Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSK orðabók, ný og endur-
bætt, mun koma fyrir augu almenn-
ings í lok október næstkomandi.
Unnið hefur verið að gerð bókarinnar
með hléum frá 1996. Undanfarin
misseri hefur 4–5 manna teymi undir
stjórn Marðar Árnasonar unnið
kröftuglega að orðabókargerðinni.
Auk þess hefur fjöldi sérfræðinga á
ýmsum sviðum verið kallaður til.
Bókin kemur út hjá forlaginu Eddu –
miðlun og útgáfu hf.
Um er að ræða þriðju útgáfu Ís-
lensku orðabókarinnar sem kom
fyrst út árið 1963 en síðan árið 1983.
Árni Böðvarsson var ritstjóri beggja
útgáfa.
Trúnaður við
upprunaleg markmið
Nýja orðabókin verður um 2.000
blaðsíður, en síðasta útgáfan var
1.250 síður. „Helmingur viðbótarinn-
ar felst í nýjum flettum, þ.e. atrið-
isorðum, en þó einkum fyllri upplýs-
ingum við hverja flettu,“ segir
Mörður. „Hinn helmingur viðbótar-
innar felst í breyttri uppsetningu
bókarinnar og skýrari framsetningu
efnisins.“
Þrátt fyrir þessar breytingar segir
Mörður að í allri vinnu við útgáfuna
hafi verið haldið trúnaði við uppruna-
legu bókina. „Þó að ýmislegt hafi
breyst í tungumálinu og viðhorfum
okkar til þess frá því bókin kom fyrst
út, þá höfum við reynt að vera holl
hinum upprunalegu markmiðum sem
Árni Böðvarsson og hans samverka-
menn settu.“ Var safnað saman nú-
tímamálfari, bæði almennu og tækni-
legu, en auk þess einbeittu Mörður
og samstarfsmenn hans sér að
ákveðnum efnissviðum, svo sem tölv-
um, viðskiptum, tónlist og náttúru-
fræði. Þá hefur einnig verið unnið eft-
ir einstökum orðflokkum og þar á
meðal verið farið vel yfir allar sagnir í
bókinni. „Við höfum einnig tekið fyrir
ákveðið orðfæri sem ekki fékk jafn-
mikla athygli í fyrri útgáfum, sem t.d.
tengist heimilinu, matargerð og
hannyrðum svo eitthvað sé nefnt.“
Haft var samstarf við Orðabók Há-
skólans við gerð bókarinnar. „Það
hefur mikið breyst við öflun upplýs-
inga frá því sem var við fyrri útgáf-
urnar, aðstæður okkar eru allt aðr-
ar,“ segir Mörður. Hann segir
tölvutæknina skipta mjög miklu máli
við gerð orðabóka og einfalda alla
vinnu til muna. Mörður segir standa
til að gefa þriðju útgáfuna fullbúna út
á tölvutæku formi en árið 2000 var
orðabókin á þáverandi stigi fyrst gef-
in út á tölvudiski.
Orðabókin verði
í stöðugri vinnslu
Þá segir hann von Eddu – miðl-
unar og útgáfu að hægt verði að gefa
bókina út bæði á prenti og tölvudiski
oftar en verið hefur. „Draumurinn er
sá að orðabókin verði verk í stöðugri
vinnslu.
Útgáfa bókarinnar árið 1963 voru
mikil tíðindi á sínum tíma,“ segir
Mörður, en Menningarsjóður stóð að
þeirri útgáfu. „Sú bók var fyrsta ís-
lensk-íslenska orðabókin og mikið í
hana lagt.“
Til útgáfunnar nú fengust styrkir
úr Lýðveldissjóði og Málræktarsjóði.
„Síðan Menningarsjóður var lagður
niður hefur komið upp ákveðinn
vandi í útgáfu samfélagslegra verk-
efna, t.d. orðabóka,“ segir Mörður.
„Það er engan fastan stuðning við
slíka útgáfu að fá, heldur þurfa einka-
fyrirtækin sem í þessu standa að
treysta á Guð og lukkuna. Við þurfum
meira öryggi í þessi mál.“
Mörður segir mörg stór orðabóka-
verkefni bíða og nefnir í því sambandi
Ensk-íslenska orðabók sem nú er
orðin 20 ára gömul og þarfnast end-
urútgáfu. Þá sé t.d. Þýsk-íslenska
orðabókin frá því fyrir seinni heims-
styrjöld. „Orðabókaútgáfa er mjög
kostnaðarsöm, arður kemur seint og
ef vel á að vera rennur hann að mestu
aftur í orðabókargerðina sjálfa,“ seg-
ir Mörður. „En góðum orðabókum er
vel tekið. Þessi bók, Íslenska orða-
bókin, byggir á mjög sterkri hefð, við
vitum að vinahópur hennar er stór og
erum þess fullviss að þessari nýju út-
gáfu verður fagnað.“
Endurskoðuð útgáfa af Íslenskri orðabók væntanleg í lok október
Orðabókin á marga vini
Engan fastan stuðning við orða-
bókaútgáfu að hafa frá því Menn-
ingarsjóður var lagður niður
RANNSÓKNIR vísindamanna á Tilraunastöð
Háskóla Íslands á Keldum benda til þess að hætta
á riðusmiti í sauðfé sé nátengd afbrigðum af því
geni sem veldur riðu. Með ræktun á sauðfé með
riðuverndandi arfgerð megi því væntanlega draga
verulega úr hættu á riðusmiti í sauðfé bænda hér á
landi.
Niðurstöðurnar voru birtar í alþjóðlega tímarit-
inu Archives of Virology en rannsóknarverkefnið
heitir „Leit að einkennalausum smitberum riðu“
og höfundar greinarinnar eru þau Stefanía Þor-
geirsdóttir, Guðmundur Georgsson, Eyjólfur
Reynisson, Sigurður Sigurðarson og Ástríður
Pálsdóttir.
Rannsóknir sem spanna nokkur ár
Stefanía segir að markmið rannsóknarinnar nú
hafi m.a. verið að kanna hvort einkennalausir
smitberar riðu fyndust meðal þeirra kinda sem
bera verndandi arfgerð gegn riðunæmi en áður
hafi þau rannsakað sýkt og ósýkt sauðfé og skil-
greint arfgerðir með tilliti til áhættu á smiti. Hún
segir að rannsóknir vísindamanna á Keldum á
þessu sviði hafi byrjað árið 1995 undir stjórn
Ástríðar Pálsdóttur þannig að niðurstöðurnar nú
séu framhald af fyrri rannsóknum.
„Riða í sauðfé er ekki vírus eða baktería heldur
smitandi prótein. Þetta prótein, sem kallað er
príon, er í okkur öllum en það sem gerist er að eitt-
hvað veldur því að það umbreytist og þessi um-
breyting getur bæði komið til af völdum stökk-
breytinga og eins vegna smits eins og í sauðfé.
Hins vegar er ákveðin ættlægni, þ.e.a.s. næmið
fyrir riðu erfist og það er einmitt það sem við höf-
um verið að rannsaka. Við rannsökuðum upphaf-
lega heilbrigt fé og bárum það saman við sýkt fé
og fundum að það var munur á sýktu og ósýktu fé
hvað varðar breytileikann í geninu. Við skilgreind-
um síðan áhættuarfgerð og svokallaða verndandi
arfgerð út frá líkum eða hættu á smiti. Við buðum
fljótlega upp á þjónustu við bændasamtökin, þ.e.
að þeir prófuðu hrúta til þess að reyna að losna við
áhættuarfgerðina og fjölga þeim sem væru með
verndandi arfgerð.“
Ekkert smit í kindum með
verndandi arfgerð
Stefanía segir að menn hafi aftur á móti alltaf
haft áhyggjur af að smit kynni að leynast í fé sem
ekki hefði einkenni um riðu: „Það voru einmitt nið-
urstöður úr þeirri rannsókn sem birtust núna. Þar
tókum við fyrir heila hjörð sem hafði orðið fyrir
riðu og skoðuðum inn í heilann á kindunum sem
ekki höfðu einkenni til þess að athuga hvort þær
væru með smit og skoðuðum svo arfgerðirnar á
móti því að við vildum vita hvaða arfgerðir smit-
uðust og hverjar ekki.“
Stefanía segir að flestar kindurnar sem höfðu
einkenni hafi verið með áhættuarfgerð. „Um einn
þriðji hluti hjarðarinnar var með smit í heila án
þess að vera með einkenni og langflestar af þeim
kindum voru með áhættuarfgerðina. Aftur á móti
fundum við ekki riðusmit í þeim kindum sem voru
með verndandi arfgerð. Niðurstöður okkar voru
sem sagt þær að það er samhengi á milli arfgerðar
og áhættunnar á riðusmiti. Við höfum tekið tvær
hjarðir til viðbótar til rannsóknar og þær rann-
sóknir styðja þessar niðurstöður.“
Stefanía segir að í Evrópu, og þá sérstaklega í
Hollandi, sé í auknum mæli farið að nota niður-
stöður úr slíkum rannsóknum við ræktun á sauðfé
og Hollendingar stefni t.d. að því að gera allt sitt
sauðfé ónæmt fyrir riðu.
„Bændasamtökin hafa notað þessar niðurstöður
fyrir kynbótahrútana en látið bændur um að velja
hrútana og veitt þeim allar upplýsingar. Ég verð
að viðurkenna að okkur hefur þótt frekar slæmt að
menn hafi haldið áfram að bjóða upp á sæði úr
hrútum með áhættuarfgerðina. Það er sem sagt
enn verið að dreifa genum sem okkur finnst að
mættu alveg missa sín.“
Rannsóknir íslenskra vísindamanna á Keldum á riðu í sauðfé
Tengsl milli arfgerðar
og hættu á riðusmiti
HAFNARFJARÐARVEGI var lok-
að við Hraunsholtshæð frá kl. níu á
föstudagskvöld til kl. 5 um nóttina á
meðan lögð var göngubrú yfir veg-
inn. 5 starfsmenn verktakans Eld-
afls í Njarðvík, ásamt kranamanni,
komu brúnni á undirstöður þar sem
hún var soðin saman í miðju og
boltuð í endana. Að sögn Axels Pét-
urssonar, framkvæmdastjóra Eld-
afls, gekk verkið vel.
Brúin er smíðuð í Póllandi og
vegur alls 37 tonn. Að sögn Axels er
áætlaður heildarkostnaður við
brúna um 60 milljónir króna.
Morgunblaðið/Kristinn
Starfsmenn Eldafls unnu á föstudagskvöld og fram eftir nóttu við að koma brúnni á und-
irstöður sínar. Þar var hún soðin föst í miðju og boltuð í endana.
Morgunblaðið/Jim Smart
Göngubrúin yfir Hafnarfjarðarveg var sett upp í tveimur hlutum og er nú komin á sinn stað.
Opnað var fyrir umferð um veginn að nýju um fimmleytið í gærmorgun.
Göngubrú yfir
Hafnarfjarðar-
veg á sinn stað
TVEIR menn eru í haldi lögreglunn-
ar í Reykjavík grunaðir um að hafa
ráðist á pilt á Laugaveginum í fyrri-
nótt og veitt honum alvarlega áverka
með hnífi.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
er pilturinn sem fyrir árásinni varð 16
ára. Hann var stunginn í síðu og
handlegg, skorinn í andlitið og er al-
varlega slasaður að sögn lögreglu í
Reykjavík. Pilturinn mun þó ekki
vera í lífshættu.
Samkvæmt upplýsingum læknis á
gjörgæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi átti að útskrifa piltinn þaðan í
gær þar sem hann var á batavegi.
Handteknir í miðbænum
Tilkynning um atburðinn barst til
lögreglu um hálffjögurleytið um nótt-
ina og náði hún að handtaka tvo
menn, sem eru grunaðir um verkn-
aðinn, skömmu síðar í miðbæ Reykja-
víkur. Þeir voru yfirheyrðir í gær.
Þá voru tveir menn teknir höndum
í austurhluta Reykjavíkur um sex-
leytið í gærmorgun fyrir innbrot í
bíla.
Miðborgin
16 ára pilt-
ur stunginn
með hnífi
BJÖRGUNARSVEITIR Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar hófu í
gærmorgun leit að nýju að ítalska
ferðamanninum Davides Paites, sem
saknað hefur verið frá því 10. ágúst
sl. Um 150 leitarmenn frá Eyjafirði
og víðar af landinu voru á svæðinu
frá Grenivík út Látraströnd, í Kefla-
vík og Þorgeirsfirði. Leitað var á
landi og af sjó með aðstoð þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Leita átti
fram í myrkur en leitarstarfið hafði
ekki borið árangur þegar Morgun-
blaðið fór í prentun.
150 manns
leituðu Ítalans