Morgunblaðið - 31.05.2002, Page 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 55
Á ÞESSU ári hefur
vímuefnaneysla á Ís-
landi aukist geysilega
og er nú orðin það al-
varlegasta þjóðfélags-
og heilbrigðisvanda-
mál sem við höfum
nokkurn tíma staðið
frammi fyrir. Mikið
framboð er á ólögleg-
um vímuefnum ásamt
gríðarlegri aukningu á
morfíntengdum lyfjum
sem fíklar fá ávísuð
frá læknum í hreint
ótrúlegu magni.
Ásókn fíkla í þessi lyf
hefur aukist mikið á
síðasta ári, og hefur þetta haft í för
með sér ömurlegar afleiðingar.
Handrukkarar ganga
í skrokk á fjölskyldum
Aukið magn fíkniefna inn í landið
gerir það að verkum, að svoköll-
uðum götusölum fjölgar, og í flest-
um tilfellum er um ungt fólk að
ræða, sem hefur orðið fórnarlömb
efnanna og flosnað úr námi og frá
atvinnu. Þetta fólk fjármagnar
neysluna með sölu efnanna, og fær
þannig greiðslufresti í ákveðinn
tíma, en neysla þeirra sjálfra eykst
samtímis, og alltaf kemur sá dagur
að ekki er hægt að greiða efnin á
umsömdum tíma. Þá hefst örvænt-
ingarfull tilraun til þess að útvega
peninga, sem leiðir til innbrota í
fyrirtæki, vopnaðra rána og fleiri
skelfilegra hluta sem eiga sér stað
þegar hræðslan um að svokallaðir
handrukkarar gangi í skrokk á
þeim eða fjölskyldum þeirra, gríp-
ur um sig. Sláandi dæmi eru um að
þessir menn hafi ruðst inn á heimili
fólks, gengið í skrokk á fíklinum og
foreldrum viðkomandi í viðurvist
ungra barna og það sem alvarleg-
ast er ekki eru lagðar fram kærur í
þessum málum vegna hótana um að
enn verra muni þá
hljótast af.
Og í mjög mörgum
tilfellum leiðir af-
brotaferill fíkilsins til
þess að hann er send-
ur inn í fangelsi og
kemur svo aftur út í
þjóðfélagið, jafnvel í
verri stöðu en hann
var í þegar hann fór
inn í fangelsið, og litla
sem enga aðstoð að fá
úti. En mín skoðun er
sú að langt genginn
fíkill þurfi á langri
endurhæfingu að
halda, allt frá 12–36
mánaða andlegri og líkamlegri upp-
byggingu.
Fíklarnir sjálfir
eiga ekki aðalsökina
Ef árangur á að nást með þessa
veiku einstaklinga verður að byrja
á rótinni því að tréð dafnar ekki og
stækkar nema það sé vökvað.
Þannig er því einnig varið með
fórnarlömb eitursins sem sjálf eru
hvorki eigendur né innflytjendur
fíkniefnanna nema í mjög litlum
mæli. Heldur er þetta hinn almenni
borgari oft á tíðum og einnig fólk
sem lætur mikið yfir sér í þjóð-
félaginu, það vökvar tréð þannig að
ávöxtur þess megi verða sem mest-
ur, burt séð frá afleiðingum þeim
sem lýst hefur verið hér á undan.
Ennfremur gengur þetta fólk um
dæmandi fíklana sem vesalinga
sem ætti að fjarlægja af götum
landsins, til þess eins að fría sjálft
sig!
Meðferðarúrræði
sem gefur nýtt líf!
„Þegar ég kom í Byrgið var þar
fyrir fólk sem allt hafði verið í
sömu sporum og ég og þegar ég sá
að þetta fólk starfaði af hugsjón
einni saman og 90% starfsmanna
voru í sjálboðavinnu, full lífsorku
og gleði þá fann ég strax að þessu
fólki tilheyrði ég. Það að fá að taka
þátt í meðferðarúrræði sem bygg-
ist á orði Jesú Krists (Biblíunni)
var fyrir mig mjög framandi en
hefur gefið mér yndislegt líf, trú,
von, kærleika, sálarró og frið í
hjarta. Slíkt hef ég aldrei upplifað
áður.
Þótt ég hafi yfirgefið allt sem
mér var kærast í lífinu, þ.e. fjöl-
skyldu mína og börn sem ég yfirgaf
sökum neyslu minnar, þar sem ég
var orðinn mjög veikur og gerði
ekki greinarmun á réttu og röngu,
þá trúi ég því að þetta nöturlega
tímabil ævi minnar hafi allt sinn til-
gang.
Því að í orði Guðs í Jeremía 1.5
segir Drottinn: „Áður en ég mynd-
aði þig í móðurkviði útvaldi ég þig,
og áður en þú komst af móðurkviði
helgaði ég þig, …“ og þegar ég las
þessi orð fékk ég annan skilning á
lífi mínu og þeim erfiðleikum og
hörmungum sem ég hef þurft að
glíma við. Þessa leið varð ég að
ganga til að geta eignast líf með
Drottni vorum JESÚ KRISTI og
það líf í fullri gnægð“!
Sannleikann
umbúðalaust á borðið
Nauðsynlegt er að grípa til
skjótra aðgerða gagnvart fíkniefna-
vandanum, sem felast m.a. í því, að
leggja sannleikann umbúðalaust á
borð fyrir almenning og birta tölu-
legar staðreyndir, t.d. hvað látast
margir neytendur í viku hverri,
hvað um sjálfsvígin, nauðganirnar,
ofbeldið og öll þau hörmulegu slys
sem tengja má með einum eða öðr-
um hætti fíkniefnaneyslu.
Gríðarleg aukning á spraut-
uneyslu fíklanna hefur haft í för
með sér skelfilegar afleiðingar sem
eiga eftir að versna, og koma fram
í dauða vegna ofskömmtunar eða
óhreinna efna, lifrarsjúkdómum og
mikilli aukningu HIV smita.
Fjölskyldur fíkniefnaneytenda
þurfa ekki síður á aðstoð að halda
og hefur Byrgið hrundið af stað
miklu átaki í þessum málum nýver-
ið, með tilkomu fjölskyldu og for-
varnardeildar, þar sem í boði eru
úrræði fyrir aðstandendur og fjöl-
skyldur fíkilsins, þ.e. öflugt kynn-
ingarstarf og fræðsla og sérstök
meðferð aðstandenda í Rockville.
Byrgið hefur meðferð
sem virkar!
Pétur Gunnarsson
Fíkniefni
Ef árangur á að
nást með þessa veiku
einstaklinga verður að
byrja á rótinni, segir
Pétur Gunnarsson,
því að tréð dafnar
ekki og stækkar nema
það sé vökvað.
Höfundur er fyrrverandi fíkill og
starfar nú sem fulltrúi forvarnar- og
fjölskyldudeildar Byrgisins.
daga
K
O
R
T
E
R
Nokia 3410
Verslun
Kringlunni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
79
75
05
/2
00
2
islandssimi.is
kominn
Philips Savy
6.000 kr. inneign
fylgir.
staðgreitt
6
Fyrsti JAVA
síminn frá
Nokia
18.990kr.
9.990kr.
Nýr og fullkominn WAP sími
frá Nokia sem styður Java leiki
og hugbúnað.