Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það eru aldeilis góðar fréttir frá Japan, bróðir, bara rakið góðæri áfram eins langt og elstu menn sjá.
Hátíð hafsins
Eins alþjóðleg
og hægt er
HÁTÍÐ hafsins verð-ur haldin umhelgina og liggur
efni hennar að einhverju
leyti í nafninu. Til að for-
vitnast nánar um hvað
þarna er á ferðinni hafði
Morgunblaðið samband
við Ágúst Ágústsson,
markaðsstjóra Reykjavík-
urhafnar, og svaraði hann
nokkrum spurningum sem
fyrir hann voru lagðar.
– Hver er tilurð og for-
saga þessarar hátíðar, Há-
tíðar hafsins?
„Hátíð hafsins var fyrst
haldin árið 1999, en hátíðin
er sett saman úr hafnar-
degi Reykjavíkurhafnar
og sjómannadeginum, sem
sjómannadagsráð Reykja-
víkur hefur staðið að í rúm
60 ár. Hafnardagur Reykjavíkur-
hafnar var fyrst haldinn árið 1992
á 75 ára afmæli hafnarinnar og
var árlegur viðburður ýmist í
Sundahöfn eða Gömlu höfninni.
Það var mat aðstandenda hafnar-
dags og sjómannadagsins að hægt
væri að búa til betri hátíð með því
að sameina þessa tvo atburði í
eina hátíð, sem stæði yfir heila
helgi. Sjómannadagurinn er
bundinn í lög og þar segir að hann
skuli haldinn fyrsta sunnudag í
júní ár hvert og var því sú tíma-
setning valin fyrir Hátíð hafsins.“
– Viltu ekki gefa okkur frekari
og tæmandi upplýsingar um há-
tíðina …?
„Hátíð hafsins fer fram á Mið-
bakkanum við Gömlu höfnina nú
um helgina. Dagskráin hefst á
laugardagsmorgun klukkan 10
með því að skip í höfninni flauta
hátíðina inn. Hin hefðbundna dag-
skrá sjómannadagsins verður á
sunnudag frá klukkan 14 til 15 og
þar munu þeir Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra og Sveinn
Ludvigsen, sjávarútvegsráðherra
Noregs, flytja ávörp.“
– Geturðu nefnt nokkur dæmi
um uppákomur og skemmtanir
sem standa gestum til boða á Há-
tíð hafsins?
„Hafið brúar lönd og sjómenn-
irnir eru þeir sem oftast hafa flutt
okkur nýja og ferska menningar-
strauma. Stjórn Hátíðar hafsins
hefur því sérstaklega lagt áherslu
á að gera hátíðina alþjóðlega eins
og frekast er kostur. Að þessu
sinni fáum við heimsókn frá
strandhéraðinu Charente Mari-
time á vesturströnd Frakklands,
en í þessu héraði hefur SÍF numið
land og rekur þar fiskréttaverk-
smiðju. Ferðamálaráð Charente
Maritime mun kynna héraðið í
tjaldi á hafnarbakkanum og jafn-
framt bjóða fólki í glerkúlukeppni
sem fer fram á þar til gerðri sand-
braut. Annar atburður, ekki síður
alþjóðlegur er nefndur „Sjávar-
fang úr hafinu“ á vegum félags
sem kallar sig SONI eða „Society
of New Icelanders“, en þeir eru
hluti af fjölmenningarsamtökum
nýrra Íslendinga. Sjávarfangið er
samsett úr matseðlum
fjölda þjóða og þar á
meðal er góðgæti fram-
leitt í verksmiðju SÍF í
Frakklandi.“
– Hver er tilgangur-
inn með Hátíð hafsins?
„Tilgangur Hátíðar hafsins er
að kynna allt það sem tengist haf-
inu og þá ekki síst að veita sjó-
mönnum verðskuldaða virðingu
eins og gert hefur verið á sjó-
mannadeginum á Íslandi í rúm 60
ár. Það fer vel á því að Reykjavík-
urhöfn og sjómannadagsráð haldi
upp á þennan dag saman, en höfn-
in er skjól fyrir skip og sjómenn,
og það hefur Reykjavíkurhöfn
verið í hartnær 85 ár. Eitt af
áhersluatriðum hátíðarinnar hef-
ur einnig verið „menntun og
menning“ og í því sambandi hefur
verið lögð áhersla á að kynna
menntastofnanir sjómanna og
einnig að kynna stofnanir og fyr-
irtæki sem tengjast nafninu. Á
hafnarbakkanum geta þeir sem
hafa áhuga á að kynna sér mögu-
leika á námi og störfum sem
tengjast sjónum fundið ýmislegt,
svo sem flestar menntastofnanir,
rannsóknarstofnanir og margt
fleira. „Konur og kvótinn“ er fyr-
irlestur sem Hulda Proppé mann-
fræðingur flytur í Grófarhúsinu,
en fyrirbærið kvóti hefur sett svip
sinn á líf sjómannskonunnar nú í
nokkur ár. Einnig tengt menn-
ingu er sýning ljósmynda frá
Reykjavíkurhöfn, sem Árni Ein-
arsson ljósmyndari hefur tekið og
sett upp í fjölnotasal Listasafns
Reykjavíkur.“
– Geturðu nefnt einhverjar
fleiri áherslur sem verða í brenni-
depli á hátíðinni?
„Það hefur verið hefð fyrir því á
sjómannadegi að kynna almenn-
ingi hinar ýmsu hliðar þess sem
lúta að slysavörnum og björgun úr
sjávarháska og verður það einnig
gert nú. Þar ber fyrst
að nefna að á sunnu-
deginum verður nýr
björgunarbátur afhent-
ur og honum gefið nafn.
Í annan stað gefst al-
menningi kostur á að sigla með
Sæbjörgu um sundin, en Sæbjörg
þjónar sem slysavarnaskóli sjó-
manna. Almenningi gefst einnig
kostur á að heimsækja og skoða
íslensk varðskip við Ingólfsgarð.“
– Fyrir hverja er Hátíð hafsins?
„Hátíð hafsins er fjölskylduhá-
tíð fyrir alla aldurshópa, ekki síst
fyrir Vesturbæinga, sem taka
myndarlega þátt í hátíðinni.“
Ágúst Ágústsson
Ágúst Ágústsson fæddist á
Þingeyri við Dýrafjörð 10. júlí
1946. Samvinnuskólapróf frá Bif-
röst og verslunarstúdentspróf
frá Red River Community Coll-
ege í Winipeg. Viðskiptafræði-
gráða frá University of Manitoba
og MBA próf árið 1977 frá
Queens University í Kingston
Ontario. Starfaði hjá SÍS í Ham-
borg, sem fulltrúi Útflutnings-
miðstöðvar Íslands, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar,
markaðssviðs hjá Álafossi og síð-
an útflutningsstjóri hjá Pól-
stækni. Markaðsstjóri Reykjavík-
urhafnar síðan 1991. Maki er
Björg Hemmert Eysteinsdóttir,
fulltrúi hjá Alþjóðaskrifstofu HÍ,
og eiga þau Þórstein og Ingunni
Margréti.
Boðið til gler-
kúlukeppni á
sandbraut