Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"
#
$ "
#
%
&
'
'(
!)
(
!
*
#+
,
#
-
-
- .(
#
)
-
Eva³
%
%
/
0
%
!" !#
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT
Endurnýjun áskriftarkorta hefst mánudaginn 26. ágúst
VERTU MEÐ Í VETUR
Stóra svið
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Lau 31. ágúst kl 20
Ath: örfáar sýningar í haust
AND BJÖRK OF COURSE
e. Þorvald Þorsteinss.
Lau 31. ágúst kl 20
í Herðubreið, Seyðisfirði
Leikferð
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
ÍSLENSKUR plötumarkaður ermerkilega fjörlegur miðað viðstærð hans; það er í raunmerkilegt að úrval sé eins gott
að það í raun er, þó heldur hafi
kreppt að tónlistarvinum undanfarna
mánuði. Þrátt fyrir það eru í honum
eyður sem sumar eru býsna sér-
kennilegar og þá aðallega þegar
bandarískar jaðarútgáfur eru annars
vegar. Skýringar á því eru sjálfsagt
margar, meðal annars hve dýrt er að
kaupa plötur frá Bandaríkjunum, en
ekki gott að sjá hvað valdi því að til
að mynda hafi ekki fengist hér plötur
frá Sub Pop merkinu bandaríska í
áraraðir. Ekki er þó ástæða til að
velta því of lengi fyrir sér því inn-
flutningur á Sub Pop skífum hófst í
síðustu viku og margar forvitnilegar
skífur þaðan ættu að vera fáanlegar
þegar þetta kemur fyrir augu manna.
Það er kannski fulllangt gengið að
segja að Sub Pop skífur hafi ekki
fengist hér á landi, því fyrirtækið
gerði samning við Warner útgáfuris-
ann fyrir nokkrum árum og þannig
hafa sumar af skífum fyrirtækisins
fengist hér á landi, til að mynda plöt-
ur Sebadoh, Nirvana, Afghan Whigs
og Soundgarden svo dæmi séu tekin,
en Sub Pop, sem er í Seattle, var á
sínum tíma helsta útgáfa grunge-
rokksins og gaf út fyrstu skífur Nirv-
ana. Aftur á móti hefur verið snúnara
að ná í skífur Reverend Horton Heat,
Sunny Day Real Estate, Supersuck-
ers, Dwarves, Mark Lanegan, Pern-
ice Brothers, Arlo, Beachwood
Sparks, Beat Happening, Chappa-
quiddick Skyline, Damien Jurado,
Damon & Naomi, Steve Fisk,
Mudhoney, Red House Painters,
Scud Mountain Boys, Ugly Casanova
og The Shins svo dæmi séu tekin, en
þess má geta að skífa The Shins er
með bestu plötum sem komu út vest-
an hafs á síðasta ári og stuttskífa
Beachwood Sparks vakti mikla at-
hygli einnig.
Það er kostur að nú sé hægt að fá
Sub Pop skífur hér á landi, en und-
anfarin ár hefur maður þurft að sæta
færis í ferðum til útlanda eða kaupa á
Netinu. Til gamans fylgir stuttur
leiðarvísir yfir nokkrar forvitnilegar
Sub Pop skífur.
Eins og getið er vakti Beachwood
Bandarísk
nýbylgja
The Shins
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Lengi hafa tónlistarvinir beðið eftir því að plötur
bandarísku útgáfunnar Sub Pop fengjust hér á
landi. Nú eru þær komnar og þá loks hægt að
kaupa plötur Sunny Day Real Estate, Beachwood
Sparks, Damon & Naomi og The Shins, svo dæmi
séu tekin.