Morgunblaðið - 31.05.2002, Síða 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 61
Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara
kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufulltrúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Hrund-
ar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir
mæður, góð upplifun fyrir börn.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varm-
árskóla kl. 13.15–14.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl.
10, 13 og 22 á FM 105,5.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Sam-
komur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Brynjar Ólafsson.
Biblíurannsókn og bænastund á miðviku-
dagskvöldum kl. 20. Bænastundir á hverju
kvöldi kl. 20–22 í hliðarsal kirkjunnar. Allir
hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón: Ungt fólk úr
Reykjavík og Hafnarfirði.
Samlestrar- og bænastund á föstudags-
kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Samlestrar og
bænastund í safnaðarheimilinu á fimmtu-
dögum kl. 17.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Sigríð-
ur Kristjánsdóttir og Amicos. Allir velkomn-
ir.
Safnaðarstarf
Golfkúlur 3 stk. í pakka
aðeins 850 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
FJÖLBRAUTASKÓLINN við Ár-
múla býður upp á sumarfjarnám í
fyrsta skipti nú í sumar. Sölvi
Sveinsson, skólameistari Fjöl-
brautaskólans við Ármúla, segir að
sumarfjarnámið sé angi af mun
stærra máli, en skólinn hefur verið
þróunarskóli í upplýsingatækni síð-
astliðin þrjú ár, ásamt Menntaskól-
anum á Akureyri og Fjölbrautaskól-
anum á Suðurlandi. „Nú í vor lýkur
þessu tilraunaverkefni. Eitt af því
sem við höfum verið að gera þessi ár
er að einstaka deildir innan skólans
hafa komið sér upp öflugum netsíð-
um og við höfum verið að smáfikra
okkur yfir í það sem við köllum dreif-
nám og fjarnám. Síðan byrjuðum við
með hreint fjarnám í haust og vorum
með um fimmtíu nemendur og núna í
vor rúmlega hundrað. Nú höfum við
fengið heimild menntamálaráðu-
neytisins til að gera tilraun næstu
tvö árin með það sem heitir fjarnám
allt árið,“ segir Sölvi.
Færri greinar í styttri lotum
Að hans sögn verður árinu skipt
upp í fjórar annir og greiða nemend-
ur hefðbundið innritunargjald, eins
og það er ákveðið hverju sinni og
mega velja sér allt að níu einingar. Á
einu ári er hægt að taka sem ígildi
fulls náms. Það er hægt að taka 36
einingar á venjulegu ári en ársnem-
andi í hefðbundnu skólakerfi tekur
35 einingar.
„Sú reynsla sem við höfum af fjar-
námi eða að minnsta kosti þær hug-
myndir sem við höfum um það, eru
þær að mönnum láti betur að taka
færri greinar í styttri lotum heldur
en margar greinar í lengri lotum.“
Aðspurður hvaða námsgreinar séu
kenndar segir hann að í boði séu
flestir áfangar, sem kenndir eru í
dagskóla og fer þeim fjölgandi.
Stefnt er að því að innan fárra miss-
era verði hægt að taka öll fög skólans
í fjarnámi
Sölvi bendir á að nemendur í dag-
skóla geti tekið fjarnámsáfanga að
auki og þar með flýtt fyrir sér. Einn-
ig er þetta sniðugur kostur fyrir
nemendur í litlum skólum til að auka
fjölbreytni í námi og geta nemendur
tekið áfanga, sem minni skólar hafa
ekki kost á að bjóða upp á. Nem-
endur geta með öðrum orðum fengið
fjarnámið metið inn í aðra skóla, en
allt eru þetta áfangar sem eru í aðal-
námskrá framhaldsskólans. „Það
eru ekki síst þeir sem fara í nám á
sumrin sem eygja möguleika á því að
verða brautskráðir um jól. Eiga
kannski 30 einingar eftir og geta þá
stytt sér leiðina með því að taka 9
einingar og eiga þá 21 eftir, sem er
þægilegt að ná á einni önn fyrir góð-
an nemanda.“
Góð aðsókn
Sölvi segir að mjög góð aðsókn
hafi verið að skólanum. Hann telur
þetta skemmtilega viðbót við
kennsluaðferðirnar og námsfram-
boðið í landinu. „Langflestir kenn-
arar okkar eru með fartölvur og eru í
sambandi hvar sem þeir eru. Við
reiknum með því að samskiptin á
sumarönninni verði mest í júní og
síðan eru prófin í ágúst. Ef einhver
er ekki tilbúinn til þess að taka próf-
in þá, má hann geyma þau fram í
desember eða jafnvel fram í mars á
næsta ári. Við ætlum að hafa próf
fjórum sinnum á ári,“ nefnir Sölvi.
Hann segir að meðalfjarnáms-
nemandinn á síðustu önn hafi verið
26 ára gömul kona af suðvesturhorn-
inu og skipta megi nemendum í fjar-
námi í fjóra hópa. Í fyrsta lagi eru
það þeir sem eru að stytta sér leið og
útskrifast fyrr. Í öðru lagi eru það
þeir sem hafa misstigið sig og ná
ýmsum greinum upp með þessum
hætti. Þá eru það þeir nemendur
sem hafa lokið heilmiklu en hafa af
einhverjum ástæðum þurft að hætta
námi. Nemendur sem oft eru komnir
með fjölskyldur og taka námið þá
hægt og bítandi. Loks er það hópur
sem er að fikra sig inn í skólakerfið,
jafnvel að stíga sín fyrstu skref í
námi. Þeir nemendur eru þá gjarnan
búnir að ákveða sig hvað þeir ætla að
verða og stunda þá nám sitt mjög
markvisst.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur ákveðið að bjóða upp á fjarnám allt árið
Sumarfjarnám
í fyrsta sinn
Í TILKYNNINGU frá stjórn For-
eldra- og styrktarfélags heyrnar-
daufra segir: „Samstarf Vesturhlíð-
arskóla og Hlíðaskóla hefur verið í
undirbúningi frá því á árinu 1999, en
núgildandi áætlun um sameiningu
var kynnt á fundi í nóvember síðast-
liðnum að viðstöddum meðal annars
fulltrúum Foreldra- og styrktar-
félags heyrnardaufra og Félags
heyrnarlausra. Allan þennan tíma
hefur heyrnarlaus skólastjóri verið
starfandi í Vesturhlíðarskóla, en
hann er jafnframt formaður Félags
heyrnarlausra. Skólastjórinn hefur
tekið virkan þátt í undirbúningi sam-
starfsins og verið þar í lykilaðstöðu
til að hafa áhrif á gang mála. For-
eldrar barna í Vesturhlíðarskóla
hafa starfað af heilum hug að þessu
verkefni og styðja núverandi áætlun
í öllum meginatriðum.“
Styrktarfélag heyrnardaufra
Styðja sameiningu
skólanna í haust