Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 20

Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HREINN Loftsson, fráfarandi stjórnarformaður Baugs, segir hlutabréfaverð í félaginu á Verð- bréfaþingi Íslands ekki endurspegla raunverulegt verðmæti þess og því sé nauðsynlegt að huga að skrán- ingu félagsins erlendis. Hann segir nýja könnun á þróun matvöruverðs á síðustu árum leiða í ljós að sam- runi fyrirtækja á matvörumarkaði sé ekki orsök verðhækkana á neysluvöru. Hreinn sagði í ávarpi sínu á aðal- fundi Baugs í gær, að félagið hafi á aðeins einu og hálfu ári breyst frá því að vera stórt fyrirtæki á íslensk- an mælikvarða í það að vera nú stórt fyrirtæki á norrænan mæli- kvarða. „Má segja að stærðin sé orðin slík að nauðsynlegt sé að brjóta stjórn- skipulag fyrirtækisins upp og huga að skráningu þess á erlendum mörkuðum. Stafar það ekki síst af smæð íslenska verðbréfamarkaðar- ins en til að tryggja eðlileg viðskipti í félagi af stærð Baugs þurfa við- skipti með hlutabréf þess að vera í umferð þar sem eðlilegt framboð og eftirspurn getur myndast. Í þessu efni má benda á að lengi vel í vetur hefur hlutabréfaverð í Baugi á Verðbréfaþingi Íslands ekki end- urspeglað eðlilegt eða raunverð- mæti fyrirtækisins að mati grein- ingardeilda verðbréfafyrirtækja.“ Óvægin gagnrýni Hreinn sagði að Baugur hafi á umrótstímum undangenginna miss- era fengið á sig mikla og óvægna gagnrýni. Alvarlegasta gagnrýnin væri sú að Baugur hafi í skjóli stærðar sinnar náð tangarhaldi á verðmyndun matvöru í landinu og með tilkomu Baugs og vegna sam- þjöppunar á matvörumarkaði hafi matvöruverð hækkað. „Á það hefur verið bent af hálfu Baugs að gagn- rýnendur fyrirtækisins horfi framhjá þeirri staðreynd að matvæli séu nú mun lægra hlutfall í neyslu- mynstri landsmanna en var þegar Bónus hóf göngu sína fyrir um 15 árum. Gagnrýnendur virðast og ekki vilja hlusta á þau rök að verð- myndun landbúnaðarvara, tollar og margvísleg opinber gjöld, skekki samanburð við matvælaverð í öðr- um löndum. Hvað þá að þeir vilji horfa til þess að víða erlendis, til dæmis í Danmörku, megi verslanir selja léttvín og bjór í matvöruversl- unum og að sú staðreynd auðveldi mjög rekstur slíkra verslana í þeim löndum sem þannig verður ekki samanburðarhæfur við rekstur ís- lenskra matvöruverslana.“ Samruni fyrirtækja ekki orsök verðhækkana á neysluvöru Sagði Hreinn að vegna þessarar gagnrýni hafi Baugur falið GJ- fjármálaráðgjöf að taka saman skýrslu um þróun matvöruverðs á síðustu árum. Tilgangurinn var, að sögn Hreins, að fá óháðan aðila til að skoða þau atriði sem helst hafi komið fram gegn Baugi í þeirri um- ræðu um þróun matvöruverðs á Ís- landi. Ráðgjafarfyrirtækið hafi meðal annars skoðað rækilega for- sendur skýrslu Samkeppnisstofn- unar frá því í fyrra um þetta efni. Sagði Hreinn að helstu niðurstöður GJ-fjármálaráðgjafar væru þær, að ástæðu almennra verðlagshækkana á Íslandi sé varla að leita í samruna fyrirtækja á matvörumarkaði held- ur í öðrum þáttum, svo sem launa- hækkunum. Þá hafi innflutt matvæli ekki hækkað meira en hjá helstu viðskiptalöndum á síðustu árum að teknu tilliti til gengisþróunar. Eins hafi verðlag á matvöru lækkað eftir tilkomu Baugs. Þá sé á það bent, að rekstrarhagnaður Baugs sé ekki mikill í samanburði við hagnað bandarískra matvörubúða. „Við nánari athugun benda gögn til þess að verð á dagvörum hafi ekki hækk- að meira en á öðrum neysluvörum eftir sameiningar á matvörumark- aði en það er öndvert við niðurstöðu Samkeppnisstofnunar frá því í fyrra,“ sagði Hreinn. Skýrslan var kynnt Samkeppn- isstofnun í gærmorgun og verður gerð opinber á næstu dögum eða vikum. Brýnt að huga að skráningu erlendis Fráfarandi stjórnarformaður Baugs segir hlutabréfaverð í félaginu ekki endurspegla raunverðmæti þess GAGNGERAR skipulagsbreytingar á starfsemi Baugs voru kynntar á aðalfundi félagsins í gær. Nafni Baugs hf. hefur verið breytt í Baug- ur Group hf. og hefur félaginu verið skipt upp í þrjár sjálfstæðar ein- ingar; Baugur – Ísland, Bonus Stor- es Inc. og Baugur – fjárfesting og þróun. Hver eining verður rekin sjálf- stætt og ber ábyrgð á eigin fjár- málum, ásamt allri daglegri starf- semi. Baugur Group verður rekið sem eignarhaldsfélag en mun ekki bera ábyrgð á daglegri starfsemi rekstrareininganna þriggja. Félagið birtir rekstrarreikning, efnahags- reikning og sjóðstreymi fyrir hverja einingu, auk samstæðuuppgjörs, og upplýsir markaðinn um stöðu fyr- irtækisins og þróun verkefna. For- stjóri Baugs Group er Tryggvi Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs hf. Jón Ásgeir Jóhannesson, fráfar- andi forstjóri Baugs, sagði tilgang- inn með þessum breytingum vera að gera starfsemi félagsins gagnsærri og það betur í stakk búið til að vaxa á öðrum mörkuðum án þess að trufla þá starfsemi sem fyrir er. Hann sagði að breyting yrði á birt- ingu uppgjöra. „Félagið hefur verið gagnrýnt fyrir hvernig það birtir uppgjör sín og við bregðumst við því með að birta framvegis uppgjör fyr- ir þessar þrjár einingar. Það mun um leið auðvelda fjármögnun á fé- laginu, því annars vegar er verið að fjármagna rekstur og hins vegar kaup á hlutabréfum. Við teljum það nauðsynlegt, ekki síst vegna þess að stefnt er að skráningu erlendis, að markaðurinn verði vel upplýstur um stöðu fyrirtækisins og þróun verk- efna. Niðurstaðan af þessu er að við náum hámarksnýtingu á fjármagni, hærra gengi hlutabréfa í Baugi og að félagið verði aðlaðandi fjárfest- ingarkostur,“ sagði Jón Ásgeir. Einfaldaður rekstur og hagræðing hjá Baugi – Íslandi Baugur – Ísland mun alfarið ein- beita sér að rekstri verslana og tengdri starfsemi og hættir fjárfest- ingum í öðrum félögum. Undir þessa rekstrareiningu fellur allur verslanarekstur á Íslandi í mat- og sérvöru, auk reksturs í Svíþjóð vegna Topshop, Miss Selfridge og Debenhams. Hlutverk Baugs – Ísland verður að veita rekstrareiningum stefnu- mótandi aðhald, ásamt fjárhagslegu aðhaldi og eftirliti og nýta stærð- arhagkvæmni þar sem það á við. Aukin áhersla verður lögð á arðsemi eininga, hagræðingu í rekstri og mannauðsstjórnun. Jón Ásgeir ítrekaði það sem fram hefur komið áður, að rekstur Baugs á heimamarkaði hafi verið óviðun- andi. „Við höfum verið að einfalda reksturinn og munum gera það enn frekar,“ sagði hann og sagðist bjart- sýnn á betri árangur með skýrari fókus á þessa einingu en óneitan- lega hafi fjárfestingar Baugs er- lendis tekið fókus yfirstjórnenda af rekstri félagsins í heild. „Við sjáum fyrir okkur einfaldleika, að sameina smærri sérvörufyrirtæki í eina ein- ingu, mögulega samnýtingu vöru- húsa og aðskilnað innkaupa og vöru- húsa,“ sagði Jón Ásgeir. Samtals rekur Baugur–Ísland 70 verslanir á Íslandi og 7 í Svíþjóð og áform eru um að opna 5 til viðbótar í Svíþjóð á þessu ári. Heildarvelta Baugs–Íslands á yfirstandandi rekstrarári er áætluð 35,2 milljarðar króna og nettóskuldir 5,7 milljarðar króna. Fjöldi starfsfólks er um 1.800. Framkvæmdastjóri Baugs – Ís- lands er Jón Björnsson, sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra sérvörusviðs Baugs hf. Óarðbærum einingum Bonus Stores í Bandaríkjunum verði lokað Undir rekstrareininguna Bonus Stores fellur verslanarekstur Bills Dollar Store, Bonus Dollar Stores, og nýjasta viðbótin, Bonus Super- center, en þær verslanir eru stærri og bjóða upp á meira úrval í mat- og sérvöru en Bills Dollar Stores og Bonus Dollar Stores. Jón Ásgeir sagði stefnt að því markmiði að fé- lagið verði komið í 400 milljóna doll- ara veltu innan 24 mánaða og hagn- aður þess verði 5% fyrir skatta. Meðal þess sem áhersla verður lögð á er að bæta fjármálasvið félagsins og markaðsstarf þess, sem hefur verið í lágmarki. Þá verður aukin áhersla lögð á arðsemi eininga, að loka óarðbærum einingum og fjár- festa í uppbyggingu og endurbótum verslana þar sem við á. Samtals rekur Bonus Stores Inc. 394 verslanir í suðausturríkjum Bandaríkjanna og hjá félaginu starfa um 2.000 manns. Heildarvelta Bonus Stores Inc. er áætluð 22 milljarðar króna á árinu og nettó- skuldir 3,4 milljarðar króna. Fram- kvæmdastjóri Bonus Stores Inc. er Jim Schafer. Baugur – fjárfesting og þróun er ný rekstrareining sem heldur utan um eignir í félögum þar sem Baugur fer ekki með daglegan rekstur. Jón Ásgeir sagði eitt af mark- miðum Baugs – fjárfestingar vera að einbeita sér að stærri markmið- um og leita fjárfestingartækifæra sem eru vanmetin, auk þess að sjá til þess að fjárfestingar félagsins skili arði en stefnt er að því að fjár- festingarnar skili að lágmarki 15% arðsemi. Verkefni Baugs – fjárfestingar og þróunar er jafnframt að geta af sér rekstarareiningar sem renna styrkari stoðum undir meginrekstur félagsins, einkum á sviði versl- unarreksturs. Öll þróunarvinna samstæðunnar mun einnig eiga sér stað innan þessarar rekstrareining- ar. Helstu eignir Baugs – fjárfest- ingar og þróunar eru Arcadia, SMS í Færeyjum, fasteignafélagið Stoðir og Baugur.net, þar af er Arcadia langstærst, með markaðsvirði um 19,3 milljarða króna sem hefur vaxið um 4,5 milljarða króna frá áramót- um. Bókfært virði heildareigna Baugs – fjárfestingar og þróunar er 12,6 milljarðar króna og nettóskuld- ir 3,4 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri Baugs – fjár- festingar og þróunar er Jón Schev- ing Thorsteinsson, sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra verslunar- og þjónustusviðs Baugs hf. Hlutafé eftir jöfnun 2,4 milljarðar Aðalfundur samþykkti að auka hlutafé félagsins um tæpar 700 milljónir króna að nafnverði með út- gáfu jöfnunarhlutabréfa en rétt til þeirra eiga þeir sem voru skráðir hluthafar í lok aðalfundardags. Hlutafé eftir jöfnun verður tæpir 2,4 milljarðar króna. Skýringin á þess- ari breytingu var sögð sú að færa þurfi upp hlutafé í félaginu í takt við verðlagsbreytingar frá stofnun þess. Ennfremur var samþykkt að heimila stjórn að hækka hlutafjár félagsins um 100 milljónir króna að nafnverði. Hluthafar hafa ekki for- gangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum en stjórn félagsins er heimilt að nýta hlutafjárhækkunina sem endurgjald fyrir hluti í félögum með skylda starfsemi. Þá var stjórninni heimilað að hækka hlutafé félagsins um 10 millj- ónir króna að nafnverði, sem nota skal til sölu hlutabréfa til stjórn- enda og starfsmanna samkvæmt kaupréttaráætlun stjórnar. Hluthaf- ar hafa ekki forgangsrétt til áskrift- ar að þessum nýju hlutum. Jón Ásgeir stjórnarformaður Í stjórn Baugs voru kjörnir þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem jafn- framt verður formaður stjórnar, Tom Kristiansen, sem verður vara- formaður, Guðfinna Bjarnadóttir, Jóhannes Jónsson og Þorgeir Bald- ursson. Varamenn eru Kristín Jó- hannesdóttir og Hans Christian Hustad. Þóknun til stjórnarmanna var hækkuð úr 80 þúsund í 120 þúsund krónur á mánuði til annarra stjórn- armanna en þeirra sem eru í starfi hjá félaginu. Fundurinn fól stjórn félagsins að semja um laun og starfskjör þeirra stjórnarmanna sem eru í starfi hjá félaginu. Samþykkt var að greiða 12% arð fyrir ársuppgjör sem miðast við 1. janúar 2001 til og með 28. febrúar 2002 eða fyrir 14 mánaða tímabil. Umfangsmiklar skipulagsbreytingar á starfsemi Baugs Baugi hf. hefur verið breytt í eignarhaldsfélagið Baugur Group með þrjár rekstrareiningar Morgunblaðið/Þorkell Jón Ásgeir Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.