Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 50
HESTAR 50 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI JÓN Baldur Lorange sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri ætl- unin að hindra aðgang að þessum upplýsingum. Sýningarhaldarar á kynbótasýningum, sem venjulega eru búnaðarsamtök á hverjum stað, hafi frjálsar hendur með það hvernig þeir birta dómana, eins og alltaf hefur ver- ið. Hann sagðist telja að aðgengi þeirra að WorldFeng auðveldaði mjög slíka útgáfustarfsemi. Bænda- samtökin hefðu hins vegar hvorki mannafla né fjárhagslegt bolmagn til að flytja þessar upplýsingar yfir á heimasíðu sína og hafa aðgengilegar þar, enda krefjist það heilmikillar vinnu. Auk þess hefðu fjölmiðlar leyfi til að birta upplýsingar af WorldFeng sé heimilda getið. Í fyrra birtust allir dómar á heima- síðu Bændasamtakanna og var al- menn ánægja með það fyrirkomulag. Jón Baldur sagði að það hefði kostað óhemju vinnu sem aðallega var unnin í næturvinnu. Því miður væri ekki unnt að hafa þennan hátt á áfram. Uppbygging WorldFengs hefur gengið vel og hefur verið veitt miklu fjármagni í hana. Jón Baldur sagðist vera mjög ánægður með hvernig til hefur tekist, en enn er verið að bæta í grunninn. Nú eru 13 lönd, Ísland meðtalið, aðilar að grunninum, en stefnt er að því að öll FEIF löndin verði þátttakendur. Markmiðið er að skrá öll íslensk hross í grunninn þar sem hægt er að rekja ættir til Íslands, hvar sem þau eru í heiminum. Hann segist vera heldur óánægður með að ekki skuli fleiri vera áskrif- endur, þó fari þeim mjög fjölgandi þessa dagana. „Ég held að eftir því sem upplýsingar frá aðildarlöndunum verði meiri þá fjölgi áskrifendunum. Nú er verið að vinna í sænska grunn- inum og undirbúa hann til þess að hægt sé að taka hann inn í World- Feng. Búist er við að þessu ljúki í sumar og má þá gera ráð fyrir að sænskum áskrifendum fjölgi til muna. Grunnurinn var opnaður í ágúst í fyrra og nú eru áskrifendur um 400 talsins. Um 70% þeirra eru Íslend- ingar. Nú í maí hefur áskrifendum fjölgað mjög mikið og má tengja það kynbótasýningum sem byrjuðu fyrir alvöru í maí. Nú er hægt að skoða dóma á öllum sýningunum jafnóðum og má geta þess að einnig eru komnar inn upplýsingar frá vorsýningum ís- lenskra kynbótahrossa í Noregi, Finnlandi, Þýskalandi og Austurríki.“ Aðspurður hvað áskrift að World- Feng á ári kostaði sagði Jón Baldur að hún kostaði 7.999 krónur eða 677 krónur á mánuði. Hann sagði að verið væri að leita annarra leiða í inn- heimtu áskriftar og eru hugmyndir um að hægt verði að bjóða upp á að borga bara fyrir afnot, t.d. að fara 30 sinnum inn á WorldFeng fyrir 2000 krónur. Þá hefði komið upp sú hug- mynd að bjóða öllum meðlimum þýsku Íslandshestasamtakanna IPZV að borga hærra árgjald og að því fylgdi aðgangur að WorldFeng. „Ef áskrifendum fer ekki fjölgandi sannast sú gagnrýni sem heyrst hefur að allt of mikið hafi verið lagt í hrossa- ræktina innan Bændasamtakanna,“ sagði Jón Baldur. „Ýmislegt hefur verið reynt og var til dæmis gert ráð fyrir að áskrift að Íslandsfeng sem gefinn var út á geisladiski með mynd- um, myndi fjármagna hluta af þessu verkefni. Mun færri áskrifendur voru að Íslandsfeng en gert hafði verið ráð fyrir og má eflaust um kenna að mikið var um að menn afrituðu diskana. Á ráðstefnu í einu FEIF-landanna heyrði ég talað um að líklega væri ekki greitt nema fyrir um fimmtung þeirra diska sem voru í umferð þar í landi. Einnig hefur maður grunsemd- ir um að fleiri en sá sem borgar fyrir áskrift að WorldFeng noti hann. Að sjálfsögðu er það ólöglegt. Ég vona svo sannarlega að fljótlega rætist úr því eftir því sem fleiri gerast áskrifendur eru meiri líkur á að hægt verði að lækka árgjaldið og bjóða ým- is tilboð. Við erum búin að byggja upp alþjóðlegan miðlægan gagnagrunn í samstarfi við FEIF og þar með tryggja að til verður einn gagna- grunnur um íslenska hestinn og ætt- bók hans. Í þessum grunni eru þegar ógrynni upplýsinga um 132.000 hross. Við erum þannig í fararbroddi og má líta á okkur sem leiðandi afl á þessum vettvangi sem er í samræmi við að Ís- land hefur verið viðurkennt sem upp- runaland íslenska hestsins.“ Ekki ætlunin að hindra aðgang að upplýsingum Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Þótt margar kynbótahryssur séu nú sýndar víða um land eru aðrar sem dvelja heima í haga og bíða eftir að nýtt afkvæmi líti dagsins ljós. Skrár yfir dóma á kynbótasýningum sem nú standa yfir eru einungis aðgengilegar áskrifendum WorldFengs, alþjóðlegs gagnagrunns um íslenska hestinn á Netinu. Nokkurrar óánægju gætir með þetta fyrirkomulag. Ásdís Haraldsdóttir fræddist um málið hjá Jóni Baldri Lorange, forstöðumanni tölvudeildar BÍ. NÆRRI eitt þúsund hross eru skráð á þrjár kynbótasýningar sem standa yfir þessa dagana. Flest hross, eða 581, eru skráð á sýningunni á Gaddstaðaflötum við Hellu, 231 hross á Sörlastöð- um í Hafnarfirði og 167 hross á Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir að sýningunum á Sauðárkróki og í Hafnarfirði ljúki á laugar- daginn en að sýningin á Gadd- staðaflötum standi til 15. júní. Aðrar kynbótasýningar fyrir landsmót verða í Borgarnesi 3. júní til 6. júní, Hvammstanga/ Húnaveri 7.–9. júní, á Melgerð- ismelum í Eyjafirði 10.–12. júní, Stekkhólma á Héraði 13.–15. júní og Fornustekkum í Horna- firði 16. júní. Landsmótið stend- ur yfir á Vindheimamelum í Skagafirði 2.–7. júlí nk. Næstu tvær helgar verða fjöl- mörg hestamannafélög einnig með úrtökumót fyrir gæðinga- keppnina á landsmótinu. Sam- kvæmt mótaskrá LH verða úr- tökumót hjá Dreyra á Æðarodda við Akranes 1. júní og einnig hjá Faxa á Hvanneyri sama dag. Dagana 4.–5. júní verður úrtaka Ljúfs á Hvoli í Ölfusi og 7.–8. júní verður Þytur með úrtöku í Kirkjuhvammi við Hvammstanga. Hinn 8. júní verða úrtökumót hjá Svaða, Stíganda og Léttfeta á Vind- heimamelum, Glað í Búðardal og Freyfaxa á Stekkhólma. Úr- tökumót Geysis verður dagana 8.–9. júní á Gaddstaðaflötum og sömu daga verður Snæfellingur með úrtöku í Stykkishólmi. Þetta eru þau félög sem skráð eru með úrtökumót á þessu tímabili en auk þeirra er fjöldi annarra félaga með ýmis mót og uppákomur á þessu tímabili sem nánar má sjá í mótaskrá LH á www.lhhestar.is. Kynbóta- sýningar og úrtöku- mót víða um land HAUKUR Bjarnason í Skáney í Reykholtsdal var kjör- inn íþróttamaður Hestamannafélagsins Faxa í Borg- arfirði árið 2001 á aðalfundi félagsins fyrir skömmu. Á sama fundi var Baldur Björnsson í Múlakoti í Lundarreykjadal heiðraður fyrir vel unnin störf og var honum afhentur minningargripur sem gefinn var til minningar um Friðgeir Friðjónsson frá Hofsstöðum á Mýrum. Haukur Bjarnason íþróttamaður Faxa 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.