Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRÁFARANDI bæjarstjórn Borg-
arbyggðar kemur saman til síðasta
fundar í dag í Borgarnesi. Meðal
helstu mála á dagskrá, að sögn Stef-
áns Kalmanssonar bæjarstjóra, er að
taka ákvörðun um hvort semja eigi
við Njarðtak ehf. í Njarðvík um að
taka að sér sorphirðu í sveitarfé-
laginu næstu fjögur árin eða leita til
dómstóla vegna þeirra tveggja úr-
skurða sem kærunefnd útboðsmála
hefur fellt, Borgarbyggð í óhag,
vegna útboðs á sorphirðu og rekstri
gámastöðvar í Borgarnesi.
Forsaga þessa máls er að Borgar-
byggð efndi til útboðsins í október sl.
og bárust sjö tilboð, m.a. frá Njarð-
taki, sem sinnt hefur sorphirðu á Suð-
urnesjum, og Gámaþjónustu Vestur-
lands, sem áður hafði sinnt sorphirðu
fyrir sveitarfélagið. Tilboðin voru
opnuð í byrjun janúar sl. og átti
Njarðtak lægsta boð í sorphirðuna,
9,3 milljónir, en Gámaþjónusta Vest-
urlands bauð næstlægst, tæpar 10
milljónir kr. Njarðtak bauð næst-
lægst í rekstur gámastöðvar í Borg-
arnesi, rúmar 7 milljónir, en lægst
bauð Almenna umhverfisþjónustan,
tæpar 7 milljónir. Gámaþjónustan
bauð 7,8 milljónir í þennan hluta út-
boðsins. Við opnun tilboða var upp-
lýst að Gámaþjónustan hafði lagt inn
þrjú frávikstilboð sem hafa verið met-
in 600 þúsund kr. lægri en tilboð
Njarðtaks.
Hinn 17. janúar sl. samþykkti bæj-
arráð Borgarbyggðar að fela bæjar-
verkfræðingi, á grundvelli frávikstil-
boðanna, að ganga til viðræðna við
Gámaþjónustu Vesturlands um sorp-
hirðu í sveitarfélaginu og rekstur
gámastöðvarinnar. Samdægurs
kærði Njarðtak þessa samþykkt til
kærunefndar útboðsmála og nokkr-
um dögum síðar komst nefndin að
þeirri ákvörðun að stöðva ætti samn-
ingsgerð Borgarbyggðar við Gáma-
þjónustan þar til að endanlega hefði
verið skorið úr um kæru Njarðtaks.
Kærunefndin skilaði svo úrskurði í
lok febrúar sl. þar sem ákvörðun
Borgarbyggðar, að ganga til samn-
inga við Gámaþjónustuna, var felld úr
gildi. Taldi nefndin að samkvæmt nið-
urstöðum útboðsins hefði átt að
semja við Njarðtak. Borgarbyggð var
gert að greiða Njarðtaki 110 þúsund
krónur í málskostnað.
Ákveðið að hafna öllum til-
boðum og auglýsa nýtt útboð
Bæjarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti svo á fundi sínum um miðjan
mars sl. að hafna öllum tilboðum í
sorphirðuna og rekstur gámastöðvar-
innar og láta fara fram nýtt útboð, í
síðasta lagi fyrir 1. október nk. Þá var
einnig samþykkt að fela bæjarstjóra
að leita samninga við Gámaþjónustu
Vesturlands um áframhaldandi tíma-
bundna þjónustu við sorphirðuna.
Njarðtak kærði báðar þessar ákvarð-
anir sveitarfélagsins til kærunefndar
útboðsmála og nefndin skilaði svo
öðrum úrskurði í málinu 6. maí sl.
Ákvörðun Borgarbyggðar um að
hafna öllum tilboðum og efna til nýs
útboðs var felld úr gildi og taldi kæru-
nefndin að sveitarfélagið hefði bakað
sér skaðabótaábyrgð gagnvart
Njarðtaki. Var Borgarbyggð gert að
greiða fyrirtækinu 180 þúsund kr. í
málskostnað. Í úrskurði nefndarinn-
ar segir m.a.: „Fyrir liggur að kærði
hefur í tvígang tekið ákvarðanir í
framhaldi af niðurstöðu margum-
rædds útboðs, sem farið hafa í bága
við réttarreglur um framkvæmd op-
inberra innkaupa. Er það atferli til
þess fallið að leggja skaðabótaskyldu
á kærða.“
Eftir þennan úrskurð segist lög-
maður Njarðtaks, Þorsteinn Einars-
son hrl., ítrekað hafa lagt til við for-
ráðamenn sveitarfélagsins að setjast
niður og semja við fyrirtækið um
verkið, en ekki hafi verið orðið við
þeim tilmælum.
Sveitarfélagið ósátt
við úrskurðina
Stefán Kalmansson sagði við
Morgunblaðið að sveitarfélagið væri
ósátt við úrskurði kærunefndarinnar
og lögfræðiálit myndi liggja fyrir á
fundi bæjarstjórnar í dag. Hann vildi
ekki meta líkurnar á því hvort málið
endaði fyrir dómstólum eða samið
yrði við Njarðtak.
Stefán sagði að málið væri að vissu
leyti fordæmisgefandi þar sem lítið
hefði reynt á ný lög um opinber inn-
kaup og menn væru því að fóta sig í
nýju umhverfi. Samkvæmt seinni úr-
skurði kærunefndar gætu sveitar-
félög ekki tekið þá ákvörðun að hafna
öllum tilboðum og efna til nýs útboðs,
líkt og Borgarbyggð hefði áskilið sér
rétt til í útboðsskilmálum. Sveitar-
félögum eða öðrum opinberum aðil-
um væri greinilega gert skylt að taka
hagstæðustu tilboðum.
Stefán sagði að það hefði engu
skipt í að Njarðtak væri fyrirtæki ut-
an sveitarfélagsins og að Gámaþjón-
usta Vesturlands hefði áður sinnt
þessum verkefnum í Borgarbyggð,
sem hún hefði reyndar gert vel. Menn
vissu vel að það væru ekki viður-
kennd rök að velja heimaaðila í út-
boði, útboð færu þá heldur ekki fram.
Kærunefnd útboðsmála hefur tvisvar fellt úr gildi ákvörðun Borgarbyggðar vegna útboðs á sorphirðu
Leitað til dómstóla
eða samið við
lægstbjóðanda
SÍMASKRÁIN fyrir árið 2002 er
komin út og hefur hún þegar tekið
gildi. Í skránni er að finna síma-
númer viðskiptavina allra símafyr-
irtækjanna. Að sögn Heiðrúnar
Jónsdóttur, forstöðumanns upplýs-
inga- og kynningarmála Símans,
hefur Símaskráin komið út óslitið
síðan 1906 og er hún umfangsmesta
prentverk sem unnið er í landinu ár-
lega, en Símaskráin er prentuð í 230
þúsund eintökum. „Forsíðu Síma-
skrárinnar prýða verk eftir Krist-
ínu Jónsdóttur en hún var fyrst ís-
lenskra kvenna til að helga sig
myndlist,“ segir Heiðrún. Skráin er
tvískipt í ár, eins og í fyrra, og
heitir myndin á skránni fyrir höf-
uðborgarsvæðið Við þvottalaug-
arnar, en myndin á landsbyggð-
arskránni heitir Fiskverkun við
Eyjafjörð.
Listi yfir leikdaga
í Símadeildinni
Helstu nýjungarnar í skránni
þetta árið eru svokölluð bannmerki,
sem eru sérstakar merkingar við
notendur sem óska eftir að vera
ekki ónáðaðir af aðilum sem stunda
beina markaðssetningu. Merkingin
er fyrir framan símanúmerin og er
rauður kassi með hvítum krossi.
Anton Örn Kærnested, ritstjóri
Símaskrárinnar, segir að Síminn
hafi boðið upp á þessu þjónustu í fá-
ein ár, þó að þetta sé í fyrsta skipti
sem sérstakar merkingar séu settar
í skrána sjálfa. Af um 300.000 að-
ilum sem skráðir eru í skrána ósk-
uðu um 54.000 eftir merkingunni og
fer þeim fjölgandi.
Í skránni er að finna lista yfir
leikdaga í Símadeildinni 2002 og
telur Anton Örn það aukna þjónustu
við stóran hóp lesenda. Í töflu í
skránni er að finna alla leikdaga í
karla- og kvennaflokki í efstu deild
og geta notendur á auðveldan hátt
fylgst með því hvenær leikirnir eiga
sér stað.
Einnig eru leiðbeiningar til al-
mennings á íslensku og ensku frá
Almannavörnum ríkisins og leið-
beiningar um notkun Símaskrár-
innar á ensku. Í fyrra var bætt við
póstnúmerum ásamt skammstöf-
unum yfir staðarheiti auk netfanga.
Netföngum hefur fjölgað umtals-
vert og eru nú 25.000.
Ekki á undanhaldi
Anton Örn segir, aðspurður hvort
Símaskráin sé á undanhaldi, svo
ekki vera. „Margt ungt fólk segir að
það sé hætt að nota Símaskrána,
noti hana eingöngu á netinu, en það
má ekki gleyma að það eru nokkrar
kynslóðir í landinu og töluverður
hluti eldra fólks kann ekki á tölv-
ur,“ bendir hann á og segist heldur
ekki sjá það fyrir sér að fólk mæti
inn á bensínstöð í framtíðinni og
biðji um að fá að nota tölvuna. „Það
er hæpið að það yrði leyft en fólk
fengi umsvifalaust lánaða síma-
skrá.“
Hann segir að fyrir hvert tré sem
fellt sé fyrir framleiðslu Símaskrár-
innar gróðursetji Síminn þrjú. Einn-
ig eru gamlar símaskrár settar í
jarðgerð og nýtist skráin til upp-
græðslu. Viðskiptavinir eru því
hvattir til þess að skila inn gömlu
skránni.
Símaskránni verður dreift í sam-
vinnu við Flytjanda, Essó og Olís um
allt land til 30. júní 2002. Hún liggur
jafnframt frammi í öllum verslunum
Símans og hjá skrifstofu Símaskrár.
Símaskráin 2002 er komin út
Morgunblaðið/Ásdís
Anton Örn Kærnested, ritstjóri Símaskrárinnar, og Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður kynningarmála Símans.
54 þúsund notendur ósk-
uðu eftir bannmerkjum
NÝR meirihluti Samfylkingar og
Framsóknarflokks í Sveitarfélaginu
Árborg hefur ákveðið að auglýsa eft-
ir nýjum bæjarstjóra eins fljótt og
kostur er, að sögn Þorvaldar Guð-
mundssonar, efsta manns á lista
Framsóknarflokksins. Fylkingarnar
hafa gengið frá málefnasamningi, en
þar er m.a. lögð áhersla á uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja, bætta þjón-
ustu við aldraða og markvissa upp-
byggingu á leikskólum í samræmi
við þarfir íbúa og þróun byggðar.
Þorvaldur Guðmundsson, verður
forseti bæjarstjórnar, fyrsta árið og
Ásmundur Sverrir Pálsson, oddviti
Samfylkingarinnar, verður formað-
ur bæjarráðs það ár en samkvæmt
samkomulagi milli flokkanna munu
þeir skipta embættunum á milli sín
árlega. Þannig verður Þorvaldur for-
maður bæjarráðs, annað árið, en
Sverrir forseti bæjarstjórnar.
Í málefnasamningi nýs meirihluta
kemur m.a. fram að hann vilji að
markvisst verði leitað eftir því að ný
fyrirtæki og þjónustustofnanir flytji
starfsemi sína til Árborgar en jafn-
framt verði hlúð að þeim atvinnu-
rekstri sem fyrir er. Þá kemur m.a.
fram að meirihlutinn vilji styrkja
þjónustu við aldraða á dvalarstöðum
á vegum sveitarfélagsins sem og á
heimilum þeirra svo aldraðir geti bú-
ið heima svo lengi sem þeir kjósa. Þá
vill meirihlutinn að því verði fylgt
eftir að uppbygging hjúkrunardeild-
ar verði í samræmi við nútímaþarfir.
Meirihlutinn vill auk þess að
skólabygging í Suðurbyggð rísi svo
fljótt sem auðið er og jafnframt að
úttekt verði gerð á húsnæði og að-
stöðu Barnaskólans á Eyrarbakka
og Stokkseyri. Aukinheldur verði
markviss uppbygging á leikskólum í
samræmi við þarfir íbúa og þróun
byggðar. Meirihlutinn vill hefja upp-
byggingu, í samvinnu við íþrótta-
félög, á íþróttaleikvangi á Selfossi,
skv. nýju skipulagi íþróttavallar-
svæðisins árið 2003, og að aðstaða á
Eyrarbakkavelli bætt.
Samfylking og Framsóknarflokkur
mynda meirihluta í Árborg
Auglýst eftir nýj-
um bæjarstjóra
HALLDÓR Halldórsson, oddviti D-
lista sjálfstæðismanna í Ísafjarð-
arbæ, verður áfram bæjarstjóri,
samkvæmt málefnasamningi sem
meirihlutinn í bænum, B-listi Fram-
sóknarflokks og D-listi Sjálfstæðis-
flokks, hefur gert með sér. Í kosn-
ingunum hélt Sjálfstæðisflokkurinn
sínum fjórum bæjarfulltrúum og
Framsóknarflokkurinn bætti við sig
öðrum bæjarfulltrúa.
Í málefnasamningnum, sem
kynntur var í gær, er gert ráð fyrir
því að forseti bæjarstjórnar verði af
D-lista sjálfstæðismanna og að for-
maður bæjarráðs verði af B-lista
framsóknarmanna. Þeir munu halda
þeim embættum út kjörtímabilið en
á síðasta kjörtímabili skiptu fylking-
arnar embætttunum með sér, frá ári
til árs. Ekki hefur verið gengið frá
því hvaða bæjarfulltrúar muni skipa
fyrrgreind embætti en líkur eru þó á
því að Guðni Geir Jóhannesson, odd-
viti B-listans, verði formaður bæjar-
ráðs og Birna Lárusdóttir, D-lista,
verði forseti bæjarstjórnar.
Í málefnasamningnum segir m.a.
að forgangsverkefni bæjarstjórnar
verði að leita leiða til að styrkja at-
vinnulífið í samvinnu við fyrirtæki og
stofnanir. „Liður í því er að tryggja
Ísafjarðarbæ sem öflugan byggða-
kjarna í samræmi við nýsamþykkta
byggðaáætlun. Lögð verður rík
áhersla á að framfylgja sérstakri
byggðaáætlun fyrir Vestfirði,“ segir
í málefnasamningnum. Þar kemur
einnig fram að vegna endurskipu-
lagningar orkumála í landinu muni
meirihlutinn beita sér fyrir því að sú
reynsla og þekking sem er fyrir
hendi verði nýtt til að tryggja starf-
semi orkufyrirtækis í fjórðungnum.
Ísafjarðarbær
Halldór Halldórsson
áfram bæjarstjóri