Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
NÝTT og sérhannað hús-næði Hjartaverndar aðHoltasmára 1 í Kópa-vogi var formlega tekið
í notkun fyrr í þessum mánuði. Að
sögn Vilmundar Guðnasonar, for-
stöðulæknis Rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar, eru flutningarnir
fyrst og fremst tilkomnir vegna
aukinna umsvifa Rannsóknarstöðv-
arinnar í tengslum við öldrunar-
rannsókn Hjartaverndar. Öldrun-
arrannsóknin er samvinnuverkefni
milli Öldrunarstofnunar banda-
ríska heilbrigðisráðuneytisins,
NIA, og Hjartaverndar og styrkt
af Bandarísku heilbrigðisstofnun-
inni auk íslenska ríkisins.
Rannsóknarstöðin er 2.500 fer-
metrar að flatarmáli á þremur
hæðum og bætist við myndgrein-
ingardeild búin fullkomnustu tækj-
um sem völ er á, þar með talið seg-
ulómtæki, ómskoðunartæki og
tölvusneiðmyndatæki. Þess má
geta að kostnaður við fullbúna
myndgreiningardeild er áætlaður
um 700 milljónir króna en rekstr-
arkostnaður Hjartaverndar á ári er
áætlaður um 350–400 milljónir.
Að sögn Vilmundar mun Hjarta-
vernd halda áfram hefðbundnu for-
varnarstarfi og áhættumati. Öldr-
unarrannsókin er því hrein viðbót
við starfsemina og er ætlað að afla
upplýsinga á komandi árum um
samband milli mælanlegra þátta
semma á ævi einstaklingsins og
þróun sjúkdóma í ellinni.
Reynt að greina áhættuþætti
hjarta- og æðasjúkdóma fyrr
„Þessi aðstaða gerir okkur kleift
að fjölga rannsóknum og auk þess
að halda áfram því starfi sem við
sinntum áður. Hingað geta einstak-
lingar komið og látið meta áhættu á
hjarta- og æðasjúkdómum. Við er-
samband ríkja á milli ísle
erlendu vísindamannanna
í stöðugu sambandi og
reglulega á fundum.
Öll helstu líffærakerf
tengjast elli rannsö
„Það sem við erum að ge
unarrannsókninni er að
enn einu sinni þá einstakl
við höfum séð allt að sex
eða frá árinu 1967, og bjó
þeim sem enn eru á lífi a
rannsókn. Það er kannski
og fremst sem þetta nýja
gerir okkur kleift að bæta
ur öllum þessum nýju rann
meðal annars með nýju my
ingardeildinni þar sem við
beita myndgreiningu í fara
sem ekki hefur mikið verið
Að sögn Vilmundar er á
rannsaka um 10–12 þúsun
á tæpum fimm árum en
getur tekið að vinna úr öl
lýsingum sem safnast
Rannsökuð verða öll helstu
kerfi sem tengjast færni
gæðum á efri árum, þar
heili, hjarta- og æðaker
vöðva- og fitudreifing líka
jafnvægi og hreyfigeta.
Að sögn Vilmundar er h
sá þáttur í heilsu aldraðra
ur hvað mest hamlandi áh
gæði einstaklingsins og
daglegra athafna. Í öldru
sókninni verður heilabilun
með ítarlegum vitrænum
auk þess sem gerð verður
un af heila allra einstaklin
ið sem notað er kostar h
milljónir króna og er mjö
Því er ætlað að mæla byg
virkni heila, meðal annars
liti til vatnsflæðis en ra
hafa sýnt að vatnsflæði
minnkar eftir því sem
um einnig með aðrar rannsóknir í
gangi, til að mynda svokallaða
ungafólksrannsókn, þ.e. einstak-
linga sem voru í kringum 25 og 35
ára árið 1973. Þar erum við að
reyna að rannsaka hvort hægt sé
að greina fyrr þá áhættuþætti sem
við vitum að hafa t.d. í för með sér
aukna hættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum um miðjan aldur,“ segir
Vilmundur.
Í fyrravor var undirritað sam-
komulag milli Hjartaverndar og
bandarískra og íslenskra heilbrigð-
isyfirvalda um samstarf á sviði
öldrunarrannsókna. Vilmundur,
sem um árabil hefur rannsakað
hjarta- og æðasjúkdóma og samspil
erfða og umhverfis í tilurð og þróun
sjúkdóma, er aðalforsvarsmaður
verkefnisins hér á landi. Tamara
Harris, læknir og faraldsfræðingur
og Lenore Launer, doktor í far-
aldsfræði heila- og taugasjúkdóma,
eru í forsvari fyrir verkefnið af
hálfu Bandaríkjamanna. Að auki
kemur fjöldi íslenskra og erlendra
lækna og vísindamanna að verkefn-
inu.
Vilmundur segir gott og náið
Öldrunarrannsóknir að hefjast í nýju sérhönnuðu h
Rannsaka á 10–12
einstaklinga á fim
Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar
verndar, á myndgreiningardeild sem tekin var í notkun í ten
við öldrunarrannsókn Hjartaverndar.
Mjög góða aðstaða er til sýnatöku. Hér mælir
Rannsóknaraðstaða Hjartaverndar
hefur verið efld til muna. Alls starfa
tæplega 60 manns í nýja húsnæðinu.
Starfsemi Hjarta-
verndar eykst til muna
með tilkomu nýs hús-
næðis og myndgrein-
ingardeildar í tengslum
við umfangsmiklar
öldrunarrannsóknir.
Vilmundur Guðnason,
forstöðulæknir Hjarta-
verndar, segir mark-
miðið að hægja á hrörn-
un í ellinni.
Tölvusneiðmyndatækið er m.a.
notað til að greina kalk í krans-
æðum sem er mælikvarði á
kransæðasjúkdóma.
FJÁRSTYRKIR TIL FRAMBOÐA
Starfsemi stjórnmálaflokka ereinn af grundvallarþáttum lýð-ræðisins. Í starfi þeirra þróast
og gerjast sú hugmyndafræði, sem í
kosningum er lögð í dóm kjósenda. Í
ríkjunum í kringum okkur er starfsemi
stjórnmálaflokka fjármögnuð með
ýmsum hætti. Á Norðurlöndum og í
Þýskalandi er starfsemin að miklu
leyti rekin með opinberum fjármunum,
en víða annars staðar treysta flokkarn-
ir á framlög einstaklinga og fyrirtækja.
Hér á landi fá þingflokkar framlög
frá hinu opinbera þótt starfsemi
stjórnmálaflokkanna sé að mestu leyti
rekin með framlögum einstaklinga og
fyrirtækja. Ekki er hins vegar að finna
neinar reglur um það hvort eða hvernig
sveitarfélög eigi að koma fjárstyrkjum
til framboða fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að
nokkuð er um að sveitarstjórnir styðji
framboð með fjármunum fyrir kosn-
ingar, þótt ekki tíðkist það almennt. Í
samtali við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson,
formann Sambands íslenskra sveitar-
félaga, kemur fram að slíkt hafi verið
gert hjá einstaka sveitarfélögum að
undangenginni samþykkt viðkomandi
bæjarstjórna. Hann segir að einnig fari
sveitarsjóðir og stofnanir sveitarfélags
þá leið að kaupa styrktarlínur og aug-
lýsingar í blöðum framboðanna. Í frétt-
inni eru tekin nokkur dæmi um sveit-
arfélög, sem hafi styrkt framboð
fjárhagslega fyrir kosningarnar, sem
fóru fram um liðna helgi. Það var meðal
annars gert á Ísafirði, Austur-Héraði,
Árborg og Akranesi og námu upphæð-
irnar allt frá 75 þúsund til 200 þúsund
krónum á framboð. Þessum framlögum
fylgdu ýmist engin skilyrði eða þá að
ætlast var til þess, að framboðin birtu
auglýsingar frá yfirkjörstjórn eða
sveitarfélaginu í blöðum sínum. Frá
Reykjavík og stofnunum hennar kom
enginn fjárstuðningur til einstakra
framboða.
Starfsemi stjórnmálaflokka er
kostnaðarsöm og það er dýrt að reka
kosningabaráttu, þótt það kosti mis-
mikið í sveitarstjórnarkosningum eftir
stærð sveitarfélagsins. Ekki er æski-
legt að fjárskortur takmarki starfsemi
flokkanna að of miklu leyti. Það er því
ástæða til að kanna forsendur þess að
framboð á sveitarstjórnarstigi hljóti
stuðning til að móta stefnu og undirbúa
mál með tilvísun til sömu röksemda og
hafa ráðið fjárveitingum Alþingis til
þingflokka. Í því sambandi ber að hafa
í huga að ekki eru öll sveitarfélög jafn
vel í stakk búin til að sinna slíku verk-
efni. Óæskilegt væri að takmarka slík
framlög aðeins við þau framboð, sem
áður hafa boðið fram. Árangur nýrra
framboða í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum sýnir hversu erfitt getur
verið að meta hvenær taka megi fram-
boð alvarlega. Það er erfitt fyrir ný öfl
að hasla sér völl í stjórnmálum. Opin-
ber fjárframlög til framboða á sveit-
arstjórnarstigi myndu efla pólitíska
umræðu og efla þá starfsemi, sem lýð-
ræðið byggist á.
EFLING LÖGGÆZLU
Þjóðfélagsbreytingar, sem orðiðhafa á undanförnum árum, hafa
orðið til þess að kröfur um eflda lög-
gæzlu fara vaxandi. Fíkniefnabrot,
auðgunarbrot tengd fíkniefnaneyzlu
og vaxandi ofbeldi gagnvart almennum
borgurum – oft tilefnislaust og hrotta-
legt eins og nýleg dæmi sanna – hafa
m.a. haft í för með sér að almennir
borgarar vilja að lögreglan sé virkari,
sýnilegri og í nánara samstarfi við t.d.
íbúasamtök, skóla, félagsmiðstöðvar
o.s.frv. Almenningur óttast um öryggi
sitt í meira mæli en áður og gerir kröfu
um vernd, sem er ein af grundvallar-
skyldum ríkisvaldsins við borgarana.
Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
gær kemur fram í máli Stefáns Eiríks-
sonar skrifstofustjóra í dómsmála-
ráðuneytinu að löggæzlan hefur verið
efld á seinustu árum; þannig hefur orð-
ið 30% hækkun á fjárframlögum til
löggæzlu á fjórum árum. Sömuleiðis er
augljóst að vinnubrögð lögreglunnar
hafa orðið miklu faglegri en áður var,
m.a. með efldri menntun lögreglu-
manna. Hins vegar er einnig ljóst að
þetta dugar ekki til. Víða um land
kvarta almennir borgarar og fulltrúar
þeirra, ekki sízt sveitarstjórnarmenn,
undan því að lögregla sé undirmönnuð
og geti ekki sinnt verkefnum sínum.
Við þessar kringumstæður hafa
komið upp tillögur og hugmyndir um
að sveitarfélögin taki aftur við lög-
gæzlunni, a.m.k. að hluta til, eins og
áður tíðkaðist. Í Morgunblaðinu í gær
eru rakin sjónarmið þeirra, sem vilja
að löggæzla flytjist aftur í hendur
sveitarfélaga og hinna, sem telja rétt
að hún sé áfram á hendi landsstjórn-
arinnar og lúti miðlægri stjórn. Báðir
hafa nokkuð til síns máls. Þeir fyrr-
nefndu benda á að löggæzlan þurfi að
taka mið af þörfum og óskum íbúanna
og að þær þekki sveitarstjórnirnar
betur en landsstjórnin, enda í betra
sambandi við borgarana. Þeir síðar-
nefndu benda hins vegar á nauðsyn
þess að samræma löggæzlu á öllu land-
inu, að miðstýring sé nauðsynleg
vegna alþjóðlegra samninga og skuld-
bindinga, að sum sveitarfélögin séu
ekki í stakk búin til að halda uppi
nægilega öflugri löggæzlu og að laga-
og réttarumhverfi í landinu miðist við
fyrirkomulagið eins og það er í dag og
myndi kosta mikið að breyta því.
Kjarni málsins er sennilega fremur
hvort vilji er fyrir hendi að leggja
meira fé til löggæzlu almennt, en hvort
stjórn hennar eigi að vera á hendi
sveitarstjórna eða landsstjórnarinnar.
Ef sá vilji er fyrir hendi hjá sveitar-
félögum, sem vilja aukna þjónustu lög-
reglunnar, væri þá úr vegi að þau
greiddu fyrir þá auknu þjónustu sam-
kvæmt sérstökum samningi við ríkis-
valdið, þótt lögreglan yrði áfram á
hendi landsstjórnarinnar? Hugmyndir
um þetta voru viðraðar í kosningabar-
áttunni í Reykjavík og verðskulda nán-
ari útfærslu og umræðu.
Aðalatriðið er að borgararnir gera
kröfu um að lögum og reglu sé haldið
uppi. Óánægja með slaka löggæzlu
hefur orðið vatn á myllu öfgaafla í ná-
grannalöndum okkar. Til að fyrir-
byggja slíkt hér er nauðsynlegt að
stjórnvöld hlusti eftir sjónarmiðum al-
mennings í þessu máli og komi til móts
við þau.