Morgunblaðið - 31.05.2002, Síða 45
segja frá bernsku- og æskuslóðum
sínum á sinn lifandi og skemmtilega
máta, en allar þær minningar merl-
uðu af ást á staðnum og sveitinni
hennar.
Bóndinn á Sléttu, Páll Guðjóns-
son, var náfrændi föður míns og góð
frændsemi þar á milli og fljótlega
kynntust þær Sesselja og móðir mín
og varð af vinátta kær, svo móðir
mín taldi Sesselju sína helztu vin-
konu heima.
Hún Sesselja var eftirminnileg
kona öllum sem henni kynntust.
Hún var afar drífandi og rösk kona,
hörkudugleg til allra verka, handa-
verk hennar mikil og góð um dag-
ana, hvar sem að verki var komið.
Ég man eftir að hafa verið sendur
að Sléttu sem unglingur einn sum-
ardag, þegar Páll bóndi var að slá
fyrir okkur heima og ég man enn
hversu mér þótti Sesselja kappsöm
og fylgin sér við raksturinn, en
minnisstæðari þó sú mikla og glaða
hlýja sem frá henni stafaði og ung-
lingurinn var fljótur að finna.
Handavinnukona var hún einstak-
lega mikil og fallega listræn voru
verk hennar.
Sesselja var greind kona og
glöggskyggn, skoðanaföst og kunni
vel að fylgja máli sínu eftir af rök-
hyggju og festu, kurteis í orðræðu
allri en ákveðin mjög, svo engum
gat dulizt hver hennar meining var í
máli hverju. Hún fylgdist ævinlega
vel með gangi mála og myndaði sér
ótrauð eigin skoðanir og hélt fast við
þær, en þó af eðlislægri sanngirni.
Hún var fríð kona sýnum, bjart-
leit og brosmild, hláturinn hennar
bjartur og skær hljómar enn fyrir
eyrum, hann færði sannarlega birtu
í bæ. Sesselja var afar félagslynd og
kunni vel þá list að gleðjast með
glöðum.
Samkennd hennar með öðru fólki
var rík og enn man ég, þegar þau
hjónin og faðir hennar komu yfir til
okkar á síðsumri til hjálpar við hirð-
ingu á heyi og munaði heldur betur
um og þannig var þeim sunnudeg-
inum varið hjá þessu ágæta fólki.
Vegna veikinda móður minnar
hafði ýmsu seinkað um of í heyskap
okkar og mikil var þökk okkar fyrir
hina dýrmætu hjálp, en meira var
þó verð sú vermandi vinátta sem
þarna bjó að baki.
Fyrir þessa miklu vináttu alla tíð
er nú þakkað heilum hug sem og all-
ar glaðar og gefandi stundir sem við
áttum með henni Sesselju og hennar
fólki. Þar átti hin alúðarfulla elsku-
semi Sesselju sinn ríkasta þátt.
Saman bjuggu þau Páll og Sess-
elja rausnarbúi á Sléttu, föðurleifð
Páls, í rúman áratug en fluttust þá
út í þorpið heima og áttu þar mörg
ágætisár, fluttu þá til Reykjavíkur,
en Páll er nú látinn fyrir allmörgum
árum. Þeim varð þriggja efnisbarna
auðið sem hafa erft góða eðliskosti
mætra foreldra og farsællega skilað
sínu til samfélagsins. Guðjón dótt-
ursonur hennar naut einnig elsku
hennar og umhyggju og svo mun
hafa verið um aðra afkomendur.
Lokið er langri og farsælli ævi-
göngu ljúfrar dugnaðarkonu sem
rækti hlutverk sitt í lífinu af ein-
stakri samvizkusemi og röggsemi
um leið.
Við Hanna þökkum heilum hug
fyrir gefandi og góð kynni við hana
Sesselju, þessa skemmtilega skýru
konu góðrar glaðværðar og ærinnar
alvöru um leið. Gott var að eiga
varma vináttu hennar.
Ég þakka einstaklega góða vin-
áttu Sesselju við móður mína sem
hún mat svo mikils og allan hlýhug í
hennar garð alla tíð meðan hún lifði.
Börnum hennar og þeirra fólki
öllu sendum við okkar einlægu sam-
úðarkveðjur og vitum að minning-
arnar munakærar munu vermandi
vaka þeim í huga og hjarta.
Það er bjart yfir minningu þess-
arar miklu sómakonu sem af svo
mörgum er kvödd með þökk og
hlýju í huga.
Hún Sesselja átti sanna trú á
æðri forsjá og handleiðslu, sem aldr-
ei brygðist. Nú fylgir henni sól-
vermd þökkin yfir á þau eilífðarlönd
birtu og blessunar sem hún trúði og
treysti að biðu sín handan við hel.
Blessuð sé hin birturíka minning
Sesselju Pálsdóttur.
Helgi Seljan.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 45
✝ Björn Ingi Inga-son fæddist á
Sauðárkróki 30. nóv-
ember 1950. Hann
lést í Sydney í Ástr-
alíu 5. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Ingi Gests
Sveinsson, f. 4. nóv-
ember 1919, d. 12.
maí 2000, verkstjóri
fartækjaverkstæðis í
Straumsvík, og kona
hans Guðrún Sigríð-
ur Gísladóttir, f. 26.
desember 1918, d.
17. febrúar 1988.
Foreldrar Inga voru Sveinn Helga-
son, f. 22. apríl 1890, yfirprentari í
prentsmiðjunni Gutenberg, og
kona hans Björg Sigríður Þórðar-
dóttir, f. 15. nóvember 1890. For-
eldrar Guðrúnar voru Gísli Ólafs-
son, f. 2. janúar 1985, skáld frá
Eiríksstöðum, og kona hans Jak-
obína Þorleifsdóttir, f. 28. júní
1890. Systkini Björns eru: 1) Jak-
obína, maki Erlingur Lúðvíksson
og eiga þau þrjú börn. 2) Sveinn,
Árið 1995 kvæntist Björn Elisa-
beth Dupont. Hún á tvö börn frá
fyrra hjónabandi, Melissu og
James. Saman eiga þau dótturina
Nikita, f. 8. mars 1996.
Björn gekk í barnaskóla á Sauð-
árkróki en flutti með foreldrum
sínum til Reykjavíkur 1963 og var í
einn vetur í Laugarnesskóla en
lauk svo gagnfræðaprófi úr al-
mennri deild Lindargötuskóla
1966. Í Straumsvík vann Björn frá
1969 þar til hann fór til náms til
Tulsa í Bandaríkjunum og lauk
þaðan flugvirkjanámi 21. apríl
1972. Björn hafði lokið einkaflug-
mannsnámi áður en hann fór í
flugvirkjanámið. Strax að náminu
loknu hóf hann störf hjá Cargolux
sem flugvélstjóri og var þar til árs-
ins 1982 er hann fluttist heim.
Fyrst um sinn starfaði hann hjá
Flugleiðum og fór þá jafnframt í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
lauk þaðan prófi í blindflugi og at-
vinnuflugi. Fljótlega lá leiðin aftur
til útlanda og var þá unnið að ýms-
um sérverkefnum fyrir Sterling,
Conair, Airticair, Boeing o.fl. Árið
1988 hóf Björn störf sem flugvél-
stjóri og umsjónarmaður DC-8-
þotu í einkaeign í Ástralíu.
Útför Björns fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
maki Birna Ólafsdótt-
ir. Börn hans af fyrri
hjónaböndum eru
fimm, eitt er látið.
Börn Birnu af fyrra
hjónabandi eru þrjú.
3) Gylfi, hann á þrjú
börn.
Björn kvæntist 31.
desember 1972 Dóru
Björgu Theodórsdótt-
ur, f. 5. mars 1949, d.
31. janúar 1988. For-
eldrar Dóru eru Theo-
dór Jóhannesson og
kona hans Ragna
Jónsdóttir. Dóra átti
eina dóttur áður, Kristínu Péturs-
dóttur, f. 24. júlí 1969, maki Árni
Guðbrandsson, þau eiga tvær dæt-
ur. Saman áttu Björn og Dóra dótt-
urina Helgu, f. 11. desember 1973,
sambýlismaður hennar er Andrew
Jehwo og eiga þau dótturina Isa-
belle Dóru f. 10.7. 2001. Systkini
Dóru eru Björn, Jón og Helga.
Björn og Dóra bjuggu mestan
sinn búskap í Lúxemborg. Björn
og Dóra skildu.
Klukkan sjö að morgni hinn 5.
maí barst mér sú helfregn að Bjössi
bróðir væri dáinn.
Af hverju hann? Hann sem hafði
ferðast yfir öll heimsins höf og álfur.
Af hverju hann? Hann sem hafði lát-
ið æskudrauma sína rætast. Af
hverju?
Harmur minn er sárari en tárum
taki er ég kveð kæran bróður.
Fjarlægðirnar voru oft miklar
milli okkar, hann að fljúga út um
víða veröld, ég heima, síminn hring-
ir, þetta er Bjössi: Við erum yfir
Indlandi núna. Er ekki allt gott á
klakanum? Þannig var Bjössi,
hringdi reglulega í einhvern í fjöl-
skyldunni og lét vita af sér. Bjössi
hafði dvalið erlendis nánast alla sína
starfsævi og oft dáðist ég að því hve
vel hann hélt móðurmáli sínu við,
ekki var möguleiki að heyra er við
ræddum saman að þar færi maður
sem hafði verið erlendis sl. 30 ár. Er
við vorum að alast upp á Sauðár-
króki fyrir hartnær 50 árum leyndi
sér ekki hvert hugur bróður míns
stefndi; flugvélar og aftur flugvélar.
Þegar við lékum okkur að bílum og
dúkkum var Bjössi að skoða eitt-
hvað sem tengdist flugi, þótt hann
væri með þeim yngstu í stórum hópi
frændsystkina, sem ólust upp nán-
ast á sömu torfunni. Björn hélt til
náms í Ameríku 1970 og starfaði er-
lendis nánast óslitið upp frá því, bjó
í Lúxemborg um áraraðir og eign-
aðist þar fjölskyldu.
Fyrir um það bil 20 árum flutti
fjölskyldan heim til Íslands, en ekki
staldraði hann lengi við, var von
bráðar farinn aftur utan til starfa,
og nú í Danmörku. Oft hef ég hug-
leitt það á þessum árum frá því
Björn fór til náms erlendis hvernig
honum liði, því römm er bræðra
taugin, en aldrei fengið skýr svör,
sem mér þótti miður. Þó dvaldi
Bjössi iðulega á mínu heimili er
hann kom til Íslands í læknisskoð-
anir, því hann flaug alla tíð á ís-
lensku skírteini. Fyrir 12 árum sett-
ist Bjössi að í Ástralíu, starfaði þar
fyrir Kerry Peacker, einn af auð-
jöfrum heimsins, og undi hag sínum
vel. Því var það kaldhæðni örlag-
anna að hann skyldi fara á vit feðra
sinna á einni fegurstu strönd Eyja-
álfu og á þeirri strönd sem hann
elskaði mest, þar var hann frjáls,
þar stundaði hann veiðar, þar leið
honum vel. Ferð okkar systkinanna
og frænda til Ástralíu að votta hon-
um okkar hinstu kveðju og til að
flytja heim til Íslands hans jarð-
nesku leifar reyndist mér erfiðari
raun en mig óraði fyrir. Elisabeth,
Helgu, James og Nikitu votta ég og
fjölskylda mín dýpstu samúð.
Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í
friði, kæri bróðir.
Sveinn.
Það var að morgni sunnudagsins
5. maí sl. að ég var vakin með sím-
hringingu og erindið var að tilkynna
lát yngsta bróður míns, Björns
Inga, sem búsettur var í Sydney í
Ástralíu. Hann hafði farið sæll og
glaður með börnin sín tvö James og
Nikitu út á strönd og voru þau á sjó-
ketti sem hvolfdi. Litla Nikita lenti
undir kettinum en Bjössi gat bjarg-
að henni á land og komið henni í
hendur viðstaddra og hné að því
búnu niður og var allur. Þetta var
þungt högg og erfitt að skilja og
finna vanmátt sinn til að rétta hjálp-
arhönd svona langt í burtu frá nán-
ustu fjölskyldu hans.
En upp í hugann koma minning-
arnar um góðan bróður.
Ég man daginn sem hann fæddist
og pabbi okkar fór með okkur systk-
inin þrjú inn í stofu og spilaði plötur
og hann spilaði eins hátt og hann
gat svo við heyrðum ekki hávaðann
frá svefnherberginu, en þar kom
Bjössi í heiminn. Mér fannst hann
alltaf góður og blíður drengur, hann
var litli bróðir minn. Og sem lítill
drengur lék hann sér gjarnan við
minni krakka sem hann var að passa
upp á og vera góður við. Og ekki var
hann hár í loftinu þegar hann byrj-
aði að fara niður á flugvöll ef hann
heyrði í flugvél og fylgjast með öllu
sem þar fór fram og þannig var
hann alla ævina, hann gat ekki
hugsað sér að vinna við annað en
flugvélar.
Ég man allar góðu stundirnar er
við hjónin heimsóttum Bjössa og
Dóru í Lúxemborg, en þar var
manni tekið opnum örmum.
Ég man allar góðu stundirnar er
Bjössi kom í heimsókn til okkar í
Hrauntunguna. Alltaf var hann eins,
sami látlausi bróðirinn, nánast í
sömu fötunum að manni fannst, allt-
af sami stíllinn. Ekki breyttist hann
þótt hann hefði farið marga hringi í
kringum þessa jörð okkar og um-
gengist alls konar fólk.
Ég man allar sögurnar sem hann
sagði mér og ég hélt að þetta væru
ýkjusögur og bað hann að vera nú
ekki að skrökva að systur sinni. En
þetta var bara allt satt, sem kom í
ljós er pabbi heimsótti hann til Ástr-
alíu og fékk að sjá flugvélina sem
hann vann á.
Þótt hann væri mestan hluta æv-
innar svona langt í burtu var hann
samt svo nálægur. Hann hringdi svo
oft til mín og fylgdist með ef ein-
hverjir erfiðleikar voru hjá okkur
hérna hinum megin á hnettinum og
hann var alltaf tilbúinn að koma
fljótt. Upp á síðkastið áttum við
mjög góð samskipti í gegnum tölv-
una. Það var spennandi að fá bréfin
hans með ævintýralýsingunum.
Ég kveð nú elsku bróður minn
með þökk fyrir allt og allt og ég veit
að við hittumst aftur.
Jakobína Ingadóttir.
Bjössi var sannarlega flugmaður
frá barnæsku. Hann leit upp og
fylgdist með flugvélum þegar aðrir
kíktu eftir flugi fugla. Flugvöllur
var á mölinni ekki langt frá verk-
stæðinu þar sem faðir hans starfaði
og í hvert sinn sem þar lenti flugvél
var hann Bjössi kominn til að skoða
hana á vellinum eða fylgjast með
flugtaki hennar. Áhugi hans á flug-
vélum var ástríða og sem drengur
var hann sífellt að teikna flugvélar í
stílabækur eða setja saman flug-
vélamódel sem hann flaug með purri
og hvæsi um stofurnar heima hjá
sér. Sumar þeirra hengdi hann upp í
loftið með nælonstrengjum og þar
voru þær í kröppu aðflugi eða bröttu
flugtaki. Bjössi ætlaði sér að verða
flugmaður og ekkert annað og það
varð svo ævistarf hans.
Eitt sólbjart sumar var hann
unglingur nokkra daga hlaupastrák-
ur á Sauðárkróki hjá áhugafélagi
um svifflug sem stundaði þarna æf-
ingar á flugvellinum. Þegar þessum
æfingum lauk hjá svifflugfélaginu
var honum launuð aðstoðin með
einu hringflugi með leiðbeinandan-
um í svifflugvélinni yfir bæinn.
Stundin var stór og þá gagntók
hann þessi tilfinning sem hann hafði
þráð svo lengi að reyna sjálfur; að
svífa í loftinu, að fljúga eins og fugl
yfir bænum og svífa um í flugvél.
Hann sagði félögunum frá þessu aft-
ur og aftur, hvernig væri að fljúga í
svifflugvélinni, hvernig vængbörðin
stjórnuðu fluginu í beygjum og að-
flugi, hvernig smá hreyfing hæðar-
stýris breytti sviffluginu og hvernig
flugvélin léti að stjórn eftir því
hvernig stýrispinninn var hreyfður
fram og til baka eða til hliðanna.
Fyrir þetta fjörutíu árum á Sauð-
árkróki var hann Bjössi barnungur
búinn að taka ákvörðun um að flugið
yrði hans ævistarf.
Svo liðu árin og þetta gekk eftir
og Bjössi lét æskudrauminn rætast.
Hann lærði til þessa starfs sem
hann ætlaði sér og dreymdi um.
Bjössi varð svo flugmaður, hann
starfaði hér heima og um víða ver-
öld sem flugmaður við margskonar
verkefni nú síðast til margra ára í
Ástralíu.
Hann var sérstakur maður, hann
Bjössi, og ekki var hann framhleyp-
inn. Hann kom hingað til lands og
fór stundum án þess að heilsa eða
kveðja hér áður fyrr. Ekki sagði
hann mikið af sínum ferðum þó ým-
islegt upplifði hann ævintýralegt
með framandi þjóðum. Bjössi
kynntist ástralskri konu, Elísabeth
Dupond, og komu þau hingað til
lands og gengu í hjónaband á Þing-
völlum.
Fyrir um sjö árum eignuðust þau
stúlku sem var honum afar kær.
Hann var með þessari dóttur sinni,
Nikitu, og stjúpsyni á ströndinni í
Sidney á fallegum sunnudegi þegar
hann lést. Bjössi hafði farið á sjó-
þotu með dóttur sína í siglingu út
með ströndinni en honum fataðist
siglingin og þau lentu bæði í sjón-
um. Bjössi synti með hana til lands
og kom henni í öruggar hendur en
féll þá örendur niður. Við kveðjum
Bjössa í dag með sárum söknuði.
Skrítin er þessi tilvera annars og ör-
lögin óráðin. Bjössi sagði alltaf með
glettni í augunum að ekkert kæmi
fyrir sig í fluginu, hann færi varlega,
flugið er ekki hættulegt, sagði hann,
ef maður kann sitt fag og það sagði
hann sannarlega satt. Nú er hann
komin heim til hinstu hvíldar, flug-
maðurinn víðförli og lentur hér á Ís-
landi eftir löng ferðalög og mikið
flug um loftin blá. Takk fyrir við-
kynninguna, gamli vinur, og góða
vináttu alla tíð.
Bjarni Dagur.
BJÖRN INGI
INGASON
!
" #$
"# %
#$
&
'%!
("
%
("
%
("
(" & "") !
#$
*
" *+
"*
" *
" *+
"
(!*
" *
" *
" *+
"%
!
,-./,.
0 "
0"!
"#12
"
!
3"! #$
*4
, * *4 5
67(
"5
/+
" *4 7
*4
, *4
(!*
" *+
""
89(:
,
,
"
-"! 7
"(!'"!
#%