Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 43 MORGUNBLAÐIÐ hefur lengi haft ,,áhyggjur“ af fjár- hagsstöðu Ríkisút- varpsins og dagskrár- stefnu þess. Í leiðara Morgunblaðsins þann 30. júní s.l. kemur þessi ,,umhyggja“ enn einu sinni fram á undraverðan hátt. Leiðarinn hefst með gagnrýni á ákvörðun Byggðastofnunar um að beita sér fyrir upp- byggingu dreifikerfa fyrir þrjár sjónvarps- stöðvar, þ.e. Sýn, Skjá einn og Aksjón á Ak- ureyri. Leiðarinn þróast síðan inn á þekktar brautir sem Morgun- blaðið þreytist seint á að ganga. Í leiðaranum segir m.a. …,,Morgunblaðið hefur verið þeirrar skoðunar, að hið opinbera eigi að reka útvarpið (væntanlega átt við Rás 1) sjálft en selja Rás 2. Jafnframt hefur blaðið lýst þeirri skoðun að ríkið eigi að hætta að reka afþreyingarsjónvarp í sam- keppni við einkareknar sjónvarps- stöðvar en beita rekstri ríkissjón- varpsins í annan farveg…“. Morgunblaðið vill með öðrum orð- um að Ríkisútvarpið sé ekki vin- sælt meðal almennings og sendi frá sér eingöngu mjög afmarkað dagskrárefni, þ.e. hágæða menn- ingarefni sbr. Rás 1. Þessi gagnrýni Morgunblaðsins er vel skiljanleg þar sem hags- munum blaðsins er best borgið með veiku Ríkisútvarpi. Ástæðan fyrir þessari gagnrýni er sú, að afþreying- arefni er líklegast til að falla að smekk flestra áhorfenda og hlustenda og þar með auglýsenda (mikið áhorf og hlustun). Þessi gagnrýni er þess vegna lituð af fjárhagslegum hags- munum Morgunblaðs- ins og verður því að skoðast í því ljósi. Árið 1999 birti hið heimskunna rann- sóknar- og ráðgjafar- fyrirtæki McKinsey skýrslu um stöðu rík- isútvarps (sjónvarps) í heiminum og framtíð þess. Skýrslan var gerð að frumkvæði BBC í Bretlandi og voru niðurstöður hennar athyglis- verðar, sérstaklega ef þær eru skoðaðar í ljósi núverandi mark- aðsaðstæðna á Íslandi og þeirrar þróunar sem hefur átt sér stað eft- ir að einkareknar stöðvar voru leyfðar hér á landi. Það skal þó tekið fram að Ísland var ekki með í úttektinni. Í skýrslunni voru kann- aðir 20 markaðir í fjórum heims- álfum. Í hverju tilviki var m.a. kannað samkeppnisumhverfi, nú- verandi þátttakendur, markaðs- hlutdeild þeirra, einkenni dag- skrárefnis, sérkenni, fjármögnun ásamt þróun markaðarins á hverj- um stað. McKinsey bar saman stefnu ríkisstöðva á hverjum stað og fann hvað auðkennir þær stöðv- ar sem best virðast búnar til að mæta ögrun hinna nýju markaðs- aðstæðna. Nokkrar af helstu nið- urstöðum skýrslunnar voru: Ríkisreknum útvarpsstöðvum sem athugaðar voru má skipta í þrjá flokka, eftir meginstefnu þeirra:  Stefnt er að sérhæfingu fremur en markaðshlutdeild. Áhersla er lögð á gæði fremur en áhorf: Þessar stöðvar, sem oft er þröngvað í þessa stöðu vegna þess hvernig þær eru fjármagnaðar (svo til eingöngu afnotagjöld), höfða til minnihlutahópa í samfélaginu og hafa lítil áhrif haft á markaðsum- hverfi sitt, þar sem þær eru ekki veruleg ógnun við samkeppnina um auglýsingatekjur. Það er ein- mitt í þessum flokki sem Morgun- blaðið vill sjá Ríkisútvarpið.  Stefnt er að markaðshlutdeild fremur en sérhæfingu. Áhersla er lögð á áhorf fremur en gæði: Þótt ríkisútvarp af þessu tagi hafi möguleika til þess að hafa veruleg áhrif á markaðinn er í raun fátt sem greinir það frá einkastöðvum sem eru fjármagn- aðar á viðskiptagrundvelli (áskrift og auglýsingar). Flestar ríkis- stöðvar af þessari gerð treysta mjög á auglýsingatekjur.  Stefnt er að jafnvægi milli þessara tveggja þátta, þ.e. fjöl- breytni. Áhersla er lögð á jafnvægi milli áhorfs og gæða: Ríkisstöðvar af þessari gerð hafa verulega áhorfs- og hlustun- arhlutdeild þó þær haldi sérstöðu sinni og uppfylli skyldur sínar um almannaþjónustu. McKinsey kemst að því að þessi dagskrárstefna (blanda af afþrey- ingarefni og sértæku efni) sé sá kostur sem er hvað vænlegastur til árangurs í því nýja umhverfi sem hefur skapast við aukna sam- keppni. Þetta er áhugaverð nið- urstaða þar sem einkastöðvar á Ís- landi og ekki síst Morgunblaðið, hafa gagnrýnt dagskrárstefnu Sjónvarpsins og gert tilkall til þess að Sjónvarpið sendi ekki út afþrey- ingarefni. Meginniðurstaða McKinsey hópsins er að ríkisstöð eigi að stefna að mikilli markaðshlutdeild í áhorfi m.a. með góðu afþreying- arefni, án þess þó að vanrækja þær menningarlegu skyldur sem til hennar eru gerðar. Spurningin er hvort Sjónvarpinu hefur tekist að rata hinn gullna meðalveg í því sambandi. Margt bendir til þess að svo sé. Það er einmitt þess vegna sem Morgunblaðinu er ekki rótt. Umhyggja Morgunblaðsins fyrir dagskrárstefnu Ríkisútvarpsins Þorsteinn Þorsteinsson Gagnrýni Þessi gagnrýni Morg- unblaðsins er vel skilj- anleg, segir Þorsteinn Þorsteinsson, þar sem hagsmunum blaðsins er best borgið með veiku Ríkisútvarpi. Höfundur er forstöðumaður mark- aðssviðs RÚV. Meðgöngulínan slit- og spangarolía Þumalína, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið Begga fína
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.