Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 1
126. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 31. MAÍ 2002
VAXANDI skærur og átök voru á
landamærum Indlands og Pakist-
ans í gær jafnframt því sem Pak-
istanar fluttu þangað mikið lið frá
landamærunum við Afganistan. Er-
lend ríki reyna enn að miðla mál-
um í deilunni og meðal annars hef-
ur Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, boðað
komu sína til ríkjanna í næstu
viku.
Talsmenn indverska hersins
sögðu, að stórskotahríðin hefði
staðið í alla fyrrinótt og hefðu
nokkrir óbreyttir borgarar fallið.
Indverski fréttaskýrandinn Balraj
Puri sagði í gær, að ástandið væri
mjög alvarlegt, ekki síst eftir að
tveir múslímskir skæruliðar felldu
þrjá indverska lögreglumenn í
Kasmír. Féllu þeir sjálfir í átökum
við indverska hermenn.
Aukinn viðbúnaður
við landamærin
Talsmaður pakistanska hersins
sagði í gær, að herlið hefði verið
flutt frá landamærunum við Afgan-
istan til héraðanna Rajasthans og
Punjabs en þau hafa verið mikill
vígvöllur í fyrri átökum milli
ríkjanna. Atal Behari Vajpayee,
forsætisráðherra Indlands, átti í
gær fund með þremur helstu ráð-
gjöfum sínum í öryggismálum en
lítið var látið uppi um fundarefnið.
Í Indlandi er þess nú krafist,
jafnt innan stjórnar sem utan, að
stjórnvöld segi upp 42 ára gömlum
vatnssamningi við Pakistan. Sam-
kvæmt honum nýta Indverjar vatn-
ið í þremur fljótum, Sutlej, Beas og
Ravi, en Pakistanar fljótin Indus,
Jhelum og Chenab. Indverjar geta
svipt þá þessu vatni en það þýddi,
að stór hluti af Pakistan yrði
vatnslaus. Vilja fáir trúa, að til
þess verði gripið enda gæti það
hleypt öllu í bál og brand.
Vaxandi átök
og liðsflutningar
Nýju Delhi. AP, AFP.
Lagt að Indlands-
stjórn að rifta
vatnssamningi
við Pakistan
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu
hefst í Japan og Suður-Kóreu í dag
og verður fyrsti leikurinn á milli
heimsmeistara Frakka og Senegala.
Fer hann fram í Seoul í S-Kóreu og
hefst útsending hans klukkan 11.30
að íslenskum tíma. Útsending frá
opnunarhátíðinni hefst klukkutíma
fyrr. Mótið stendur út allan júní-
mánuð og lýkur með úrslitaleik
hinn 30. Veggmyndin er af einum
leikmanna japanska liðsins, en í
Japan og S-Kóreu og vafalaust víð-
ar ríkir nú sannkallað fótboltaæði.
AP
HM að hefjast
Sjá bls. 28 og C3–6.
HREINSUNARSTARFI vegna
hryðjuverkanna í New York fyrir
rúmum átta mánuðum lauk í gær
og var þess minnst með látlausri
athöfn. Var silfurklukku hringt
20 sinnum eins og venjan er við
útför bandarískra slökkviliðs-
manna og síðasti stálbitinn í turn-
um World Trade Center-bygg-
ingarinnar var fluttur á brott
sveipaður bandaríska fánanum.
Þá voru sjúkrabörur með fán-
anum bornar inn í sjúkrabíl til
minningar um alla þá, um 2.000
manns, sem ekki tókst af finna í
rústunum. Gengu sekkjapípuleik-
arar og trommuslagarar í þremur
fylkingum á eftir bílnum. George
W. Bush, forseti Bandaríkjanna,
minntist í gær þeirra, sem létust,
rúmlega 2.800 manna, og færði
þeim þakkir, sem lagt hefðu nótt
við dag við leitina og við hreins-
un rústanna í átta mánuði.
Reuters
Leitar- og hreinsunar-
starfi lokið í New York
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og
Evrópusambandsríkjunum, ESB,
leggja nú aukna áherslu á fyrirhug-
aða ráðstefnu um frið milli Ísraela og
Palestínumanna en vonir um að hún
verði haldin núna snemmsumars hafa
dofnað. Yasser Arafat, leiðtogi Pal-
estínumanna, lét í gær undan miklum
þrýstingi innanlands sem utan og
undirritaði fimm ára gömul lög um al-
menn mannréttindi.
William Burns, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, átti í gær
fund með Arafat, sem þá var nýkom-
inn af fundi með Joschka Fischer, ut-
anríkisráðherra Þýskalands. Hafði
Fischer áður átt viðræður við Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels.
George Tenet, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, mun eiga
fund með deiluaðilum á næstu dögum
og einnig Javier Solana, sem fer með
utanríkismál í ESB. Þá ætlar Osama
al-Baz, nánasti ráðgjafi Hosni Mub-
araks, forseta Egyptalands, að ræða
við Sharon í dag.
Hart lagt að Arafat
Burns sagði í gær er hann var á leið
til fundar við Arafat, að niðurlæging
Palestínumanna undir ísraelsku her-
námi ykist dag frá degi og henni yrði
að ljúka. Var litið á ummælin sem inn-
legg í viðræðurnar við Arafat en
Burns og aðrir vestrænir sendimenn
leggja ofuráherslu á, að Arafat komi
strax á umbótum. Ísraelar setja það
líka sem skilyrði fyrir friðarráðstefnu,
að komin verði á eiginleg stjórn meðal
Palestínumanna. Vilja þeir, að Arafat
verði gerður að valdalausum forseta
en aðrir haldi um stjórnvölinn.
Stefnt var að því að halda ráðstefn-
una snemmsumars en bandarísk
stjórnvöld sögðu í gær, að líklega yrði
hún ekki fyrr en eftir mitt sumar og
þá í Tyrklandi. Arabaríkin setja það
líka sem skilyrði fyrir þátttöku, að
Ísraelsher taki sér þá stöðu sem hann
hafði fyrir uppreisn Palestínumanna.
Hert á
friðarum-
leitunum
Jerúsalem, Ramallah. AP, AFP.
Lífið heldur áfram/6
NÚ á dögum ráða tilviljanir
mestu þegar íþróttamet eru
slegin en ekki hæfileikar kepp-
endanna. Er það niðurstaða
breskra vísindamanna, sem
segja, að í raun séu menn
komnir að endimörkum getu
sinnar að þessu leyti.
Sífellt er verið að setja nýtt
met, til dæmis í hlaupagrein-
um, þótt yfirleitt sé aðeins um
að ræða lítið sekúndubrot í
hvert skipti. Þannig getur það
þó ekki gengið endalaust og af
þeim sökum hefur hópur
breskra stærðfræðinga skoðað
þann árangur, sem náðst hefur
í ýmsum greinum, til dæmis í
200 og 1.500 metra hlaupi og
maraþonhlaupi. Sagði frá
þessu á fréttavef BBC í gær.
Samkvæmt þeirra útreikn-
ingum hafa tilviljanir ráðið
mestu um framfarirnar síð-
ustu 20 árin, svo sem áhrif
vinds, loftslags og hæðar yfir
sjó. Dr. John Taylor við Kings
College í London segist telja,
að menn séu komnir að endi-
mörkum líkamlegrar getu í
íþróttunum. Í nokkrum grein-
um hafi þó orðið miklar fram-
farir upp á síðkastið en líklega
séu þær að þakka nýjum
reglum, betri tækni og jafnvel
svindli, það er að segja lyfja-
notkun.
„Ef eitthvert eitt ár sker sig
úr varðandi árangur í ein-
hverri grein, þá er þar líklega
eitthvað á seyði, sem vert er
að athuga,“ segir Taylor.
Árangur í íþróttum
Komið
að endi-
mörkum?