Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 34

Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 34
LISTIR/KVIKMYNDIR 34 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ RAPPSTJARNAN og leikarinn Ice Cube er framleiðandi, einn handrits- höfunda og aðalleikari gamansama glæpatryllisins All About the Benjamins sem frumsýnd verður í dag. Miami-búinn Bucum Jackson, sem leikinn er af Ice Cube vinnur við að elta uppi fólk fyrir Martinez-trygg- ingagreiðslufyrirtækið og passar að verðandi tugthúslimir stingi ekki af frá tryggingagreiðslum, sem halda þeim á götunni fyrir dómsúrskurð. Bucum er orðinn þreyttur á þessu hættulega og láglaunaða starfi enda ber hann þann draum í brjósti að geta einhvern daginn opnað sína eigin einkaspæjaraskrifstofu. Þar sem hann vantar sárlega fé til að draumar hans verði að veruleika, tekur hann að sér að elta uppi smáglæpamanninn Reggie Wright (Mike Epps) sem er sjálfstraustið uppmálað og málglaður með eindæmum. Þetta eru ekki fyrstu kynni Bucums og Reggies enda hyggst Reggie ekki láta góma sig á ný og felur sig í sendiferðabíl í nágrenninu. Gallinn er bara sá að í sendibílnum eru demantaþjófar í þjónustu hins hættulega glæpamanns og skútusala Williamson (Tommy Flanagan) og ránsfengur þeirra, eð- alsteinar upp á 20 milljónir dollara. Hvorki Reggie né Bucum hafa mik- inn áhuga á að verða á vegi William- sons en þar sem Reggie hefur gleymt veski sínu í sendibílnum er málið ann- að. Í veski hans er nefnilega að finna lottómiða með 60 milljóna dollara vinningi og slíkt er ekki eitthvað sem maður bara skilur eftir. Upp úr þessu hefst mikill eltingarleikur þar sem þessir ólíku félagar leggja til atlögu gegn Williamson og hyski hans. Og ætlunin er að sjálfsögðu að góma bæði vinningsmiðann og steinana dýrmætu. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans Kevins Brays, en hann hefur hingað til aðallega fengist við gerð tónlistar- myndbanda. Leikarar: Ice Cube (Higher Learning, Three Kings); Mike Epps (Bait, Dr. Do- little 2); Tommy Flanagan (Braveheart, Face/Off, Gladiator); Eva Mendes (Exit Wounds, Training Day). Leikstjóri: Kevin Brays. Allt fyrir aurana Ice Cube í gamanmyndinni All About the Benjamins. Laugarásbíó frumsýnir All About the Benjamins með Ice Cube, Mike Epps, Tommy Flanagan og Eva Mendes. ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN Kevin Costner fer með aðalhlutverk- ið í yfirnáttúrulegum spennutrylli, sem ber titilinn Dragonfly, og er í leikstjórn Tom Shadyac, sem hóf feril sinn sem leikstjóri árið 1994 með Ace Ventura: Pet Detective með Jim Car- rey í aðalhlutverki. Í kjölfarið fylgdi The Nutty Professor með Eddie Murphy og þá Liar Liar. Nýlega leik- stýrði Shadyac Robin Williams í Patch Adams, sem hlaut Golden Globe-tilnefningar. Í Dragonfly fer Costner með hlut- verk dr. Joe Darrow, yfirlæknis bráðamóttöku Chicago Memorial Hospital, sem syrgir eiginkonu sína og ákveður að komast að því hvers vegna hún hafi dáið vanfær í dular- fullu bílslysi í Suður-Ameríku eftir að hún birtist honum í tíma og ótíma eft- ir dauða sinn. Eiginkonan Emily Darrow, sem sjálf starfaði sem lækn- ir, var í vinnuferð þegar hún lenti í rútuslysi á afskekktum fjallavegi í Venesúela, en áður hafði Joe reynt að koma í veg fyrir að hún tæki sér ferðalagið á hendur. Í sorg sinni hugsar hann stöðugt um Emily og á í mikilli baráttu við að takast á við missi eiginkonunnar. Upp koma ýms- ar vangaveltur um hvað taki við þegar lífinu sleppir, en loks afræður hann að fara á fund nunnunnar og miðilsins Madeline og lofa framleið- endur myndarinnar óvænt- um endi. Universal Pictures og Spy- glass Entertainment senda frá sér þessa mynd, sem framleidd var af Mark John- son, Tom Shadyac, Roger Birnbaum og Gary Barber. Handritið skrifuðu Brand- on Camp, Mike Thompson og David Seltzer. Leikarar: Kevin Costner (The Postman, A Perfect World, Thir- teen Days); Joe Morton (Ali, Bounce, What Lies Beneath); Ron Rifkin (The Negotiator, LA Confidential, Manhattan Murd- er Mystery); Kathy Bates (Misery, Prim- ary Colors, Rat Race); Linda Hunt (The Year of Living Dangerously, Kinder- garten Cop, Silverado); Susanna Thomp- son (Random Hearts, Ghosts of Miss- issippi, When a Man Loves a Woman). Leikstjóri: Tom Shadyac. Barátta við ástvinamissi Kevin Costner fer með aðalhlutverkið í spennutryllinum Dragonfly. Háskólabíó frumsýnir Dragonfly með Kevin Costner, Joe Morton, Ron Rifkin, Kathy Bates, Linda Hunt og Susanna Thompson. Í SPENNUTRYLLINUM High Crimes, sem frumsýndur verður í dag, fer Ashley Judd með hlutverk lögmannsins Claire Kubik, sem tek- ur að sér að verja eiginmann sinn Tom. Hann er ákærður fyrir hrottalega glæpi, sem hann er sagður hafa framið áður en hún kynntist eiginmanni sínum. Hann þvertekur fyrir að hafa nokkru sinni komið nálægt þeim voðaverk- um, sem hann er sakaður um. Hún trúir og treystir manni sínum, sem er farsæll byggingaverktaki, en þegar málið er kannað ofan í kjöl- inn, fara að vakna ýmsar spurn- ingar í huga lögfræðingsins og eig- inkonunnar. Sú fullkomna veröld, sem þau lifa og hrærast í, fer að riðlast. Spennan magnast og spurn- ingin er hverju og hverjum treyst- andi er. Að lokum þarf Claire að hætta starfsframa sínum og lífi til að komast til botns í sannleikanum. Tilviljunakennt klaufalegt rán á heimili þeirra Claire og Tom verður til þess að hrinda af stað röð at- burða, sem verða til þess að splundra annars hamingjusömu lífi þeirra hjóna. Fljótlega eftir ránið er Tom heimsóttur af FBI og hand- tekinn undir nafninu Ronald Chap- man. Claire til mikillar undrunar, er henni tjáð að hann sé fyrrver- andi njósnari, sem myrt hafi óbreytta borgara í El Salvador og hafi verið á flótta undanfarin fimm- tán ár. Þetta er fjórða kvikmynd leik- stjórans Carl Franklin, sem hlotið hefur ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, en áður hefur hann leik- stýrt One False Move, Devil in a Blue Dress og One True Thing. Franklin hefur leikstýrt nokkrum sjónvarpsþáttum, en hann hóf sinn feril að afloknu háskólanámi sem nokkuð farsæll leikari í leikhúsum jafnt sem í kvikmyndum. Framleið- andi myndarinnar eru Arnon Milchan, Janet Yang og Jesse B’Franklin, en handritshöfundar eru hjónin Yuri Zeltser og Cary Bickley sem bæði saman og sitt í hvoru lagi hafa komið að fjölmörg- um kvikmyndahandritum. Leikarar: Ashley Judd (Someone Like You, Where the Heart Is, Double Jeop- ardy); Morgan Freeman (The Shaw- shank Redemption, Driving Miss Daisy, Street Smart); Jim Caviezel (The Count of Monte Cristo, Angel Eyes, Pay It Forward); Amanda Peet (The Whole Nine Yards, Jack and Jill, Changing Lanes); Adam Scott (Seven and a Match, Ronnie, Dinner and Driving. Leikstjóri: Carl Franklin. Eiginmaður sakaður um glæpi Claire Kubik (Ashley Judd) ræðir við eiginmann sinn Tom (James Cav- iezel) sem situr inni ákærður fyrir hrottalega glæpi fimmtán árum fyrr. Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna High Crimes með As- hley Judd, Morgan Freeman, Jim Cav- iezel, Amanda Peet og Adam Scott. HROLLVEKJAN The Queen of the Damned, sem frumsýnd verður í Sambíóunum í dag, er byggð á bók skáldkonunnar Anne Rice og er þriðja bókin í bókaflokki, sem heitir Vampire Chronicles, en margir muna eflaust eftir Tom Cruise í hlutverki Lestat í myndinni Viðtal við vamp- íruna. Lestat þessi snýr hér aftur, en að þessu sinni er hann rokkstjarna í New York og er leikinn af hinum írs- kættaða Stuart Townsend. Tónlist hans er svo mögnuð að hún vekur upp gamla vampíru, Akasha að nafni, en hana leikur söngkonan Aal- iyah, sem lést í flugslysi eftir að tök- um myndarinnar lauk snemma á síð- asta ári. Vampíran Akasha er svo máttug að allar aðrar vampírur verða að sameinast til að sigrast á henni. Á sama tíma og tónlist Lestat heillar Akasha, verður ung kona, Jesse, ást- fangin af Lestat og spillir þar með fyrir Lestat og Akasha. Vegna flug- slyssins var frumsýningu myndar- innar frestað fram í mars á þessu ári, en Aaliyah var söngkona hljómsveit- arinnar L&C og var á leið heim eftir upptökur nýrrar hljómplötu þegar vél hennar hrapaði með þessum hörmulegu afleiðingum. Aalyiah þyk- ir sýna góða leiktilburði í myndinni og segja framleiðendur það vera ljúf- sára staðreynd að myndin skuli vera vitnisburður um þá hæfileika, sem hún hafi búið yfir sem listamaður. Tónlistin var í höndum þeirra Richard Gibbs og Jonathan Davis. Kvikmyndahandritið skrifuðu þeir Scott Abbott og Michael Petroni upp úr bók Rice. Framleiðandi er Jorge Saralegui, en leikstjóri er Michael Rymer, sem ákvað að taka myndina upp í fæðingarborg sinni í Melbourne í Ástralíu. „Arkitektúr borgarinnar sameinaði fullkomlega allt það sem við þurftum í myndina og því þurft- um við ekki að leita neitt annað.“ Leikarar: Stuart Townsend (Resurrection Man, Shooting Fish, Wonderland); Aaliyah (Romeo Must Die, Music of the Heart, Next Friday); Marguerite Moreau (Off the Lip, Fire- starter: Rekindled, Wet Hot American Summer); Vincent Perez (Bride of the Wind, I Dreamed of Africa, Swept from the Sea); Lena Olin (Darkness, Choco- lat, Mystery Men). Leikstjóri: Michael Rymer. Vampíra vakin upp Aaliyah heitin í kvikmyndinni Queen of the Damned. Sambíóin í Álfabakka, Kringlunni og á Akureyri frumsýna The Queen of the Damned með Stuart Townsend, Aaliyah, Marguerite Moreau, Vincent Perez og Lena Olin. Á SÍÐASTA ári fengum við for- smekkinn af gítarleikaranum Varða (Hallvarður Ásgeirsson) í lunkinni heimildarmynd um tilraunir hans til að hafa í sig og á í sveitaballabrans- anum. Höfundur myndarinnar, Grímur Hákonarson, lagðist síðan á síðastliðnu sumri í víking með Varða vini sínum. Húnaver kvatt og Hellis- sandur en stefnan tekin á meginland- ið. Nú átti að reyna á hæfileika gít- arleikarans sem götusöngvara (trúbador). Þar er fyrst til að taka að Varði hefur ekki til að bera þessa ímynd sem fólk sér fyrir sér þegar slíkir listamenn koma upp í hugann. Ekki harður nagli að sjá einsog KK, sá hljómlistarmaður sem hefur náð lengst á þessu sviði af Íslendingum, eða Bubbi. Maður hefur meiri trú á að slíkar manngerðir séu betur til þess fallnar að ná árangri á berangri stræta og torga Evrópuborga, innan- um þá mislitu hjörð sem þar reikar um. Varði er á hinn bóginn blíðlegur og góðlyndislegur náungi, útlitsleg andhverfa þess sem þarf til að draga fram lífið á tónlistarlegu þjórfé al- múgans. En hann er ekki allur þar sem hann er séður. Þeir félagar gera stuttan stans í Þórshöfn áður en slagurinn hefst í Noregi. Til að byrja með hyggst landi Varða leggja land undir fót með hon- um en springur strax á limminu. Varði hittir í upphafi þá bræður Pét- ur og Kristján (KK) Kristjánssyni, sem gefa honum góð ráð. M.a. að reyna að hafa upp á Leo Gillespie, goðsögn í stétt götusöngvaranna, margsjóaðan í list sinni, frá Bangkok til Breiðdalsvíkur. Varði hefur ekki lengi arkað um Noreg er hann hittir þennan merkismann fyrir í smábæ í Suður-Noregi. Leo er einn af mörgum og misjöfn- um karakterum sem ljúflingurinn Varði kynnist eða treður upp með á strætum Óslóar, Hamborgar, Amst- erdam, Parísar og víðar, og sá merki- legasti. Í rödd hans og veðruðu útliti má greina hið raunverulega útlit og hjartslátt hins ósvikna, margreynda trúbadors. Aðrir eru vafasamari, líkt og öfgamaðurinn Crazy Steve, sem Varði kynnist á götum Hamborgar. Sá litríkasti er Paul Sanith, létt- geggjaður þungarokkstrúbador austan frá Laos. Samfélagið í stétt trúbadora er svo sannarlega hin und- arlegasta blanda þar sem engin landamæri þekkjast hvað snertir persónuleika, þjóðerni, litarhátt né hæfileika. Það kemur hinsvegar sterklega fram í Varði Goes Europe, að vogarskálar og sentimetramál ESB er komið með fingurna í þessa aldagömlu listgrein götusöngvar- anna, fangar hana í sínar óþolandi reglugerðir og leyfisveitingar, líkt og flest annað. Það má ekki spila á þessu horni, enga hátalara þar, magnara- bönn hér, o.s.frv. Hræðileg þróun, maður minnist allra ánægjustund- anna með þessu fólki í hinum ólíkustu borgum í gegnum tíðina. Ekki síst Amsterdam, þar sem fleiri en eitt raf- magnað band tróðu upp á hverju torgi borgarinnar á góðum degi, auk urmuls trúbadora. Myndin leiðir líka hugann að bágbornu ástandinu hér heima. Fyrir nokkrum árum varð ég vitni að því að götuband frá S-Am- eríku hóf upp raust sína með Bridge Over Troubled Water (hvað annað?) í Austurstræti, vegfarendum til ánægju og yndisauka. Ég hafði séð þá dandalast um Hamborg nokkru áður í guðs friði og manna. En Reykjavík var allt önnur Ella. Þegar ponsjóklæddir indjánarnir tóku ofan sombreróana og hugðust innheimta sinn skemmtanaskatt var löggan samstundis mætt og lét ófriðlega. Gamanið úti. Ef miðbær Reykjavíkur á að vakna til lífsins, t.d. þetta grákalda, stein- gelda, mannlausa og mislukkaða Ing- ólfstorg (munið þið lífið á Hallæris- planinu á kvöldin í den?), er þá nokkuð snjallara en að breyta því í at- hvarf trúbadora og annarra götu- listamanna, sem mættu leggja hatt- kúf sinn eða buðk á götuna? Þá gæti þessi grámóska blómstrað á ný. Varði mætti gjarnan fara fremstur. Hefur sannað að hann er til alls vís í einstaklega skemmtilegum og blátt áfram heimildarmyndum Gríms, sem kann þá list að skrásetja atburðina án tilgerðar og sjálfumgleði. Myndirnar hans (um Varða) renna frá upphafi til enda í einkar þægilegum og kómísk- um farvegi og skilja við mann sáttan. Varði á vegum úti KVIKMYNDIR Háskólabíó Leikstjórn, handrit og kvikmyndataka: Grímur Hákonarson. Klipping: Arnar Steinn Friðbjarnarson. Hljóðvinnsla: Ein- ar Hjartarson. Heimildarmynd. Sýning- artími 86 mín. Óháða kvikmyndagerðin. Ísland. 2002. VARÐI GOES EUROPE  Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.