Morgunblaðið - 04.07.2002, Qupperneq 45
stjórnvöld iðkun Falun Gong og
hleyptu af stokkunum herferð á
hendur iðkendum þess. Herferðin
felst í ofsóknum, morðum og pynting-
um og ekki síður í skipulögðum rógi
og lygum með það að markmiði að
grafa undan Falun Gong. Í þeim til-
gangi svífast kínversk yfirvöld og lög-
regla einskis og hafa meðal annars
sett á svið meint sjálfsmorð og sjálfs-
íkveikjur iðkenda þar í landi. Grund-
vallarviðhorf Falun Gong, sannleiks-
iðkun, samkennd og umburðarlyndi
felur í sér djúpa virðingu fyrir öllu lífi
og sú vitneskja ein er nægileg til þess
að afhjúpa sjálfsmorðsrógsherferð
Kínastjórnar. Grimmd kínverskra yf-
irvalda kemur jafnframt berlega í ljós
í nýjustu fyrirskipun Jiang Zemins
gagnvart iðkendum í Kína: ,,Drepið
án miskunnar“ – þegar Kínastjórn
hefur látið pynta Falun Gong-iðkend-
ur til dauða þá eru almenningi gefnar
þær upplýsingar að fólkið hafi framið
sjálfsmorð.
Þrátt fyrir allt er ekki hlaupið að
því fyrir kínversk stjórnvöld að upp-
ræta alla Falun Gong-iðkun í Kína.
Reynslan sýnir að hervald og vopn
skila aldrei raunverulegum árangri,
því sannleikurinn er lífvænlegri en
lygin, friðurinn voldugri en stríð og
fyrirgefningin öflugri en hefndin.
Falun Gong-iðkendur svara hvorki
með vopnum, hefndum né lygum og
þeir eru ekki í stríði. Ekki liggur fyrir
nokkurt skráð dæmi um að iðkandi
Falun Gong hafi beitt ofbeldi jafnvel
þótt hann hafi orðið fyrir því sjálfur.
Friðsamleg og staðföst áskorun
Iðkendur Falun Gong mótmæla
ekki í hefðbundnum skilningi orðsins.
Áskorun þeirra til kínverskra stjórn-
valda er friðsamleg en staðföst. Mik-
ilvægt er að lýðfrjáls ríki standi ekki í
vegi fyrir því að friðsamleg beiðni af
þessu tagi komist sína boðleið með
löglegum hætti. Íslenskum yfirvöld-
um hefur sést yfir alvöru þessa máls
og þau mikilvægu siðferðislegu gildi
sem hér eru í húfi. Falun Gong eru
ekki trúarbrögð. Þar er engin kirkja,
engin persónudýrkun fer þar fram né
tilbeiðsla. Falun Gong eru heldur
ekki pólitísk samtök og ekki skipu-
lögð samtök yfirleitt. ,,Atvinnumót-
mælendur“ eru engir til í Falun Gong
né heldur félagaskrár og því ekki um
neina ,,meðlimi“ að ræða. Falun Gong
er einstaklingsiðkun sem u.þ.b. 100
milljónir manna í um 50 löndum
stunda til styrktar huga og líkama.
Sem slík hefur Falun Gong hlotið ótal
viðurkenningar sem uppbyggjandi
sjálfsræktarkerfi, m.a. 600 slíkar í N-
Ameríku einni og fjölmargar í Kan-
ada, Ástralíu, Þýskalandi, á Nýja-Sjá-
landi og víðar. Mannréttindasamtök
og ríkisstjórnir um víða veröld for-
dæma ofsóknir á hendur Falun Gong-
iðkendum í Kína, þar á meðal mann-
réttindanefnd Bandaríkjaþings:
,,Þegar við höfum kynnst starfi Falun
Gong, hefur virðing okkar vaxið og
við teljum hið hrottafengna, grimmi-
lega og blóðuga bann við ástundun
Falun Gong í Kína skelfilegt, óásætt-
anlegt og ámælisvert“ (Tom Lantos,
varaformaður mannréttindanefndar
Bandaríkjaþings.)
Persónunjósnir
Þeirri ákvörðun íslenskra stjórn-
valda að takmarka komu Falun
Gong-iðkenda til Íslands var fram-
fylgt með vafasamri aðferð. Hvernig
gátu listar yfir iðkendurna orðið til?
Eins og fyrr var sagt er Falun Gong
hvorki félag né skipulögð samtök af
neinu tagi, og skrá iðkendur því
hvergi nöfn sín, né sækja um aðild að
einu né neinu. Listarnir hljóta því að
hafa verið búnir til með því að fylgjast
með fólki, komast að nöfnum þess og
skrá þau. Ef íslensk stjórnvöld fengu
ekki umrædda lista frá stjórnvöldum
í Kína hvaðan komu þeir þá? Hvaða
önnur ríki myndu leggja á sig þá
miklu vinnu sem felst í því að leita
uppi einstaklinga sem leggja stund á
ákveðið form kínverskra æfinga til
sjálfsræktar?
Höfundur er kennari og hefur BA-
próf í heimspeki.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 45
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu munstrum
Ryðfríar
Blómagrindur
y fríar
Blómagrindur
með hengi
Tilboðsverð
kr. 2.995
áður kr. 3,595
Klapparstíg 44
Sími 562 3614