Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VAKTÞJÓNUSTA geðdeildar
Landspítala er opin allan sólarhring-
inn, að sögn Halldóru Ólafsdóttur,
yfirlæknis ferli- og bráðalækninga
geðsviðs á Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi. Í bréfi til Morgunblaðs-
ins sem birtist í gær kom fram að
ekki væri tekið á móti sjúklingum á
geðdeild Landspítala nema milli kl.
13 og 21 um helgar. Segir Halldóra
að vakþjónustan sé staðsett í geð-
deildarbyggingu á Landspítalalóð-
inni við Hringbraut og hún sé opin
frá kl. 8.00 til 23.00 virka daga og frá
kl. 13.00 til 21.00 um helgar. Á öðrum
tímum sé þessi þjónusta veitt á al-
mennu bráðamóttökunni í aðalbygg-
ingu Landspítala við Hringbraut.
„Ef þangað leitar sjúklingur að næt-
urlagi með bráð geðræn vandamál er
kallaður til læknir frá geðdeild til að
meta sjúklinginn,“ segir Halldóra.
Landspítali
Vakt á
geðdeild
allan sólar-
hringinn
ELDUR kom upp í gufubaði við
sumarbústað í landi Bjarkar í Gríms-
nesi í fyrrakvöld og var lögreglunni á
Selfossi tilkynnt um atburðinn um
klukkan 21. Tilkynnandi og ná-
grannar höfðu náð tökum á eldinum
að mestu þegar slökkvilið frá Bruna-
vörnum Árnessýslu kom á vettvang
og vel gekk að slökkva eldinn. Húsið
sem gufubaðið er í eyðilagðist en
sumarbústaðurinn sjálfur slapp. Til-
drög eldsins eru ókunn og eru til
rannsóknar hjá lögreglunni.
Gufubaðhús
við sumar-
bústað brann
BIFREIÐ er talin ónýt eftir bílveltu
í Víðidal í A-Húnavatnssýslu í gær.
Tæplega tvítug kona var við stýrið er
óhappið varð en slapp óslösuð þrátt
fyrir að bifreiðin færi tvær veltur og
hafnaði á hjólunum ofan í skurði.
Talið er að konan hafi misst stjórn á
bifreiðinni í lausamöl með fyrr-
greindum afleiðingum.
Bílvelta
í Víðidal
EINN var fluttur á slysadeild Land-
spítalans - háskólasjúkrahúss eftir
árekstur vörubifreiðar og fólks-
bifreiðar í Engidal í Hafnarfirði í
gær, en meiðsl hans reyndust
minniháttar. Svo virtist sem vöru-
bifreiðinni hafi verið ekið aftan á
fólksbifreiðina, en áreksturinn varð
á mótum Reykjavíkurvegar og
Fjarðarhrauns.
Lögreglunni í Hafnarfirði barst
tilkynning um áreksturinn kl.
13.42. Ökutækin skemmdust um-
talsvert og voru fjarlægð af vett-
vangi með dráttarbifreið. Tals-
verðar tafir urðu á umferð vegna
óhappsins.
Umferð var beint um Álftanesveg
meðan lögregla var að ljúka störf-
um á slysstað.
Morgunblaðið/Golli
Á slysadeild eftir
árekstur í Engidal
ÍBÚAR Sólheima í Grímsnesi
efna til hátíðarhalda næstu helgi á
Sólheimum, en tilefnið er að 100
ár eru liðin frá fæðingu Sesselju
Hreindísar Sigmundsdóttur
stofnanda Sólheima. Dagskráin
hefst kl. 16 hinn 5. júlí en þá verð-
ur m.a. fluttur sögulegur leikþátt-
ur sem ber heitið Í meðvind og
mótvind í 70 ár. Stjórnandi leik-
þáttarins er Edda Björgvinsdóttir
leikari, en efni í þáttinn er m.a.
sótt í nýbirta skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um Sólheima.
Á laugardag og sunnudag verða
síðan svokallaðir fræðsludagar
sem og bóka- og sögusýning í ný-
opnuðu Sesseljuhúsi. Erlendir
sérfræðingar munu halda erindi
báða dagana og fjalla m.a. um um-
hverfismál, vistvænar byggingar,
orkumál og málefni fatlaðra. Með-
al fyrirlesara eru m.a. Albert Ba-
tes, lögfræðingur og rithöfundur,
og Andy Paton, aðalritari ensku
Camphill- samtakanna, en þau
samtök eru einn stærsti þjónustu-
aðili fyrir fatlaða í veröldinni. Í
fréttatilkynningu frá íbúum Sól-
heima segir að Sólheimar séu í
dag blómlegt byggðahverfi með
um 100 íbúum. Þar er verkstæði,
vinnustofur og fimm sjálfstæð fyr-
irtæki. Þá er þar íþróttaleikhús,
sundlaug, líkamsræktarstöð,
verslun, listsýningarsalur og
þjónustumiðstöð sem veitir 40
íbúum félagslega þjónustu.
Um helgina verður m.a. afhjúp-
uð lágmynd af Sesselju eftir
Helga Gíslason myndhöggvara.
Sesselja stofnaði Sólheima þegar
hún var aðeins 28 ára gömul. Í
fréttatilkynningu frá Sólheimum
segir að Sesselja hafi verið braut-
ryðjandi í uppeldismálum barna, í
þjónustu við fatlaða og í umhverf-
ismálum. „Sesselja lagði ríka
áherslu á samskipan fatlaðra og
ófatlaðra löngu áður en þær kenn-
ingar voru settar fram erlendis.
Hún leit aldrei á Sólheima sem
stað fyrir fatlað fólk heldur stað
sem starfaði með fötluðu fólki.“
Hátíð á Sólheimum í Grímsnesi
Öld frá fæðingu Sess-
elju Sigmundsdóttur
Í NÝRRI álitsgerð umboðsmanns
Alþingis kemst umboðsmaður að
þeirri niðurstöðu að Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra hafi verið
vanhæfur til að staðfesta, að beiðni
vegamálastjóra, áform Vegagerðar
ríkisins um lagningu nýs þjóðvegar
um Vatnaheiði.
Álitsgerðin kemur í kjölfar kvört-
unar Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands sem í mars árið 2000 leituðu til
umboðsmanns og kvörtuðu yfir að
samgönguráðherra hefði verið van-
hæfur til að staðfesta lagningu nýs
vegar yfir Vatnaheiði á Snæfells-
nesi. Kvörtuðu Náttúruverndar-
samtökin yfir að ráðherra hefði lýst
eindreginni afstöðu gegn því að leið-
in um Kerlingarskarð yrði endur-
bætt og áður en niðurstaða var
fengin hjá Skipulagsstofnun. Þá vís-
uðu samtökin til þess að eiginkona
samgönguráðherra væri fædd og
uppalin á Hjarðarfelli í Eyja- og
Miklaholtshreppi og að mágar hans
byggju á jörðinni. Ábúendur og
landeigendur á Hjarðarfelli hefðu
talið að endurbætur á Kerlingar-
skarðsleið, sem liggur um land jarð-
arinnar, myndu leiða til jarðrasks
og rýrðu notagildi landsins.
Eftir að mat á umhverfisáhrifum
og álit Skipulagsstofnunar lá fyrir
óskaði Vegagerðin eftir því að ráð-
herra staðfesti áform um að vegur-
inn yrði lagður um Vatnaheiði og
staðfesti ráðherrann þá ósk Vega-
gerðarinnar.
Gagnrýnir drátt á svörum
ráðuneytisins
Í niðurstöðukafla álitsgerðarinn-
ar segir umboðsmaður að sam-
gönguráðherra hafi verið vanhæfur
til að staðfesta beiðni um lagningu
vegarins á grundvelli meginreglu
stjórnsýsluréttar um sérstakt hæfi
starfsmanna við stjórnsýslu. Eng-
um sérstökum tilmælum er beint til
ráðherra, m.a. í ljósi þess að um-
ræddur vegur hefur þegar verið
lagður.
Umboðsmaður Alþingis telur aft-
ur á móti að sá dráttur sem varð á
að ráðherra og ráðuneyti hans svör-
uðu erindi umboðsmanns samrýmist
ekki þeim sjónarmiðum sem lög um
umboðsmann Alþingis eru byggð á.
Bent er á í álitsgerðinni að níu mán-
uðir hafi liðið þar til viðbrögð ráðu-
neytisins bárust við kvörtun Nátt-
úruverndarsamtakanna. Beinir
umboðsmaður þeim tilmælum til
samgönguráðherra að svörum við
erindum sínum verði svarað innan
hæfilegs tíma.
Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir þátt samgöngu-
ráðherra í ákvörðun um veg um Vatnaheiði
Vanhæfur til að stað-
festa lagningu vegar
Í ÁRSSKÝRSLU Brunamálastofn-
unar fyrir árið 2001 kemur fram að
um 45,5% fiskvinnslubygginga víða
um land hefðu óviðunandi bruna-
varnir. Þá hefðu 45,5% fiskvinnslu-
bygginga slæmar brunavarnir. 9%
fiskvinnslubygginga hefðu sæmi-
legar brunavarnir en engar næðu
því að hafa ágætar eða framúrskar-
andi brunavarnir. Brunamálastofn-
un kannaði brunavarnir í fjölda
bygginga á landinu á síðasta ári.
Brunavarnir í fiskvinnslum eru hins
vegar í sérflokki.
„Þessi tegund bygginga er því í
algerum sérflokki hvað varðar
slæmar brunavarnir og eru eigend-
ur og rekstraraðilar slíkra bygg-
inga, sem og eftirlitsaðilar, hvattir
til að huga sérstaklega að brunavör-
um í fiskvinnslum,“ segir í skýrsl-
unni.
Slæmar brunavarnir
í fiskvinnsluhúsum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦