Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 63
DAGBÓK
ÞAÐ ER vandi að velja.
Svíningar fyrir þrjár drottn-
ingar standa til boða í lauf-
slemmu suðurs og megin-
verkefnið er að velja og
hafna. Spilið kom upp á
landsliðsæfingu um helgina:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ --
♥ ÁG52
♦ ÁG643
♣Á1042
Suður
♠ D94
♥ K9
♦ K105
♣KG963
Spilað var á þremur borð-
um. Lokasögnin varð alls
staðar sex lauf, en aðdrag-
andinn mjög mismunandi. Á
einu borði gengu sagnir
þannig fyrir sig:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 2 spaðar 3 lauf
3 spaðar 4 spaðar * Pass 5 lauf
Pass 6 lauf Allir pass
Hvernig myndi lesandinn
spila með spaðaás út?
Möguleikarnir virðast
ótæmandi. Það má toppa
trompið eða svína á hvorn
veginn sem er. Í tígli er
hægt að svína í báðar áttir
og það mætti svína hjarta-
gosa eða reyna að fella
drottninguna þriðju. Verk-
efnið er að samnýta mögu-
leikana á sem hagkvæmast-
an máta.
Þetta er ein leið: Spaðaás-
inn trompaður, hjarta spilað
á kóng og spaði stunginn.
Laufás tekinn (báðir fylgja
smátt), svo hjartaás og
hjarta trompað með gosa.
Og spaði stunginn. Farið
heim á tígulás og laufkóngur
tekinn.
Norður
♠ --
♥ ÁG52
♦ ÁG643
♣Á1042
Vestur Austur
♠ Á862 ♠ KG10753
♥ 7643 ♥ D108
♦ 82 ♦ D97
♣D75 ♣8
§
Suður
♠ D94
♥ K9
♦ K105
♣KG963
Hvenær sem er í þessu
ferli gæti hafa dregið til tíð-
inda. Hér kemur drottning-
in niður þriðja í hjarta svo að
tígulsvíningin verður óþörf.
Þessi leið skilar tólf slög-
um ef eitthvað af eftirfar-
andi er til staðar: (1) Tromp-
drottningin kemur stök eða
önnur. (2) Hjartadrottning
fellur. (3) Tígulsvíningin
heppnast.
Er til betri leið?
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hreinn og beinn og
hefur mikla aðlögunarhæfni.
Þú ert þó viðkvæmari en yf-
irborðið gefur til kynna.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Yfirborðsleg samskipti eru
þér ekki að skapi í dag. Þú
hefur þörf fyrir eitthvað
raunverulegt. Leyndar lang-
anir og þrár gætu komið upp
á yfirborðið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gefðu metnaði þínum og
framtíðarvonum lausan
tauminn. Hæfileiki þinn til að
breyta viðhorfum þínum get-
ur skapað þér ný tækifæri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú og vinur þinn gerið ykkur
grein fyrir sönnum tilfinning-
um ykkar. Þið viljið grafast
fyrir um það á hverju sam-
band ykkar byggist.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ekki vera ósveigjanlegur í
skoðunum þínum eða vana-
fastur í vinnunni. Vertu opinn
fyrir nýjum leiðum og það
mun koma þér á óvart hversu
vel þær reynast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leyndar tilfinningar og
hrifning geta komið upp á yf-
irborðið í dag. Þú hefur ekki
gert þér grein fyrir þeim en
nú koma þær fullskapaðar
upp á yfirborðið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
gera breytingar í einka- og
fjölskyldulífinu. Drífðu í að
þrífa, lagfæra og endurskipu-
leggja á heimilinu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú gætir fengið einhvern á
heilann í dag. Þér líður eins
og ástsjúkum unglingi þar
sem þú losnar ekki við þenn-
an einstakling úr huga þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver gæti gefið þér góð
ráð varðandi fjármálin í dag.
Ef þú fylgir þeim getur það
haft áhrif á líf þitt um langa
framtíð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú lest eitthvað í blaði eða
tímariti í dag sem getur bætt
heilsu þína og útlit. Sýndu
kjark og prófaðu hvort þetta
gagnast þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leitaðu leiða til sparnaðar í
samskiptum þínum við hið
opinbera. Hér getur verið um
skattafrádrátt, göt í kerfinu
eða góð ráð að ræða.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áhrifamikill vinur vekur
hrifningu þína í dag. Innst
inni óskarðu þess að þú líkist
honum. Það er kaldhæðnis-
legt en hann hugsar senni-
lega það sama um þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér bjóðast nýjar og spenn-
andi leiðir til frama og fjáröfl-
unar. Veltu fyrir þér nýjum
leiðum í lífinu og hvernig þú
kemst inn á þær.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
STÖKUR
Fljótt mér vinda verð á stjá,
vorsins yndi fegin,
sólin tinda efstu á
árdags bindur sveiginn.
Þegar koldimm skúraský
skemmtun alla banna,
hef ég stundum hinkrað í
heimi minninganna.
Sína illa ýmsir gá
æskuvillu að muna,
er þeir tryllast af að sjá
ungdómsspillinguna.
Þjakar lyndi þetta og hitt,
þarft er að hrinda trega.
Oft hefur fyndin stundir stytt
stakan yndislega.
Anna Sveinsdóttir
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3
e6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 Rf6
6. Rxc6 bxc6 7. e5 Rd5 8.
Re4 Bb7 9. Be2 c5 10. O-O
Dc7 11. Rd6+ Bxd6 12.
exd6 Dc6 13. f3 c4 14. Dd4
O-O 15. Bxc4 Dxd6 16. Hf2
Db6 17. Dh4 Hac8 18. b3
Re3 19. Bd3 Rf5 20. Df4
Dd4 21. Dxd4 Rxd4 22.
Be3 Rc6 23. Bc5
Hfe8 24. Bd6 Re7
25. Hd2 Rf5 26.
Bxf5 exf5 27. c4 a6
28. Kf2 g5 29. h4 f6
30. Bb4 Bc6 31. Hd6
He6 32. Hxe6 dxe6
33. hxg5 fxg5 34.
Be7 h6 35. Hd1 Kf7
36. Bd8 Ke8 37. Ba5
Ke7 38. Hh1 Hh8
39. Bb4+ Kf6 40.
Hd1 Hc8 41. Ba5 f4
42. Bc3+ Kf7 43.
Hh1 Kg6 44. He1
Bd7 45. He5 h5 46.
Ha5 Hc6 47. Bb4
Kf6 48. Bc3+ Kg6 49. Be5
Bc8 50. c5 Kf5 51. Bd6 Bb7
52. b4 e5 53. a4 Hc8
Staðan kom upp á fyrsta
bikarmóti FIDE sem hald-
ið var í Dubai. Veselin
Topalov (2739) hafði hvítt
gegn sigurvegara mótsins,
Peter Leko (2713). 54.
Bxe5! Bd5 55. Bd6 g4 56.
c6 Ke6 57. Bxf4 gxf3 58.
c7 fxg2 59. Hxa6+ Kf5 60.
Bh2 Kg4 61. Hf6 Kh3 62.
Bd6 Hg8 63. Hg6 He8 64.
Hg3+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 31. maí,
er sextug Arnheiður Anna
Kristinsdóttir, matráður
við Andakílsskóla. Eigin-
maður hennar er Ingimar
Einarsson. Þau eru að heim-
an í dag.
85ÁRA afmæli. Á morg-un, laugardaginn 1.
júní, er 85 ára Páll Sölva-
son, sjómaður frá Bíldudal,
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
Páll og fjölskylda hans taka
á móti gestum í Selinu,
Sléttuvegi 11–13, Reykja-
vík, á morgun frá kl. 15–19.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Með morgunkaffinu
Og hún skrifaði ekki einu sinni í gestabókina!
Rannsóknir sýna:
ACT vörurnar draga til sín 99-100% af óhreinindum
og bakteríum. Notkun kemískra efna minnkar
um 70% ef ACT-kerfið er notað. Fjarvera
ræstingarfólks vegna veikinda og álags minnkar um
30-40%. Kostnaður við ræstingar lækkar um 30-50%.
Lítið við eða biðjið um kynningu.
Ný kynslóð af þurr- og rakamoppum, glerklútum og alhliða
klútum til þurr- og blautþrifa án hreinsiefna.
500 þvotta ábyrgð á fyrirtækjavörum.
SÍON hreinlætisvörur ehf., Smiðjuvegi11e, Kópavogi, Gul gata,
sími 568 2770, fax 568 2772, netfang: sion@simnet.is
Tæknibylting í örtrefja
ræstivörum frá ACT
STÓR HUMAR
LÚÐA • KEILA • LAX
990* kr. kg.
Grillum um helgina
MEÐ BROS Á VÖR!
FISKBÚÐIN VÖR
Höfðabakka 1, sími 587 5070
GÓÐA HELGI!*verð frá
NÝ SENDING
af bakpokum
margar stærðir
verð frá kr. 1.500
LANGUR LAUGARDAGUR
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7,
sími 551 5814
Mörkinni 6, sími 588 5518
Fyrir
sjómannadaginn
Fallegar yfirhafnir í úrvali
20—50%
í dag og á morgun
Opnum kl. 9
virka daga
laugardaga
frá kl. 10-15
VESTURBÆJAR
YOGASTÖÐ
YOGA
þriðjudaga og fimmtudaga
þriðjudaga og fimmtudaga
þriðjudaga
YOGATÍMAR:
Karlar og konur
verið velkomin í yoga í júní!
10.30-11.30
17.25-18.25
18.35-20.05
Seljavegi 2, 101 Reykjavík
sími: 511-2777 anna@yogawest.is