Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á góðum bíl í Danmörku Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. Flokkur A Opel Corsa kr. 3.500,- á dag (miðað við lágmarksleigu 7 daga) Flokkur A Opel Corsa kr. 4.700,- á dag (miðað við lágmarksleigu 3 daga) Einnig tilboð á öðrum tegundum bíla. Ef þú ert með farseðil til Kaupmanna- hafnar áttu möguleika á glaðningi. www.avis.is Við reynum betur Gasol® Heimsendingarþjónusta ÍSAGA nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Heimsendingargjald er kr. 500,- Afgreiðslan Breiðhöfða 11 er opin virka daga frá kl. 8 til 17. 800 5555 Hluti af Linde Gas Group ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 Sími 577 3000 • Fax 577 3001 www.aga.is IS A -2 43 .1 – ÍD E A MILDI þykir að ekki fór verr þegar tvíþekja af gerðinni Pitts Special brotlenti við Akureyrar- flugvöll skömmu fyrir hádegi í gær. Flugmað- urinn var einn um borð og sakaði hann ekki. Flugmaðurinn, sem er mjög reyndur, fór frá Akureyrarflugvelli kl. 11.02 og áætlaði að lenda aftur á flugvellinum hálftíma síðar. Þegar flug- vélin kom inn til lendingar kl. 11.31 tilkynnti flug- maðurinn að drepist hefði á hreyfli flugvél- arinnar. Skömmu síðar kom hún niður um 100 metra sunnan við flugbraut og hafnaði á hvolfi við skurðbakka. Flugmaðurinn gekk óstuddur frá borði. Sjónarvottar fylgdust með þegar vélin flaug yf- ir Kjarnaskóg og tók krappa beygju sunnan skóg- arins og í átt að flugvellinum og gerðu sér grein fyrir að ekki var allt með felldu. Flugvélin hefði misst hæð þegar yfir skóginn var komið og hrap- að svo til jarðar og lent á hvolfi rétt við skurðinn. Flugvélin er töluvert mikið skemmd. Starfsmaður Rannsóknarnefndar flugslysa kom á vettvang í gærdag og annaðist rannsókn málsins en hann naut aðstoðar fulltrúa úr rann- sóknardeild lögreglunnar á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Þorkell Ágústsson frá Rannsóknarnefnd flugslysa, t.h., skoðar aðstæð- ur á vettvangi í gær ásamt Daníel Snorrasyni, fulltrúa hjá rannsóknar- deild lögreglunnar á Akureyri. Vélin liggur á hvolfi og mikið skemmd á skurðbakkanum. Flugvélin sem brotlenti sunnan Akureyrarflugvallar. Vélin er af gerð- inni Pitts Special, eins manns, eins hreyfils tvíþekja. Hún er í eigu Arn- gríms Jóhannssonar, forstjóra flugfélagsins Atlanta, en hann var ekki á vélinni þegar óhappið varð. Flugmaðurinn slapp ómeiddur Tvíþekja brotlenti skammt sunnan Akureyrarflugvallar HIÐ árlega Pollamót Þórs í knatt- spyrnu hefst á svæði félagsins við Hamar á morgun, föstudag. Tæp- lega 70 lið, víðs vegar af landinu, eru skráð til leiks, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Mótið er nú haldið við frekar erfiðar aðstæður, þar sem stór hluti af grassvæði félagsins er farinn undir nýja fjölnotahúsið. Það hefur því reynst erfiðara en áður að koma öllum leikjunum fyrir þetta árið. Leikið verður á fjórum völlum við Hamar en einnig verður spilað á litla vellinum austan Akureyrarvall- ar. Keppt er í þremur deildum, Polla- deild, þar sem spila leikmenn 30 ára og eldri, Lávarðadeild, leikmanna 40 ára og eldri og Ljónynjudeild, þar sem konur 25 ára og eldri etja kappi. Flest liðin eru í Polladeild eða 44, í Lávarðadeild 16 og 6 í Ljónynju- deildinni. Liðunum gæti þó eitthvað átt eftir að fjölga áður en keppni hefst í fyrramálið. Flautað verður til leiks kl. 8 í fyrramálið og spilað til miðnættis. Á laugardag hefst keppni einnig kl. 8 og leikið til kl. 17 en mótinu lýkur með úrslitaleikjum deildanna. Kl. 18 á laugardag fer fram stórleikur í Símadeild karla, þar sem Þór fær KR í heimsókn á Akureyrarvöll en að honum loknum fer fram lokahóf og verðlaunaafhending Pollamótsins við Hamar. 5–7 þúsund gestir í bænum í tengslum við knattspyrnumótin Gera má ráð fyrir að um 700 knattspyrnumenn taki þátt í Polla- mótinu að þessu sinni en í hverju liði eru 10–12 leikmenn. Fjölmargir leikmenn koma með fjölskyldur sín- ar til Akureyrar í tengslum við mót- ið og margir þeirra eiga sinn fulltrúa á Esso-móti KA sem nú stendur yfir á svæði félagsins. Þar eru um 1.200 knattspyrnumenn á aldrinum 11–12 ára saman komnir. Ekki er því óvar- legt að áætla að í tengslum við þessi tvö knattspyrnumót verði 5–7 þús- und gestir í bænum. Um 70 lið taka þátt í Pollamóti Þórs KVARTETT Karls Petersen leik- ur á Tuborgdjassi á heitum fimmtudegi í Deiglunni í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. júlí kl. 21.30. Karl Petersen hefur um árabil verið mikilvirkur trommuleikari og tónlistarkennari á Akureyri. Hann hefur kallað til sín þrjá djassara úr framvarðasveit íslenska djass- liðsins frá Reykjavík, þá Birki Frey Matthíasson á trompet, Kjartan Valdimarsson á píanó og Ólaf Stolzenwald á kontrabassa. Þeir ætla að leika sívinsæl og sí- græn djasslög, þar á meðal lög eft- ir Charlie Parker, Gershwin og Cole Porter. Það er ekki síst mikilvægt að tónlistarfólk við Eyjafjörð fái tækifæri á að spjara sig á Lista- sumri segir í frétt um tónleikana og þar eru heimamenn hvattir til að mæta og njóta þess sem tónlist- armennirnir hafa fram að færa. Heitur fimmtu- dagur í Deiglunni Karl Petersen og félagar leika ELÍS Árnason og Þórhallur Arn- þórsson hafa að nýju tekið við rekstri skemmtistaðarins Sjallans á Akur- eyri en þeir félagar eiga húsnæðið sem verið hefur í leigu síðustu ár. Þeir Elís og Þórhallur ráku Sjall- an á árunum 1994 til 1999. Þeir blása til sóknar nú um helgina að sögn El- ísar og bjóða ókeypis inn á dansleik með Pöpunum á föstudagskvöld. Á laugardag verður Bylgjuball en að því loknu hyggjast þeir loka staðnum í nokkrar vikur og hefjast handa við gagngerar breytingar á staðnum. Elís sagði að stefnt væri að því að opna að nýju síðustu vikuna í ágúst og í haust yrðu nokkrar áherslu- breytingar á rekstinum í kjölfar þess að búið verður að breyta húsnæðinu. Taka að nýju við rekstri Sjallans Umfangsmiklar breytingar fyrirhugaðar ÁTTA manns, sex karlar og tvær konur, hafa verið dæmd í Héraðs- dómi Norðurlands eystra fyrir ýmis fíkniefnabrot og peningaþvætti. Sá yngsti í hópnum verður tvítugur á árinu og sá elsti er rétt um þrítugt. Fólkið var ákært fyrir margvísleg fíkniefnabrot, m.a. neyslu og einnig sölu á fíkniefnum af ýmsu tagi. Yngsti maðurinn hlaut þyngsta dóminn, 10 mánaða fangelsi og er það óskilorðsbundið. Hann var fund- in sekur um að hafa ætlað sér að flytja umtalsvert magn af hassi og eitthvað af e-töflum frá Reykjavík til Akureyrar, en fleygt efnunum út úr bílnum þegar lögregla gaf stöðvun- armerki í Húnavatnssýslu. Kona í hópnum var dæmd í þriggja mánaða fangelsi, skilorðs- bundið til þriggja ára, einn var dæmdur í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi og þá var einum gert að greiða 160 þúsund króna sekt í ríkissjóð, öðrum 80 þúsund krónur í sekt og sá þriðji á að greiða 30 þús- und króna sekt. Tveimur aðilum málsins, konu og karli, var ekki gerð sérstök refsing. Þá voru gerð upp- tæk fíkniefni sem fundust í fórum fólksins, e-töflur, hass, kókaín og amfetamín. Héraðsdómur Norðurlands eystra Átta dæmd- ir vegna fíkniefna- brota Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.