Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Langur
laugardagur
20-50%
afsláttur
af allri
vöru
Skólavörðustíg 14.
Sími 551 2509.kvenfataverslun
Laugavegi 25,
sími 533 5500
15%
afsláttur
af jökkum
og peysum
á löngum
laugardegi
l
j
l
l i
Full búð
af nýjum
vörum
ll
f j
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
brynja.is
Einnig hefilbekkir
frá 1.20 til 2.20 m
Vegghengdir
hefilbekkir
Verð 31.880 kr.
Í dag og langan
laugardag:
20%
afsláttur af fatnaði
frá Masai
Mikið úrval af
hörfatnaði
Laugavegi 46, sími 561 4465.
Opið lau. kl. 11-17.
Villtar &
vandlátar
Laugavegi 63, sími 551 4422
Sumarstuttjakkar
frá kr. 14.900
Gerry Weber
sumarlínan
Sumarkápur
STRAUMAR
T Í S K U V E R S L U N I N
Laugavegi 55, sími 561 8414.
25%
afsláttur
af ZE-ZE vörum
HÓPUR vopnaðra manna myrti
tuttugu og þrjá hirðingja vestur af
Algeirsborg í fyrrinótt, einungis
örfáum klukkustundum áður en
íbúar Alsír gengu að kjörborðinu í
því skyni að kjósa sér nýtt þing.
Fréttaskýrendur sögðu Alsírbúa
sýna kosningunum lítinn áhuga en
pólitískar deilur og ásakanir um
kosningasvindl hafa sett svip sinn á
kosningarnar.
Stjórnvöld í Alsír hafa vonast til
að kosningarnar tryggðu lýðræði í
sessi í landinu, og að þær myndu
stuðla að friði. Morðin á hirðingj-
unum tuttugu og þremur þykja
hins vegar setja þessar áætlanir úr
skorðum. Sögðu fulltrúar stjórn-
valda líklegt að íslamskir öfgamenn
hefðu staðið fyrir ódæðinu en vitað
er að þeir hafast við á þessum slóð-
um. Rændu árásarmennirnir einnig
tuttugu og fimm ára gamalli konu,
að sögn stjórnarerindreka.
Blóðug borgarastyrjöld
Árásin er sú nýjasta í röð ofbeld-
isverka sem hafa sett svip sinn á
borgarastríð í Alsír, sem hófst 1991
þegar yfirvöld ógiltu úrslit kosn-
inga í landinu, eftir að ljóst varð að
flokkur íslamskra bókstafstrúar-
manna hafði unnið þar sigur.
Stjórnvöld bönnuðu starfsemi
flokksins í framhaldinu og hefur
borgarastyrjöldin, sem fylgdi í
kjölfarið, kostað um 150 þúsund
manns lífið.
Voru 34 menn myrtir á einum
degin í norðvesturhluta Alsír í
byrjun maí, en vitað er að hinir
öfgasinnuðu múslimar hafast við á
því svæði. Þeir eru andsnúnir borg-
aralegri stjórn Abdelaziz Boutef-
lika forseta og höfnuðu nýlega til-
lögum hans að friði og sáttum í
landinu.
Íbúar Alsír segja þegar ljóst
hver niðurstaða kosninganna nú
verður. Er talið fullyrt að sam-
starfsmenn Alis Benflis forsætis-
ráðherra muni áfram ráða meiri-
hluta á þingi. Spurningin sé
einungis sú hversu margir muni
lýsa skoðun sinni með því að halda
sig fjarri kjörstöðum.
Öfgahópur múslima í Alsír myrðir 23
Varpar skugga
á kosning-
arnar í landinu
Algeirsborg. AFP, AP.
NÁÐST hefur samkomulag um
landstjórn í Færeyjum en flokk-
arnir þrír sem stóðu að landstjórn
Færeyja 1998–2000, Fólkaflokk-
urinn, Þjóðveldisflokkurinn og
Sjálfstjórnarflokkurinn hafa náð
samkomulagi við Miðflokkinn um
myndun landsstjórnar sem nýtur
stuðnings 17 af 32 Lögþingsmönn-
um. Gert er ráð fyrir að Anfinn
Kallsberg verði áfram lögmaður
Færeyja.
Stjórnarmyndunarviðræður
hafa staðið yfir í Færeyjum frá því
kosið var til Lögþingsins 30. apríl
en þá varð jafntefli milli fylkinga
þeirra flokka sem vilja fá sjálf-
stæði frá Dönum og hinna sem
vilja það ekki.
Flokkarnir tilnefndu ráðherra
sína í gær og þá var einnig skipað í
fastanefndir Lögþingsins. Fá
stjórnarflokkarnir 24 af 45 nefnd-
asætum en gert er ráð fyrir að
stjórnarandstöðuflokkarnir, Sam-
bandsflokkurinn og Jafnaðar-
flokkur, fái formennsku í tveimur
nefndum.
Ný stjórn mynd-
uð í Færeyjum