Morgunblaðið - 04.07.2002, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 04.07.2002, Qupperneq 61
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 61 HÁTÍÐARSKAPIÐ voru stjórn- málamenn löngu búnir að eyðileggja dagana fyrir 17. júní og síðan gekk Davíð alveg end- anlega frá því litla gleðiskapi sem eftir var með ræðu sinni. Það gekk síðan alveg fram af mönnum þegar lögreglan tók upp á því að rífa mótmæla- spjöld af mót- mælendum og eyðilagði slík framkoma enn frekar gleðiskapið það litla sem eftir var. Áróður og mótmæli Davíðs Odds- sonar er hann var með samanburð á Gúttóslagnum er menn voru að verja lýðræði, en þetta átti ekki neina hlið- stæðu við það sem gengið hafði á undanfarna daga. Hann var þarna sjálfur að mótmæla í þessari ræðu og að réttlæta gerðir sínar með vafa- sömum hætti. Davíð veit hið gagn- stæða þar sem Falun Gong eru ekki neinar fótboltabullur eða hryðju- verkamenn. Honum ætti einnig að vera kunnugt um að Falun Gong hef- ur verið með dagleg mótmæli fyrir utan kínverska sendiráðið í Wash- ington DC í meira en tvö ár og bandaríska lögreglan hefur sagt að þessi mótmæli sé mjög friðsöm og ekki ástæða til að aðhafast eitthvað í þeim málum. Fyrir iðkendur Falun Gong er þetta mikið mál að geta mótmælt, þar sem þeir geta ekki mótmælt í sínu heimalandi, Kína, en mikið af þeirra aðstandendum og ættmenn- um eru þar í haldi pyntaðir og drepn- ir. Iðkendur Falun Gong vilja því reyna að mótmæla fyrir hönd að- standenda sinna, þó að það sé í öðru landi eða þar sem forseti Kína er staddur hverju sinni. Skv. yfirlýs- ingu frá bresku lávarðadeildinni eða Members of the House of Lords: „Falun Gong er mjög friðsöm stefna er hvetur til hæstu gilda í siðferð- islegri hegðun af hálfu iðkenda.“ Auðvitað varð Davíð að reyna að líkja þessu ástandi sem hafði komið upp við Gúttóslaginn, ekki höfðu lög- regla eða yfirvöld séð ástæðu til að vakta Austurvöll eða Arnarhól þann tíma sem heimsókn forseta Kína stóð yfir og sjaldan eða aldrei sáust lög- reglumenn þar á ferð til þess að vernda Íslendinga fyrir þessum ann- ars stórhættulegu iðkendum eins og Davíð er að reyna að segja. Lítinn sem engan skilning virtist Davíð hafa eða þá samúð með iðkendum Falun Gong og þeirra aðstandendum í Kína. Davíð kemur síðan fram með þau ósannindi að iðkendur Falun Gong yrðu hér um 500 til 600 talsins, en bæði stjórnvöld og lögreglan höfðu fengið allar upplýsingar áður en heimsóknin varð, að þeir yrðu aldrei fleiri en 300 talsins. Óskar Bjartmars yfirlögregluþjón sagði að þetta væri ekki gert útaf öryggisráð- stöfun heldur útaf því að þetta fólk mætti ekki vera á staðnum. Lögregl- an réði alveg við þetta. Samkvæmt þessu voru menn innan lögreglunnar ekkert hrifnir af stjórnmálamönnum er voru að gera lítið úr þeim. Síðan kemur sú fullyrðing Davíðs í Mbl. á sunnudaginn á óvart að Falun Gong hefði getað tekið völdin og meiri réttindi en Íslendingar. Hvað er þetta annað en tómt bull? Fyrir Davíð og hans fylgismenn var það aðalatriðið að fá Jiang Zimen forseta Kína til landsins jafnvel þótt það kostaði stjórnarskrárbrot og mikil mótmæli gegn ríkisstjórninni. Jiang Zimen hlýtur að vera íslensk- um stjórnvöldum innilega þakklátur fyrir að hafa komið í veg fyrir mót- mæli með öllum þessum yfirgangi. Rauðar orðuveitingar og viðurkenn- ingar hljóta að vera á leiðinni frá Ji- ang Zimen til ríkisstjórnarinnar fyr- ir alla þessa stórmerkilegu frammi- stöðu. ÞORSTEINN SCH. THORSTEINSSON, Hrísrima 2, Reykjavík. Gleðiskapið á 17. júní var löngu farið Frá Þorsteini Sch. Thorsteinssyni: Þorsteinn Sch. Thorsteinsson Nýjar línur á nýjum stað undirfataverslun Síðumúla 3-5 Fyrirtæki til sölu ● Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr. ● Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax- andi velta og miklir möguleikar. ● Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu í matvöru óskar eftir meðeig- anda eða sameiningu til að nýta góð tækifæri. ● Verslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið húsnæði. Mjög góður hagnaður. Ársvelta 180 m. kr. og vaxandi með hverju ári. Sérstak- lega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón. ● Pizzastaður til sölu í Hafnarfirði. Partur af stórri keðju. Miklir möguleikar. ● Góð bónstöð með mikil föst viðskipti. ● Þekkt vídeósjoppa í Breiðholti með 5 m. kr veltu á mánuði. Auðveld kaup. ● Heildverslun með tæki og vörur fyrir byggingariðnaðinn. Ársvelta 130 m. kr. Góður hagnaður um margra ára skeið. Hagstætt verð. ● Sport pub í Árbæjarhverfi. Besti tíminn framundan. Auðveld kaup. ● Sólbaðstofa í Skeifunni. 12 bekkir. Velta 1200 þús. kr. á mánuði. Skipti möguleg. ● Grensásvídeó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup. ● Lítið fyrirtæki sem rekur 9 leikjakassa í sjoppum. Auðveldur rekstur í aukavinnu. ● Hreingerningafyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinsun á rimlagardínum. Góður tækjakostur. Hentar vel í bílskúr. Góðar tekjur fyrir duglegan mann. ● Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 15 herbergi. Ársvelta 20 m. kr. Möguleiki á 15 herbergjum til viðbótar og lítilli íbúð fyrir eiganda. ● Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnaðarvélar. Hentar vel fyrir 1—2 starfsmenn, sérstaklega smiði. ● Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. Gott tækifæri fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi. ● N-1 bar í Keflavík. Til sölu eða leigu. Vinsæll skemmtistaður á besta stað í Keflavík. ● Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin húsnæði. ● Vel þekkt og vaxandi sérverslun með flísar. 50 m. kr. ársvelta. Góð umboð. ● Veitingastaður í atvinnuhverfi. Eingöngu opinn virka daga kl. 7—17. Lágt verð. Auðveld kaup. ● Snyrtivörudeild úr heildverslun. Litalína sem er í nokkrum góðum versl- unum og hægt er að efla. Hentugt fyrir konu sem hefur vit á snyrtivör- um og langar í eigin rekstur. Lágt verð. ● Langar þig í eigin rekstur. Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur. ● Eitt af vinsælustu veitingahúsum borgarinnar. Mjög mikið að gera. ● Lítil kvenfataverslun við Laugaveg. Góð afkoma fyrir 1—2 konur. Auð- veld kaup. ● Sólbaðstofa í Garðabæ. Sú eina í bænum. 5 bekkir + naglastofa. Verð 6 m. kr. Góð greiðslukjör. ● Skyndibitastaður í Kringlunni. Einstakt tækifæri. ● Verksmiðja sem framleiðir gróðurmold o.fl. Góð viðskiptasambönd. ● Þekkt kvenfataverslun í Skeifunni. Góð þýsk innkaupasambönd. Auðveld kaup. ● Hlíðakjör. Söluturn í góðu húsnæði í Eskihlíð. Hentugt fyrir hjón. Auðveld kaup. ● Lítil smurbrauðstofa með góð tæki og mikla möguleika. ● Bílaverkstæði á góðum stað í Kópavogi. Hentugt fyrir tvo menn. Verð 2,5 m. kr. ● Rótgróin deild úr fyrirtæki, sala mælibúnaðar fyrir framleiðslu- og mat- vælafyrirtæki. Framlegð 5 m. kr. á ári. ● Ein besta sólbaðstofa borgarinnar. Góður hagnaður. Skipti möguleg á góðu atvinnuhúsnæði. ● Stór pub í miðborginni. Einn stærsti bjórsölustaður borgarinnar. ● Lítil rótgróin sólbaðstofa í Vesturbænum. 4 bekkir og stækkunamögu- leikar. Auðveld kaup. ● Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Mikið að gera. ● Heildverslun með þekkt fæðubótarefni sem aðallega eru seld í apótek. Ársvelta 20 m. kr. Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen) Sími 533 4300, GSM 820 8658 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð um verslunarmannahelgina til Verona. Beint flug þann 1. ágúst til þessarar fegurstu borgar Ítalíu þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu. Í boði eru góð 3 og 4 störnu hótel og nú getum við boðið miða á Carmen óperuna þann 2. ágúst á einstökum kjörum, en hún er flutt í Arenunni í Verona. Aðeins 40 sæti í boði Óperan Carmen í Arenunni í Verona 2. ágúst Miðar á Carmen kr. 2.900 Verð kr. 57.150 Flug, gisting á hótel Maxim, 3 stjörnur, með morgunmat. Skattar. Ekki innifalið: Forfallagjald, kr. 1.800, ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Verð kr. 33.050 Flugsæti með sköttum. Verslunarmannahelgin í Verona frá kr. 33.050
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.