Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 68
68 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Vit 379.
Hasartryllir ársins.
Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit 377.
kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd Kl. 4, 6, 8, 10 og 11.30. B.i. 12 ára Vit 382.
Sýnd kl. 8. Sýnd í lúxus kl. 6 og 9. B. i. 16. Vit 380.
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
1/2kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
Sýnd Kl. 3.45, 5,50, 8, 10.10 og 11.15. B.i. 16 ára Vit 385.
STUART TOWNSEND AALIYAH
FRUMSÝNING
This time there are no interviews
Frá Anne Rice, höfundi Interviewwitha Vampire, kemur
þessi magnaða hrollvekja með Stuart Townsend og
Aaliyahí aðalhlutverki, en þetta var jafnframt
hennar seinasta mynd.
Sýnd kl. 10.15. Bi 16.
HK DV
HJ Mbl
MULLHOLLAND
DRIVE
Kvikmyndir.com
„Snilld“
HK DV
Sýnd kl. 5.45 og 8.
ÓHT Rás 2
1/2HK DV
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Treystu mér
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
Sýnd kl. 9. B. i. 16.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 6.
Óskarsverðlaunahafarnir Kevin Costner og
Kathy Bates fara á kostum í dularfullum
og yfirnáttúrulegum trylli í anda
THE SIXTH SENSE.
ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR... ER HANN ÞÁ HORFINN AÐ EILÍFU?
Ó.H.T Rás2
SK RadioX
Apocalypse Now Redux/
Dómsdagur nú – sérútgáfan
Klukkustund af efni hefur verið bætt við klass-
íska stríðsmynd Coppola um bandaríska her-
menn í Víetnam. Nýju atriðin auka á breidd
myndarinnar og skilning. Það er spurning hvor
útgáfan sé betri, en það fer eftir hvað fólk vill.
Frábær heimild um brjálað kvikmyndaverk.
Allir í bíó! (H.L.) (Engin stjörnugjöf)
Háskólabíó
Mulholland Drive/Mullhollandtröð
Þessi draumlógíska og seiðandi noir-saga
skipast tvímælalaust í flokk bestu mynda
Davids Lynch. Óræð en býr þó yfir leyndu
merkingarsamhengi. (H.J.) Háskólabíó
The Royal Tennenbaums/
Tennenbaum-fjölskyldan
Ljóðræn, vel gerð gamanmynd um fjölskyldu í
súrrealískri tilvistarkreppu. Frábær leikstjórn
og leikur með Hackman í fararbroddi. (H.L.)
Sambíóin
Jimmy Neutron
Virkilega vel til fundin og flott teiknimynd. Þar
segir frá snillingnum Jimmy og félögum hans
sem leggja í spennandi leiðangur til annarrar
plánetu til að bjarga foreldrum sínum.
Skemmtun fyrir alla í fjölskyldunni. (H.L.)
Sambíóin, Laugarásbíó
Kate and Leopold
Tímagatsmynd um breskan aðalsmann sem
dettur inn í nútímann í miðri New York og
verður ástfanginn. Bráðskemmtileg láttu-þér-
líða-vel-mynd, vel leikin og skrifuð. (S.V.)
Regnboginn
Monsters Inc./Skrímsli hf.
Raddsett teiknimynd. Tölvuteiknuð barna- og
fjölskyldumynd um skrímslin í skápnum. Sem
reynast jafnvel hræddari við börn en börn við
þau. Létt og skemmtileg fyrir alla fjölskyld-
una. (S.V.) Sambíóin
Star Wars: Episode II –
Attack of the Clones/Árás klónanna
Næstsíðasti kafli Stjörnustríðsins er skref í
rétta átt, hreinræktað ævintýri og þrjúbíó þótt
nokkuð vanti upp á seið fyrstu myndanna.
(S.V.) Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó, Sambíóin
Varði goes Europe
Vel lukkuð framhaldsheimildarmynd um tón-
listarmanninn góðlynda sem að þessu sinni
stikar um stræti og torg meginlandsins með
gítarinn reiddan um öxl. Segir á fyndinn hátt
af samskiptum hans við borgarlíf og trúba-
dora og minnir okkur í leiðinni á gleðisnauð
torg Reykjavíkur. Kemur áhorfendum í gott
skap. Upp með götusönginn! (S.V.) Háskólabíó
Ali G
Sjónvarpstrúðurinn Ali G fer mikinn í satíru að
hætti hússins um rotið kerfi og gjörspillta
stjórnmálamenn og eigið ágæti í mynd sem
sveiflast á milli allt að því absúrd dnilligáfu og
leiðindastagls. Einkum fyrir unglingana. (S.V.)
Sambíóin, Háskólabíó
Ice Age/Ísöld
Teiknimynd skartar nýrri tölvutækni og
skemmtilegum fígúrum. Ágætis skemmtun,
sérstaklega fyrir börn, þótt sagan sé frekar
einföld og ekki sérlega fersk. (H.L.) Regnboginn, Smárabíó
Spider-Man/Kóngulóarmaðurinn
Ný og flott mynd um Kóngulóarmanninn í
gamaldags hasarblaðastíl, í bland við
straumlínulagað tölvugrafíkútlit. Myndin er
frábær framan af en slappast þegar á reynir.
(H.J.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó
The Majestic
Kvikmynd gerð í anda Frank Capra-mynd-
anna um minnislausan mann sem rekur á
fjörur smábæjar í Kaliforníu. Vel leikin og
vönduð kvikmynd sem er of væmin, of löng
og of lofsamleg um bandaríska alþýðumenn-
ingu. (H.L). Sambíóin
Aftur til hvergilands / Peter Pan II.
Bandarísk teiknimynd með íslenskri og
bandarískri talsetningu. Pétur Pan berst enn
við Kaftein Krók. Vönduð, ósköp sæt mynd en
heldur tíðindalítil og ófrumleg. (H.J.) Sambíóin
Bubble Boy/Pilturinn
í plastbelgnum
Óvenjuleg aulabrandaramynd þar sem sögu-
hetjan er ástfanginn ungur maður með ónýtt
ónæmiskerfi og býr í plastkúlu. Heldur út á
þjóðveginn í leit að ástinni sinni. Á sína góðu
og slæmu kafla, rétt eins og vegurinn. (S.V.)
Iris
Frábær leikur í fremur slappri mynd, sem er
alls ekki nógu skemmtileg og sýnir engan
veginn hvernig manneskja og heimspekingur
Iris Murdoch var. (H.L.) Sambíóin
The Scorpion King/Sporðdrekakóngurinn
Fyrsti sumarsmellurinn er samsuða úr Múm-
íumyndunum og Conan villimanni. Seið-
skrattar og sverðaglamur fyrir tíma pýramíd-
anna. Meðalbrellur, vondur leikur, heilalaust
grín. (S.V.) Laugarásbíó
Showtime/Fjörið byrjar!
Ólíkar löggur í Los Angeles verða sjónvarps-
stjörnur og samherjar. Hefði getað orðið
smellin satíra. (S.V.) Sambíóin
Resident Evil/Illur bólstaður
Þessi samsuða tæknitryllis og uppvakninga-
hrollvekju byrjar vel fyrstu mínúturnar en renn-
ur síðan út í leiðigjarna framfylgni á formúl-
unni. (H.J.) ½
Sambíóin
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Varði í París (t.h.). „Vel lukkuð framhaldsheimildarmynd um tónlistarmann-
inn góðlynda,“ segir Sæbjörn um íslensku myndina Varði goes Europe.
FRAMHALDSMYND
kvikmyndarinnar Hringa-
dróttinssaga – Föruneyti
hringsins hefur nú valdið
töluverðu umtali vegna
undirtitilsins sem hún
ber, Turnarnir tveir.
Hópur netvafrara, sem kalla sig
Þau sem 11. september hafði áhrif
á þykir þessi nafngift bera vott um
óvirðingu fyrir fórnarlömbum
hryðjuverkaárásanna á World
Trade Center og leggja til að skipt
verði um titil á myndinni.
Hópnum hefur þó verið bent á að
myndirnar beri allar upprunaleg
heiti skáldsagnanna sem
Tolkien ritaði og mynd-
irnar eru byggðar á.
Samtökin hafa samt
sem áður skrifað leik-
stjóra myndarinnar, Peter
Jackson, harðort bréf þar
sem þau fara fram á að hann velji
myndinni annan titil.
Jackson segir það hafa komið til
tals að breyta nafninu en sagðist
bera það mikla virðingu fyrir verk-
um Tolkiens að það yrði ekki gert.
„Aðdáendur Tolkiens myndu
ganga af mér dauðum,“ sagði hann
að lokum.
Turnarnir tveir
Hringurinn góði
sem allt snýst um.