Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KA hafði betur gegn Þór / C8
HM-veislan að hefjast /
C3–6
8 SÍÐUR 8 SÍÐUR
Mynstraðar skyrtur og litskrúðug bindi/B1
Ást á rauðu ljósi/B2
Dagur á slysa- og bráðadeild/B4
Heilsa og húsverk/B6
Krakkar ótrúlega líkir/B7
Auðlesið efni/B8
li i i
lj i
l - il
il
l lí i
l i i
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
„Vertu frjáls
í sumar“ frá
Tóbaks-
varnanefnd.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
„Sjómanna-
dagsblaðið“ frá
Sjómannadags-
ráði. Blaðinu
verður dreift um
allt land.
Sérblöð í dag www.mb l . i s
ÞAÐ hefur gengið á ýmsu í lífi fol-
aldsins Jarls frá Grundarfirði. Af-
lífa varð móður hans eftir fæð-
inguna og var Jarl þá tekinn inn í
sumarbústað að Spjör í Eyrarsveit
þar sem hann var hafður um nótt-
ina þar sem svo kalt var í veðri. Ísak
Þórir Ísólfsson hafði mikla samúð
með Jarli og gerði sitt besta til að
hugga hann. Nú hefur Jarl eignast
nýja móður því að önnur hryssa
hafði stuttu áður misst folald. Eftir
að hafa látið folaldið sjúga fóstur-
móðurina á hálftímafresti í 19 tíma
tók hún folaldinu sem sínu eigin og
gengur síðan allt að óskum.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Jarl og Ísak í Grundarfirði
KJARADÓMUR úrskurðaði í gær að laun æðstu
embættismanna þjóðarinnar skyldu hækka miðað
við 1. júní um 3% frá síðustu ákvörðunum dómsins.
Síðast ákvað Kjaradómur hækkun 1. janúar sl. um
3% og þar áður um 6,9% í apríl í fyrra. Eftir hækk-
unina verða mánaðarlaun forseta Íslands rúmar 1,4
milljónir króna, laun forsætisráðherra um 682 þús-
und krónur á mánuði og annarra ráðherra rúmar
620 þúsund kr. að meðtöldu þingfararkaupi í báð-
um tilvikum.
Í úrskurði Kjaradóms segir m.a. að á undanförn-
um árum hafi þess verið gætt að grunnhækkun
launa samkvæmt kjarasamningum komi fram í
ákvörðunum dómsins og taki breytingum á svip-
uðum tíma og hjá launþegum almennt. Síðasta
ákvörðun, hækkun um 3% um áramótin, hafi verið í
takt við það sem almennt gerðist. Síðan segir í úr-
skurðinum: „Hins vegar hafa ýmsar breytingar
orðið á launum opinberra starfsmanna undanfarin
misseri, sem ekki eru komnar fram í ákvörðunum
Kjaradóms. Þykir rétt að taka nú skref í þá átt að
lagfæra þetta misræmi að nokkru. Með vísan til
þeirra ákvæða laga um Kjaradóm að hann skuli
taka tillit til þróunar kjaramála á vinnumarkaði, og
að teknu tilliti til þeirra aðhaldsaðgerða sem gripið
hefur verið til undanfarið í verðlagsmálum, er það
ákvörðun Kjaradóms að laun þeirra sem taka laun
samkvæmt ákvörðunum hans skuli hækka um 3%
frá 1. júní 2002 að telja.“
Þingfararkaup 344 þúsund krónur á mánuði
Laun annarra embættismanna eftir hækkunina
verða þannig að forseti Hæstaréttar fær 494.117
kr. á mánuði en aðrir hæstaréttardómarar 449.144
kr. Mánaðarlaun ríkissaksóknara verða sömuleiðis
449.144 krónur, ríkissáttasemjari og ríkisendur-
skoðandi fá hvor um sig 429.520 krónur á mánuði
og biskup Íslands 433.743 kr. Dómstjórinn í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fær 411.881 kr. á mánuði en
aðrir dómstjórar 372.281 kr. Héraðsdómarar munu
fá 359.198 kr. á mánuði, umboðsmaður barna
357.446 kr. og þingfararkaup alþingismanna hækk-
ar í 344.597 krónur á mánuði.
Eldri ákvarðanir Kjaradóms um greiðslu yfir-
vinnu og aðra þætti eiga að standa óbreyttar, sam-
kvæmt úrskurðinum frá í gær, en sem kunnugt er
voru skattfríðindi forseta Íslands felld niður fyrir
rúmu ári. Kjaradóm skipuðu að þessu sinni Garðar
Garðarsson, formaður, Jón Sveinsson, Margrét
Guðmundsdóttir, Óttar Yngvason og Þorsteinn
Júlíusson.
Nýr úrskurður Kjaradóms um laun æðstu embættismanna þjóðarinnar
Launin hækka um 3%
um næstu mánaðamót
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í gær
sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur
yfir konu á fimmtugsaldri, sem ákærð
var fyrir hættulega líkamsárás með
því að stinga sambýlismann sinn með
hnífi hinn 24. mars 2001. Dæmdi
Hæstiréttur ákærðu í 15 mánaða
fangelsi, þar af eru 12 mánuðir refs-
ingarinnar skilorðsbundnir.
Maðurinn slasaðist lífshættulega
og var á sjúkrahúsi í nokkra daga en
náði fljótlega fullum bata eftir út-
skrift. Sambýlisfólkið bar fyrir dómi
að maðurinn hefði hlotið áverkana
fyrir slysni en Hæstiréttur taldi það
fráleitt. Við ákvörðun refsingar
ákærðu var m.a. litið til þess að hún
hafði beitt hættulegu vopni gegn
liggjandi manni og beint vopninu að
þeim stað líkamans þar sem viðkvæm
líffæri eru staðsett.
Hæstiréttur fann að samningu hér-
aðsdóms og þótti á það skorta að dóm-
urinn væri saminn með þeim hætti að
öllum atriðum sem skiptu máli við
heildarmat á sök væru gerð nægjan-
leg skil.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason, Haraldur Henrysson,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein. Verjandi ákærðu var Sigurður
Sigurjónsson hrl. Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari sótti málið.
Dæmd í 15
mánaða
fangelsi
fyrir hníf-
stungu
♦ ♦ ♦ EFTA-dómstóllinn telur að einka-
réttur ríkisins á innflutningi áfeng-
is, sem var við lýði til 1. desember
1995, hafi verið andstæður 16. gr.
EES-samningins og að ríkið geti
verið skaðabótaskylt gagnvart
mögulegum innflytjanda áfengis
vegna tjóns sem hann kann að
hafa orðið fyrir vegna þess að
einkarétti á sölu áfengis var við-
haldið eftir gildistöku EES-samn-
ingsins.
Þetta kemur fram í ráðgefandi
áliti EFTA-dómstólsins, sem gefið
var út í gær. Dómstóllinn lét álit
sitt í té í kjölfar beiðni frá Héraðs-
dómi Reykjavíkur í tengslum við
mál sem þar er rekið milli Karls K.
Karlssonar hf. og íslenska ríksins.
Ágreiningurinn varðar það hvort
einkaréttur íslenska ríkisins á inn-
flutningi og heildsöludreifingu
áfengis, sem var til staðar til 1.
desember 1995, hafi verið and-
stæður EES-samningnum, en hann
tók gildi 1. janúar 1994.
Á þeim tíma var Karli K. Karls-
syni hf. meinað að flytja inn og
dreifa til smásöluaðila áfengisteg-
undum sem hann hafði umboð fyr-
ir.
EFTA-dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að einkaréttur
ríkisins á innflutningi áfengis, sem
var við lýði á Íslandi til 1. desem-
ber 1995, hefði verið andstæður 16.
gr. EES-samningsins. Dómstóllinn
taldi að EFTA-ríki gæti verið
skaðabótaskylt gagnvart mögu-
legum innflytjanda áfengis vegna
tjóns sem hann hefði orðið fyrir.
Ráðgefandi álit
EFTA-dómstólsins
Ríkið hugs-
anlega
skaðabóta-
skylt
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs mynduðu nýjan meirihluta
í sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar í gærkvöld. Sveitar-
stjóri verður Ársæll Guðmundsson
oddviti vinstrigrænna. Forseti sveit-
arstjórnar og formaður byggðaráðs
verður Gísli Gunnarsson oddviti
sjálfstæðismanna. Nýi meirihlutinn
er skipaður fimm fulltrúum, þremur
frá Sjálfstæðisflokki og tveimur frá
vinstrigrænum. Fjórir sveitarstjórn-
armenn skipa minnihluta, þrír fram-
sóknarmenn og einn af lista Skaga-
fjarðarlistans.
Nýr meirihluti
Sveitarfélagið Skagafjörður
GENGI bréfa deCODE, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar,
hækkaði um 35 sent á bandarískum
hlutabréfamarkaði í dag, eða um
7,53% og stendur hluturinn nú í 5,00
Bandaríkjadölum. Gengi hlutabréf-
anna náði sögulegu lágmarki á mið-
vikudag, en þá var lokagengi dagsins
4,65 dollarar á hlut.
DeCODE
hækkaði um
7,5%
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur,
fyrir hönd ríkissjóðs, ákveðið að
framlengja vátryggingarvernd ís-
lenskra flugrekenda vegna hryðju-
verka um einn mánuð, eða til júní-
loka. Í fréttariti fjármálaráðu-
neytisins, fjr.is, segir að þetta sé í
samræmi við ákvarðanir ríkisstjórna
víðsvegar um heim um framlengingu
sambærilegrar vátryggingarvernd-
ar. Framkvæmdastjórn ESB hafi
t.a.m. í fyrradag heimilað aðildar-
ríkjum sínum slíka framlengingu til
júníloka.
Vátrygging-
arvernd
framlengd
♦ ♦ ♦