Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÓTEL Selfoss verður opnað aftur á
laugardag eftir gagngerar endurbæt-
ur og umtalsverða stækkun. Hótelið
verður hér eftir starfrækt undir
merkjum Icelandair hotels en með
stækkuninni verður tekin í notkun
nýbygging ásamt endurbættu eldra
húsnæði með eldhúsi og veitingasöl-
um á 2. hæð sem einu nafni nefnast
Ársalir. Í nýbyggingunni eru 79 her-
bergi og 21 herbergi í eldri hluta
hússins, samanlagt 100 herbergi.
Að sögn Þórs Kjartanssonar,
markaðsstjóra Kaupfélags Árnes-
inga, sem sér um rekstur hótels og
veitingahluta, er hótelið eitt hið
stærsta sinnar tegundar á landinu sé
miðað við herbergjafjölda með baði.
Húsið er alls ríflega 10 þúsund fer-
metrar að flatarmáli og verðmæti
þess fullbyggt um 1,1 milljaður króna.
Kostnaður vegna framkvæmdanna
sem nú er að ljúka er um 600 milljónir
króna án virðisauka.
Hótelið snertir bæjarfélagið á ýms-
an hátt og sem dæmi verður starf-
ræktur 330 sæta menningarsalur í
eldra húsnæðinu með alhliða tónlist-
ar- og leikhússtarfi. Unnið er að und-
irbúningi að stofnun sjálfseignar-
stofnunar um menningarsalinn sem
mun sjá um að afla fjármagns til
framkvæmda og reksturs á honum.
Framkvæmdir við hótelið hófust í
lok apríl á síðasta ári þegar Björn
Bjarnason, þáverandi menntamála-
ráðherra, tók fyrstu skóflustungu að
byggingunni. Stuttu áður tókust
samningar milli Arkís, aðalhönnuðar
hússins, um hönnunina en undirbún-
ingur hafði þá staðið frá mars 2000
þegar undirritaður var kaupsamning-
ur milli Kaupfélags Árnesinga og
sveitarfélagsins Árborgar um kaup
KÁ á eldri hluta hótelsins. Kaupverð-
ið var 40 milljónir.
Í júlí 2001 var eignarhaldsfélagið
Brú hf. stofnað sem jafnframt yfirtók
kaupsamninginn með skuldbindingu
um að viðbyggingin yrði reist og hús-
ið fullklárað. Eigendur Brúar hf. eru
Kaupfélag Árnesinga, Isosport hf. og
eignarhaldsfélag Suðurlands. Bygg-
ingarframkvæmdir voru að mestu í
höndum JÁ-Verktaka á Selfossi en
um verkfræðihönnun sá Hönnun hf.
Jafnframt var samið við KÁ um að
þeir tækju að sér hótel- og veitinga-
rekstur til næstu 15 ára og starf-
ræktu undir merkjum Icelandair hot-
els. Þess má geta að KÁ starfrækir
þrjú hótel undir sama merki, á
Kirkjubæjarklaustri, Flúðum og í
Keflavík.
Þegar komið er að bílastæðinu þar
sem gengið var inn í gamla Hótel Sel-
foss stendur nýbyggingin svo að
segja í hvarfi. Þegar gengið er með-
fram hótelinu, fjær Ölfusá, kemur
gríðarstór bygging í ljós þar sem 79 af
100 herbergjum hótelsins eru. Ný-
byggingin og eldra húsnæðið eru
tengd saman með glerturni þar sem
jafnframt er nýr aðalinngangur hót-
elsins. Á lóðinni fyrir framan verða
bílastæði en þar stóð leikskóli áður.
Til marks um þátttöku bæjaryfir-
valda í þeirri stórframkvæmd sem
hótelbyggingin er hefur starfsemi
leikskólans nú verið flutt í nýjan og
stærri skóla og kostaði framkvæmdin
um 130 milljónir króna.
Aðalanddyrið er bjart og fallegt
rými sem nær hátt til lofts. Vatnsfoss
liðast eftir veggnum á hægri hönd og
tengibrýr milli hæða í gömlu og nýju
byggingunum liggja þvert yfir rýmið.
Þess má geta að listaverk tengd vatni
munu prýða hótelið og er vatn og
slökun þemu þess. Meðal annars er
stefnt að því að opna heilsulind síðar
meir og meðfram útveggjum hótels-
ins rennur síki sem undirstrikar teng-
inguna við vatnið.
Miklar annir hafa verið hjá iðnað-
armönnum síðustu daga, en um 60–80
iðnaðarmenn hafa verið að störfum í
húsinu. Enn er nokkurri vinnu ólokið,
en Karl Rafnsson hótelstjóri og Sig-
urður Jónsson, framkvæmdastjóri
Brúar hf., segja að allt verði tilbúið í
tæka tíð fyrir opnunina.
4 stjörnu hótel með tveimur
kvikmyndasölum
Öll nýju herbergin og þjónustu-
staðlar hússins eru miðaðir við fjög-
urra stjörnu hótel en fyrst í stað
verða eingöngu nýttir veitingasalir í
eldra húsnæði. Í öðrum áfanga fram-
kvæmdanna sem lýkur í september
er ráðgert að taka í notkun nýtt eld-
hús og veitingasal með útsýni yfir Ölf-
usá. Á haustmánuðum verða einnig
teknir í notkun tveir nýir kvikmynda-
salir í kjallara nýbyggingarinnar, 120
og 50 sæta, og tveir fundarsalir í leik-
hústurni eldra hússins. Lóð hótelsins
verður kláruð næsta haust og rými í
eldra húsnæði leigt út fyrir verslun og
þjónustu sem snýr að hótelrekstri.
Að sögn Karls Rafnssonar hótel-
stjóra munu um 40–50 manns starfa á
hótelinu að staðaldri og aðspurður
segir hann útlit fyrir í kringum 80%
herbergjanýtingu á hótelinu í sumar.
Þór Kjartansson, markaðsstjóri
KÁ, bendir á að það sé mjög gott í
ljósi þess að vinna við markaðssetn-
ingu hafi hafist þegar hótelið var enn
á byggingarstigi. Spurður um
áherslur í markaðssetningu segir Þór
að megináhersla verði á fundi, ráð-
stefnur, veislur og mannfagnaði utan
háannatíma sumars. Hann bendir á
að boðið sé upp á úrval af minni og
stærri fundarsölum með nýjum
tæknibúnaði sem einfaldar allar still-
ingar og framkvæmd við fundarhöld.
Leigutaki hótelsins útvegar öll
tæki og búnað til rekstursins og má í
þessu sambandi nefna að öll húsgögn
eru keypt ný frá austurrískum hús-
gagnaframleiðanda. Herbergi hótels-
ins eru í þremur stærðum og verð-
flokkum en að auki er ein 50 fermetra
tvískipt brúðarsvíta í austurrískum
18. aldar stíl með útsýni yfir Ölfusá.
Húsgögn í brúðarsvítuna eru sér-
hönnuð og kostar nóttin 29.800 kr.
Hótelgestir standa frammi fyrir
ýmiss konar vali þegar kemur að því
að bóka herbergi. Auk þess að velja
milli reyk- eða reyklausra herbergja
geta þeir ráðið hvort þeir vilja teppi
eða parket á gólfum. Þá eru átta her-
bergi sérhönnuð fyrir aðgengi fatl-
aðra. Öryggishólf og minibar eru á
öllum herbergjum og sömuleiðis há-
hraða sítenging við Netið.
Auk þess sem unnið hefur verið að
endurbótum á eldra húsnæði hótels-
ins, þ.m.t. forrými fyrir veitingasali á
2. hæð, kvikmyndasali og veitingasal
hótelsins er í eldra húsinu 330 sæta
menningarsalur sem fylgdi með í
kaupum hússins. Sá hluti hússins var
keyptur á kaupleigu til 10 ára og hef-
ur eignarhaldsfélagið Brú frumkvæði
að því að koma honum í not. Und-
irbúningur að stofnun sjálfseignar-
stofnunar um salinn stendur yfir og
hefur fyrri hluti stofnfundar farið
fram. Skráning stofnaðildar er hafin.
Hótel Selfoss verður opnað um helgina að nýju í gjörbreyttri mynd við bakka Ölfusár
Eitt stærsta
hótel á lands-
byggðinni
Árborg
Morgunblaðið/RAX
Iðnaðarmenn leggja lokahönd á frágang við 1. áfanga hótelsins. Ölfusá, í baksýn, skartar sínu fegursta.
Morgunblaðið/RAX
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Brúar hf. (lengst til vinstri), Karl Rafnsson hótelstjóri og Þór Kjart-
ansson, markaðsstjóri KÁ, hafa haft í nógu að snúast síðustu daga. Að baki þeim sést nýbygging hótelsins.
Morgunblaðið/RAX
Brúðarsvíta hótelsins er í austurrískum stíl með útsýni yfir Ölfusá.
Morgunblaðið/RAX
Gamla Hótel Selfoss og nýbygg-
ingin eru tengd saman með
brúm sem liggja þvert yfir and-
dyri hótelsins.
Fjögurra stjörnu ráð-
stefnuhótel er risið við
bakka Ölfusár á Selfossi
og eru fyrstu gestir
væntanlegir á morgun.
Kristján Geir Péturs-
son og Ragnar Axels-
son heimsóttu hótelið í
vikunni þegar verið var
að leggja lokahönd á
frágang.
MEISTARINN.IS