Morgunblaðið - 04.07.2002, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRIÐ 2002, miðvikudaginn 3. júlí, er á dóm-
þingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í
Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St.
Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp
dómur í málinu nr: S-1393/2002: Ákæruvaldið
gegn Árna Johnsen, Birni Kristmanni Leifs-
syni, Gísla Hafliða Guðmundssyni, Stefáni Ax-
el Stefánssyni og Tómasi Tómassyni, en málið
var dómtekið 27. júní sl.
Málið er höfðað með ákæru útgefinni 6. maí
2002 á hendur: „Árna Johnsen, kennitala
010344-4259, Höfðabóli, Vestmannaeyjum,
Birni Kristmanni Leifssyni, kennitala 010759-
4049, Árlandi 8, Reykjavík, Gísla Hafliða Guð-
mundssyni, kennitala 051157-2309, Melahvarfi
5, Kópavogi, Stefáni Axel Stefánssyni, kenni-
tala 291170-2939, Hlíðarhjalla 16, Kópavogi,
og Tómasi Tómassyni, kennitala 191044-2079,
Vaglaseli 2, Reykjavík, fyrir hegningarlaga-
brot eins og nánar greinir hér á eftir.
I
Ákærða Árna Johnsen einum er gefinn að
sök fjárdráttur, umboðssvik, rangar skýrslur
til yfirvalda og mútuþægni í opinberu starfi
sem alþingismaður, formaður byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins og formaður bygging-
arnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðar-
nefndar.
A. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í op-
inberu starfi sem formaður byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins með því að hafa
dregið sér;
1. eldhús- og baðinnréttingu sem hann tók
út hjá Samnorræna, Reykjavík, í viðskipta-
reikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks
hf. til sölufyrirtækisins. Ákærði fékk fyr-
irsvarsmann sölufyrirtækisins til að til-
greina úttektina sem hillueiningar og þil-
plötur á reikningi dagsettum 28. janúar
1997 að fjárhæð kr. 326.000. Ístak hf. krafði
reikningsfjárhæðina hjá byggingarnefnd
Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum
19. febrúar 1997 að viðbættu 15% álagi.
Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst
2001 án álagsins.
2. hreinlætistæki og pípulagningaefni sem
hann tók út hjá Tengi ehf., Kópavogi, sam-
kvæmt reikningi dagsettum 8. júlí 1997 að
fjárhæð kr. 231.810 og lét greiða af fjárveit-
ingum byggingarnefndarinnar. Ákærði
endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001.
3. fánastöng, límtrésbita, sem hann tók út
hjá Stálsmiðjunni hf., Reykjavík, í við-
skiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni
Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf.
krafði fjárhæð reiknings Stálsmiðjunnar
hf., dagsetts 19. mars 1999, kr. 39.999, hjá
byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikn-
ingi dagsettum 30. september 1999 að við-
bættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjár-
hæðina 13. ágúst 2001 án álagsins.
4. álstiga sem hann tók út hjá Húsasmiðj-
unni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ís-
taks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölu-
fyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð
reiknings Húsasmiðjunnar hf., dagsetts 7.
apríl 1999, kr. 12.047, hjá byggingarnefnd
Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum
30. september 1999 að viðbættu 15% álagi.
Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst
2001 án álagsins.
5. þjóðfána og veifur sem hann tók út hjá
Íslensku fánasaumastofunni, Hofsósi, sam-
kvæmt reikningi dagsettum 16. ágúst 1999
að fjárhæð kr. 247.133 og lét greiða af fjár-
veitingum byggingarnefndarinnar.
6. verkpalla sem hann tók út hjá Verkpöll-
um ehf. – Brimrás, Reykjavík, í viðskipta-
reikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks
hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði
fjárhæð reiknings Verkpalla ehf. – Brim-
rásar dagsetts 6. september 1999, kr.
249.245, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhúss-
ins með reikningi dagsettum 30. september
1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endur-
greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags-
ins.
7. tvær jólaljósaseríur sem hann tók út hjá
Dengsa ehf., Reykjavík, samkvæmt reikn-
ingi dagsettum 22. desember 2000 samtals
að fjárhæð kr. 217.257 og lét greiða af fjár-
veitingum byggingarnefndarinnar.
8. timbur sem hann tók út hjá Húsasmiðj-
unni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ís-
taks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði
Tómas Tómasson gaf út til sölufyrirtæk-
isins. Fjárhæð tveggja reikninga Húsa-
smiðjunnar hf. vegna úttektarinnar dag-
settra 2. janúar 2001, samtals kr. 251.857,
krafði Ístak hf. hjá byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins með reikningi dagsettum 28.
febrúar 2001 að viðbættu 15% álagi.
Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst
2001 án álagsins.
9. 300 stk. óðalskantsteina og 30 stk. óðals-
steina sem hann tók út hjá BM Vallá,
Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum
11. maí 2001 að fjárhæð kr. 160.978 og lét
greiða af fjárveitingum byggingarnefndar-
innar. Reikningurinn var áritaður af Fram-
kvæmdasýslu ríkisins 17. júlí 2001 um end-
urgreiðslu.
10. timbur, saum o.fl. sem hann tók út hjá
BYKO, Kópavogi, samkvæmt reikningi
dagsettum 23. maí 2001 að fjárhæð kr.
400.930 sem hann lét stíla á Þjóðleikhúsið
vegna leikmunageymslu og færa til skuldar
á viðskiptareikningi Þjóðleikhússins hjá
BYKO. Reikningurinn var síðar bakfærður
af reikningi Þjóðleikhússins og hefur
ákærði greitt reikningsfjárhæðina.
11. þéttidúk og lím sem hann tók út hjá
Gróðurvörum ehf., Reykjavík, samkvæmt
reikningi dagsettum 2. júlí 2001 að fjárhæð
kr. 173.658 sem hann lét stíla á bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins vegna bílaplans og
smíðaverkstæðis Þjóðleikhússins. Reikn-
ingnum var framvísað hjá Framkvæmda-
sýslu ríkisins en reikningsfjárhæðin var
ekki greidd af fjárveitingum byggingar-
nefndarinnar.
12. timbur, þéttiull og aðrar byggingavör-
ur sem hann tók út hjá BYKO, Kópavogi,
samkvæmt reikningi dagsettum 3. júlí 2001
að fjárhæð kr. 1.016.069 í nafni bygging-
arnefndar Þjóðleikhússins vegna leikmuna-
geymslu. Reikningsfjárhæðina greiddi
ákærði 20. júlí eftir að mál þetta kom upp.
13. þéttidúk sem hann tók út hjá Fagtúni
ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi 9. júlí
2001 að fjárhæð kr. 157.320 sem hann lét
stíla á byggingarnefnd Þjóðleikhússins.
Reikningnum var framvísað hjá Fram-
kvæmdasýslu ríkisins en reikningsfjárhæð-
in var ekki greidd af fjárveitingum bygg-
ingarnefndarinnar.
B. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í op-
inberu starfi sem formaður byggingar-
nefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíð-
arnefndar, með því að hafa dregið sér;
14. kr. 782.790 af bankareikningi Vestnor-
ræna ráðsins við Landsbanka Íslands,
Reykjavík, hinn 22. júní 2001 er ákærði fé-
nýtti í eigin þágu andvirði tékka sem hann
fékk útgefinn af Landsbanka Íslands til X
og lét skuldfæra á bankareikning Vestnor-
ræna ráðsins vegna tilhæfulauss reiknings,
dagsetts 20. júní 2001, á hendur Brattahlíð-
arnefnd yfir smíði á þrjátíuogtveimur kist-
ilhnöllum sem hann blekkti X til að und-
irrita. Hinn 22. júlí 2001 fékk ákærði X til
að undirrita yfirlýsingu um að hann gæti
ekki sinnt smíði kistilhnallanna og afhenti
honum reiðufé til þess að skila fjárhæðinni
sem X gerði næsta dag með því að fara í
Landsbanka Íslands, Kópavogi, og leggja
peningana inn á bankareikning Vestnor-
ræna ráðsins við Landsbanka Íslands,
Reykjavík. Brot ákærða samkvæmt 1.–14.
tölulið þykja varða við 247. gr. sbr. 138. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1.
mgr. 20. gr. sömu laga að því er 7. lið varð-
ar.
C. Ákærði Árni er sakaður um rangar
skýrslur til yfirvalda með því að;
15. framvísa á skrifstofu Alþingis með um-
sókn, dagsettri 28. desember 2000, um
lækkun á tekjuskattstofni starfskostnaðar-
greiðslna, tilhæfulausum greiðslukvittun-
um a) fyrir leigu á fundaraðstöðu 15. janúar
til 15. desember 2000 að fjárhæð kr.
112.000, dagsettri 15. febrúar 2000, sem
hann fékk fyrirsvarsmann Drífandi ehf. til
að gefa út og b) fyrir veitingar handa 70
manns að fjárhæð kr. 118.000, dagsettri 3.
júní 2000, sem hann fékk X til að gefa út.
Brot ákærða samkvæmt 15. tölulið þykir
varða við 147. gr., sbr. 138. gr., almennra
hegningarlaga.
D. Ákærði Árni er sakaður um brot í opinberu
starfi, mútuþægni, með því að hafa;
16. í marsmánuði 2000 fengið Ístak hf., sem
hann átti umfangsmikil samskipti við sem
formaður byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins og formaður byggingarnefndar Vest-
norræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, til
þess að greiða n.kr. 67.308.40 samkvæmt
reikningi dagsettum 13. apríl 2000 fyrir til-
sniðið timbur í stafkirkju sem ákærði festi
kaup á fyrir sjálfan sig hjá Materialbanken
AS í Noregi á sama tíma og hann vann að
viðtöku stafkirkju, þjóðargjafar Norð-
manna til Íslendinga, sem formaður bygg-
ingarnefndar stafkirkju í Vestmannaeyjum.
Ístak hf. færði fjárhæð reikningsins til
gjalda í bókhaldi sínu í maímánuði 2000 á
bókhaldsreikning vegna byggingafram-
kvæmda í Brattahlíð en með færslu dag-
settri 30. júní 2001 voru timburkaup
ákærða færð honum til skuldar með kr.
875.694 á viðskiptareikningi ákærða sem þá
var stofnað til í bókhaldi Ístaks hf.
17. sem formaður byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins, í marsmánuði 2001, heimtað og
þegið kr. 650.000 úr hendi fyrirsvarsmanna
Þjóðleikhúskjallarans hf., meðákærðu
Björns Kristmanns Leifssonar og Gísla
Hafliða Guðmundssonar, fyrir að sam-
þykkja reikning Þjóðleikhúskjallarans hf.,
dagsettan 8. febrúar 2001 að fjárhæð kr.
3.154.419, vegna ýmissa lagfæringa í Þjóð-
leikhúskjallaranum á fimm ára tímabili frá
dagsetningu reiknings að telja, til greiðslu
af fjárveitingum byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins.
Brot ákærða samkvæmt 16. og 17. tölulið
þykir varða við 128. gr. almennra hegning-
arlaga.
E. Ákærði Árni er sakaður um umboðssvik í
opinberu starfi með því að hafa sem for-
maður byggingarnefndar Vestnorræna
ráðsins, Brattahlíðarnefndar, misnotað að-
stöðu sína, sér eða öðrum til ávinnings;
18. hinn 22. júní 2001 er hann greiddi af
bankareikningi Vestnorræna ráðsins við
Landsbanka Íslands, Reykjavík, Torf- og
grjóthleðslunni ehf. Hellu, reikning á eyðu-
blaði „Torf- og grjóthleðslna“, dagsettan
10. ágúst 2000, að fjárhæð kr. 645.000,
vegna hleðslu í Brattahlíð og tækjaleigu,
þótt Torf- og grjóthleðslan ehf., sem verið
hafði undirverktaki Ístaks hf. við fram-
kvæmd verks í Grænlandi á árinu 2000 og
fengið fullnaðargreiðslu frá Ístaki hf., hafi
ekki átt lögvarða kröfu á hendur Bratta-
hlíðarnefnd. Brot ákærða samkvæmt 18.
tölulið þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr.
almennra hegningarlaga.
II
Ákærða Árna eru í eftirgreindum tilvikum
gefin að sök umboðssvik í opinberu starfi sem
formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins
og ákærða, Gísla Hafliða Guðmundssyni, hlut-
deild í þeim með því að;
19. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og
samþykkti til greiðslu af fjárveitingum
byggingarnefndarinnar ár 1998, sér eða
öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning
sem meðákærði Gísli Hafliði Guðmundsson
útbjó og gaf út í nafni Þjóðleikhúskjall-
arans hf. dagsettan 18. mars 1998 að fjár-
hæð kr. 82.500 fyrir kaffi og kökur á tut-
tuguogníu fundum byggingarnefndarinnar
á tímabilinu júlí 1997 til mars 1998.
20. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og
samþykkti til greiðslu af fjárveitingum
byggingarnefndarinnar ár 1999, sér eða
öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning
Þjóðleikhúskjallarans hf. sem meðákærði
Gísli Hafliði Guðmundsson útbjó og gaf út í
nafni Þjóðleikhúskjallarans hf. dagsettan
20. janúar 1999 að fjárhæð kr. 88.000 fyrir
kaffiveitingar á fundum vegna endurbóta í
Þjóðleikhúsi.
Þykir brot ákærða Árna samkvæmt 19. og
20. tölulið varða við 249. gr., sbr. 138. gr. al-
mennra hegningarlaga, en brot ákærða
Gísla Hafliða samkvæmt sömu töluliðum
við 249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegning-
arlaga.
III
Ákærða Árna eru í eftirgreindu tilviki gefin
að sök umboðssvik í opinberu starfi sem for-
maður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og
Stefáni Axel Stefánssyni hlutdeild í þeim um-
boðssvikum með því að;
21. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og
samþykkti til greiðslu af fjárveitingum
byggingarnefndarinnar, sér eða öðrum til
ávinnings, tilhæfulausan reikning Forum
ehf. dagsettan 14. desember 2000 að fjár-
hæð kr. 169.000 sem meðákærði Stefán Ax-
el Stefánsson útbjó og gaf út í nafni Forum
ehf. fyrir kaffiveitingar í Leikhúskjallaran-
um á þrjátíuogþremur fundum byggingar-
nefndarinnar á tímabilinu nóvember 1999
til október 2000.
Brot ákærða Árna samkvæmt 21. tölulið
þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr. al-
mennra hegningarlaga, en brot ákærða
Stefáns Axels samkvæmt sama tölulið við
249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningar-
laga.
IV
Ákærða Árna eru í eftirgreindum tilvikum
gefin að sök umboðssvik og fjárdráttur í op-
inberu starfi sem formaður byggingarnefndar
Þjóðleikhússins með því að hafa misnotað að-
stöðu sína og dregið sér verðmæti sér til
ávinnings og ákærða Tómasi Tómassyni, verk-
fræðingi hjá Ístaki hf., umsjónarmanni með
verkum við Þjóðleikhúsið, er gefin að sök þátt-
taka í umboðssvika- og fjárdráttarbrotunum.
A. Umboðssvik
22. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas
til þess á árinu 1999 að láta Ístak hf. annast
innréttingu á bílskúr í Haukalind 17, Kópa-
vogi, sem var byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins algjörlega óviðkomandi, og gera
byggingarnefndinni reikning vegna kostn-
aðar við framkvæmdina sem nam kr.
305.825 samkvæmt reikningi Ístaks hf. á
hendur byggingarnefndinni dagsettum 30.
mars 2000 að viðbættu 15% álagi.
23. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas
til þess að gefa út beiðni í nafni Ístaks hf. til
Funa ehf. blikksmiðju, dagsetta 30. mars
2001, um sandblástur, efni og viðgerðir á
ofni, sem var byggingarnefndinni algjör-
lega óviðkomandi, en Ístak hf. krafði kostn-
að vegna verksins, kr. 32.800, samkvæmt
reikningi Funa ehf, blikksmiðju, dagsettum
23. apríl 2001, með reikningi á hendur
byggingarnefndinni dagsettum 28. maí
2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endur-
greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags-
ins.
B. Fjárdráttur
Ákærði Árni er sakaður um að hafa með að-
stoð meðákærða Tómasar dregið sér;
24. flísar og fylgiefni sem hann tók út hjá
Vídd hf., Kópavogi, í viðskiptareikning Ís-
Sakfelldur fyrir 18 ákæru-
atriði en sýknaður af níu
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær
Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismann, í 15
mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt
og umboðssvik í opinberu starfi, mútuþægni og
rangar skýrslur til yfirvalda. Aðrir voru sýkn-
aðir. Dómurinn er birtur hér í heild sinni.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn Árna Johnsen og fleirum