Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 52
FRÉTTIR
52 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á NÆSTA ári verður haldin mikil
norræn frímerkjasýning, „NORDIA
2003“ á Kjarvalsstöðum. Af þessu
verður nafngjafa Íslands, Flóka Vil-
gerðarsonar, eða Hrafna-Flóka,
minnst í annað sinn á íslenskum frí-
merkjum. Hið fyrra sinn var 1930,
er skip hans skreytti 5 aura frí-
merki vegna Alþingishátíðarinnar.
Var mynd sú kölluð; „Koma
Hrafna-Flóka.“ Þá verður gefin út
blokk með einu frímerki, auk mynt-
bréfs til að minnast Flóka Vilgerð-
arsonar.
Frímerkjasýningin „NORDIA
03“ verður 16.–19. október 2003, og
haldin á Kjarvalsstöðum. Af þessu
tilefni verður gefin út blokk í mars
á næsta ári, með einu frímerki, sem
sýnir Flóka á siglingu milli Noregs
og Íslands og hefir hann sleppt ein-
um þeirra þriggja hrafna er hann
hafði með sér og stefnir sá til Ís-
lands. Innan frímerkisins má enn-
fremur sjá Norðureyjar Skotlands,
Færeyjar og svo Ísland, sem í þess-
ari ferð fékk nafn sitt. Flóki kom til
lands á Austfjörðum, en hélt svo
vestur um og er hann kom upp á
hátt fjall á Vestfjörðum, sá hann
fjörð fullan af ís. Þá gaf hann land-
inu nafnið Ísland.
Frímerkið er með 250 króna
verðgildi, en blokkin kostar 300,
gengur mismunurinn til Frímerkja
og Póstsögusjóðs.
Myndefni blokkarinnar er teikn-
að af Tryggva T. Tryggvasyni. Sá
hluti sem grafinn er, er eftir Martin
Mörck, norskan listamann, sem hef-
ir grafið frímerki fyrir fleiri þjóðir.
Blokkin er prentuð hjá Österreich-
ishe Staatsdrückerei í Vín, en þar
voru frímerkin frá 1930 einnig
prentuð, hjá Elbemühl. Þá gefur
einnig að lesa texta sögunnar um
hrafnana á blokkinni. Það var ekki
óþekkt á þessum tíma að láta fugla
vísa til næsta lands af hafi. Aðferð-
inni er lýst í áletrun blokkarinnar,
sem er eftirfarandi.
„Flóki hafði hrafna þrjá með sér í
haf og er hann lét lausan hinn
fyrsta, fló sá aftur um stafn. Annar
fló í lopt upp og aftur til skips. Hinn
þriðji fló fram um stafn í þá átt, sem
þeir fundu landið.“
Myntbréfið kemur svo fyrst út
þegar nær dregur sýningunni. Á
framhlið peningsins er síðan mynd
af skipi Flóka og hrafninum, nafn
landsins og ártal. Á bakhlið er svo
sami texti og á blokkinni.
Önnur frímerki, sem áætlað er að
komi út á næsta ári eru: Í janúar,
200 ára afmæli lögreglunnar og 4.
útgáfa sumarblóma. Í mars, ís-
lenska kýrin. Í apríl, Fríkirkjan í
Rvk. 100 ára og tvö hefti með eyja-
ferjum. Í maí, Evrópa og íslenskt
fiðurfé. Í september, samkeppni
skólabarna 9–12 ára og fuglar. Í
október, hreindýr og Dagur frí-
merkisins, blokk. Loks í nóvember,
þriðja útgáfa af eyjum og jólafrí-
merki.
Hrafna-
Flóki
aftur á
frímerki
Blokkin með siglingu Hrafna-Flóka Vilgerðarsonar.
ÞRJÁR nýjar verslanir verða opnað-
ar á næstunni á samtals rúmlega
1.600 m2 gólffleti. Um er að ræða
verslun BT, sem verður opnuð nk.
laugardag, 6. júlí, ítölsku húsgagna-
og gjafavöruverslunina Natuzzi
Store, sem verður opnuð um miðjan
júlí nk., og lífsstílsverslun sem höfðar
til unglinga undir nafninu Vokal, sem
verður opnuð síðari hluta ágúst nk.
BT verður þar sem áður var versl-
unin Euronics. Verslun BT, sem er
um 728 m² að stærð, mun bjóða upp á
fjölbreytt úrval af tölvum, raftækj-
um, tölvuleikjum, tónlist og afþrey-
ingu.
Natuzzi Store
Natuzzi Store rekur tugi verslana í
18 löndum. Verslun Natuzzi Store,
sem verður 500 m² að stærð, býður
mikið úrval húsgagna, nútíma og sí-
gild auk vandaðrar gjafavöru og mun
auka verulega það vöruframboð sem
viðskiptavinum Smáralindar er boðið
upp á. Verslunin verður í vesturenda
1. hæðar milli verslunar Eymunds-
son og Debenhams.
Vokal
Vokal er lífsstílsverslun sem höfð-
ar til unglinga og er áætlað að versl-
unin verði opnuð í Smáralind seinni
hluta ágústmánaðar. Megináhersla
verslunarinnar verður að uppfylla
þarfir unglinga fyrir föt, fylgihluti og
aðrar vörur sem tilheyra lífsstíl unga
fólksins auk þess sem spennandi af-
þreying verður hluti af rekstri versl-
unarinnar. Um er að ræða tæplega
400 m² verslun, sem mun auka veru-
lega framboð á tískufatnaði og fylgi-
hlutum fyrir unglinga og verður
verslunin á annarri hæð nærri Vetr-
argarðinum.
Frá því að Smáralind var opnuð 10.
október sl. hafa verið gerðir samn-
ingar um 7 nýjar verslanir og veit-
ingastaði í verslunarmiðstöðinni.
Heildaraukning í útleigu vegna þess-
ara mála nemur rúmum 2.000 m²,
sem er um 5-6% af heildarleigurými í
verslunarmiðstöðinni.
Alls hafa tæplega 3,5 milljónir
gesta komið í Smáralind frá því að
verslunarmiðstöðin var opnuð 10.
október sl.
Þrjár nýjar verslanir
opnaðar í Smáralind
Rangt heimilisfang
Rangt var farið með heimilisfang
Kjartans Einars Hafsteinssonar
sem lést eftir umferðarslys á Akur-
eyri aðfaranótt laugardags. Hann
var sagður til heimilis á Hríseyjar-
braut 18 en rétt heimilisfang er
Hríseyjargata 18. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
Rangt föðurnafn
Þórólfur Sigjónsson var ranglega
sagður Sigurjónsson í Morgun-
blaðinu í fyrradag. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ⓦ í afleysingar
í Reykjahverfi,
Mosfellsbæ.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
LÓÐIR
Sumarbústaðalóð
í Grímsnesi
Til sölu sérlega falleg kjarrivaxin endalóð við
á. Fjölbreytilegt landslag og gott berjaland. Raf-
magn og vatn að lóðarmörkum. Hitaveita innan
tveggja ára. Möguleiki á tveimur bústöðum.
1,1 ha eignarlóð. Uppl. í síma 893 0015.
TIL SÖLU
Til sölu
jörðin Vatnsdalur í Rauðasandshreppi.
Nánari upplýsingar veittar í síma
698 7377.
Búnaður af veitingastað
Til sölu er ýmiss búnaður til veitinga-
reksturs frá Pizzahúsinu.
95 stólar og 28 borð — vandað og í mjög góðu
standi.
13x130 cm trérimlagardínur — nýlegar, í mjög
góðu lagi.
Barnastólar og borð.
Playstation 2, í standi með sjónvarpi.
Skápar, marmaraborð og hillur í sal.
500 stórar pizzuöskjur o.fl. til pizzugerðar.
Lausabúnaður ýmiss konar.
Búnaðurinn verður til sýnis föstudag og laugar-
dag á Grensásvegi 10, frá kl. 10.00—14.00 báða
daga. Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar í síma 894 1057.
Hinir stórglæsilegu
Benimar húsbílar eru komnir og verða til sýnis
og sölu hjá:
Húsbílar,
Tangarhöfða 1,
110 Reykjavík — Ísland.
Símar 567 2357 — 893 9957.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð á efnisflutningum
Sementsverksmiðjan hf. á Akranesi óskar eftir
tilboðum í efnisflutninga að verksmiðjunni.
Gert er ráð fyrir að semja við verktaka til næstu
þriggja ára.
Áætlað magn efnisflutninga á ári:
Flutningur á líparítmulningi 20.000 m³
Flutningur á kolum 13.500 t
Söfnun basaltsands og flutningur 2.250 m³
Flutningur úrgangsryks 9.000 t
Flutningur á kísilkögglum 4.000 t
Umsjón og eftirlit m. Kolamóttöku
Mötun og umsjón skeljasands
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Sements-
verksmiðjunnar hf. Akranesi gegn 10.000 kr.
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð mánudag-
inn 15. júlí 2002 kl. 14:00.
Sementsverksmiðjan hf.
Akranesi.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Bænastund kl. 19.30.
Samkoma kl. 20:00. Högni Vals-
son predikar. Brotning brauðs-
ins, lofgjörð og fyrirbænir.
Unglingasamkoma á föstudags-
kvöld og opið hús á sunnudags-
kvöld vegna fjölskyldumóts á
Flúðum um helgina.
Athugið: Nýir geisladiskar, DVD
og töluvert af erlendum bókum í
bókabúðinni.
„Drottinn er með mér, ég óttast
eigi.“
mbl.is
FRÉTTIR