Morgunblaðið - 31.05.2002, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Grunnskóli Vesturbyggðar
Kennarar óskast
Í Birkimelsskóla: Ein almenn staða.
Í Bíldudalsskóla: Hálf staða íþróttakennara
og tvær almennar stöður.
Í Patreksskóla: Ein almenn staða, smíðar og
heimilisfræði.
Upplýsingar veitir Ragnhildur Einarsdóttir,
skólastjóri, í síma 456 1637 eða Nanna Sjöfn
Pétursdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma
456 1257 eða 864 1424.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Móttökudeild
Kennara vantar við nýja móttökudeild
nýbúa við Lækjarskóla. Um er að ræða
stjórnun deildar og kennslu. Æskilegt
er að umsækjendur hafi reynslu af
kennslu tvítyngdra nemenda.
Allar upplýsingar um störfin gefur Reynir
Guðnason, skólastjóri, í síma 555 0585.
Umsóknarfrestur er til 7. júní.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Landverndar
2002
laugardaginn 1. júní í Norræna húsinu
í Reykjavík
Aðalfundarstörf kl. 10—14.
Erindi kl. 14—16.
Ellý K.J. Guðmundsdóttir, forstöðumaður Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur:
Er höfuðborg Íslands að búa í haginn fyrir sjálf-
bæra þróun á 21. öldinni?
Jónas Guðmundsson hagfræðingur:
Hlutverk og staða frjálsra félagasamtaka:
Hvernig rækta náttúruverndarsamtök hlutverk
sitt?
Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri Land-
verndar: Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls
og jarðvarma — niðurstöður tilraunamats.
Aðalfundur Landverndar er öllum opinn en
atkvæðisréttur er bundinn við félaga og aðild-
arfélög.
KENNSLA
Nýi söngskólinn
„Hjartans mál“
Inntökupróf í einsöngsdeild verða 3. júní í
Ými, Skógarhlíð 20.
Innritun í áhugadeild 3.—6. júní. í símum
695 2914 og 552 0600.
songskoli@vortex.is songskoli.vortex.is
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Hörðu-
völlum 1, Selfossi (lögreglustöðin), föstudag-
inn 7. júní 2002 kl. 14.00:
EI-255 JY-298 LG-073 MI-215 OA-194
PO-820 TB-142 TO-651 UN-288 VE-829
VT-346 YF-099 YX-011
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
30. maí 2002.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hörðuvöll-
um 1, Selfossi (lögreglustöðin), föstudaginn
7. júní 2002 kl. 14.00:
DEUTZ-FAHR KM 3,16 sláttuvél, serial no
GT185333.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema
með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
30. maí 2002.
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvarðanir Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
um mat á umhverfisáhrifum:
Hlíðarfjallsvegur, Rangárvellir
— Skíðastaðir, Akureyri.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli háð mati á umhverf-
isáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um
mat á umhverfisáhrifum:
Útnesvegur nr. 574 um Klifhraun, Gröf
— Arnarstapi, Snæfellsbæ.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær
er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: www.skipulag.is .
Ákvarðanir Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
28. júní 2002.
Skipulagsstofnun.
Tillaga að breytingu
á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands
2015 á svæðinu norðan Vatnajökuls
Samvinnunefnd miðhálendis auglýsir tillögu
að breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis
Íslands 2015 er tekur til landsvæðis norðan
Vatnajökuls í tengslum við endurskoðaða til-
högun Kárahnjúkavirkjunar og óska sveitar-
stjórna á svæðinu. Breytingartillagan tekur til
orkuvinnslu, samgangna, náttúruverndar og
ferðamála. Auglýsingin er skv. 14. gr. a sbr.
13. gr. a í skipulags- og byggingarlögum
nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu-
tíma á eftirtöldum stöðum frá og með föstu-
deginum 31.maí til og með föstudagsins
28. júní 2002.
● Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík
● Skrifstofu Norður-Héraðs, Brúarási
● Fljótsdalshreppi, á skrifstofu oddvita
● Ráðhúsi Fellahrepps, Einhleypingi 1, Fellabæ
● Bæjarskrifstofu Austur-Héraðs, Lyngási 12,
Egilsstöðum
● Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Strandgötu 29,
Akureyri
● Sýslumanninum á Ísafirði, Stjórnsýsluhús-
inu, Hafnarstræti 1, Ísafirði
● Sýslumanninum á Selfossi, Hörðuvöllum
1, Selfossi
● Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3, Rvík
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila
inn skriflegum athugasemdum rennur út föstu-
daginn 12. júlí 2002. Skila skal athugasemdum
á skrifstofu samvinnunefndar miðhálendis á
Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breyting-
artillöguna fyrir tilskilinn frest, teljast samþykk-
ir henni.
Óskar Bergsson, formaður
samvinnunefndar miðhálendis.
Suðurhraun - Garðabæ
Til sölu eða leigu þetta nýlega, glæsilega, vel
staðsetta atvinnuhúsnæði í Garðabæ.
Um er að ræða tæplega 5000 fm húsnæði sem
auðvelt er að skipta og nýta fyrir fjölbreytta
starfsemi t.d. fyrir skrifstofur, verslun og eða
lager-, iðnaðar- eða þjónustuhúsnæði. Meðal
annars eru fullbúnar skrifstofur með síma og
tölvulögnum. Nokkrar stórar innkeyrsludyr,
mikil lofthæð. Myndarlega starfsmannaað-
staða. Frábær útiaðstaða, m.a. fyrir gáma ef
það á við. Næg bílastæði. Um 1,3 ha malbikuð
lóð. Byggingarréttur fyrir rúmlega 2000 fm.
Hagstæð lán áhvílandi. Eignaskipti möguleg.
Hús sem vert er að skoða. Um 2000 fm í góðri
leigu en um 3000 fm lausir.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson
skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. 9381
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Sólvellir 11, Akureyri, þingl. eig. db. Hauks Torfasonar, gerðarbeið-
andi Íslandsbanki-FBA hf., miðvikudaginn 5. júní 2002 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
30. maí 2002.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Laugardaginn 1. júní nk. fer
fram uppboð á reiðhjólum
og öðrum óskilamunum
sem eru í vörslu lögreglunnar í Hafnarfirði.
Uppboðið verður haldið í Kaplahrauni 5 í Hafn-
arfirði og hefst kl. 11:00.
Lögreglan í Hafnarfirði.
ATVINNUHÚSNÆÐI