Morgunblaðið - 31.05.2002, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 59
AÐALFUNDUR Landverndar
verður haldinn í Norræna húsinu í
Reykjavík laugardaginn 1. júní kl.
10.30. Hefðbundin aðalfundarstörf.
Klukkan 14 verða flutt nokkur erindi.
Erindi halda: Ellý K. J. Guðmunds-
dóttir, forstöðumaður Umhverfis- og
heilbrigðisstofu Reykjavíkur og Jón-
as Guðmundsson hagfræðingur. Sagt
verður frá niðurstöðum tilraunamats
rammaáætlunar um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma þar sem leitast var
við að raða 15 virkjunarhugmyndum
með tilliti til hagkvæmni þeirra og
umhverfisáhrifa.
Aðalfundur Landverndar er öllum
opinn en atkvæðisréttur er bundinn
við félaga og aðildarfélög, segir í
fréttatilkynningu.
Aðalfundur
Landverndar
Rangt föðurnafn
Föðurnafn Jónasar Þórissonar,
framkvæmdastjóra Hjálparstarfs
kirkjunnar, misritaðist í grein í
blaðinu í gær um kosningarnar í
Sierra Leone, en hann var sagður
Ragnarsson. Er það leiðrétt hér með
og beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
Sparverslun.is
í Bæjarlind næstlægst
Rangt var farið með nafn versl-
unarinnar Sparverslun.is í Bæjar-
lind í Kópavogi í baksíðufrétt Morg-
unblaðsins í gær þar sem greint er
frá niðurstöðu verðkönnunar ASÍ á
verði grænmetis og ávaxta. Verslun-
in heitir Sparverslun.is en ekki Spar-
kaup.is eins og stóð í fréttinni. Eins
og fram kemur í fréttinni var Spar-
verslun.is með næstlægsta verðið í
könnuninni, næst á eftir Bónus.
LEIÐRÉTT
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Öskjuhlíðina
laugardaginn 1. júní, kl. 11. Hist
verður við innganginn í Perluna.
Gert er ráð fyrir fremur þægilegri
klukkutíma göngu sem ætti að henta
flestum. Einn af kennurum hópþjálf-
unar gengur með hópnum og sér um
létta upphitun í byrjun og teygjur í
lokin.
Öllum er frjáls þátttaka, bæði fé-
lagsmönnum GÍ og öðrum. Ekkert
gjald, segir í fréttatilkynningu.
Gönguferð um
Öskjuhlíðina
SKÓLAGARÐAR borgarinnar
starfa á átta stöðum í borginni. Garð-
arnir eru við Holtaveg í Laugardal, í
Árbæ vestan Árbæjarsafns, í Foss-
vogi við Bjarmaland, við Jaðarsel og
Stekkjarbakka í Breiðholti, við
Þorragötu í Skerjafirði í Foldahverfi
(Kotmýri) fyrir austan Logafold og
Gorvík í Víkurhverfi.
Skólagarðarnir eru ætlaðir börn-
um 8 til 12 ára. Innritun er í dag,
föstudaginn 31. maí, og hefst kl. 8 í
hverjum garði fyrir sig. Eldri borg-
arar geta innritað sig 3. júní. í ofan-
greindum görðum ef rými leyfir.
Þátttökugjald er 2.000 fyrir hvern
gróðurreit, segir í frétt frá Skóla-
görðum Reykjavíkur.
Innritun í Skóla-
garða Reykjavíkur
BINGÓ verður haldið í Breiðholts-
skóla í dag, föstudaginn 31. maí, kl.
18. Góðir vinningar í boði.
Bingóspjaldið er á 200 kr. og áætl-
að er að spilatími verði ein klukku-
stund. Allir eru velkomnir.
Bingó í
Breiðholtsskóla
DAGUR hafsins verður haldinn
laugardaginn 1. júní, þá munu
slysavarnakonur selja kaffi og vöffl-
ur um borð í Skólaskipinu Sæ-
björgu sem siglir um sundin blá.
Á sjómannadaginn 2. júní verður
á boðstólum hlaðborð kvennadeild-
arinnar í Höllubúð, Sóltúni 20, og
eru þar kræsingar á borðum sem
félagskonur hafa útbúið.
Sæbjörgin siglir á sjómannadag-
inn og gefst almenningi tækifæri til
að skoða skipið, sigla um sundin blá
og kaupa kaffi og vöfflur.
Á Miðbakka eru sölutjöld og þar
eru slysavarnakonur að selja kaffi
og nýbakaðar vöfflur.
Ein aðalfjáröflun slysavarna-
kvenna í Reykjavík nú seinni ár
hefur verið kaffisala á sjómanna-
daginn þá hafa félagskonur bakað
og gefið kökur, segir í fréttatil-
kynningu.
Kaffisala
slysavarna-
deildar kvenna
í Reykjavík
MEISTARAMÓT Skákskóla Ís-
lands verður haldið í ellefta skipti
dagana 31. maí til 2. júní í húsnæði
skólans að Faxafeni 12, 108 Reykja-
vík. Allir nemendur skólans og þeir
sem tekið hafa þátt í námskeiðum á
vegum skólans hafa þátttökurétt.
Mótið verður reiknað til skák-
stiga, en þrjár fyrstu umferðirnar
til At-skákstiga. Keppt verður eftir
Monrad- eða svissneska kerfinu.
Í fyrstu verðlaun er meistaratitill
Skákskóla Íslands 2001/2002 og far-
andbikar. Einnig flugfar með Flug-
leiðum hf. á Ameríku eða Evrópu-
leið og uppihaldskostnaður kr. 25
þús. Önnur verðlaun eru flugfar-
miði á leiðum Flugleiða til áfanga-
staðar í Bandaríkjunum eða Evr-
ópu. Þriðju verðlaun eru flug-
farmiði á leiðum Flugleiða til
áfangastaðar í Evrópu.
Meistaramót
Skákskóla Íslands
FORELDRAR barna í Waldorfskól-
anum Sólstöfum í Reykjavík halda
sumarbasar laugardaginn 1. júní kl.
11 – 15 að Hraunbergi 12 ( við Fella-
og Hólakirkju). Basarinn er haldinn
til styrktar skólabyggingar.
Til sölu verða allskyns plöntur;
trjáplöntur, runnar og blóm auk
grænmetisplantna. Boðið verður
uppá hressingu. Samhlið basarnum
verða nemendur með flóamarkað,
segir í fréttatilkynningu.
Sumarbasar
Waldorfskólans
ÞORKELL Lindberg Þórarinsson
heldur fyrirlestur um MS-verkefni
sitt, Svæðanotkun flórgoða, við líf-
fræðiskor Háskóla Íslands í dag,
föstudaginn 31. maí kl. 15 í stofu G6 í
húsi Líffræðistofnunar Háskólans á
Grensásvegi 12. Fyrirlesturinn er
öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Svæðanotkun
flórgoða
ÚTSKRIFT frá Garðyrkjuskólanum
verður laugardaginn 1. júní kl. 14.
Útskrifaðir verða 38 nemendur sem
garðyrkjufræðingar af mismunandi
brautum og nemendur blómaskreyt-
ingabrautar útskrifast sem blóma-
skreytar.
Að lokinni útskrift verður boðið til
kaffisamsætis á Reykjum, segir í
fréttatilkynningu frá Garðyrkjuskól-
anum.
Útskrift frá Garð-
yrkjuskólanum
PRÝÐISGÓÐ silungsveiði hefur
verið víða að undanförnu og nú
berast fregnir norðan að. Þar
veiddu menn í Vestmannsvatni og
fengu góðan afla; nokkra tugi sil-
unga, mest urriða, 1 til 3 punda.
Einnig hafa borist fregnir af skot-
um í Hópinu þar sem menn eru að
fá talsvert af vænni bleikju. Einn
á að hafa fengið sex fiska, annar
11 stykki. Mest eru þetta um 2-2,5
punda bleikjur, en þær stærstu
slaga upp í 3,5 pund.
Ætlaði sér bleikjuna
Það er margt skrýtið sem gerist
á bökkum vatnanna. Nýlega var
veiðimaður einn að veiðum í Þing-
vallavatni og skyndilega tók hjá
honum bleikja sem reyndist vera
eitthvað um 1,5 pund. Allt fór eftir
kúnstarinnar reglum, fiskurinn
ærslaðist eitthvað um, skvetti
vatni , en lét undan síga jafnt og
þétt og háfurinn beið hans. En er
veiðimaður beygði sig fram og
renndi háfnum undir feng sinn
brá honum all hrikalega í brún er
risableikja, einhvers staðar á
bilinu 7 til 10 pund, kom eins og
tundurskeyti upp úr djúpinu og
sótti að smærri bleikjunni. Risa-
bleikjan sá sig þó um hönd,
styggðist og hvarf aftur í djúpið,
en veiðimaður spurði sig hvað
gerst hefði ef hann hefði verið ör-
fáum andartökum lengur að landa
bleikju sinni. Svona risableikjur
eru til í Þingvallavatni og örfáar
veiðast á hverju sumri. Þær lifa
sældarlífi á bleikju og murtu.
Annar sem stóð vaktina í Þing-
vallavatni, nánar tiltekið í Vatns-
koti, lenti í því að 3 punda urriði
elti fluguna af svo miklu kappi er
hann þreif fluguna uppúr til að
kasta aftur, að firkurinn þurrkaði
sig upp úr vatninu og gott betur,
náði flugunni í loftköstunum.
Þetta var feigur fiskur.
Góður gangur á
silungaslóðum
Morgunblaðið/Golli
Kjartan Þorbjörnsson með 3
punda urriða sem „stökk á“
fluguna í Þingvallavatni.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
HÁTÍÐ hafsins verður í Reykjavík
um helgina og er þetta í fjórða sinn
sem þessi skemmtun fer fram, en
hún tengist sjómannadeginum á
sunnudag.
Hátíðin verður flautuð inn af
skipslúðrum í höfninni kl. 10 laug-
ardaginn 1. júní og verður fjölbreytt
dagskrá allan daginn. Almenningur
fær tækifæri til að skapa hátíðina
og í því sambandi má t.d. nefna sum-
arhátíð Vesturbæjarsamtakanna í
samvinnu við Hátíð hafsins. Hún
hefst í gamla Stýrimannaskólanum
kl. 11. Í smiðjunni vinnur hópur fjöl-
lista- og tónlistarmanna með börn-
unum við að skapa búninga, fána,
veifur og tónlist í anda fiska og sjáv-
ar, en grillað verður ofan í smiðju-
fólkið í hádeginu. Klukkan 14 fer
hópurinn í skrúðgöngu niður á
Reykjavíkurhöfn þar sem farið
verður í stórfiskaleik og risakrít-
armynd teiknuð á hafnarbakkann.
Klukkan þrjú siglir bátur með
skrúðgöngufólk um sundin blá og
allir fá ís. Aðgangur að smiðjunni er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Mikið verður um að vera við höfn-
ina frá morgni til kvölds báða dag-
ana. Þar má nefna Tívolí Jörundar,
kvikmynda- og ljósmyndasýningar,
siglingakeppni og kynningu á
menntun og störfum tengdum sjáv-
arútvegi. Fjölmenningarsamtök
nýrra Íslendinga bjóða upp á fjöl-
þjóðlega smárétti frá mörgum lönd-
um úr íslensku fiskmeti, slysavarna-
konur selja hátíðarkaffi og vöfflur
með rjóma og fiskmarkaður verður
í Kolaportinu. Hulda Proppé, mann-
fræðingur, flytur erindi um konur
og kvóta á Reykjavíkurtorgi í Gróf-
arhúsi klukkan tvö og á útihljóm-
leikum á hafnarbakkanum troða
upp hljómsveitirnar Desidia, Bú-
drýgindi, Örkuml, Mínus og Land
og synir.
Hátíðarhöld sjómannadagsins
hefjast með setningu á Miðbakka kl.
14 og síðan verða nokkur ávörp en
að þeim loknum tekur við fjölbreytt
dagskrá til kl. 18.
Sjómannadagsráð, Reykjavík-
urhöfn og íbúsamtök Vesturbæjar
standa að Hátíð hafsins.
Hátíð hafsins í fjórða sinn
Opin leiksmiðja verður fyrir
börn í gamla Stýrimannaskólan-
um, en þar vinnur hópur fjöl-
lista- og tónlistarmanna með
börnunum við að skapa búninga,
fána, veifur og tónlist í anda
fiska og sjávar.
AÐSTANDENDUR tveggja fórnar-
lamba flugslyssins í Skerjafirði í
ágúst árið 2000, þegar Cessna-vélin
TF-GTX fórst með sex manns um
borð, segja m.a. á vefsíðunni flug-
slys.is að „augljóst ósamræmi“ sé
hjá Flugmálastjórn milli fréttatil-
kynningar sem hún gaf út 29. maí sl.
og svarbréfs til Friðriks Þórs Guð-
mundssonar, eins aðstandenda, frá
stofnuninni 30. apríl sl.
„Undanfarið hefur verið hægt að
fylgjast með undarlegum viðbrögð-
um Flugmálastjórnar Íslands í fjöl-
miðlum vegna beiðni Friðriks Þórs
Guðmundssonar og Jóns Ólafs
Skarphéðinssonar um opinbera
rannsókn á því hvort m.a. loftferða-
lög hafi verið brotin við útgáfu
lofthæfiskírteinis fyrir flugvélina
TF-GTX (Cessna 404 Titan) hinn 15.
júní 2000. Flugvélin var notuð í flug-
rekstri LÍO ehf.“ Í gær [fyrradag –
innsk. Mbl.], 29. maí 2002, sendi flug-
málastjórn frá sér fréttatilkynningu,
með fyrirsögninni „Flugmálastjórn
borin þungum og röngum sökum“.
Með tilkynningunni fylgdi svar
stofnunarinnar við fyrirspurn Frið-
riks Þórs Guðmundssonar dags 30.
apríl sl. Í fréttatilkynningu flug-
málastjórnar kemur fram að flugvél-
in TF-GTX hafi áður verið í notkun í
Finnlandi og þar hafi finnskur flug-
rekandi haft heimild þarlendra yfir-
valda til að nota hreyfla hennar í allt
að 1.920 klst. í rekstrarumhverfi
fyrri eiganda. Í fyrstu umsókn um
lofthæfiskírteini fyrir flugvélina TF-
GTX hér á landi kemur fram að
heildargangtími annars hreyfils
hennar hafi verið 1.742 klst frá
grannskoðun. Hreyflar þessarar
flugvélar eru af gerðinni
GTSIO-520-M og mælir framleið-
andi þeirra, Teledyne Continental
Motors, svo fyrir að heildargangtími
milli grannskoðana skuli ekki fara
yfir 1.600 flugstundir.
Í svari flugmálastjórnar frá 30.
apríl segir að „reglur um gangtíma,
dagatalstíma og hringi (cycle) milli
grannskoðana hreyfla í íslenskum
flugvélum mið[ist] við þann gang-
tíma sem framleiðandi ráðlegg[i]“. Í
fréttatilkynningu flugmálastjórnar
segir: „Gangtími hreyfla milli grann-
skoðana miðast ekki eingöngu við
uppgefinn tíma framleiðenda hreyfl-
anna, hvorki hér á landi né annars
staðar. Tekið er mið af í hvers konar
rekstri og viðhaldsumhverfi flugvél
hefur verið áður en viðhaldsáætlun
fyrir hana er samþykkt af flugmála-
stjórn. Í viðhaldsáætlun er tekinn
fram leyfilegur gangtími hreyfils
fram að næstu grannskoðun. Ekki er
óalgengt að sá tími sé lengri en sá
tími sem framleiðandi mælir með,
allt eftir reynslu flugrekenda á
rekstri einstakra hreyfla og þess
umhverfis sem hann starfar í.“ Hér
er um augljóst ósamræmi hjá Flug-
málastjórn að ræða,“ segir m.a. á
vefsíðunni, sem aðstandendurnir
hafa nýlega komið á fót.
Aðstandendur fórnarlamba
flugslyssins í Skerjafirði
Augljóst ósamræmi
hjá Flugmálastjórn
OPIÐ hús verður í Heimilisiðn-
aðarskólanum á Laufásvegi 2,
Reykjavík, laugardaginn 1. júní kl.
13–17.
Kynning verður á námskeiðum
skólans og sýnishorn af verkum
nemenda. Kennarar og nemendur
verða að störfum og sýna hand-
verk, svo sem vefnað, útsaum,
spjaldvefnað, tóvinnu, baldýringu
og þjóðbúningasaum.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
stendur jafnframt að sýningunni
„Með rauðan skúf“ sem er sýning á
íslenskum þjóðbúningum, í sýning-
arsal Handverks og hönnunar Að-
alstræti 12, 2. hæð, til 2. júní, opið
kl. 12–17 alla daga.
Opið hús í
Heimilisiðn-
aðarskólanum