Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                           ! "           #    #    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MENN eru búnir að velta því mikið fyrir sér, hvers vegna sjálfstæðis- menn töpuðu borgarstjórnarkosning- unum og hafa haft á því ýmsar skoð- anir. Mér fannst aftur á móti aldrei neinn vafi á því að Björn myndi tapa kosningunni og benti á það þegar Björn var að velta því fyrir sér að leiða Sjálfstæðisflokkinn í kosningun- um. Það var Birni óhagkvæmt að hafa verið í núverandi ríkisstjórn, sem ekki hefur verið sú vinsælasta hjá vinstrimönnum. Í þeirra raðir þurfti Björn að sækja fylgi til að sigra Ingi- björgu, því vinstri menn eru í heild fleiri í borginni en sjálfstæðismenn. Björn hafði heldur ekki ákveðið að hætta sem alþingismaður sem gerði hann ótrúverðugri fyrir vinstri menn. Upphlaup forsætisráðherra og fjár- málaráðherra vegna undirskriftar heilbrigðisráðherra, um að auka hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða, gerði svo endanlega út um fylgi Björns. Það sýndi kjósendum svo ekki varð um að villst að borgarstjóri á Alþingi myndi ekki fá leyfi til þess að gera neitt í borgarmálum sem forsætisráðherra og fjármálaráðherra líkaði ekki. Ólafur F. Magnússon mun hafa tekið fylgi frá bæði Sjálfstæðisflokki og R-lista sem gerði það að verkum að hann hefur nánast engin áhrif haft á niðurstöðu kosninganna fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Aftur á móti má búast við að nýir kjósendur hafi að meiri- hluta veðjað á hinn mjög svo persónu- sterka frambjóðanda R-listans og komið í veg fyrir það að Ólafur felldi Ingibjörgu. Ólafur F. Magnússon þarf aftur á móti að vera duglegur að minna á sín- ar málefnaáherslur á kjörtímabilinu ef hann ætlar að lifa af kosningar eftir fjögur ár. Í einu sveitarfélagi kom upp sú sér- kennilega staða að það varð jafntefli, sem hefði átt að leiða til þess að báð- um flokkum væri gert að stjórna sveitarfélaginu í tvö ár, hvor flokkur fyrir sig, á kjörtímabilinu og með því reynt að fullnægja lýðræðinu. Í stað- inn var farin sú hæpna lýðræðisleið að láta hundraðkall ákvarða hvaða flokk- ur sæti við völd allt kjörtímabilið. Þannig getur hundraðkall orðið vold- ugur í hinu pólitíska lýðræði. Svo óska ég öllum frambjóðendum, bæði þeim sem sigruðu og þeim sem töpuðu, til hamingju með sigurinn. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5. Brugðu fæti fyrir Björn Frá Guðvarði Jónssyni: ÞAKKA ykkur fyrir bréfið sem varð til þess að ég fór og kynnti mér mál Fjölskyldu- og húsdýragarðsins bet- ur en áður. Garðinum er stjórnað af sérstakri rekstrarstjórn og formað- ur hennar sagði mér að ástæðan fyr- ir því að nú er tekið gjald í þrjú tæki í garðinum sé sú að það hafi verið ákveðið að reyna að bæta við a.m.k. einu nýju og spennandi tæki á hverju ári. Tækin eru dýr og þó að borgin greiði rúmlega 61 milljón króna á ári til garðsins þá er svo dýrt að reka hann að rekstrarstjórn- in á ekki mikinn afgang til að kaupa fyrir ný tæki á hverju ári. Þess vegna ákvað hún að taka hóflegt gjald í þau tæki sem eru bæði eft- irsóttust og dýrust. Ef hún gerði það ekki gæti hún t.d. ekki endur- nýjað torfærubrautina á hverju ári né keypt ný og spennandi tæki. Því til viðbótar má nefna að mér er sagt að það hafi oft verið mikil örtröð við þessi tæki og stóru krakkarnir oft troðist fram fyrir þau litlu vegna þess að það var ókeypis í tækið og hægt að fara eins margar ferðir og hver og einn vildi. Ég vona að þetta svari erindi ykk- ar og þið látið gjaldið ekki hindra ykkur í því að fara í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Það er ekki dýrt að fara í garðinn og flestallt sem þar er í boði er án sérstaks endurgjalds. Með bestu óskum um góða skemmtun í garðinum í sumar. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, borgarstjóri. Kæra Fanney, Áslaug og Kolbrún Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur: Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Ryðfríar Blómagrindur y fríar Blómagrindur með hengi Tilboðsverð kr. 2.995 áður kr. 3,595 Klapparstíg 44 Sími 562 3614
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.