Morgunblaðið - 25.08.2002, Síða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 25
KRISTJÁN Jó-
hannsson tenór-
söngvari hyggst
standa fyrir nám-
skeiði fyrir óperu-
söngvara í bænum
Desenzano á Ítalíu í
haust. Um er að ræða
nokkurs konar
„masterclass“-nám-
skeið fyrir 10 til 15
þátttakendur sem
áætlað er að standi
yfir um sex vikna bil,
frá 20. október til
loka nóvember.
Desenzano í
Brescia-héraði á Ítal-
íu hefur verið heimabær Kristjáns
Jóhannssonar og fjölskyldu hans um
árabil. Þar stendur fyrir dyrum að
koma á fót menningarstofnun sem
tileinkuð verður Kristjáni en hann
er jafnframt heiðursborgari í bæn-
um. Það var bæjarstjórn Desenzano
sem átti frumkvæðið að stofnun mið-
stöðvarinnar er bera mun heitið
Associazione Culturale Kristján Jó-
hannsson og verður vígð eftir næstu
áramót. Að sögn Kristjáns markar
„masterclass“-námskeiðið upphafið
að frekari starfsemi stofnunarinnar,
sem hópur áhugafólks um listir og
menningu vinnur að því að byggja
upp.
„Það er mikill áhugi fyrir upp-
byggingu þessarar miðstöðvar hér í
bænum og er mér mikill heiður
sýndur með stofnun hennar. Bærinn
hefur afhent verkefninu húsnæði í
glæsilegri byggingu frá 18. öld sem
heitir Villa Bruni,“ sagði Kristján
þegar Morgunblaðið innti hann eftir
nánari fróðleik um stofnunina og
námskeiðið sem haldið verður í
haust. „Um er að ræða langtíma-
verkefni og höfum við ýmsar hug-
myndir um hvernig nýta megi þessa
menningarstofnun. En fyrsta skref-
ið verður sem sagt þetta námskeið
og er markmiðið með því að full-
komna og fínstilla sönghæfileika.
Kennslan verður tvíþætt, annars
vegar í tækni og hins vegar í túlkun.
Þannig munu allir fara í gegnum
tækniæfingar og hljóta tilsögn í
raddbeitingu og öndun en þeir sem
lengra eru komnir færu nánar í túlk-
unina.“
Munt þú leiðbeina sjálfur á nám-
skeiðinu?
„Já, það mun ég gera ásamt Matt-
eo Falloni píanóleikara og Franco
Ghitti tenórsöngvara. Þá verður
góðvinur minn Giov-
anni Andreoli, hljóm-
sveitarstjóri og list-
rænn ráðunautur við
Teatro Grande hér í
Brescia, með okkur í
þessu,“ segir Krist-
ján.
Vill stofna um-
boðsskrifstofu
En hvaða framtíð-
aráform eru uppi um
starfsemi Stofnunar
Kristjáns Jóhanns-
sonar í Desenzano?
„Hugmyndin er sú
að hægt verði að
halda um tvö námskeið á ári við
stofnunina, að hausti og vori, þar
sem teknir yrðu inn söngvarar hvað-
anæva. Við vonumst til að geta fljót-
lega bætt við kennslu í framkomu og
leiklistarlegum þáttum tengdum óp-
erusöng. Þá stefnum við að því að
efna til söngkeppni í lok hvers nám-
skeiðs sem haldin yrði undir beru
lofti á aðaltorginu hér í bænum.“
Kristján hefur uppi áform um
metnaðarfulla starfsemi tengda
stofnuninni þegar til framtíðar er lit-
ið. „Það má ímynda sér að þegar
hægir um hjá mér, kannski eftir tíu
ár eða svo, geti þetta orðið heils-
ársakademía, þar sem starfrækt
yrði ákveðin fræðslu- og miðlunar-
starfsemi fyrir óperusöngvara. Mig
langar til að vinna að því að koma
söngvurunum á framfæri ekki síður
en að þjálfa þá. Ég hef þannig hug á
að stofna nokkurs konar umboðs-
skrifstofu þar sem hægt yrði að
veita efnilegum söngvurum ráðgjöf
og skapa þeim nauðsynleg sambönd.
Það vill nefnilega oft verða útundan
að þessu unga fólki, sem er að leggja
út í sinn feril, sé hjálpað að vega og
meta þau tilboð sem það fær. Þar er
nauðsynlegt að hver og einn velji
þau hlutverk sem henta honum,
hvað raddtegund og tónbókmenntir
varðar. Fólk fer óhjákvæmilega út í
það að taka öllu sem því býðst en oft
getur verið skynsamlegra að sitja á
sér og velja það sem hentar best. Ég
held að það sé mikil þörf á starfsemi
af þessu tagi, og vonast ég til þess að
geta miðlað þeirri reynslu sem ég
hef af óperuheiminum og greitt
þannig leið ungra og efnilegra
söngvara, íslenskra sem erlendra,
sem eru að stíga sín fyrstu spor í
þessum heimi,“ segir Kristján að
lokum.
Íslenskir óperusöngvarar munu
hafa aðgang að mastarclass-nám-
skeiðinu sem Kristján heldur í
haust, og verður nánari tilhögun
þess auglýst síðar. Að sögn Krist-
jáns geta áhugasamir þó leitað upp-
lýsinga hjá Jóhanni Friðgeiri Valdi-
marssyni í síma 896-3038 eða hjá
Kristjáni Jóhannssyni í tölvupóst-
fanginu kiddi@tin.it.
Kristján Jóhannsson
efnir til námskeiðs
Kristján Jóhannsson.
ENSKA ER OKKAR MÁL
Innritun
í fullum
gangi
Ensku talnámskeið
Einnig önnur
fjölbreytt enskunámskeið
Susan Taverner
Hringdu í síma
588 0303
FAXAFENI 8
www.enskuskolinn.is
enskuskolinn@isholf.is
Julie Ingham Sandra Eaton John O’Neill Susannah Hand Joanne Rinta
Kennsla í Reykjavík, Selfossi og á Akureyri
Verzlunarskóli
Íslands
Verzlunarskóli Íslands verður settur
mánudaginn 26. ágúst kl. 10.00
í hátíðarsal skólans.
Verzlunarskóli Íslands,
Ofanleiti 1 • Sími 590 0600
Jóga fyrir 60 ára
og eldri
Guðrún Egilsdóttir kennir einfaldar
æfingar með mikilli áherslu á
öndun og slökun.
Kennt verður þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 10.30
í jógastöðinni Jóga hjá
Guðjóni Bergmann,
Ármúla 38, 3. hæð.
Byrjum aftur eftir sumarfrí 3. sept.
Verð: 5.900 kr.
Nánari upplýsingar í síma 690 1818.
og á www.gbergmann.is