Morgunblaðið - 04.07.2002, Page 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIN gera
að meðaltali ráð fyrir að heildar-
hagnaður félaganna fimmtán sem
mynda Úrvalsvísitölu Kauphallar Ís-
lands (ICEX-15) verði 14,7 milljarð-
ar króna á fyrri árshelmingi, en hann
var 2,2 milljarðar króna á sama tíma-
bili í fyrra. Gangi þetta eftir mun
heildarhagnaðurinn á tímabilinu
nær sjöfaldast á milli ára og verða
tæplega einn milljarður króna að
meðaltali á hvert félaganna fimmtán.
Athyglisvert er að engu félaganna
er spáð taprekstri nú, hvorki fyrir af-
skriftir né eftir skatta. Þetta er
óvenjulegt, en um mitt ár í fyrra
voru fjögur fyrirtæki rekin með tapi.
Spárnar gera ráð fyrir mestum
hagnaði af rekstri Eimskipafélags
Íslands á tímabilinu, eða á bilinu 2,3–
3,8 milljörðum króna, og af rekstri
Íslandsbanka verði 1,8–2,4 milljarða
króna hagnaður. Vert er að geta þess
að 1,4 milljarða tap varð af rekstri
Eimskipafélagsins á sama tímabili í
fyrra. Er því gert ráð fyrir miklum
bata, en félagið hefur tekið veruleg-
um breytingum frá í fyrra.
Spá sjöföldun hagnaðar fyrir-
tækja í Úrvalsvísitölunni
Miklum afkomubata/C12
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær Árna Johnsen, fyrrver-
andi alþingismann, í 15 mánaða óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í
opinberu starfi, rangar skýrslur til
yfirvalda, mútuþægni og umboðssvik.
Björn Kristmann Leifsson, Gísli Haf-
liði Guðmundsson, Stefán Axel Stef-
ánsson og Tómas Tómasson voru allir
sýknaðir af ákæru ríkissaksóknara.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort málinu verður áfrýjað,
hvorki af hálfu Árna né ríkissaksókn-
ara.
Í niðurstöðu dómsins segir að brot
Árna hafi verið mörg og alvarleg.
Auðgunarbrotin hafi numið samtals
3,2 milljónum, auk annarra brota, en
Árni hefur endurgreitt mikinn hluta
af þeim verðmætum sem hann dró
sér eða sveik út á annan hátt. Brotin
voru öll framin í opinberu starfi og
var það virt honum til refsiþyngingar.
„Fyrir svo alvarleg brot í opinberu
starfi sem ákærði er dæmdur fyrir
þykir hvorki fært að skilorðsbinda
refsingu að öllu leyti né að hluta,“
segir í dómnum.
Árni játaði 12 ákæruliði af þeim 27
sem beindust gegn honum og var sak-
felldur fyrir sex til viðbótar en sýkn-
aður af níu ákæruliðum. Árni hafði
játað á sig flest ákæruatriðin sem
sneru að fjárdrætti hans og umboðs-
svikum í opinberu starfi sem formað-
ur byggingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins, m.a. óðalssteina, flísar, hurðir og
karma, verkpalla og hreinlætistæki.
Til viðbótar var hann dæmdur fyrir
að draga sér þjóðfána og -veifur,
byggingarvörur fyrir um 400.000
krónur og þéttidúk hjá Fagtúni.
Hann var aftur á móti sýknaður af að
hafa dregið sér jólaljósaseríur, þétti-
dúk frá öðru fyrirtæki og bygging-
arvörur fyrir eina milljón króna. Í
einu tilviki var hann sakfelldur fyrir
að gefa út tilhæfulausan reikning
vegna veitinga en sýknaður af tveim-
ur slíkum ákæruliðum.
Héraðsdómur sýknaði Árna af öll-
um ákæruatriðum sem lutu að for-
mennsku hans í Brattahlíðarnefnd en
hann var sakfelldur fyrir rangar
skýrslur til yfirvalda með því að
framvísa tilhæfulausum greiðslu-
kvittunum til þess að fá tekjuskatt-
stofn sinn lækkaðan.
Þá var hann sýknaður af að hafa
tekið við mútum frá Ístaki hf. en á
hinn bóginn sakfelldur fyrir mútu-
þægni, fyrir að hafa tekið við 650.000
krónum úr hendi Gísla Hafliða Guð-
mundssonar sem þá starfaði hjá
Þjóðleikhúskjallaranum. Í dómnum
segir að því verði ekki slegið föstu að
greiðslan hafi tengst því að Árni sam-
þykkti reikning frá Þjóðleikhúskjall-
aranum fyrir rúmlega 3,1 milljón.
Hann hafi á hinn bóginn tekið við
greiðslunni vegna opinberra starfa
sinna sem formaður byggingarnefnd-
ar Þjóðleikhússins og þar með brotið
gegn lögum.
Árni þarf að greiða 2⁄3 hluta af
réttargæslu- og málsvarnarlaunum
verjanda síns, Jakobs R. Möller, en
ríkissjóður greiðir 1⁄3. Málsvarnarlaun
verjenda hinna fjögurra eru öll
greidd úr ríkissjóði, samtals 1,4 millj-
ónir króna.
Guðjón St. Marteinsson kvað dóm-
inn upp en Bragi Steinarsson vara-
ríkissaksóknari sótti málið fyrir hönd
ákæruvaldsins.
Árni Johnsen dæmdur
í 15 mánaða fangelsi
Sakfelldur fyrir/30–35
Ekki verið/6
MANNBJÖRG varð í gær þegar
handfærabátnum Ásu SU-91 hvolfdi
um tvo km frá Breiðdalsvík. Einn var
um borð, Steingrímur Jóhannesson,
skipstjóri á Votabergi, og tókst hon-
um að komast upp
á kjöl bátsins og
vekja á sér at-
hygli. Steingrím-
ur segist í samtali
við Morgunblaðið
hafa verið kominn
með um það bil
fimm til sex
hundruð kíló af
fiski í bátinn þeg-
ar lítill straum-
hnútur hafi komið
á bátinn með þeim afleiðingum að
hann fylltist af sjó og honum hvolfdi.
„Ég náði strax að klifra upp á kjölinn
en báturinn flaut vel vegna þess að í
honum eru þrjú loftrými.“ Steingrím-
ur segir að bátinn hafi rekið í átt að
landi og að fljótlega hafi vegfarendur
tekið eftir honum og gert Fáskrúðs-
fjarðarlögreglunni viðvart. Þá var
klukkan u.þ.b. 15.
Lögreglan hafði samband við
Landhelgisgæsluna en afturkallaði
aðstoð þyrlu þegar björgunarmenn
voru komnir á vettvang. Þegar til
Steingríms sást var hann undan bæn-
um Snæhvammi á Breiðdalsvík. Gott
veður var á þeim slóðum, sól en dálítill
vindur og nokkur sjór. Steingrímur
segir aðspurður að sér hafi þó ekki
orðið meint af volkinu. „Ég blotnaði
en var ekki svo kaldur þar sem ég sat
það hátt á kilinum.“
Óskar Guðmundsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Fáskrúðsfirði, segir
að fólkið sem hafi gert lögreglunni
viðvart hafi talið að þarna væri kajak-
ræðari í einhverjum vanda. „Við höfð-
um strax samband við björgunar-
sveitarmenn í Breiðdalsvík sem gripu
næsta tiltæka bát, skemmtibátinn
Áka, og hröðuðu sér á vettvang,“ seg-
ir hann.
„Kominn leiðinlega
nálægt klöppunum“
Um borð í Áka voru þeir Ingólfur
Finnsson, formaður Slysavarnadeild-
ar Einingar á Breiðdalsvík, og Elís P.
Sigurðsson, skipstjóri Áka, sem
sigldu á fullri ferð út að slysstað.
„Þegar við vorum komnir út hjá Snæ-
hvammstanga sáum við manninn
strax á kilinum og báturinn var kom-
inn leiðinlega nálægt klöppunum,“
sagði Elís. Vel gekk að ná Steingrími
um borð í Áka. Þegar honum hafði
verið bjargað ákváðu þeir að reyna að
bjarga Ásu og tókst það. Báturinn var
dreginn til hafnar á Breiðdalsvík.
Mannbjörg er báti
hvolfdi við Breiðdalsvík
Sat á kili
báts síns
er hjálpin
barst
Steingrímur
Jóhannesson
BLÁA lónið nýtur sívaxandi vinsælda, ekki síst á
góðviðrisdögum eins og í gær. Maðurinn á
myndinni virðist slaka vel á, enda í góðum hönd-
um starfsmanns lónsins sem er að nudda hann.
Böð í lóninu hófust árið 1978 þegar starfsmaður
Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi, sem var með
húðsjúkdóminn psoriasis, prófaði að baða sig í
lóninu. Í kjölfarið komu fleiri psoriasis-
sjúklingar sem töldu að böð í lóninu hefðu græð-
andi áhrif. Aðsókn að lóninu hefur aukist jafnt
og þétt allar götur síðan og þjónustan þar hefur
verið bætt til muna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slakað á í Bláa lóninu