Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HUNDRUÐ gondólaræðara í Fen-
eyjum efndu til verkfalls í gær til að
mótmæla samkeppni frá ólöglegum
innflytjendum sem þeir segja að
hafi skaðað stéttina. Um 150 gond-
ólar söfnuðust saman við Rialto-
brúna, sem liggur yfir helstu um-
ferðaræð Feneyja, Canale Grande,
S-laga skurð gegnum borgina.
Gondóla-
ræðarar
í verkfalli
AP
TALIÐ er að úrslitakeppni heims-
meistaramótsins í knattspyrnu,
sem haldin verður í Suður-Kóreu
og Japan, verði til þess að sam-
skipti landanna batni og þegar
hefur dregið úr úlfúð sem verið
hefur á milli þeirra frá innlimun
Kóreu í Japan á árunum 1910–
1945. Kim Dae-Jung, forseti Suð-
ur-Kóreu, bauðst í gær til þess að
aflétta hömlum á innflutningi jap-
anskra menningarafurða, meðal
annars popptónlistar, hétu Japan-
ir því að halda ekki minningu jap-
anskra stríðsglæpamanna á lofti.
Kim skýrði frá þessu á fundi
með japanska prinsinum Takam-
oto, frænda Akihitos Japanskeis-
ara. Prinsinn verður á meðal
nokkurra háttsettra japanskra
embættismanna sem verða við-
staddir setningarathöfn heims-
meistaramótsins í Suður-Kóreu í
dag.
Akihito keisari ákvað að fara
ekki á setningarathöfnina. Enginn
japanskur keisari hefur heimsótt
Kóreu frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar. Junichiro Koiz-
umi, forsætisráðherra Japans,
verður hins vegar viðstaddur at-
höfnina ásamt Takamoto prins,
sem er heiðursforseti japanska
knattspyrnusambandsins.
Deilt um sögubækur og
hof fallinna hermanna
Stjórn Suður-Kóreu hefur þeg-
ar losað um hömlur á innflutningi
bóka, kvikmynda og tónlistar frá
Japan frá því að Kim komst til
valda árið 1998. Opinber eftirlits-
nefnd hafnar þó enn mörgum um-
sóknum um slíkan innflutning.
Kim kvaðst vera tilbúinn að af-
létta þessum hömlum ef sátt næð-
ist í deilum ríkjanna um sögubæk-
ur, sem notaðar eru í japönskum
skólum, og heimsóknir japanskra
ráðamanna í umdeilt hof í Tókýó.
Suður-Kóreumenn segja að
sögubækurnar hvítþvoi japanska
stríðsglæpamenn og heimsóknir
ráðamannanna í Yasukuni-hofið í
Tókýó eru umdeildar vegna þess
að grannríkin líta á það sem tákn
um japanska hernaðarhyggju.
Hofið er að fornri japanskri trú
álitið geyma anda fallinna her-
manna og líkamsleifar Japana,
sem voru teknir af lífi fyrir stríðs-
glæpi, voru fluttar þangað árið
1978.
Rígurinn milli ríkjanna var svo
mikill að þau léðu ekki máls á því
að koma á fót sameiginlegri nefnd
til að skipuleggja úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins. Þau deildu
um í hvoru landinu fyrsti leikurinn
og úrslitaleikurinn ættu að vera
og hvort þeirra ætti að vera nefnt
fyrst í opinberu heiti keppninnar.
„Það var þjarkað og þrefað um
alla þætti keppninnar, þjóðarstolt-
ið bar skynsemina ofurliði,“ hafði
breska útvarpið BBC eftir Peter
Velappan, framkvæmdastjóra
knattspyrnusambands Asíu.
Niðurstaðan varð sú að Kórea
yrði nefnt fyrst í opinbera heitinu
og landið fengi fyrsta leikinn. Úr-
slitaleikurinn verður hins vegar í
Yokohama í Japan 30. júní og suð-
ur-kóreski forsetinn verður þá á
meðal áhorfendanna.
Tengslin hafa aukist
Þrátt fyrir þetta þjark, sem tor-
veldaði skipulagningu keppninnar
í tvö ár, er talið að pólitískar deil-
ur ríkjanna hefðu orðið enn harð-
ari ef þau héldu ekki úrslitakeppn-
ina í sameiningu. Bæði ríkin eru
staðráðin í að gera allt sem þau
geta til að halda best heppnuðu
úrslitakeppni í sögu heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu og reyna
að bæta samskiptin.
Stjórn Japans hefur til að
mynda beðið grannríkið afsökunar
á grimmdarverkum japanskra
hermanna í Kóreu og losað um
hömlur á heimsóknum suður-kór-
eskra ferðamanna.
„Ímyndin sem Japan hefur haft
í Kóreu – sem var oft brengluð og
skökk – hefur breyst, enda hafa
tengsl þjóðanna aukist,“ hafði
BBC eftir embættismanni í jap-
anska sendiráðinu í Seoul.
HM lægir öldur milli
Japans og S-Kóreu
Seoul. AFP.
ALÞJÓÐLEGU umhverfisverndar-
samtökin World Wildlife Fund,
WWF, gagnrýna tillögur fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins um breytingar á sameiginlegri
sjávarútvegsstefnu ESB og segja að
ekki sé gengið nógu langt í því að
vernda fiskstofna og vistkerfi sjávar.
Í fréttatilkynningu frá WWF seg-
ir að í útgjaldaáætlun Evrópusam-
bandsins fyrir árin 2000–2006 hafi
verið gert ráð fyrir 600 milljónum
evra (51,6 milljörðum króna) í styrki
vegna úreldingar fiskiskipa og báta
og 839 milljónum evra (72 milljörð-
um kr.) í styrki vegna smíði nýrra
skipa og endurbóta á gömlum.
WWF segir að Evrópusambandið
hafi unnið gegn sjálfu sér með þess-
ari stefnu en framkvæmdastjórnin
leggi nú til að fallið verði frá henni.
„Það er fásinna að eyða milljónum
evra á hverju ári í úreldingu báta ef
menn leggja enn meira fé í smíði
nýrra,“ segir Julie Cator, fulltrúi
WWF í evrópskum sjávarútvegs-
málum. „Framkvæmdastjórnin er að
reyna að binda enda á fáránlega
mótsögn og það er löngu tímabært.“
Engin trygging fyrir því að
sóknin minnki nægilega
Framkvæmdastjórnin leggur
einnig til nýjar ráðstafanir til að
minnka fiskiskipaflotann, bæði með
því að setja markmið um fækkun
skipa í einstökum löndum og skapa
möguleika á sóknartakmörkunum
með margra ára áætlun um fiskveiði-
stjórnun. „En ekki eru sett nein
bindandi markmið hvað varðar
heildarsóknargetuna – WWF telur
að minnka þurfi sóknargetu flotans
um helming,“ segir í fréttatilkynn-
ingu samtakanna.
Framkvæmdastjórn ESB gerir
ráð fyrir viðbótarstyrkjum að and-
virði 272 milljóna evra (23 milljarða
króna) vegna úreldingar fiskiskipa á
árunum 2003–2006. „Það er engin
trygging fyrir því að tillögur fram-
kvæmdastjórnarinnar verði til þess
að flotinn minnki eins mikið og nauð-
synlegt er,“ segir Cator.
Umhverfisverndarsamtökin segja
að framkvæmdastjórn ESB gangi
ekki heldur nógu langt í því að
vernda vistkerfi sjávar og tillögur
hennar varðandi fiskveiðisamninga,
einkum við Afríkuríki, séu „veikar“.
WWF telur að samkvæmt tillögun-
um verði ekki gert nóg til að stemma
stigu við veiðum á ungfiski og því að
sjávardýr eins og höfrungar og
skjaldbökur festist í veiðarfærum.
Þá sé ekki gert nóg til að tryggja að
veiðarnar valdi ekki of miklum
spjöllum á botni sjávar, kórölum,
sjávargróðri og öðrum mikilvægum
þáttum vistkerfisins. Umhverfis-
verndarráðstafanirnar sé aðallega
að finna í aðgerðaáætlunum sem
ekki séu bindandi. „Umhverfisvernd
er ekki valfrjáls viðauki,“ bætir Cat-
or við. „Sterkir fiskstofnar þurfa á
heilbrigðu sjávarumhverfi að halda.“
„Síðasta tækifærið til að
bjarga sjávarútveginum“
WWF telur að sömu sögu sé að
segja um samninga Evrópusam-
bandsins um kaup á fiskveiðiréttind-
um sem gerðir eru við strandríki
Afríku og fleiri lönd. „Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins leggur
ekki til neinar lagalega bindandi
skuldbindingar um að gera sann-
gjarnari og vistfræðilega sjálfbærari
fiskveiðisamninga við þróunarlönd.“
Umhverfisverndarsamtökin
hvetja einnig ríkisstjórnir ESB-
landanna til að þynna ekki tillögurn-
ar út, heldur styrkja þær. „Með
þessum umbótum gefst síðasta tæki-
færið til að bjarga sjávarútvegi Evr-
ópu og fiskstofnunum.“
Drög að breyttri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins sæta gagnrýni
WWF telur að umbóta-
áformin séu ófullnægjandi
SAMBANDSÞING Júgóslavíu hóf í
gær umræður um samkomulag sem
náðist fyrir milligöngu Evrópusam-
bandsins en það felur í sér að til nýs
ríkjasambands Serbíu og Svart-
fjallalands verði stofnað. Sam-
bandsþingið verður að leggja bless-
un sína yfir samkomulagið áður en
það getur orðið að veruleika, en í
kjölfar samþykktar þess mun sér-
stök nefnd taka til starfa sem hefur
það verkefni að rita stjórnarskrá fyr-
ir hið nýja ríkjasamband.
Skrifað var undir samkomulagið í
mars en það felur í sér að sam-
bandslýðveldið Júgóslavía verður ei
meir. Í staðinn verður til ríkjasam-
band tveggja lýðvelda sem mun fá
heitið Serbía-Svartfjallaland. Er
vonast til þess að með samkomulag-
inu hafi nóg verið gert til að tryggja
að Svartfellingar leggi sjálfstæðis-
áform sín á hilluna, en talið hefur
verið að til átaka gæti komið á Balk-
anskaga að nýju ef þeir lýstu yfir
sjálfstæði sínu frá Júgóslavíu.
Samkomulagið kveður þó aðeins á
um að Serbía og Svartfjallaland
verði í ríkjasambandi í þrjú ár en
vonast er til að þau sjái ekki ástæðu
til að slíta sambandinu að þeim tíma
liðnum, sem fyrr segir.
Vilja ekki „tálmynd“
Sagði Predrag Bulatovic, þing-
maður á sambandsþinginu, að hann
gerði ráð fyrir að samkomulagið yrði
samþykkt í dag. Andstæðingar sam-
komulagsins létu hins vegar til sín
heyra í umræðunum í gær og sagði
Oskar Kovac, þingmaður sósíalista,
sem eru í stjórnarandstöðu í Serbíu,
að menn vildu raunverulegt sam-
bandsríki, en ekki „tálmynd“ sem
einungis frestaði öllum vandamálum
um þrjú ár.
Ræða nýtt
ríkjasam-
band Serbíu
og Svart-
fjallalands
Belgrad. AFP.