Morgunblaðið - 31.05.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 31.05.2002, Síða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í SKÝRSLU Ríkisendurskoðunar, um hvernig fjárframlögum ríkisins til Sólheima í Grímsnesi hefur verið varið á síðustu tveimur árum, kem- ur m.a. fram að þjónusta við fatlaða íbúa staðarins hafi ekki verið í sam- ræmi við samning sem gerður var milli félagsmálaráðuneytisins og Sólheima 1. mars árið 1996. For- svarsmenn Sólheima telja hins veg- ar að samningurinn sé ekki lengur í gildi. Þá telur Ríkisendurskoðun að skortur á starfsfólki, einkum starfs- fólki með fagmenntun á sviði þroskahömlunar, komi niður á gæð- um þeirrar þjónustu sem fötluðum íbúum Sólheima sé veitt. Skýrsla Ríkisendurskoðunar var birt í gær. Í fyrrgreindum þjónustusamningi var m.a. kveðið á um hversu há framlög ríkisins til Sólheima skyldu vera og hvernig þeim ætti að ráð- stafa í meginatriðum. Voru framlög skv. samningnum m.a. byggð á nið- urstöðu þjónustumats vegna fatl- aðra íbúa. Í skýrslunni er þó tekið fram að óvissa ríki um gildi samn- ingsins, því forsvarsmenn Sólheima hafa m.a. talið að hann hefði ekki verið í gildi síðustu árin, þar sem Sólheimar hafi sagt honum upp um mitt árið 1996. Þjónustusamningur- inn hafi því ekki formlega verið í gildi frá 1. janúar 1997. Félagsmála- ráðuneytið hafi á hinn bóginn litið svo á að framlögin til Sólheima eftir 1997 hafi grundvallast á forsendum sem bjuggu að baki þjónustusamn- ingnum frá 1996. Ríkisendurskoðun segir um þetta í skýrslunni að „í ljósi atvika og þess hvernig samskiptum aðila hef- ur verið háttað“ megi leiða að því rök að samingurinn sé enn í gildi. Til stuðnings þessu sjónarmiði bendir Ríkisendurskoðun m.a. á að með því að samþykkja að fram- lengja samninginn um eitt ár hinn 30. janúar 1997 hafi stjórn Sólheima í raun afturkallað uppsögn sína á samningnum frá 27. júní 1996. „Samningurinn hafi við þetta allur tekið gildi á ný samkvæmt efni sínu. Í samræmi við ákvæði 10. gr. hans framlengist hann um eitt ár í senn sé honum ekki sagt upp fyrir 1. júlí ár hvert... Eftir að Sólheimar féllust á að framlengja samninginn form- lega um eitt ár hefur stofnunin ekki sagt honum upp með skriflegum hætti eins og áskilið er. Því megi með vísan til nefndra ákvæða 10. gr. líta svo á að hann sé og hafi ver- ið í gildi allar götur frá 30. janúar 1997 a.m.k.,“ segir í skýrslunni. „Til stuðnings þessari niðurstöðu má að auki benda á að athafnir og at- hafnaleysi beggja aðila samningsins verða eftir atvikum ekki túlkuð á aðra lund en þá að þeir hafi í raun litið svo á að samningurinn gilti í samskiptum þeirra á meðan ekki væri sérstaklega samið um annað. Eins má nefna að hvorki Sólheimar né ráðuneytið hafa með afgerandi hætti andmælt skyldum þeim, sem þeir gengust undir á sinum tíma í samningnum.“ Unnin að frumkvæði Ríkisendurskoðunar Sólheimar eru sjálfseignarstofn- un þar sem um fjörutíu fatlaðir ein- staklingar búa og stunda atvinnu. Umrædd skýrsla Ríkisendurskoð- unar var unnin að frumkvæði Rík- isendurskoðunar. „Á grundvelli þess að Sólheimar njóta framlaga úr ríkissjóði hefur lengi staðið til af hálfu Ríkisendurskoðunar að gera stjórnsýsluúttekt á staðnum. Alvar- legar ásakanir fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Sólheima á hendur stjórn Sólheima í kjölfar brottvikn- ingar hans úr starfi seint á síðasta ári réð því að ákveðið var að ráðast í úttektina nú,“ segir í skýrslunni. Í henni er, eins og áður var vikið að, gerð grein fyrir því með hvaða hætti framlögum ríkisins hefur ver- ið ráðstafað og lagt mat á þá þjón- ustu sem fötluðum íbúum Sólheima stendur þar til boða. „Í því mati er litið til gildandi laga og reglna um þjónustu við fatlaða og ákvæða þjónustusamnings sem síðar var í gildi milli Sólheima og félagsmála- ráðuneytisins,“ segir í skýrslunni. Í skýrslunni segir m.a. að skv. ákvæðum fyrrgreinds þjónustu- samningsins hafi verið gert ráð fyr- ir um 34 stöðugildum vegna umönn- unar og stuðnings við fatlaða á heimilum þeirra á Sólheimum. Hins vegar hafi stöðugildi vegna þessa þáttar starfseminnar í reynd verið um helmingi færri á árunum 2000 og 2001. Í skýrslunni segir að þeim fjármunum sem með þessu móti hafi sparast hafi verið varið til mun umfangsmeiri atvinnurekstrar og uppbyggingar á Sólheimum en ríkið hafi fallist á að greiða samkvæmt fyrrgreindum þjónustusamningi. „Sem dæmi má nefna að Sólheimar kostuðu innréttingu á samveru- og félagsmiðstöð sem jafnframt er nýtt sem kaffihús fyrir gesti staðarins fyrir um 10 milljónir kr.,“ segir í skýrslunni. „Alls nemur sú fjárhæð sem hefur ekki verið ráðstafað í samræmi við forsendur samnings- ins um 67 milljónum kr. á árunum 2000 og 2001.“ Húsaleiga ofreiknuð Í skýrslunni segir að í ljósi marg- háttaðra lögbundinna skyldna rík- isins við fatlaða, sem fjárframlög ríkisins til Sólheima grundvallast á, hljóti það að vera brýnt fyrir stjórn- völd að kanna til hlítar réttarstöðu sína í málum af þessu tagi. „Margar sjálfseignarstofnanir fá framlög úr ríkissjóði skv. fjárlögum til þess að sinna starfsemi eða verkefnum, sem ríkinu ber að lögum að veita eða standa undir fjárhagslega. Einkum á þetta við á sviði heilbrigðis-, mennta- og félagsmála. Að mati Ríkisendurskoðunar er nauðsynlegt að leitað verði svara við þeirri spurningu hvort stjórnir sjálfseign- arstofnana, sem fá framlög úr rík- issjóði til að sinna verkefnum, sem ríkið skal að lögum sinna eða standa undir, séu í raun óbundnar af því hvernig þær ráðstafa fram- lögum ef ekki er sérstakur samn- ingur þar um í gildi milli aðila. Í ljósi þessa verður að telja eðlilegt að félagsmálaráðuneytið beiti sér fyrir lögfræðilegri athugun á rétt- arstöðu sinni í málum af þessu tagi og um leið hvort ríkið kunni að eiga lögvarin réttindi í skjóli framlaga sinna til Sólheima.“ Síðan segir: „Jafnframt þurfa stjórnvöld, hvað sem öðru líður, að tryggja betur en gert hefur verið að þau skilyrði, sem þau setja vegna fjárframlaga til aðila er veita fötluðum þjónustu, séu þeim ljós og að þau beri að virða.“ Að síðustu má geta þess að í skýrslunni er m.a. gagnrýnt hvern- ig húsaleiga sem fötluðum íbúum Sólheima var gert að greiða á ár- unum 2000 og 2001 var ákvörðuð og sagt að húsaleiga hafi á þessum ár- um verið ofreiknuð. Stjórnendur Sólheima bendi hins vegar á að húsaleiga hafi ekki hækkað reglu- lega í samræmi við vísitölu á ár- unum fyrir árið 2000 og þess vegna hafi þurft að hækka leiguna um- fram vísitölu á undanförnum tveim- ur árum. Þá er það mat Ríkisend- urskoðunar að upphæð launa- greiðslna til fatlaðra íbúa sé „í lægri kantinum,“ eins og það er orðað miðað við aðra verndaða vinnustaði. Meðalmánaðarlaun fatlaðara íbúa voru 5.300 kr. á mánuði á árinu 2000 og 5.600 kr. á mánuði árið 2001. Þetta er mun lægri laun en greidd eru t.d. á vernduðum vinnu- stað á Suðurlandi þar sem unnið er að kertagerð, en þar eru þau um 80 þúsund kr. á mánuði. Í skýrslunni segir að þó beri að líta til þess að félagsmálaráðuneytið hafi ekki sett reglur um þau lágmarkskjör sem fatlaðir starfsmenn slíkra vinnu- staða eigi að njóta. Ríkisendurskoðun um fjárframlög ríkisins til Sólheima Gagnrýnir þjónustu Sólheima við fatlaða Morgunblaðið/Golli Ríkisendurskoðun skilaði í gær skýrslu um þjónustu Sólheima í Gríms- nesi við fatlaða íbúa staðarins. Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athuga- semdir við starfsemi Sólheima í Grímsnesi í nýrri skýrslu. Framlögum ríkisins hafi ekki verið varið í samræmi við samning ríkisins og Sólheima, en að mati Sólheima var samn- ingurinn ekki lengur í gildi. Í YFIRLÝSINGU sem stjórn Sól- heima sendi frá sér í gær segir m.a. að enginn vafi leiki á því að öll op- inber fjárframlög til Sólheima hafi verið nýtt í þágu rekstrar staðarins. „Í stjórnsýsluendurskoðun Ríkis- endurskoðunar á Sólheimum fyrir árin 2000 og 2001 eru engar athuga- semdir gerðar við fjármál Sólheima. Rekstur Sólheima hefur verið innan fjárlaga undanfarin ár og fjármála- stjórn er traust,“ segir í yfirlýsing- unni. „Í reikningum Sólheima fyrir umrædd ár er gerð ítarleg grein fyr- ir ráðstöfun opinberra fjárveitinga, sem án undantekninga hefur verið varið til þjónustu við íbúa Sólheima. Þá hefur styrktarsjóður Sólheima varið á þriðja hundrað milljónum kr. til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og þjónustumann- virkja að Sólheimum. Reikningar Sólheima hafa verið afhentir Ríkis- endurskoðun og félagsmálaráðu- neyti, sem ekki hafa gert athuga- semdir.“ Samningur ekki í gildi Í yfirlýsingunni segir að helstu álitaefni sem Ríkisendurskoðun færi fram í skýrslu sinni séu reist á þeirri forsendu að þjónustusamningur milli Sólheima og félagsmálaráðuneytis- ins, frá árinu 1996, sé í gildi. Um þetta segir í yfirlýsingunni: „Í ítar- legu lögfræðiáliti, sem Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður og Heimir Örn Herbertsson héraðsdómslögmaður hafa unnið fyrir Sólheima, kemur fram með ótvíræðum og skýrum hætti að þjónustusamningur, sem Sólheimar og félagsmálaráðuneytið gerðu 1. mars 1996 og sagt var upp af hálfu Sólheima, sé ekki í gildi. Eng- inn vafi leiki á að öll opinber fjár- framlög til Sólheima hafa verið nýtt í þágu reksturs staðarins.“ Síðan seg- ir í yfirlýsingunni: „Stjórn Sólheima hefur aldrei verið þeirrar skoðunar að með þjónustusamningnum hafi, meðan hann var í gildi, verið búið að binda hendur hennar varðandi það á hvern hátt fötluðum íbúum í byggða- hverfinu væri þjónað. Stjórn Sól- heima hefur litið þannig á að um væri að ræða heildargreiðslu fyrir þjón- ustu við fatlaða íbúa, og hefur sú af- staða verið kunn Ríkisendurskoðun og félagsmálaráðuneytinu í mörg ár. Fyrir liggja gögn sem sanna að Sól- heimar hafa ekki varið opinberum fjárveitingum sem ætlaðar eru í rekstur Sólheima til nýbyggingar að Sólheimum, þótt erlendis sé slíkt tal- ið sjálfsagt og eðlilegt.“ Fullyrðing stenst ekki Í yfirlýsingunni segir að Ríkisend- urskoðun haldi því fram í skýrslu sinni að stöðugildi í heimilisþjónustu eigi að vera 34 en séu um helmingi færri á Sólheimum eða 17. „Þessi fullyrðing stenst ekki, því umræddur þjónustusamningur byggði á sam- komulagi milli Sólheima og félags- málaráðuneytisins, sem undirritað var 12. janúar 1994 um að haldið yrði óbreyttri þjónustustarfsemi að Sól- heimum. Hvergi í heiminum í byggðahverfum eins og Sólheimum eru stöðugildi í þjónustu við fatlaða notuð sem viðmið, eins og Ríkisend- urskoðun vill ganga út frá. Sá mæli- kvarði sem stuðst er við er hins veg- ar íbúaafjöldinn í byggðahverfinu, þátttaka fatlaðra í atvinnu- og fé- lagsstarfi og samsetning íbúa. Styrk- ur Sólheima er að hver einasti ófatl- aður íbúi ver ómældum tíma og axlar mikla ábyrgð í daglegu samneyti við fatlaða íbúa staðarins.“ Í yfirlýsingunni vitnar stjórn Sól- heima einnig til þess að Ríkisendur- skoðun taki dæmi í skýrslu sinni um að fjármunum sem sparast hafa í rekstri Sólheima hafi verið ráðstafað til annars en samkomulag var um að ríkið tæki þátt í. Segir í yfirlýsing- unni að Ríkisendurskoðun vitni máli sínu til stuðnings til þess að Sól- heimar hafi kostað innréttingu á samveru- og félagsmiðstöð sem jafn- framt væri nýtt sem kaffihús fyrir gesti staðarins fyrir um tíu milljónir kr. Um þetta segir stjórn Sólheima: „Í stað þess að rífa 40 ára gamalt gróðurhús í eigu Sólheima með til- heyrandi kostnaði var sú leið valin að bæta aðstöðu til samveru- og fé- lagslífs með því að lagfæra húsið. Varið var til verksins viðhalds- og af- gjaldsfé og rekstrarafgangi undan- farinna ára á tveimur árum, 5 millj- ónum kr. hvort ár. Um er að ræða rúm 3% af opinberri fjárveitingu til reksturs Sólheima hvort ár. Hér var staðið eins að verki og þegar gömlu bílaverkstæði var breytt í verslun, en Ríkisendurskoðun gerði enga at- hugasemd við þá framkvæmd.“ Stjórnin bætir því við að tilraun sú sem gerð væri með rekstur kaffihúss í fyrrgreindu húsnæði miðaði að því að auka fjölbreytni í byggðahverfinu og styrkja verslun sem tengdist framleiðslustarfsemi á Sólheimum. Að lokum má geta þess að stjórn Sólheima leggur áherslu á að sam- kvæmt samanburði sem gerður hafi verið á leigu félagslegra íbúða að Sól- heimum og öðru félagslegu húsnæði komi fram að húsaleiga sé að jafnaði fimm til tíu þúsund kr. lægri á mán- uði á Sólheimum. Stjórn Sólheima sendi frá sér yfirlýsingu um skýrslu Ríkisendurskoðunar Öll framlög til Sólheima nýtt í þágu rekstrar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.