Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristinn ÞórHansson fæddist í Reykjavík 1. febr- úar 1960. Hann lést af slysförum í Ariz- ona, Bandaríkjun- um, 23. maí síðast- liðinn. Móðir hans er Ólöf Emma Krist- jánsdóttir Wheeler, f. á Ísafirði 1928, bú- sett í Mesa í Arizona í Bandaríkjunum. Fósturfaðir Kristins var Hjálmar Péturs- son úrsmiður, f. á Eskifirði 1931, d. 1997. Systkini Kristins eru Ingv- ar Grétar Ingvarsson málmsuðu- kennari, f. 1948, Helgi Pálma- son, sjómaður, f. 1954, Margrét Jó- hanna Pálmadóttir, tónlistarkona, f. 1956, Kristján Pét- ur Hjálmarsson, tæknifræðingur, f. 1967. Börn Kristins eru Elín Rut Kristins- dóttir, f. 27. mars 1981, d. 23. maí 2002, Daníel Karl Kristinsson, f. 1987, og Lilja Dröfn Kristinsdóttir, f. 1988. Kristinn Þór verður jarðsung- inn í Mesa í Arizona föstudaginn 31. maí. Elsku pabbi. Okkur langar til að minnast pabba okkar með örfáum orðum. Við fengum ekki nógu góðan tíma til að kynnast þér, elsku pabbi, en þær góðu samverustundir sem við áttum saman eru ómetanlegar í dag. Það var sem reiðarslag fyrir okkur að fá þær fréttir frá Ameríku um andlát þitt og Ellu systur. Sorg okk- ar er mikil en í brjósti okkar munum við hugsa um allt það góða sem þú gerðir fyrir okkur. Við biðjum algóð- an guð að vaka yfir þér. Einnig biðjum við um guðsblessun til handa Ólöfu ömmu og Kristjáni frænda. Börnin. Kæri faðir. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, – líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Föstudagurinn 24. maí er versti dagur sem ég hef upplifað. Kl. hálf- ellefu um morguninn var hringt inn í skólastofuna og ég kallaður upp á skrifstofu, með engum fyrirvara. Þar kom Jón Garðar og sótti mig, ekki glaðlegur í sjón. Við flýtum okkur heim og þá er mamma þar með tárin í augunum og segir: „Daníel minn, það varð slys í Ameríku… Pabbi þinn og Ella fórust í bílslysi og létust samstundis.“ Ég brest í grát og hleyp inn í herbergi og eyði þar deg- inum. Ég á nú samt bestu minningar lífs míns með þér, þegar við og Kristján fórum í Universial Studios og skemmtum okkur æðislega! Við gistum meðal annars á Hilton hóteli og fórum í flest öll tívolíin þar í kring. Ég er strax byrjaður að sakna þín og mun ætíð gera það. Þinn kæri sonur, Daníel Karl. Elsku pabbi. Mér þótti alltaf vænt um þig þó að samverustundir okkar hafi ekki verið margar. Þó fannst mér sérstaklega gaman þær stundir þegar ég, þú, Daníel bróðir og Ella Rut systir hittumst öll og pöntuðum pizzu og horfðum á víd- eó. Það er skrýtið að hugsa til þess að nú höfum við Daníel þessar minn- ingar um þig og Ellu Rut systur sem á eftir að ylja okkur um hjartarætur þegar við minnumst ykkar beggja. Og sú staðreynd að Kiddi pabbi og Ella Rut eru bæði dáin er eins og að setja vídeóspólu í tækið og reyna að spóla til baka. Mig langar til þess að kveðja þig, pabbi minn, með þessum fallega sálmi: Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hvíl í friði. Þín dóttir Lilja Dröfn Kristinsdóttir. Himneski faðir, þú ert ljósið eina, nú hvílist ég í heilaga ljósinu þínu. Himneski faðir, þú ert lífið eina, nú dvel ég hér í lífsmættinum þín- um. Þakka fyrir allt og allt. Í Guðs friði. Mamma. „Varpa áhyggjum þínum á Drott- in, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta rétt- látan mann verða valtan á fótum.“ (Davíðss. 55:23.) Kristinn Þór ólst upp á Akureyri og þangað sótti hann sínar bestu minningar. Hann var vinamargur, glaðlyndur og með eindæmum frændrækinn. Kristinn vann lengst af sem sölu- maður og sjómaður á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hann átti þrjú börn og unni þeim og annaðist sem mest hann gat. Það er með ýmsum hætti sem kall- ið kemur og fyrir okkur aðstandend- ur bar þetta of brátt að og erfitt að sætta sig við þennan veruleika. Við misstum á einu andartaki bróður og bróðurdóttur. Ylur dásamlegra minninga verður brunnur okkar og uppspretta til góðra verka. Fjölskyldan stendur saman og heiðrar minningu þína, elsku Kiddi. „Og hann mun þerra tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ (Opinberunarbókin 21:4.) Systkini. Laugardagurinn 25. maí. Kosn- ingadagur og kvöldfréttatími Ríkis- sjónvarpsins á sínum stað. Sagt er frá því að feðgin hafi látist í umferð- arslysi vestur í Arizona í Bandaríkj- unum tveimur dögum áður. Mér bregður þegar nöfn hinna látnu eru lesin. Gamall æskuvinur er fallinn frá á sviplegan hátt og gegnum hug- ann þjóta myndir minninga – minn- inga sem tengjast uppvaxtarárunum norður á Akureyri um miðjan sjö- unda áratuginn, en í þá daga var allt- af sól á Akureyri. Fyrsti skóladagurinn, vorskóli 1967: Í hópi tilvonandi bekkjarfélaga tek ég eftir vörpulegum ljóshærðum dreng sem virðist vera fæddur leið- togi. Hann brosir breitt, um leið og hann segir: „Við erum að fara að keppa við 4. stofu í fótbolta í dag. Stebbi, þú mætir og spilar með mér í framlínunni.“ Og ég mæti. Ekki man ég hvernig leikurinn fór, en Kiddi var fyrirliði og að sjálfsögðu okkar aðalmaður á vellinum. Kiddi skorar þrjú mörk og ég næ að setja eitt. Að launum býður fyrirliðinn upp á Cream Soda eftir leikinn. Nokkrum dögum síðar: Ég kemst í hann krappann. Umkringdur af tíu eldri strákum er mér varpað í svaðið. Ég er ásakaður (og það réttilega) um að hafa veitt jafnaldra mínum blóð- nasir. Nú er komið að skuldadögum. Áður en fyrsta höggið dynur á mér stendur Kiddi í miðjum hópnum. Lafhræddur ligg ég á jörðinni og fylgist með þegar hann les hinum eldri pistilinn. Það vantar ekkert upp á sjálfstraustið hjá þessum dreng og stóru strákarnir gefa eftir. Því eins og Kiddi er búinn að útskýra fyrir þeim er það aumingjaskapur að ráð- ast á sér minni máttar. Litli synda- selurinn er reistur á fætur og honum hjálpað í öruggt skjól. Síðar þetta sumar 1967: Kiddi fær mig með sér í atvinnurekstur. Nú er kominn tími til að hagnast á sölu leikaramynda. Vettvangur verslun- arinnar er borðstofan heima hjá Kidda í Þingvallastræti 22, en versl- unarhúsnæðið sjálft er stórt indjána- tjald. Margir koma og versla og velta dagsins fer fram úr björtustu von- um, enda vörulagerinn tæmdur. Hagnaðurinn fer beint í kassann hjá kjörbúð KEA í Grænumýri og saddir og sælir af sælgætisáti ákveðum við Kiddi að hætta verslunarrekstri. Næstu sex árin: Ýmislegt er brall- að. Skátaútilegur, knattspyrnuiðkun með KA á sumrin, ótal afmælisboð og byggingarframkvæmdir snjóhúsa á vetrum. Alltaf er Kiddi í farar- broddi og fer vel á því. Allir fá að vera með og enginn er skilinn útund- an. Kiddi er sérstaklega hreinlyndur og einstaklega góður við þá sem minna mega sín. Við erum tíðir gest- ir á heimili hvor annars. Unglingsárin: Samgangurinn minnkar eins og oft vill verða, en við lendum hvor í sínum bekknum í gagnfræðaskóla. Við erum samt í sama fermingarbarnahópi og erum ávítaðir harðlega af öðlingnum hon- um séra Pétri Sigurgeirssyni, þegar við rifnum úr hlátri við útskýringar hans á því hvað það þýði er maður og kona verða eitt hold. Við sýnum iðr- un og yfirbót og erum fermdir ásamt með hinum krökkunum. Kiddi flytur til Bandaríkjanna: Sennilega hefur þetta verið í kring- um 1980. Þarna missum við niður þráðinn í allmörg ár. Ég hitti hann samt af og til og alltaf er hann sami góði drengurinn. Góður vinur okkar gengur í gegnum erfiðan skilnað árið 1988 og er mjög langt niðri. Kiddi dregur hann með sér inn á Holliday Inn og stærsta svítan er bókuð. Stanslaus veisluhöld í heila viku – allt gert til þess að hressa hinn frá- skilda við. Kiddi hættir aldrei að vera sannur vinur vina sinna. Síðasti fundur okkar: Þetta er vor- ið 1998 og Kidda er vísað inn til mín þar sem ég er við störf hjá kærumót- töku Lögreglunnar í Reykjavík. Enn er Kiddi samur við sig og er að leita hjálpar fyrir gamlan félaga okkar að norðan sem hefur helgina áður sætt barsmíðum niðri í miðbæ. Við spjöll- um lengi saman um liðna tíma. Þegar við kveðjumst reikna ég ekki með að þetta sé í síðasta skiptið sem við sjáumst. Kæri vinur. Það er komið að leið- arlokum hjá okkur hérna megin móðunnar miklu. Víst er, að ég væri sannarlega fátækari ef ég hefði ekki fengið að kynnast þér og eiga þig að vini. Heimurinn væri og betri ef fleiri væru jafn göfuglyndir og ræktar- samir og þú varst. Megi hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar um- vefja þig og dóttur þína og veita ykk- ur skjól og frið. Eftirlifandi börnum þínum, móður og systkinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum, í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem.) Stefán Arngrímsson. KRISTINN ÞÓR HANSSON H agfræðingurinn Peter Bauer lést í byrjun þessa mán- aðar í íbúð sinni í London, 86 ára að aldri. Bauer fæddist í Ungverja- landi en fluttist til Bretlands þar sem hann starfaði við London School of Economics um áratuga- skeið. Áhugi Bauers beindist alla tíð að vanda þróunarlandanna og hvernig þau gætu komist til bjarg- álna og ritaði hann fjölda bóka og fræðigreina um efnið. Óhætt er að fullyrða að þegar hann hóf ferilinn um miðja síðustu öld hafi hann farið gegn straumnum. Kenningar hans gengu út á að almenn lög- mál hagfræð- innar ættu við í þróun- arlöndunum, en á þeim tíma var lík- lega algengara að altækur áætl- unarbúskapur væri álitinn lausnin á vanda þessara ríkja. Sænski hagfræðingurinn og síðar nób- elsverðlaunahafinn Gunnar Myr- dal, hélt því til að mynda fram á sjötta áratugnum að þeir sem á annað borð hefðu nennt að kynna sér málið sæju að miðstýring væri frumskilyrði fyrir framförum í þessum löndum. Nú, rúmum fjórum áratugum seinna, eru fáir reiðubúnir til að taka undir þessi sjónarmið Myr- dals, en þó er ekki mjög langt síð- an viðhorf manna breyttist. Og enn hafa margir reyndar ofurtrú á ríkisafskiptum til hjálpar þessum löndum. Líklega var það ekki fyrr en eftir fall Sovétríkjanna sem endanlega var horfið frá hug- myndum um áætlunarbúskap til bjargar þróunarlöndum og árið 1997 viðurkenndi Alþjóðabankinn að of mikið hefði verið gert úr svo kölluðum markaðsbrestum og möguleikum ríkisvaldsins til að lagfæra þá. Ein ánægjulegasta viðhorfs- breytingin er þegar fólkið sjálft í þessum löndum sannfærist um að það er með eigin atorku sem það getur komist út úr fátæktinni en ekki með auknum styrkjum frá öðrum ríkjum. Þess vegna er grein sem Yoweri Museveni, for- seti Úganda, ritaði í The Wall Street Journal fyrir réttri viku verðug lesning. Museveni talar um aukinn skilning milli Afr- íkuríkja og Vesturlanda á mik- ilvægi viðskipta til að sigrast á fá- tækt í heiminum og segir fréttaflutning af mótmælum gegn alþjóðavæðingu hafa dregið at- hygli fólks frá þessari þýðing- armiklu staðreynd. „Afríku- og Vesturlandabúar hafa of lengi litið til alþjóðlegrar hjálparstarfsemi sem lausn á fá- tæktinni og efnahagsvandanum sem þróunarlönd á borð við Úg- anda standa frammi fyrir. Þó að baki búi velvilji hefur þessi ofur- áhersla á hjálparstarf í raun staðið Afríku fyrir þrifum með því að draga úr frumkvæði íbúanna og gefa þá ímynd að Afríkuríki geti ekki keppt í hinu alþjóðlega hag- kerfi,“ skrifar Museveni. Fyrir nokkrum árum, og jafnvel enn í dag, hefði einhverjum þótt kaldranalegt af Vesturlandabúa að halda slíku fram. Þegar þessi sjónarmið koma frá forseta fátæks Afríkuríkis verða menn hins vegar að leggja við hlustir og endurmeta afstöðu sína til þess stuðnings sem veittur er þróunarríkjum. Forseti Úganda heldur áfram og segir að aðstoð ein og sér geti ekki breytt þjóðfélögum og að ein- ungis viðskipti geti stuðlað að við- varandi hagvexti til að umbreyta þjóðfélagi. „Besti stuðningur sem hægt er að veita Úganda er að kaupa framleiðslu þess,“ segir for- setinn, sem lýkur grein sinni með því að leggja áherslu á að Afr- íkubúar óski ekki lengur eftir ölm- usu heldur tækifærum til að stunda viðskipti. „Í stuttu máli,“ segir hann, „viljum við vinna okk- ur út úr fátæktinni með við- skiptum og við biðjum Bandaríkin og önnur þróuð ríki að styðja okk- ur í þessu.“ Til að þessi ósk forseta Úganda geti orðið að veruleika þarf að gera tvennt. Annað er að ryðja öll- um viðskiptahömlum milli ríkja úr vegi og í því skyni segir forsetinn að ríki Afríku leggi orðið aukna áherslu á þátttöku í Alþjóða- viðskiptastofnuninni, WTO. Hitt sem mikilvægt er að gera til að ná árangri í baráttunni gegn fátækt í heiminum er að þróun- arlöndin taki til heima fyrir, og ef marka má grein forsetans er góð- ur skilningur á þessu meðal leið- toga Afríkuríkja. Fyrir utan alþjóðleg viðskipti eru umbætur í þróunarríkjunum sjálfum einmitt nokkuð sem Peter Bauer lagði alla tíð áherslu á. Frelsi einstaklingsins var að hans mati skilyrði fyrir því að fólk tæki ábyrgð á eigin lífi. Eignarrétt og frjálsan markað taldi Bauer nauð- synlegar forsendur fyrir velsæld í þróunarríkjum. Rétt eins og í þró- uðum ríkjum, sem raunar hafa öðlast velsæld með einmitt þetta að vopni. Vandinn er sá að víða í Afríku er eignarréttur illa skilgreindur, en skýr eignarréttur er alger for- senda þess að markaðshagkerfið geti gengið eðlilega. Dæmi um þetta er að sums staðar býr fólk í húsum sem það á í raun en er hvergi skráð sem þinglýstir eig- endur. Afleiðingin er sú að sá sparnaður sem fólkið á í húsunum nýtist því ekki til að taka lán sem það svo gæti notað til að kaupa tæki til að auka eigin framleiðni, en margir Afríkubúar hafa lífsvið- urværi sitt af einhvers konar heimilisiðnaði. Sá iðnaður gæti verið byrjunin á stærra fyrirtæki ef yfirvöld sinntu þeirri skyldu sinni að setja leikreglur. Þetta er aðeins eitt lítið dæmi um heimatilbúinn vanda sem til- tölulega auðvelt er að leysa ef vilji er fyrir hendi. Vandi Afríkuríkja í heild sinni verður þó hvorki auð- leystur né fljótleystur. Leys- anlegur er hann þó ef fylgt er ráð- um manna á borð við Peter Bauer. Hann átti lengst af við ofurefli að etja, en sjónarmið hans virðast þó ætla að sigra að lokum, ekki síst fyrir þá þrautseigju sem hann sýndi alla tíð. Bauer og fátæktin „Afríku- og Vesturlandabúar hafa of lengi litið til alþjóðlegrar hjálparstarf- semi sem lausn á fátæktinni og efna- hagsvandanum sem þróunarlönd á borð við Úganda standa frammi fyrir,“ segir forseti Úganda. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.