Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á SÍÐASTA þingi voru samþykkt lög nr. 30/ 2002 um rafræn við- skipti og aðra rafræna þjónustu sem sett eru til að innleiða tilskipun Evrópusam- bandsins um sama efni. Megintil- gangur tilskipunarinnar er að tryggja frjálst flæði rafrænnar þjón- ustu milli aðildarríkjanna. Til þess að það sé unnt er aðildarríkjunum uppálagt að sjá til þess að þeir sem bjóða fram þjónustu á Netinu og hafa staðfestu í viðkomandi ríki fari að lögum. Tilskipunin hefur meðal annars að geyma mikilvægar reglur um ábyrgð á ólögmætu efni á Netinu sem útfærðar eru með athyglisverð- um hætti í íslenskum lögunum. Rafræn þjónusta er í lögunum skilgreind sem þjónusta sem „al- mennt er veitt gegn greiðslu, úr fjar- lægð, með rafrænum hætti að beiðni þjónustuþega“. Hún tekur bæði til rafrænnar þjónustu við neytendur og þjónustu sem veitt er á milli þeirra sem stunda viðskipti. Þá tek- ur tilskipunin einnig til rafrænnar þjónustu sem veitt er án endur- gjalds, t.d. þjónustu sem fjármögnuð er með auglýsingum eða styrkjum. Samkvæmt þessu taka lögin til bein- línutengdrar sölu á vöru, upplýs- ingagjafar sem fjármögnuð er með auglýsingum eins og þjónustu dag- blaða á Netinu svo fátt eitt sé nefnt. Hins vegar falla heimasíður einstak- linga sem birta einungis persónuleg- ar myndir og upplýsingar ekki undir lögin. Almennt um ábyrgð á ólöglegu efni sem birt er opinberlega Reglur um ábyrgð á ólöglegu efni sem birt er opinberlega eru mismun- andi eftir því hvaða miðil er um að ræða. Um ábyrgð á blöðum og tíma- ritum gilda prentlögin frá 1956. Þau kveða á um að nafngreindur höfund- ur beri einn ábyrgð. Ef höfundur er ekki nafngreindur þá er ritstjóri eða útgefandi ábyrgur. Ef hans er ekki getið þá er það dreifingaraðili og loks prentsmiðjan ef allt um þrýtur. Um útvarpsefni (hljóðvarp eða sjón- varp) gilda sambærilegar reglur. Ábyrgðarreglur af þessu tagi eru stundum kenndar við Belgíu því fyr- irkomulag af þessu tagi er talið upp- runnið þar og fékk reyndar inni í belgísku stjórnarskránni snemma á 19. öld. Einkenni ábyrgðarreglnanna er að ábyrgðin er í þrepum. Fyrstur í ábyrgðarröðinni kemur höfundur, ef nafn hans er ekki kunnugt kemur næstur ritstjóri, ábyrgðarmaður eða útgefandi og svo koll af kolli. Þetta fyrirkomulag stendur vörð um frjálsa og óháða fjölmiðla því það kemur í veg fyrir að utanaðkomandi fari að grafast fyrir um hvernig til- tekin grein eða þáttur hefur orðið til. Ef blað kýs til dæmis að birta nafn- lausa grein kemur ritstjórinn fram sem ábyrgðarmaður og enginn getur krafið hann sagna um það hver raun- verulega skrifaði greinina. Þetta kerfi tengist því einnig nafnleyndar- réttinum sem er ekki síður mikil- vægur fyrir tjáningarfrelsi í lýðræð- isþjóðfélagi. Fyrirkomulagið hefur ennfremur það sér til ágætis að það á að vera auðvelt hverju sinni fyrir þann sem telur rétt á sér brotinn að ákveða að hverjum eigi að beina spjótum sínum. Hingað til hefur ekki verið ljóst hvaða ábyrgðarreglur ættu að gilda um Netið. Þar sem engum skráðum reglum hefur verið fyrir að fara má ætla að almennar reglur um bóta- ábyrgð og refsiábyrgð gildi. Það myndi þýða til dæmis að milliliðir milli notanda og þess sem setur efni á Netið gætu orðið ábyrgir sökum hlutdeildar í því að gera ólöglegt efni opinbert. Slíkt er að mörgu leyti óviðunandi vegna þess að í raun hafa milliliðirnir yfirleitt lítil áhrif á það sem fer um veitur þeirra og tak- markaða möguleika til að hafa eft- irlit með því sem þar er að finna hverju sinni. Netið er stórfenglegur miðill í þágu tjáningarfrelsis og gæta verður þess að íþyngja honum ekki um of með ósveigjanlegum ábyrgð- arreglum. Tilskipun ESB um rafræn viðskipti Fyrir nokkrum árum ákvað fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins að gera tillögu að reglum sem auð- velda myndu netviðskipti. Útkoman varð tilskipun um rafræn viðskipti frá árinu 2000. Þar er tekið á því með rækilegum hætti hvaða ábyrgðar- reglur eigi að gilda á Netinu. Þótt til- skipunin gildi strangt til tekið ein- ungis um rafræn viðskipti er nokkuð ljóst að þar eru lagðar meginlínur sem gilda munu almennt um Netið hvort sem um viðskipti er að ræða eða ekki. Tilskipunin skilgreinir ekki á nokkurn hátt hvað sé ólöglegt efni á Netinu. Um það efni gilda almenn landslög, bæði hegningarlög og höf- undalög svo dæmi séu tekin. Hún skilgreinir hins vegar hvernig eigi að meðhöndla spurningar um ábyrgð á ólögmætu efni. Hvað snertir ábyrgð milligöngu- aðila er greint á milli (a) miðlunar gagna um fjarskiptanet, (b) sjálf- virkrar, millistigs- og skammtíma- geymslu gagna einkum af hálfu stað- bundinna netþjóna þegar í hlut eiga vinsælar og eftirsóttar vefsíður frá fjarlægjum netþjónum og loks (c) hýsingar gagna. Í fyrsta tilfellinu ber milligönguaðili ekki ábyrgð ef hann á ekki frumkvæði að miðlun- inni, velur ekki viðtakanda og velur hvorki né breytir þeim gögnum sem miðlað er. Í öðru tilfellinu er hann fyrst og fremst undanþeginn ábyrgð ef hann breytir ekki gögnunum. Í þriðja tilfellinu ber hann ekki ábyrgð á þeim að því tilskildu að hann hafi ekki vitneskju um ólögmætt athæfi eða upplýsingar eða fjarlægi upplýs- ingarnar eða hindri aðgang að þeim tafarlaust að öðrum kosti. Þá er það tekið fram í tilskipuninni að ekki megi leggja þjónustuveitend- um þá almennu skyldu á herðar að fylgjast með því efni sem þeir miðla eða hýsa. Ábyrgð vegna hýsingar útfærð nánar Í tilskipuninni er tekið fram að að- ildarríki geti með nánari útfærslu komið á laggirnar fyrirkomulagi varðandi hvenær eigi að fjarlægja gögn eða hindra aðgang að þeim. Þetta hefur verið gert í 14. grein laga nr. 20/2002 um rafræn viðskipti hvað snertir ábyrgð þeirra sem hýsa gögn frá öðrum. Með hýsingu er t.d. átt við vistun gagna, sem gerð eru að- gengileg almenningi á Netinu, með varanlegum hætti á netþjóni. Sem dæmi um annars konar hýsingu má nefna spjallrásir og aðra miðla þar sem mögulegt er að gögn séu vistuð beint af notanda. Lögin mæla fyrir um mismunandi ábyrgðarreglur eftir því hvers konar ólögmætt efni á í hlut. Ef um barna- klám er að ræða ber þjónustuveit- anda að fjarlægja gögnin eða hindra aðgang að þeim þegar í stað eftir að hann hefur komist á snoðir um hið ólöglega atferli. Þegar um meint brot á höfundalögum er að ræða ber honum að fjarlægja gögnin eða hindra aðgang að þeim ef hann fær formlega tilkynningu frá rétthafa. Í öllum öðrum tilfellum er þjónustu- veitandi ekki ábyrgur nema hann sinni ekki lögbanni við hýsingu gagnanna eða því að dómur hafi fall- ið um brottfellingu þeirra. Þetta fyrirkomulag sem valið var við innleiðingu tilskipunarinnar hef- ur þann kost að vera skýrt og af- dráttarlaust. Ef ekki er um barna- klám að ræða þarf sá sem hýsir vefsíður fyrir aðra ekkert að aðhaf- ast fyrr en hann fær annaðhvort formlega tilkynningu frá rétthafa eða vitneskju um að lögbann hafi verið lagt eða dómur kveðinn upp. Fullyrðingar um að hann visti um- mæli sem séu ærumeiðandi eða brjóti gegn friðhelgi einkalífs eða hvers kyns aðra ólögmæta tjáningu getur hann frá lagalegu sjónarmiði látið sem vind um eyru þjóta á með- an þeim er ekki fylgt eftir með lög- bannskröfu eða dómsmáli. Sérákvæði um höfundarrétt Sérákvæðin um höfundarrétt eru fyrir margra hluta sakir athyglis- verð. Samkvæmt þeim verður hýs- ingaraðili ábyrgur fyrir broti á höf- undarrétti ef hann sinnir ekki tilkynningu frá rétthafa þar sem þess er krafist að gögn verði felld brott eða aðgangur að þeim hindr- aður. Reynslan hefur sýnt að tjón vegna höfundarréttarbrota með stafrænni tækni, þ.m.t. dreifingu á Netinu, geta verið umtalsverð. Er það ekki síst vegna þess hversu auð- velt er að dreifa gögnum á Netinu og hversu skamman tíma það tekur. Því var talið nauðsynlegt að mæla fyrir um að rétthafar og umboðsmenn þeirra geti stöðvað dreifinguna með einfaldri tilkynningu til netþjónustu- aðila. Ef þar væri látið staðar numið væri auðvitað hætta á misnotkun þessarar heimildar. Með tilliti til tjáningarfrelsis er þess vegna ráð fyrir því gert að hýsingaraðili til- kynni þjónustuþega þegar í stað að ekki sé lengur veittur aðgangur að gögnum sem frá honum stafa. „Telji þjónustuþegi brottfellingu eða hindrun aðgangs að gögnum ekki eiga við rök að styðjast er honum unnt að krefjast þess af þjónustu- veitanda að veittur verði aðgangur að gögnum á ný,“ segir í lögunum. Hýsingaraðila ber þá að tilkynna rétthafanum um hina nýju gagntil- kynningu og veita aðgang að gögn- unum eftir að tvær vikur eru liðnar nema dómsmál hafi verið höfðað í millitíðinni. Til þess að tryggja enn frekar að þessi ákvæði séu ekki misnotuð segir í lögunum að komist dómstóll að þeirri niðurstöðu að brottnám gagna hafi ekki verið réttmætt skuli sá sem fram fór á brottfellingu bæta tjón sem sá þjónustuþegi hafi orðið fyrir. Siðareglur og notk- unarskilmálar Eins og gefið hefur verið til kynna hér að ofan kveða tilskipunin og íslensku lögin einungis á um laga- lega ábyrgð milligönguaðila. Eftir sem áður er þeim frjálst að setja notendum sínum skilmála sem ganga lengra. Þannig mætti hugsa sér að hýsingaraðili lýsti því yfir að hann áskildi sér rétt til að fjarlægja efni sem stríddi að hans mati gegn lögum eða þar sem ekki væri nægilega tryggt að börn fengju ekki aðgang. Má í raun segja að það væri afar æskilegt að netþjónustuaðilar settu sér siðareglur í þessa veru hinum brýnu lagaákvæðum til fyll- ingar. Stefnumarkandi lög um ábyrgð á ólögmætu efni á Netinu Morgunblaðið/Sverrir Höfundur starfar sem lögfræðingur hjá Evrópuráðinu. Skoðanir sem kunna að birtast í þessari grein eru á ábyrgð höfundar. Vinsamlegast sendið ábendingar um efni til pall@evc.net. Til að styrkja réttaröryggi og traust manna til rafrænnar þjónustu kveða lögin um raf- ræn viðskipti á um þær lág- marksupplýsingar sem veit- endum þjónustunnar ber að veita. Ef veitt er rafræn þjón- usta á Netinu, til dæmis í formi upplýsingamiðlunar, skal vera unnt að nálgast eft- irfarandi á heimasíðu veitand- ans eða á undirliggjandi síð- um ef ljóst er af heimasíðunni hvar upplýsingarnar er að finna. Helstu upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:  Nafn þjónustuveitanda  Heimilisfang  Kennitala  Póstfang, netfang  Virðisaukaskattsnúmer  Opinbert leyfi ef því er að skipta Upplýs- inga- skylda Lög og réttur eftir Pál Þórhallsson „Ef ekki er um barna- klám að ræða þarf sá sem hýsir vefsíður fyrir aðra ekkert að aðhafast fyrr en hann fær annaðhvort form- lega tilkynningu frá rétthafa eða vitn- eskju um að lögbann hafi verið lagt eða dómur kveðinn upp.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.