Morgunblaðið - 31.05.2002, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, fagnar hér þriðja marki íslenska
liðsins á móti Spánverjum sem hún skoraði með laglegri kollspyrnu. Guðlaug Jónsdóttir getur ekki leynt gleði
sinni en varnarmaður Spánverja er greinilega niðurlútur.
RÍKISENDURSKOÐUN og stjórn
Sólheima í Grímsnesi eru ekki á
einu máli um það hvort þjónustu-
samningur Sólheima og félagsmála-
ráðuneytisins, frá 1. mars 1996, um
m.a. framlög ríkisins til Sólheima,
hafi verið í gildi síðustu árin eða
ekki. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar,
sem birt var í gær, um þjónustu
Sólheima við fatlaða íbúa staðarins,
segir að þjónustan á árunum 2000
og 2001 hafi ekki verið í samræmi
við fyrrgreindan þjónustusamning.
Segir Ríkisendurskoðun m.a. að
ljóst sé að fjárframlögum sem Sól-
heimar hafi fengið frá ríkinu á und-
anförnum árum hafi verið ráðstafað
með talsvert öðrum hætti en fyrr-
greindur þjónustusamningur hafi
kveðið á um.
Ekki hægt að una þessu
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að ráðuneytið geti ekki
annað en tekið skýrsluna alvarlega
og hún kalli á viðbrögð. „Við kom-
um til með að ræða við fjárlaga-
nefnd hvernig við högum fjár-
streymi til Sólheima. Við getum
ekki unað þessari niðurstöðu, að
stofnunin hafi notað 67 milljóna
króna ríkisframlag í annað en við
bjuggumst við,“ segir hann. Páll
segir að það sé verkefni ráðuneyt-
isins að sjá til að fatlaðir fái þá
þjónustu sem þeim sé ætluð.
Að sögn Páls mun ráðuneytið
einnig óska eftir því að Ríkisend-
urskoðun skoði fjárveitingar til Sól-
heima aftur til ársins 1996. „Síðan
munum við óska eftir því við
prestastefnuna, sem skipar fulltrúa-
ráð Sólheima, að hún hlutist til um
breytingar á skipulagsskrá stofn-
unarinnar,“ segir hann. Páll segir
að það skilyrði verði gert fyrir því
að nýr þjónustusamningur verði
gerður, að stjórnarfyrirkomulagi
Sólheima verði breytt. Ráðuneytið
muni gera kröfu til þess að fá mann
í stjórn, a.m.k. á meðan þjónustu-
samningur sé í gildi. Að auki verði
gert það skilyrði að sérfræðiþjón-
ustu verði sinnt.
„Einnig munum við gera kröfu til
að húsaleiga fatlaðra verði leiðrétt,
þannig að fatlaðir nái rétti sínum í
samræmi við þau framlög sem
Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur
látið af hendi.“
Aðspurður hvort eðlilegt hefði
verið, eftir að Sólheimar sögðu upp
þjónustusamningnum árið 1997, að
gera nýjan samning, segir Páll að
það hafi verið reynt. „Við óskuðum
eftir því og vorum tilbúin með nýj-
an samning, sem Sólheimar féllust
ekki á,“ segir hann. Hefði mátt
fylgjast betur með starfsemi Sól-
heima? „Sólheimar brugðust trausti
okkar. Við treystum því, og ítrek-
uðum hvað eftir annað bréflega, að
allar þær fjárveitingar sem farið
hefðu til Sólheima væru á grund-
velli gamla samningsins og að
stofnunin yrði að uppfylla þær
skyldur sem í honum fælust.“
Of harkaleg
viðbrögð
Sigurbjörn Magnússon hrl. og
stjórnarmaður í framkvæmdastjórn
Sólheima segir félagsmálaráðherra
fara of harkalega fram í ummælum
sínum um framkvæmdastjórnina.
„Viðbrögð félagsmálaráðherra
finnst mér fráleit og byggjast á
hæpnum forsendum,“ segir Sigur-
björn. „Félagsmálaráðherra hefur
ekkert með skipan stjórnarinnar að
gera. Hún er kosin af fulltrúaráði
sem upphaflega var tilnefnt af
prestastefnu. Ég treysti betur ít-
arlega rökstuddri lögfræðilegri nið-
urstöðu Karls Axelssonar hæsta-
réttarlögmanns, en hann segir að
það sé með engu móti hægt að
halda því fram að samningurinn sé í
gildi. Ég hvet menn til að kynna sé
álitsgerð hans. Hin lögfræðilega
niðurstaða Ríkisendurskoðunar er
að mati okkar Karls Axelssonar
röng og ég treysti Karli betur en
lögfræðingum Ríkisendurskoðunar í
þessu sambandi. Hvers vegna leitar
félagsmálaráðherra ekki álits rík-
islögmanns áður en hann veður
fram með yfirlýsingar um að samn-
ingurinn sé í gildi? Ef enginn samn-
ingur er í gildi, þá beinist málið að
ráðherranum sjálfum. Hver er
ábyrgð hans og mun hann axla þá
ábyrgð?“
Fulltrúi stjórnar Sólheima segir viðbrögð félagsmálaráðherra fráleit
Ráðherra segir að nýjum
samningi hafi verið hafnað
Gagnrýnir/10
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu heldur enn í vonina
um að komast í úrslitakeppni HM
í knattspyrnu í Kína á næsta ári
eftir glæsilegan 3:0 sigur á Spán-
verjum á Laugardalsvelli í gær-
kvöldi. Slegið var áhorfendamet á
kvennaleik hér á landi þegar
2.240 manns mættu á völlinn og
studdu vel við bakið á íslenska
liðinu. Íslendingar skoruðu mörk-
in þrjú öll í síðari hálfleik. Fyrstu
tvö mörkin voru sjálfsmörk Spán-
verjanna en Ásthildur Helgadótt-
ir skoraði það þriðja með skalla.
Þess má geta að Spánn vann fyrri
viðureign liðanna á heimavelli
sínum með miklum mun, 6:1.
Með sigrinum komst íslenska
liðið upp í annað sætið í riðlinum.
Rússar eru efstir með 11 stig og
hafa lokið sínum leikjum, Íslend-
ingar eru í öðru sæti með 8 stig,
Spánn er í þriðja með 6 stig og
hefur lokið sínum leikjum og Ítal-
ir eru sömuleiðis með 6 stig.
Frábær sig-
ur á Spán-
verjum
ÍSLENSKUR nýstúdent varð
fyrir bíl á Spáni í fyrrakvöld og
slasaðist alvarlega á höfði, en
honum hefur verið haldið sof-
andi á sjúkrahúsi síðan.
Um 200 manna hópur úr
Verzlunarskóla Íslands er í
tveggja vikna útskriftarferð á
Costa Del Sol, en hópurinn kom
þangað í fyrradag eftir útskrift
á laugardag. Ekið var á pilt úr
hópnum í fyrrakvöld og var
hann fluttur á spítala, en tveir
fararstjórar Heimsferða vöktu
yfir honum í fyrrinótt og viku
ekki frá honum í gær. Haft var
samband við foreldra hans og
héldu þeir út til hans í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Heimsferðum var ferðin mjög
vel undirbúin og hefur að öðru
leyti gengið vel. Fimm farar-
stjórar á vegum ferðaskrifstof-
unnar eru með hópnum auk
tveggja kennara.
Nýstúdent
slasaðist
alvarlega
á Spáni
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
sem sýknað hafði íslenska ríkið af
kröfum starfsmanns Landsbanka
Íslands, sem stefndi ríkinu fyrir þá
ákvörðun skattayfirvalda að færa
honum til tekna rúmar 153 þúsund
krónur vegna kaupa á hlutabréfum
í bankanum á starfsmannakjörum.
Starfsmaðurinn keypti bréfin á
genginu 1,25 en fyrrgreind fjár-
hæð nam mismuninum á verði
bréfanna á því gengi og genginu
1,9 sem almenningi bauðst á sama
tíma. Hæstiréttur taldi að þau
hlunnindi sem fólust í hinum sér-
stöku starfsmannakjörum yrðu
metin til peningaverðs, svo sem
áskilið er í 1. mgr. 7. gr. laga um
tekju- og eignarskatt og taldi því
að um skattskyld hlunnindi hafi
verið að ræða.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Garðar Gíslason, Haraldur Henr-
ysson, Hrafn Bragason og Pétur
Kr. Hafstein. Jakob R. Möller hrl.
var lögmaður áfrýjanda, banka-
starfsmannsins, og Guðrún Mar-
grét Árnadóttir hrl. var til varnar
fyrir stefnda, ríkið.
Kaup bankastarfs-
manns á hlutabréfum
Skatt-
skyld
hlunn-
indi
KENNARAHÁSKÓLI Íslands
hættir á morgun rekstri Lestrar-
miðstöðvarinnar, en hún hefur m.a.
þjónustað nemendur með lesblindu
og veitt foreldrum og skólafólki
ráðgjöf um úrræði. Ástæðu lokunar
má rekja til forgangsröðunar verk-
efna í Kennaraháskólanum, og að
miðstöðin var ekki á fjárlögum
þessa árs. Menntamálaráðuneytið
telur að sveitarfélögin beri ábyrgð-
ina á greiningu grunnskólanemenda
með lestrarörðugleika.
Rannveig G. Lund, fyrrverandi
forstöðumaður Lestrarmiðstöðvar-
innar, telur lokunina vera alvarleg
mistök, og geti haft slæmar afleið-
ingar fyrir nemendur með lesblindu
(dyslexíu) á grunnskóla-, fram-
haldsskóla- og háskólastigi. Skóla-
fólk óttist að fagþekkingin sem
safnast hefur saman á miðstöðinni
fari forgörðum, en engin önnur
stofnun tekur við verkefnum henn-
ar. Erfiðara verði einnig að leita
ráðgjafar og fá miðlun nýrra upp-
lýsinga.
Lestrarmiðstöðin hefur rækt
hlutverk sitt í næstum 10 ár og að
mati Rannveigar var hún orðin
mikilvæg í þeirri viðleitni að bæta
hlut nemenda með lesblindu og
skapa þeim um leið jafnræði til
náms á við aðra nemendur. „Bæði
foreldrar og sérkennarar hafa
treyst á þjónustu Lestrarmiðstöðv-
arinnar, og starfsmenn hér þekkja
aðstæður í skólunum og kunna að
koma úrræðunum við,“ segir Rann-
veig.
Lestrarmiðstöð Kenn-
araháskólans hættir
Lokun alvarleg / 35