Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sími 462 2901
sími 462 2900
Erum
líka
á
Glerártorgi
Blómin
í bænum
KÓR Félags eldri borgara á Ak-
ureyri heldur söngskemmtun í
Glerárkirkju á morgun, laug-
ardaginn 1. júní, og hefst hún kl.
16.
Kórinn hefur æft stíft í vetur og
m.a. farið í heimsóknir á sjúkra-
stofnanir og sungið fyrir vistfólk
og einnig hefur kórinn sungið við
messur. Kórinn hefur sungið í ná-
grannabyggðum og nýlega tók
hann þátt í kóramóti á Húsavík.
Í byrjun júní hyggst kórinn fara
í söngferð til Færeyja. Söngskráin
á tónleikunum er fjölbreytt og
skemmtileg, segir í frétt frá kórn-
um, bæði kórsöngur og ein-
söngur. Stjórnandi er Guðjón
Pálsson. Aðgangseyrir er 1.000
krónur og allir eru velkomnir.
Kór Félags eldri borgara heldur söngskemmtun
FYRIRTÆKIÐ Bonus Ortho Syst-
em hefur starfað í Ólafsfirði í rúmt ár
og hefur starfsmönnum þess fjölgað
um 6 nú á liðnum vetri. Nýlega var
svo bætti við 4 starfsmönnum, sem
eru í 2,5 stöðugildum.
„Það er mjög ánægjulegt að geta
fjölgað starfsmönnum,“ sagði Einar
Stefánsson, sjúkraskósmiður og
verksmiðjustjóri. „Við höfum stefnt
að því að auka umsvifin hér í Ólafs-
firði en allt hefur sinn tíma. Verkefn-
unum hefur fjölgað en við framleiðum
svonefnda bæklunarskó hér fyrir
norðan. Allt sem við framleiðum er
fyrirfram pantað, þannig að við eigum
ekki lager, allt er selt fyrirfram.“
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
heimsótti fyrirtækið á dögunum og
skoðaði tækjakost þess og húsnæði.
Lýsti hann ánægju sinni með flutning
fyrirtækisins í Ólafsfjörð og sagði það
sýna að landsbyggðin réði við fyrir-
tæki af þessari stærð og gerð.
Skógerð Bonus Ortho System
Starfsmönnum fjölgað
Ólafsfjörður
FÉSTA, Félagsstofnun stúdenta á
Akureyri, áformar að kaupa að
minnsta kosti 10–12 íbúðir á Akur-
eyri ef fjármögnun gengur eftir.
Fyrir á stofnunin 83 einingar, her-
bergi og íbúðir í bænum. Jónas
Steingrímsson, rekstrarstjóri
FÉSTA, sagði að mikil eftirspurn
væri eftir húsnæði stofnunarinnar
og að full þörf væri á að fjölga íbúð-
um.
FÉSTA leitaði eftir tilboðum á
dögunum og bárust tilboð frá þrem-
ur byggingaverktökum. Samkvæmt
útboðsauglýsingu er um að ræða
byggingu 50–75 fermetra tveggja og
þriggja herbergja íbúða fyrir stúd-
enta við Háskólann á Akureyri.
Að sögn Jónasar sendu bygginga-
fyrirtækin Hyrna, P. Alfreðsson og
Fjölnir inn tilboð og í kjölfarið var
ákveðið að hefja viðræður við Hyrnu
og P. Alfreðsson um hugsanlega
framkvæmd. Jónas sagði að P. Al-
freðsson ætti lóð við Tröllagil en að
Hyrna hefði leitað eftir lóð undir
íbúðirnar við leikskólann Kiðagil og
væru báðir staðirnir mjög áhuga-
verðir.
Jónas sagði að Hyrna væri að
bjóða íbúðir í fjölbýlishúsum í ná-
grenni Kiðagils en að hugmyndin
væri að byggja allt að 8 hæða hús á
lóð P. Alfreðssonar við Tröllagil. Þar
hefði jafnframt verið rætt um að
leikskóli yrði á fyrstu tveimur hæð-
unum. „Við erum mjög spenntir fyrir
því enda margir okkar umbjóðenda
með börn.“ Á næstu hæðum yrðu svo
um 25 íbúðir og geymslur í kjallara
en Jónas sagði að ekkert hefði þó
enn verið ákveðið í þessum efnum.
Mikil eftir-
spurn eftir
húsnæði
FÉSTA vill fjölga
stúdentaíbúðum
SLÉTTBAKUR EA, hinn nýi
frystitogari Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. kom til heimahafnar úr
sínum fyrsta túr á vegum félagsins
í vikunni. Afli skipsins var tæp 530
tonn, aðallega grálúða og aflaverð-
mætið rúmar 136 milljónir króna.
Sléttbakur hélt til veiða 21. apríl
sl., samkvæmt frétt á heimasíðu
ÚA en til að byrja með var tog-
arinn úti fyrir Norðurlandi þar
sem tækjabúnaður var yfirfarinn
og prófaður. Síðan var haldið á
grálúðumiðin fyrir vestan land, en
skipið var m.a. að veiðum um 90
mílur vestur af Bjargtöngum,
skammt frá miðlínu Íslands og
Grænlands. Skipstjóri í þessum
fyrsta túr Sléttbaks EA 304 var Ív-
an Brynjarsson.
Morgunblaðið/Kristján
Unnið við löndun úr Sléttbak EA.
Aflaverðmætið 136
milljónir króna
Nýr Sléttbakur í heimahöfn
SKÁKFÉLAG Akureyrar stendur
fyrir hraðskákmóti í kvöld, föstudag.
Mótið fer fram í Íþróttahöllinni og
hefst kl. 20. Umhugsunartími á
keppanda er fimm mínútur og er öll-
um heimil þátttaka.
Hraðskákmót
í kvöld
MIKIL þátttaka er á vorfundi Sam-
orku, sem hófst á Akureyri í gær.
Um 40 fyrirlestrar eru fluttir á vor-
fundinum, sem lýkur í dag, föstu-
dag. Slíkir fundir eru haldnir á
þriggja ára fresti og er þetta þriðji
fundurinn sem haldinn er á Ak-
ureyri. Fjallað er um málefni
veitna, bæði sameiginleg málefni
og sérmál fagsviða. Í tengslum við
fundinn var efnt til kynningar á
vörum og þjónustu fyrir veitur. Yf-
ir 20 fyrirtæki taka þátt í sýning-
unni.
Vorfundur
Samorku
Morgunblaðið/Kristján
♦ ♦ ♦
Ertu búinn að gera upp hug þinn?
Auðlindadeild: fiskeldi, líftækni, sjávarútvegsfræði, umhverfisfræði
Heilbrigðisdeild: hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun
Kennaradeild: leikskólabraut, grunnskólabraut, nútímafræði
Rekstrardeild: ferðaþjónusta, fjármál, markaðsfræði, stjórnun, upplýsingatækni
Upplýsingatæknideild: tölvunarfræði
Umsóknarfrestur rennur út 1. júní 2002
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Háskólans á Akureyri, sími 463-0900 og á heimasíðu
háskólans www.unak.is
Nánari upplýsingar m.a. um námið, inntökuskilyrði og æskilegan undirbúning eru veittar á
viðkomandi deildarskrifstofum.
Umsóknarfrestur um stúdentagarða er til 20. júní 2002. Upplýsingar veittar í síma 894-0787.