Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SMÁRALIND / LÆKJARGÖTU
TOPSHOP | TOPMAN
Sumarútsala
2002
allt a› 90% afsláttur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
P
18
21
5
0
7/
20
02
KNICKERBOX
Laugavegi 62, sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni, sími 533 4555
K N I C K E R B O X
Útsalan
hefst í dag
kl. 10
20-70%
afsláttur
K
R
IN
G
L
U
N
N
I
Ath. opið sunnudaga
kl. 13—17
Útsalan hefst í dag
30–70%
afsláttur
HLJÓMSVEITIN
MEir leit dagsins
ljós á dögunum og
má segja að þar á
bæ sé valinn mað-
ur í hverju rúmi.
Fremst fer í flokki
söngkonan Mar-
grét Eir en auk
hennar er sveitin
skipuð þeim Karli
Olgeirssyni píanó-
leikara, Guð-
mundi Jónssyni
gítarleikara, Frið-
riki Sturlusyni bassaleikarra og
Jóhanni Hjörleifssyni trommuleik-
ara.
„Já, hljómsveitin er ekki búin
að vera til lengi,“ sagði Margrét
Eir í samtali við Morgunblaðið.
„Við hittumst í lok maí og vor-
um að hugsa hvort við ættum ekki
að gera eitthvað saman í sumar.
Þeir Guðmundur, Friðrik og Jó-
hann eru í fríi frá Sálinni hans
Jóns míns núna og okkur datt í
hug að gera eitthvað saman. Ég
var mjög til í það því það er svo
langt síðan ég var í ballhljómsveit
og var alveg til í að rifja það upp.“
Margrét söng með hljómsveit-
inni Svörtum pipar, en hún lagði
upp laupana árið 1993. Margrét
hefur sungið á ýmsum vettvang-
inum undanfarið, meðal annars í
söngleikjum.
Sálartónlistin kær
Hún segir aðalmarkmið MEir að
leika tónlist sem þeim sjálfum
finnst skemmtileg en segir sálar-
tónlist vera þar efst á óskalist-
anum.
„Við tökum lög eftir Stevie
Wonder, Arethu Franklin, Mad-
onnu og Tinu Turner í bland við
nýrri lög,“ segir Margrét. MEir
státar þó af einu frumsömdu lagi
þetta sumarið en það heitir „Kom-
in heim“. Lagið er eftir Guðmund
Jónsson en textinn úr smiðju
Karls Olgeirssonar. Lagið er eitt
þeirra fjölmörgu sem má finna á
nýútkomna safndisknum Svona er
FM sumarið 2002.
Aðspurð um hvað framtíðin beri
í skauti sér fyrir MEir segir Mar-
grét Eir:
„Við verðum að spila í kvöld,
fimmtudagskvöld, á Gauki á
Stöng. Við spilum svo á Sjávar-
perlunni helgina þar á eftir. Ef
einhver tilboð koma svo í kjölfarið
erum við meira en til í að spila.
Við erum ekki að reyna að stíla
inn á einhver brjálæðislega stór
sveitaböll heldur erum við bara að
reyna að spila og hafa gaman af
því. Það er nú þess vegna sem
maður hefur lagt tónlistina fyrir
sig, vegna þess að hún er svo
skemmtileg.“
Neita aldrei neinu
Margrét segir aldrei að vita
nema MEir eigi eftir að gefa út
plötu í framtíðinni en sjálf segist
hún ætla að einbeita sér að útgáfu
sólóplötu sinnar sem áætlað er að
komi út fyrir jólin.
„Ég held alltaf öllu opnu og
neita aldrei neinu. Þetta verður
bara að ráðast,“ sagði Margrét
Eir að lokum.
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl.
23 og er aðgangseyrir 1.000 kr.
Hljómsveitin MEir á Gauki á Stöng
Margrét Eir er til í allt.
Miklu
MEir
Morgunblaðið/Þorkell