Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 24
LISTIR
24 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDAUNNENDUR
muna eflaust eftir hinni mjög svo um-
töluðu kvikmynd ítalska leikstjórans
Antonioni, „Blow-up“, sem hann gerði
eftir smásögu argentínska rithöfund-
arins Julio Cortázar. Þetta ágæta
meistaraverk frá ofanverðum sjöunda
áratugnum kemur óneitanlega upp í
hugann þegar ljósmyndir Ralf
Weißleder eru skoðaðar. Eflaust er
það tilfinning hans fyrir myndhlutan-
um – detalíunni – í heildinni sem veld-
ur þessum hugrenningatengslum.
Fyrst í stað áttar áhorfandinn sig
ekki alls kostar á því hvert Weißleder
er að fara með verkum sínum. Ef til
vill erum við orðin svo vön því að sjá
ljósmyndir þannig teknar að við-
fangsefnið standi í öndvegi á fletinum
að við eigum erfitt með að leita að því í
útjaðri myndarinnar, einkum ef það
hefur ekki skýrt afmarkaða stöðu
sem mikilvægur hluti af heildinni.
Þannig leiðir hann okkur frá hinni
ströngu, evrópsku hefð til eilítið jap-
anskra hátta. Ljósmyndin sem ein-
stök – en okkar vestræna hefð hefur
löngum lagt ríka áherslu á að lista-
verkið sé einstakt – á ekki beinlínis
upp á pallborðið hjá þessum norður-
þýska listamanni. Hann virðist miklu
fremur ganga út frá því sem grund-
velli rannsókna sinna að hvert ein-
stakt skot – taka – sé hluti af langri
filmu – tólf, tvisvar tólf, eða þrisvar
tólf – sem taka beri sem ramma, eða
myndröð í ætt við rammalengju úr
myndasögu.
Á sýningunni í Galleríi Gangi geng-
ur Weißleder jafnvel enn lengra en í
mörgum syrpum sínum. Hann leiðir
okkur frá ofureinföldum, láréttum
landslagsmyndum sínum af grasi
grónu landi undir himni, út um
gluggann, að einmana tvískiptum
fána á flaggstöng sem er nákvæmt
framhald af landslagsmyndunum.
Það er eins og Ralf Weißleder vilji
segja gestum sínum að umfram allt
verði þeir að hafa augun hjá sér og at-
hyglina í lagi. Í þessum heimi er
nefnilega ekkert sjálfsagt né gefið,
ekki frekar en myndhlutinn sem
tískuljósmyndarinn í áðurnefndri
kvikmynd Antonioni uppgötvaði þeg-
ar hann „stækkaði upp“ eina myndina
af fyrirsætunni – Vanessu Redgrave
– og komst að því að linsan hans hafði
óvart numið morð í bakgrunni henn-
ar.
MYNDLIST
Gallerí Gangur, Rekagranda 8
Til septemberloka. Opið eftir sam-
komulagi í síma 551-8797.
LJÓSMYNDIR
RALF WEIßLEDER
Hvað er
á mynd-
inni?
Halldór Björn Runólfsson
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá sýningu Gallerís Gangs á ljósmyndum Ralf Weißleder.
ÁRNI Björn Árnason, sem lauk
einleikaraprófi í píanóleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík í vor,
hlaut á föstudaginn styrk til fram-
haldsnáms úr Minningarsjóði um
Birgi Einarsson apótekara. Sjóð-
urinn styrkir unga píanóleikara til
framhaldsnáms í klassískum píanó-
leik. Það var Inga Ásta Hafstein,
formaður sjóðsstjórnar og dóttir
Birgis, sem afhenti Árna Birni
styrkinn, sem er að upphæð
500.000 kr.
Árni Björn er á leið í framhalds-
nám við Síbelíusarakademíuna í
Helsinki í Finnlandi í haust. Í sam-
tali við Morgunblaðið segir hann
styrkinn eiga eftir að nýtast sér
mjög vel. „Í raun bjargar hann al-
veg vetrinum fyrir mig. Ég mun
nýta hann í húsnæði, uppihald og
skólabækur og vegna hans get ég
nú til dæmis komið heim um jólin,“
segir hann og brosir.
Þetta er í þriðja sinn sem veitt er
úr sjóðnum, en hann var stofnaður
að frumkvæði eiginkonu Birgis,
Önnu Egilsdóttur Einarsson árið
1995. Í fyrra hlaut Víkingur Heiðar
Ólafsson styrk úr sjóðnum, en hann
er nú við nám í Juilliard-háskóla í
New York, og árið þar á undan
hlaut Ástríður Alda Sigurðardóttir
styrk, en hún er nú við nám í Ind-
iana University School of Music.
Ásamt Ingu Ástu sitja í stjórn
sjóðsins píanóleikararnir Halldór
Haraldsson, Anna Þorgrímsdóttir,
Snorri Sigfús Birgisson og Ólafur
Vignir Albertsson, sem kom í stað
Gísla Magnússonar, er lést í fyrra.
Auk þess á sæti í stjórninni Magnús
B. Einarsson læknir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Inga Ásta Hafstein og Árni Björn Árnason.
Hlaut styrk til fram-
haldsnáms í píanóleik
Í SAL Söngskólans við Veghúsastíg
gefst kostur á að hlýða á afrakstur
söngnámskeiðs, sem staðið hefur yf-
ir í Söngskólanum í Reykjavík fyrir
söngvara og lengra komna, á tónleik-
um á sunnudag, kl. 17. Þar koma
fram 12 söngvarar og flytja fjöl-
breytta efnisskrá ljóða og óperutón-
listar. Píanóleikari er Richard Simm.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var
Laura Brooks Rice messósópran, en
hún kennir við Westminster-tónlist-
arháskólann í Princeton í Bandaríkj-
unum.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Uppskeru-
tónleikar
Söngskólans
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
Í byrjun september hefst
hópþjálfun að nýju í
Sjúkraþjálfuninni Styrk
í Stangarhyl 7, Reykjavík.
Í boði verða:
Vefjagigtarhópar.
Hjartahópur.
Bakhópur.
Þrek og teygjur fyrir stirða.
Góð leikfimi fyrir konur.
Fjöldi verður takmarkaður í hópana
og vel er fylgst með hverjum og
einum, en leiðbeinendur eru allir
sjúkraþjálfarar.
Frír aðgangur er að tækjasal í
hópþjálfuninni.
Nýir þátttakendur eru velkomnir.
Einnig er hægt að kaupa
mánaðarkort/árskort í vel útbúinn
tækjasal.
Nánari upplýsingar og skráning
er í síma 587 7750.
Hópþjálfun - Tækjasalur
Söngmenn óskast!
KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR
Raddpróf nýrra söngmanna fara fram í Fóstbræðraheimilinu
Langholtsvegi 109, vikuna 2. - 7. september nk.
Upplýsingar um raddpróf og umsóknir er að finna
á heimasíðu kórsins á veffanginu www.fostbraedur.is.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Nánari upplýsingar fást hjá formanni kórsins,
Eyþóri Eðvarðssyni í síma 892 5057.
Á góðum bíl innanlands með AVIS og VISA
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is
Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig
Minnum á VISA tilboð á bílum erlendis
Vikuleiga / 7 dagar
Flokkur A Opel Corsa kr. 21.999.-
Flokkur B Opel Astra kr. 24.199.-
Flokkur C Opel Astra St. kr. 29.999.-
Flokkur E Suzuki Jimny kr. 29.999.-
Flokkur F Suzuki Vitara kr. 33.000.-
Flokkur P Nissan Terrano kr. 39.999.-
Innifalið í verði er 7 dagar, 500 km, vsk. og trygging.
(Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga.)
Ekkert bókunargjald. Gildir til 1.12.2002
Helgarleiga / 3 dagar
Flokkur A Opel Corsa kr. 9.999.-
Flokkur B Opel Astra kr. 11.999.-
Flokkur C Opel Astra St. kr. 13.999.-
Flokkur E Suzuki Jimny kr. 15.999.-
Flokkur F Suzuki Vitara kr. 18.999.-
Flokkur P Nissan Terrano kr. 22.999.-
Innifalið í verði er 3 dagar, 250 km, vsk. og trygging.
(Verð miðast við lágmarksleigu 3 daga.)
Ekkert bókunargjald. Gildir til 1.12.2002
www.avis.is
Við
gerum
betur
Haustglaðningur fyrir korthafa VISA
Það er óþarfi að kaupa bíl fyrir fríið eða til að snúast í bænum
AVIS
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA