Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 21
HAGNAÐUR samstæðu Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf. á fyrstu þrem-
ur mánuðum þessa árs nam 221 millj-
ón króna eftir skatta. Hagnaðurinn á
sama tímabili í fyrra var 208 milljónir.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
afkoma samstæðunnar eftir fyrsta
ársfjórðung sé ásættanleg þegar á
heildina sé litið. Hagnaður af vá-
tryggingarekstri hafi aukist nokkuð á
milli ára en brýnt sé að sá þáttur
starfseminnar sé rekinn með góðum
hagnaði.
Bókfærð iðgjöld skaðatrygginga
voru 3.380 milljónir króna en bókfærð
iðgjöld líftrygginga 318 milljónir. Þá
voru bókfærð tjón skaðatrygginga
1.441 milljón en bókfærðar líftrygg-
ingabætur 102 milljónir.
Hreinn rekstrarkostnaður félags-
ins vegna skaðatryggingarekstrar
var 278 milljónir, hækkaði um 21%
frá fyrra ári, og vegna líftrygginga-
rekstrar 89 milljónir. Fjárfestinga-
tekjur yfirfærðar á vátrygginga-
rekstur voru 187 milljónir vegna
skaðatrygginga og 16 milljónir vegna
líftrygginga.
Fjárfestingartekjur samstæðunn-
ar voru 323 milljónir á tímabilinu og
fjárfestingargjöld 205 milljónir. Á
síðasta ári voru fjárfestingartekjurn-
ar 438 milljónir og gjöldin 163 millj-
ónir. Að teknu tilliti til yfirfærðra
fjárfestingartekna á vátrygginga-
rekstur var tap af fjármálarekstri 85
milljónir á tímabilinu en á sama tíma-
bili í fyrra var hagnaðurinn 9 millj-
ónir.
Áhrif dótturfélagsins Sameinaða
líftryggingafélagsins hf. á afkomu
samstæðunnar eru neikvæð um 9
milljónir króna á tímabilinu en þetta
er í fyrsta sinn sem lagt er fram sam-
stæðuuppgjör fyrir Sjóvá-Almennar
tryggingar og dótturfélag þess.
Reiknaðir skattar eftir fyrstu þrjá
mánuði þessa árs eru 29 milljónir en
voru 94 milljónir á sama tíma í fyrra.
Veltufé samstæðunnar frá rekstri
nam 1.227 milljónum króna á fyrsta
fjórðungi þessa árs en 1.023 milljón-
um á sama tímabili í fyrra. Handbært
fé frá rekstri var 655 milljónir í ár en
367 milljónir á síðasta ári.
Ekki tilefni til breytinga á áætlunum
Um rekstrarhorfur framundan
segir í tilkynningu Sjóvár-Almennra
trygginga að ekki sé talið rétt á
grundvelli rekstraruppgjörs eftir
einn ársfjórðung að draga ályktanir
um þróun einstakra vátrygginga-
greina til lengri tíma. Afkoma eigna-
trygginga hafi batnað nokkuð á
fyrsta ársfjórðungi og þrátt fyrir 5%
fjölgun ökutækjatjóna sé afkoma
greinarinnar jákvæð í lok tímabilsins.
Á sama tíma valdi nokkrum áhyggj-
um hve slæm afkoma sé af almennum
ábyrgðartryggingum. Áætlun um
fjármunatekjur ársins geri ráð fyrir
lækkun frá fyrra ári og sé skýringa á
því fyrst og fremst að leita í breyt-
ingum á vaxtaumhverfi, verðbólgu-
og gengisþróun.
Á síðasta aðalfundi móðurfélagsins
kom fram að áætlanir gerðu ráð fyrir
að afkoma þess á árinu 2002 yrði
áþekk eða nokkru betri en á síðast-
liðnu ári. Segir í tilkynningunni að
ekkert hafi komið fram sem gefi til-
efni til breytinga á þeim áætlunum
gagnvart móðurfélagi og samstæðu.
Sjóvá-Almennar hagn-
ast um 221 milljón
Þrátt fyrir 5% fjölgun ökutækjatjóna
er afkoma greinarinnar jákvæð