Morgunblaðið - 04.07.2002, Page 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 59
DAGANA 29.–30. júní 2002 var hald-
ið í Hrísey málþing samtakanna
„Hela Norden ska leva“. Um leið var
þetta landsfundur samtakanna
Landsbyggðin lifi, sem er aðili að
Hela Norden ska leva. Landsbyggð-
in lifi á Íslandi eru ársgömul samtök
og enn eru grunneiningar á 9 stöðum
á landinu.
Markmið þessara samtaka er að
efla byggð og áhrif almennings á sitt
umhverfi sem og á landsstjórnina,
með því að efla almenna umræðu,
fræðslu og með stefnumótun.
Um 40 fulltrúar komu á málþingið
í Hrísey, 15 frá Íslandi og 25 frá öðr-
um Norðurlöndum.
Auk þingfulltrúa fluttu gestir
ávörp og svöruðu fyrirspurnum á
fundinum.
Mikilvægasta verkefni samtak-
anna Landsbyggðin lifi á næstunni
verður uppbyggingar- og kynningar-
starfsemi. Stefnt verður að því að
stofna svæðafélög í öllum byggðar-
lögum landsins, skapa tengsl við
önnur velferðar- og framfarafélög
sem fyrir eru og almennt með
virkjun almennings í baráttu fyrir
betri byggð. Í þessu uppbyggingar-
starfi mun LBL njóta reynslu af rót-
grónu starfi annars staðar á Norð-
urlöndunum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Í stjórn samtakanna Landsbyggð-
in lifi voru eftirtalin kosin:
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir kenn-
ari, Reykjavík, formaður, Sveinn
Jónsson bóndi, Kálfsskinni, Ár-
skógsströnd, varaformaður, Stefán
Á. Jónsson bóndi, Kagaðarhóli,
gjaldkeri og Ingibjörg Hjartardóttir
rithöfundur Laugasteini, Svarfaðar-
dal, upplýsingafulltrúi.
Í varastjórn eru Jónas Jónsson,
fyrrverandi búnaðarmálastjóri,
Reykjavík og Þórunn Egilsdóttir,
kennari, Vopnafirði.
Svæðafélög
verða stofnuð
í öllum byggð-
arlögum
REIÐSKÓLINN Þyrill býður upp á
Njáluferðir á hestum frá Torfastöð-
um í Fljótshlíð alla sunnudaga í sum-
ar undir einkunnarorðunum „Skoð-
aðu landið – skynjaðu söguna“ og
segir Bjarni Eiríkur Jónsson, eig-
andi reiðskólans, að nýjunginni hafi
verið mjög vel tekið.
Farið er úr bænum klukkan átta
að morgni og að loknum morgunmat
á Torfastöðum er riðið í slóð Brennu-
Flosa og áð við Klitnafoss, þar sem
boðið er upp á veitingar og fyrirlest-
ur. Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra og Kristján Jóhann Jóns-
son riðu á vaðið með fyrirlestra og
segir Bjarni Eiríkur að erindi þeirra
hafi vakið mikla athygli, en um
næstu helgi segir hann frá því hvern-
ig fjallað er um hesta í Njálu og
hvaða hlutverki þeir gegndu.
„Ég spyr hvort Oddkell í Kirkju-
bæ hafi verið drukkinn þegar hann
reið í Gunnar ofan og tel mig geta
sannað það,“ segir Bjarni Eiríkur, en
meðal fyrirlesara síðar í sumar eru
Arthur Björgvin Bollason, Jón Böðv-
arsson, Jónas Kristjánsson og Vé-
steinn Ólason.
Reiðskólinn hefur starfað í Víðidal
í mörg ár og segir Bjarni Eiríkur að
hann sé með á annað hundrað börn í
skólanum hjá sér daglega fyrir utan
sérstök reiðnámskeið fyrir fatlaða,
en auk þess bjóði hann upp á hesta-
ferðir um nágrenni Reykjavíkur.
Njáluferðir
á hestum
FJÓRÐA árið í röð gengst Bláhim-
inn fyrir tónlistarsamkomu þar sem
áhersla er lögð á þátttöku gesta. Há-
tíðin hefst kl. 16 á laugardag og lýk-
ur kl. 3 eftir miðnætti í og við Árnes
í Gnúpverjahreppi. Að þessu sinni
hefur hátíðin fengið undirnafnið
„Sungið í sveitinni“, þar sem South
River Band leiðir almennan söng.
Til þess hafa þeir m.a. stórt tjald
sem öllum textum verður varpað á.
„Tilgangur hátíðarinnar er að
safna saman öllum þeim sem hafa
gaman af að leika á hljóðfæri sín
með öðrum, syngja, læra og kenna í
leiðinni,“ segir Bergleif Joansen hjá
Bláhimni. „Hér er einkum átt við
hinn venjulega alþýðumann, sem
mætir með sitt hljóðfæri. Fyrir
verða ýmist hljóðfæraleikarar, sem
leiða þátttakendur áfram og stýra
vinnunni. Samspil og söngur hefst
kl. 16 og munu þeir sem þátt taka
eiga þess kost að koma fram á
kvöldtónleikum. Einkum er verið að
leita að venjubundnum hljóðfærum
s.s. gíturum, harmonikum, fiðlum,
mandólínum, flautum, slagverki
o.s.frv.“
Hljómsveitin Nátthrafnar leikur
fyrir dansi að lokinni skemmtun.
Sungið á eigin for-
sendum í Árnesi
„STÍGAMÓTAKONUR réðust í vor
í víðtækt verkefni til þess að efla bar-
áttu sína gegn vændisiðnaðinum á
Íslandi. Í því skyni var stofnaður
svokallaður Kristínarsjóður sem
fjármagna skyldi verkefnið. Þar sem
verkefnið er víðtækt og fjármögnun
ekki fyrir hendi var treyst á fjár-
framlög áhugasamra. Það stóð sann-
arlega ekki á viðbrögðum.
Zontaklúbburinn Embla í Reykja-
vík hefur það markmið, í samræmi
við markmið alþjóðasamtaka Zonta-
hreyfingarinnar, m.a að bæta laga-
lega, heilsufarslega og starfslega
stöðu kvenna. Ályktun klúbbsins er
sú, að vændisiðnaðurinn á Íslandi sé
gróft ofbeldi gagnvart konum og feli
í sér alvarlegar afleiðingar bæði fyr-
ir einstaklinga og þjóðfélag. Í ljósi
þessa töldu Emblur að framlag í
Kristínarsjóð væri verðugt framlag
þeirra til þess umfangsmikla starfs
sem Stígamót inna af hendi í barátt-
unni gegn vændisiðnaði á Íslandi.
Þær gerðu gott betur og hafa nú
fært Stígamótum 300.000 kr. fram-
lag í Kristínarsjóðinn. Það er stuðn-
ingur sem mikil þörf er fyrir í þeirri
vinnu sem fyrir höndum er. Eru
Zontakonum færðar bestu þakkir
fyrir bæði samkennd og fjárhagsleg-
an stuðning,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Stígamótum.
Embla styrkir
Kristínarsjóð
Kringlunni 8-12,
sími 568 6688
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
kvartbuxum
kr. 1.990
af
Ertu
að f
ara
í frí
?
Panta›u
Frífljónustu
Morgunbla›sins
á
e›a í síma 569 1122
3 ?3#
7!)
# , + +!@
A
, !,!
#
+ B
1
'
!#1
#
+C
A'
'
+!
2===?= " 5@'
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli Íslandsbanka og
Reykjavíkurmaraþons um stuðning
og samstarf við framkvæmd mara-
þonsins. Íslandsbanki gengur þar
með í lið með Flugleiðum og DV
sem verið hafa aðalsamstarfsaðilar
hlaupsins um árabil. Við sama
tækifæri var undirritað samkomu-
lag þessara aðila, Reykjavíkur-
borgar og Íþróttabandalags
Reykjavíkur um að standa saman
að hlaupinu.
Sú breyting er nú gerð á Reykja-
víkurmaraþoni að Íþróttabandalag
Reykjavíkur tekur að sér fram-
kvæmd hlaupsins með aðstoð
frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur,
frjálsíþróttadeilda Ármanns,
Fjölnis og ÍR ásamt Félagi mara-
þonhlaupara.
Næsta Reykjavíkurmaraþon fer
fram laugardaginn 17. ágúst nk. og
hefst það við Íslandsbanka í Lækj-
argötu kl. 11 með keppni í heilu
maraþoni. Aðrar vegalengdir –
hálft maraþon, 10 km og skemmti-
skokk – hefjast síðan klukkan 12
með ávarpi borgarstjóra og setn-
ingu á Menningarnótt í Reykjavík.
Nýir framkvæmdaaðilar
Reykjavíkurmaraþons