega vel fagnað og þeir lengi hylltir. Árni Harðarson stjórnaði flutningi. Morgunblaðið/Þorkell Hrafnagaldri Óðins vel tekið SAUTJÁN manns, sennilega frá Rúmeníu eða Albaníu, leituðu hælis hér sem pólitískir flóttamenn um miðjan dag í gær, en fólkið hefur að öllum líkindum komið til landsins með Norrænu að morgni fimmtu- dagsins. Þetta er fjölmennasti hóp- ur sem leitað hefur hælis hér á landi sem pólitískir flóttamenn í einu lagi. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Út- lendingaeftirlitsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi, að rannsókn málsins væri á algeru frumstigi, en fólkið hefði gefið sig formlega fram við Útlendingaeftir- litið milli klukkan þrjú og fjögur í gær og farið fram á hæli sem póli- tískir flóttamenn. Áður hefðu sumir verið búnir að gefa sig fram við Rauða krossinn, lögmannsstofu og lögreglu, auk Útlendingaeftirlitsins, en síðan hefði niðurstaðan orðið sú að fólkið hefði allt formlega gefið sig fram við Útlendingaeftirlitið og ósk- að hælis. Fólkið væri skilríkjalaust nú og væri á öllum aldri, það yngsta ungabarn og það elsta á áttræð- isaldri. Fólkið hefði verið þreytt og slæpt eftir langt ferðalag en að öðru leyti ekki illa á sig komið og hefði það verið vistað hjá Rauða kross- inum meðan mál þess væri í rann- sókn. Georg sagði að málið væri til rannsóknar hjá lögreglu og um helgina myndu verða teknar frum- skýrslur af fólkinu. Í framhaldinu myndi Útlendingaeftirlitið rannsaka hvort umsókn þess um hæli sem pólitískir flóttamenn væri á rökum reist og hvort það uppfyllti skilyrði í þeim efnum, svo sem lög mæltu fyr- ir um. Sú athugun gæti tekið viku og allt upp í 3–6 mánuði eftir atvik- um. Georg sagði að ekki væri vitað með vissu hvernig fólkið hefði komið til landsins né hvaðan það kæmi, en líklegast væri að það hefði komið til landsins með Norrænu að morgni fimmtudagsins og þá annað hvort frá Hanstholm í Danmörku eða Bergen í Noregi þaðan sem ferjan sigldi. 17 manns leita eft- ir pólitísku hæli Taldir hafa komið með Norrænu TÆP 70% telja lambakjöt ósvikinn sunnudags- eða helgarmat og 62% telja lambakjöt best til matreiðslu og treysta því að það „bragðist allt- af fullkomlega“ samkvæmt nýrri neyslu- og viðhorfskönnun sem unnin var fyrir Markaðsráð lamba- kjöts. Tæp 40% segja lærið eftir- lætishluta sinn af lambinu og tæp 24% velja hrygginn. Um var að ræða vettvangskönn- un í verslunum þar sem 30 spurn- ingar voru lagðar fyrir 927 manns, 18 ára og eldri, í verslunum víða um land. Söluaukning varð á lambakjöti í mars og apríl eftir mikinn samdrátt undanfarna mánuði, nánar tiltekið um 29% í mars og 22% í apríl, og segir Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Landssamtaka sauðfjár- bænda, að samdráttur í sölu fyrir jól og eftir áramót hafi verið sá mesti sem menn hafi séð í grein- inni. Sala á lambakjöti dróst saman um 43% í desember, 17,4% í janúar og 24,2% í febrúar, að hans sögn. 70% telja lambakjöt ósvikinn helgarmat  Rúm 62% telja/32–33 ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik vann Svía 31:23 í landsleik á móti í Belgíu í gær- kvöldi. Þetta er fyrsti sigur Íslend- inga á Svíum síðan 21. desem- ber 1988, eða í tæp 14 ár, en þá vann Ísland 23:22 í Laugardals- höll. Þjóðirnar hafa síðan leikið 17 landsleiki þar sem Svíar sigruðu í 16 en einu sinni varð jafntefli. Íslenska liðið mætir því danska í dag. Fyrsti sig- ur á Svíum í handbolta í 14 ár  Stórsigur/B1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.