Morgunblaðið - 04.07.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.07.2002, Qupperneq 24
ERLENT 24 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SVISSNESK yfirvöld greindu frá því í gær, að árekstrarvarinn í flugturninum í Zürich hafi verið óvirkur vegna viðhalds er turninn tók við umsjón rússnesku farþega- þotunnar og flutningaþotunnar er rákust saman yfir Suður-Þýska- landi á mánudagskvöldið með þeim afleiðingum að 71 fórst. Hafin er alþjóðleg rannsókn á slysinu, og svissneska flugumferð- arstjórnin, Skyguide, viðurkenndi ennfremur í gær, að annar af tveimur flugumferðarstjórum sem voru á vakt í Zürich hefði brotið reglur með því að skreppa frá á meðan árekstrarvarinn var óvirk- ur. Varinn sendir flugumferðar- stjórum aðvörun um að hætta sé á árekstri. Patrick Herr, talsmaður Sky- guide, sagði það „hreinar getgátur“ hvort árekstrarvarinn í turninum hefði einn og sér getað komið í veg fyrir slysið. „Það er margt sem bendir til einstaklega óheppilegs samspils kringumstæðna,“ sagði Herr. Viðhald á árekstrarvarnar- kerfinu er yfirleitt unnið á þeim tímum sólarhrings þegar umferð er lítil. Áreksturinn varð skömmu fyr- ir miðnætti á mánudaginn að stað- artíma. Rússneska vélin var af gerðinni Tupolev 154 og var á leið frá Moskvu til Barcelona. Um borð voru 69 manns, þar af 45 börn, en ekki 52 börn, eins og áður hafði verið greint frá. Fraktvélin var af gerðinni Boeing 757 í eigu hrað- flutningafyrirtækisins DHL. Um borð var tveggja manna áhöfn. Áreksturinn varð í 35.300 feta hæð, en báðar vélarnar voru að lækka flugið úr 36 þúsund fetum til að reyna að forðast árekstur. Svissnesk flugumferðarstjórnar- yfirvöld hafa þegar sætt gagnrýni fyrir að flugumferðarstjórinn í Zürich hafi ekki aðvarað áhöfn rússnesku vélarinnar fyrr en 50 sekúndum fyrir áreksturinn. Sviss- lendingar segja að tíminn hafi átt að vera nægur, en fulltrúi samtaka þýskra flugmanna segir að flug- menn treysti því yfirleitt að fá að- vörun um hættu á árekstri með fimm til tíu mínútna fyrirvara. „Sú spurning hlýtur að vakna hvers vegna flugvélunum tveim var ekki stíað í sundur fyrr. Það hefðu verið hin venjulegu viðbrögð,“ sagði Georg Fongern, talsmaður flugmannasamtakanna. Skyguide sagði í fyrstu að rúss- neska vélin hefði fengið aðvörun með um tveggja mínútna fyrirvara, en hefði ekki brugðist við fyrr en aðvörunin hefði verið þrítekin. Sky- guide breytti síðan frásögn sinni þegar þýsk yfirvöld gáfu aðra mynd af atburðarásinni. Áhöfn rússnesku vélarinnar brást ekki við fyrr en skipun flug- turnsins hafði verið tvítekin, 25 sekúndum áður en áreksturinn varð. Á sama tíma lækkaði frakt- vélin flugið samkvæmt aðvörun frá árekstrarvara um borð í vélinni, en sá vari hefði átt að gefa fyrirmæli um hækkun. Samkvæmt alþjóðlegum reglum ættu báðar vélarnar að hafa verið búnar árekstrarvara (TCAS), og rússneskir embættismenn hafa fullyrt að Tupolev-þotan hafi haft slíkan búnað. Talsmenn Skyguide, svissnesku flugumferðarstjórnar- innar, segja aftur á móti að ekkert bendi til að árekstrarvari hafi verið í gangi í vélinni. „Það er ekki ljóst hvort rúss- neski flugstjórinn var með kveikt á árekstrarvaranum eða hvort slíkur búnaður var í vélinni eða ekki, eða hvort hann gaf aðvörun, við höfum engar upplýsingar þar að lútandi,“ sagði Hans Kummer, tæknistjóri hjá Skyguide. Árekstrarvarar flugvélanna eiga í raun að hafa samskipti sín á milli sjálfkrafa og vara áhafnir beggja vélanna við yfirvofandi hættu, að sögn Williams Gaillards, talsmanns Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA). „Vararnir eiga í rauninni að tengj- ast, þannig að ef annar fer í eina átt tryggir kerfið að hinn fari í aðra átt,“ sagði Gaillard. Þýsk flugmálayfirvöld, sem stjórna rannsókn slyssins, hófu í gær að fara yfir flugrita vélanna og segulbandsupptökur úr stjórnklef- um þeirra. Upplýsingar úr þessum tækjum ættu að geta gefið einhver svör við því hvað gerðist síðustu sekúndurnar áður en slysið varð. Rússneska fréttastofan RIA-Nov- osti hafði eftir sérfræðingum, sem sögðust hafa athugað flugrita rúss- nesku vélarinnar, að áhöfn hennar hefði brugðist við skipun um lækk- un 25 sekúndum áður en slysið varð. Rannsóknarfulltrúar vonuðust í gær til að geta yfirheyrt svissneska flugumferðarstjórann sem var á vakt í turninum í Zürich er slysið varð. Í fyrradag var hann undir læknishendi vegna taugaáfalls og ekki talinn í ástandi til að gangast undir yfirheyrslu. Hann er sagður hafa mikla starfsreynslu. Svissneska flugumferðarstjórnin sætir gagnrýni í kjölfar áreksturs tveggja flugvéla á mánudag !#    3+ 5   ,/ &4  67 5  8  5    # 0/ 0%% 3  '  ' 9(:*6;( <=>( ?@* AB>                                         !"!# $%  &#%' !% ($  !  '    $) (* + ", - .  $++/   !0"$  !"!+ ! &% % +&%  ! ! !! "  !  67 5 C !"#$%%%!&'!()*!&( ! +,-  & .! /,  + ,!&  & ) 0 '12 ! !)!(++!& ,) !34 5!&'  -/03'6 1"  $&  - "$) - "%+ ,03'6 2$"%+%"  /3  4%%!0" - "%+ 8  5 C  ! -/03'!78 1 (++ ! 1 '!&  ,03'  !&.!)/9  & .!. + '  / !/: , !)!(++!& ,)!!&1 (++ !4 !"#$%%%!&'!() 2$"%+* %"  /3  +/   " $   5 "%+ $ 65&5 %7 !%! % $ ;! < #  $ ! #  $ ! Árekstrarvari flug- turnsins var óvirkur Überlingen, Zürich. AP, AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.