Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 33
Víkurvegur
Gatnamót við Vesturlandsveg
Tilkynning um lokun Víkurvegar
Vegna framkvæmda við mislæg gatnamót Víkurvegar og
Vesturlandsvegar verður Víkurvegur lokaður milli Gagnvegar
og Vesturlandsvegar frá kl. 22.00 föstudagskvöldið 31. maí til
kl. 7.00 mánudagsmorguninn 10. júní.
Þann tíma fer öll umferð til og frá Grafarvogshverfi um
Gullinbrú.
Til að auðvelda leiðarval um Grafarvogshverfi verður komið
fyrir merkingum á helstu gatnamótum innan hverfisins.
Umferð verður væntanlega hleypt á hin nýju gatnamót þann
10. júní og verður það nánar auglýst síðar.
Gatnamálastofa í Reykjavík
Þúsöld
Grafarholt
Víkurvegur
lokaður frá
31. maí-10. júní
Vesturlandsvegur
Grafarvogur
MEÐ þessum
tónleikum lýkur
starfsári Sinfón-
íuhljómsveitar Ís-
lands, veturinn
2001 til 2002, sem
hefur að mörgu
leyti verið gott,
sérstaklega að
hljómsveitin hef-
ur verið góð og oft
náð frábærum ár-
angri. Vonandi hafa forráðamenn
hljómsveitarinnar komið auga á
þann, sem á að leiða hljómsveitina til
enn frekari sigra á hljómleikapallin-
um á næsta starfsári.
Á tónleikunum í gærkveldi var
fluttur fiðlukonsert op. 47, eftir Jean
Sibelius, ekta rómantískt verk, þar
sem heyra má margar „rapsódískar“
tónhugmyndir og í lokakaflanum,
eins og tónskáldið sagði „danse ma-
cabre“, sem þó er of mikið sagt, því til
þess er hann of fagur, að vera kennd-
ur við dauðann. Guðný Guðmunds-
dóttir lék margt vel í þessu erfiða
verki, einkum hæga kaflann, en loka-
kaflinn, sem er í „rondó“ formi og
sérlega erfiður og eiginlega aðeins á
valdi „virtúósa“, var henni helst til
nokkuð erfiður. Í fyrsta kaflanum
notar Sibelíus kadensurnar til að
vinna úr tónhugmyndunum, sem
voru mjög vel leiknar hjá Guðnýju.
Lokaverk tónleikanna var sú „átt-
unda“, eftir Dmitri Shostakovitsj,
sem er samin ári eftir þá „sjöundu“
og því oft ranglega sögð vera stríðs-
sinfónía, enda frumflutt í Moskvu
1943. Verkið er drungalegt, stórbrot-
ið, fullt af sársauka en einnig sátt og
friðsæld, er fylgir á eftir ómann-
eskjulegum átökunum. Kyrrðar-
þættirnir eru samt þrungnir sárs-
auka, sem birtist í fallegum
einleiksstrófum, er voru fallega
leiknar af Kristjáni Þ. Stephensen,
Joseph Ognibene, Hafsteini Guð-
mundssyni, Einari Jóhannessyni,
Martial Nardeau, Ásgeiri Stein-
grímssyni, Sif Tulinius og Bryndísi
Höllu Gylfadóttur.
Öllu því, sem skiptir máli í þessu
átakamikla verki, var mjög vel til
haga haldið af stjórnandanum, Rum-
on Gamba. Andstæður í styrk, hraða-
breytingar og hrynrænar útfærslur,
voru sérlega aflmiklar (dýnamískar)
og á köflum náði Gamba að magna
upp áhrifamikla stemmningu, bæði
þar sem dulúðin ríkti og í átakaköfl-
um, eins og t.d. í upphafi sinfóníunn-
ar. Rumon Gamba sýndi sig að vera
frábær stjórnandi í þessu erfiða og
margslungna tilfinningaþrungna
skáldverki eftir meistara Shostakov-
itsj og náði að leiða Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands til meistaralegra átaka,
þar sem leikið er með reisn og um-
komuleysi, harm og gleði, illt og gott,
í raun allt sem mannkynið varðar og
birtist í bardúsi þess. Að þessu leyti
eru verk Shostakovitsj eitthvað ann-
að en tónleikur og tilstand, þau eru
skáldskapur um mannlífið, stórbrotin
og tiginmannleg listaverk.
Stórbrotin og tigin-
mannleg listaverk
TÓNLIST
Háskólabíó
Flutt voru verk eftir
Sibelius og Shostakovitsj.
Einleikari: Guðný Guðmundsdóttir.
Stjórnandi: Rumon Gamba.
Fimmtudagurinn 30. maí 2002.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Guðný
Guðmundsdóttir
Listasafn Ís-
lands Ingibjörg
Haraldsdóttir
flytur rússnesk
ljóð kl. 12.30–
12.50. Ljóðin eru
ort á tímabilinu
1908–1931. Flutn-
ingurinn er í
tengslum við sýn-
ingu um rúss-
neska myndlist.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Ingibjörg
Haraldsdóttir
Hafnarborg
Sýningum á úrvali ljósmynda eftir
Loft Guðmundsson í aðalsal Hafnar-
borgar og málverkasýningu Elíasar
B. Halldórssonar í Sverrissal og Apó-
teki lýkur á mánudag.
Sýningarnar eru opnar alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11–17.
Nýlistasafnið
Sýningin Hypercraze 2002 / Ofur-
hvörf 2002 lýkur á laugardag. Til sýn-
is eru verk eftir Önnu Hallin, Birgi
Andrésson, Hannes Lárusson, Heklu
Dögg Jónsdóttur, Húbert Nóa Jó-
hannesson, Ingarafn Steinarsson,
Ósk Vilhjálmsdóttur, Pétur Örn Frið-
riksson og Rúrí.
Sýningin er opin 12–18, miðviku-
dag til föstudags og 14–18 á laugar-
dag.
Eden, Hveragerði
Myndlistarsýningu Birgis Schiöth
myndlistarkennara lýkur á sunnudag.
Á sýningunni eru 47 myndir, með
pastellitum, og teikningar. Myndefnið
er fjölbreytt og eru verkin öll til sölu.
Þetta er 26. sýning Birgis.
Gallerí Skuggi
Sýningunni My name is Þorri, but
they call me Elvis lýkur á sunnudag.
Sýningin er
byggð á ævi og
lífsviðhorfum
Arnars Þorra
Jónssonar sem
fæddist árið 1975
en lést sviplega í
fyrra eftir baráttu
við krabbamein.
Sýningin saman-
stendur af safni hluta, ljóða, tónlistar
og texta sem voru Þorra hugleikin og
leitast er við að miðla þeim lífskrafti
sem getur falist í umgjörðinni sem
fólk skapar sér í daglegu lífi. Sýningin
er opin frá kl. 13 -17.
Sýningum lýkur
OPNA galleríið tekur til starfa í
þriðja sinn og verður að þessu sinni á
laugardag á Laugavegi 105, þar sem
Íslandsbanki var við Hlemm. Lista-
menn mæta með verk sín, eina mynd
eða seríu, klukkustund fyrir opnun,
kl. 13, og setja í snatri upp sýningu
sem hverfur í lok dags, kl. 18. Hver
listamaður ber ábyrgð á sínu verki
meðan opið er og getur boðið til sölu
ef vill, en afhendir það þá eftir lokun.
Opna galleríið er umgjörð um þá
hugmynd að fá nýtt sjónarhorn á
samtímamyndlist þar sem hún verð-
ur hluti af óháðum og ófyrirsjáan-
legum atburði, nátengdum hvers-
dagslífi fólks. Það er starfrækt
einhvers staðar á Laugavegi eða ná-
grenni fyrsta laugardag hvers mán-
aðar. Aðstandandi Opna gallerísins
er félagið Viðhöfn, Laugavegi 25,
sem hefur það að marki að sameina
listamenn um að vekja athygli á ís-
lenskri samtímalist.
List á Hlemmi
KOMA sígaunannahljómsveitar-
innar Taraf de Haïdouks frá Clejani
í Rúmeníu er vafalítið einn af merk-
ustu viðburðum Listahátíðar í
Reykjavík. Það var líka talsverður
spenningur meðal almennings að
koma og hlusta, og fljótlega seldist
upp á tvenna tónleika sem ráðgerð-
ir voru. Þriðju tónleikunum var
bætt við á þriðjudagskvöld, og var
húsið þéttskipað fólki strax hálftíma
fyrir tónleika.
Það tók ekki meir en fyrsta lagið
að koma mannskapnum í gang,
bæði gestunum á sviðinu og salnum.
Það náðist strax firnagóð stemmn-
ing með miklu klappi og fagnaðar-
látum gesta, og stemmningin stig-
magnaðist eftir því sem á kvöldið
leið og list sígaunanna opinberaðist
í fleiri myndum. Hljómsveitin að
þessu sinni er skipuð þrettán
manns, fjórum fiðluleikurum, þrem-
ur harmónikkuleikurum, þremur
symbalomleikurum, bassaleikara,
flautuleikara og gítarleikara, en
fjórir þeir elstu eru mestu söng-
mennirnir þótt flestir syngi þeir
eitthvað.
Tónlistin sem Taraf de Haïdouks
lék var mestöll frá heimaslóðum
þeirra í Rúmeníu. Gangandi bassi
er undirtónninn í tónlistinni; fiðlur
með flúraðar laglínur á toppnum,
flóknir lagrænir innviðir og brotnir
hljómar leiknir á symbalom, og
harmónikkur sem ýmist flúra með
fiðlunum eða krunka offbítið eða
áhersluminni taktslögin með hljóm-
um. Auk þessa lék sveitin tvo dansa
ættaða frá þjóðum Júgóslavíu,
ersko kolo, eða hringdansa, þar sem
gefið er í eftir því sem á dansinn
líður og hraðinn aukinn jafnt og
þétt. Reyndar er þetta einkenni líka
sterkt í rúmensku tónlistinni; hljóð-
færaleikararnir fá þannig tækifæri
til að sýna sitt virtúósitet í spila-
mennsku á algjörlega ólöglegum
hraða, og þeir sem dansa geta dans-
að sig í trans á þeim gleðistundum
sem þessi tónlist tilheyrir.
Það sem einkenndi leik Taraf de
Haïdouks er það hversu trúir og
tryggir þeir eru sinni þjóðlegu hefð,
þrátt fyrir nokkur utanaðkomandi
áhrif. Áhrif úr djassi og annarri
vestrænni tónlist gægjast í gegn; –
hver og einn fengu kapparnir sín
sóló til að sýna listir sínar og auð-
vitað verðskuldað klapp að launum.
En arabísk áhrif eru líka til staðar,
og þau eru eldri og rótgrónari. Til
marks um það er flúrið og skrautið
eins og útskorið arabískt filigree.
Eldri mennirnir sungu í þessum
flúraða stíl, og voru hreint ótrúlega
flinkir. Sá elsti í hópnum, Nicolae
Neacsu, reffilegur karl á níræðis-
aldri með staf og hatt, öldungurinn
í hópnum, getur enn sungið og spil-
að, þótt færnin hafi eflaust verið
meiri fyrr á árum. Hans spesíalítet
var að leika á fiðluna með stöku
hrosshári, þannig að úr varð kostu-
legt hljóð, sambland af tóni og sáru
sargi. Meistarinn í hópnum var tví-
mælalaust fiðlusnillingurinn Ghe-
orghe Anghel, sem gengur undir
nafninu Caliu; mér datt í hug að
forvitnilegt hefði verið að leiða þá
saman, hann og Maxim Vengerov
sem spilaði kvöldinu áður; – báðir
brilljant snillingar, meistarar í
bogatækni og músíkantar fram í
fingurgóma sem spila með öllum
kroppnum; – þótt gjörólíkir væru; –
hvor úr sínum menningarheimi.
Caliu sýndi glæsileg tilþrif, og virt-
ist eflast eftir því sem tónlistin varð
fjörugri og hraðari. Hann hélt fiðl-
unni í óvenju hárri stöðu, en engu
að síður var hún eins og áföst við
hann; annað líffæri og partur af
honum sjálfum. Þetta var ekkert
mál, allt leikur einn, tónlistin
streymdi frá honum jafn fyrirhafn-
arlaust og sólskin á heiðum sum-
arhimni. Einn symbalomleikaranna,
sá er mest mæddi á, var líka mikið
undur. Færni hans var engu lík.
Harmónikkuleikararnir voru líka
hver öðrum betri, og færni þeirra í
að halda offbítinu stöðugu og jöfnu
á þeim ofsahraða sem þeir spiluðu
var hreint ótrúleg. Bassaleikarinn
var líka kúnstugur karl með sinn
takt alveg á hreinu.
Taraf de Haïdouks er kraftmikill
hópur og tónlist þeirra seiðmagn-
aður galdur. Það er einstakt að fá
tækifæri til að heyra svo ómengaða
og hreinræktaða etníska tónlist.
Slík tækifæri verða æ sjaldgæfari
þegar hugarfarið í heimstónlistinni
snýst frekar um að tefla saman ólík-
um straumum og skapa einhvers
konar flux, – sem getur vissulega
verið spennandi líka. Þessir menn
bera með sér aldagamla og einstaka
hefð, sem hefur lifað af, og er jafn-
vel hver síðastur að njóta. Nicolae
gamli ætlar til að mynda ekki í fleiri
heimsreisur með hópnum; – hann er
einfaldlega orðinn of gamall. Það
má segja að Taraf de Haïdouks séu
eins konar menningarminjar í út-
rýmingarhættu. Til allrar hamingju
hafa þeir ekki orðið vestrænni tón-
listartísku að bráð; – sorglegasta og
nærtækasta dæmið um hana mátti
sjá í Eurovision-söngvakeppninni,
þar sem tuttugu og fjórar Evrópu-
þjóðir sungu sama lagið í örlítið
mismunandi útfærslu; – flestar á
einu og sama tungumálinu.
Fjölbreytnin í heiminum verður
æ minni og mannlífið og menningin
fábrotnari; – íbúar heimsþorpsins
verða á endanum allir eins.
Þess vegna eru menningarundur
eins og Taraf de Haïdouks eins og
skínandi gimsteinar í allt of einsleit-
um heimi. Tónlist þeirra er sprottin
frá hjartanu, heit, hrein og dásam-
leg, – til þess fallin að gleðja og
kæta og gera lífið betra.
Það var talsvert vandræðalegt
þegar þjónar Hótels Íslands fóru að
amast við ungmennum sem ekki
gátu lengur setið á sér og vildu
dansa í dynjandi fiðlumúsíkinni.
Þessi tónlist er fyrst og fremst
danstónlist og öfugsnúið að amast
við því að fólk láti undan fótafiðr-
ingnum undir svo hressilegri hrynj-
andi. Það kom líka á daginn þegar
hljómsveitin sjálf hóaði í fleira fólk,
að það voru margir sem þustu með
hraði upp á svið, sennilega búnir að
hafa sig alla við að tolla á stólset-
unum allt kvöldið.
Tónleikar Taraf de Haïdouks
voru stórkostleg upplifun; hrein-
ræktuð skemmtun; mikill listvið-
burður; einstök innsýn í aðra ver-
öld; upplifun sem seint mun
gleymast.
Undur í
einsleit-
um heimi
TÓNLIST
Hótel Ísland
Sígaunahljómsveitin Taraf de Haïdouks
frá Clejani í Rúmeníu lék tónlist frá
heimahögum sínum.
Þriðjudag kl. 21.00.
LISTAHÁTÍÐ
Bergþóra Jónsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Taraf de Haidouks á ferð um borgina í vikunni.
HARMONIKUHÁTÍÐ verður í
Reykjavík um helgina og hefst hún
með léttum tónleikum í Iðnó kl. 21
annað kvöld, laugardagskvöld. Þar
koma m.a. fram Karl Adólfsson og
félagar, Matthías Kormáksson,
Sveinn Rúnar Björnsson, Hekla Ei-
ríksdóttir og Margrét Arnardóttir.
Á sunnudag, sjómannadaginn,
verður harmonikudagur í Árbæjar-
safni frá kl. 13–16.30. Þar koma fram
í ýmsum húsum safnsins einleikarar,
hópar og hljómsveitir, m.a. Stráka-
bandið, Jóna Einarsdóttir, Karl
Adólfsson og Þorleifur Finnsson,
Hekla Eiríksdóttir, Margrét Arnar-
dóttir, FF-kvartett, Smárinn kvart-
ett og Eldborgar kvintettinn. Þá
kemur fram danska „popphljóm-
sveitin“ Tesco value.
Vefsíða hátíðarinnar er á slóðinni
www.thing.is/accordionfestival.
Harmonikuhátíð í Reykjavík