Morgunblaðið - 06.09.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vala hyggst keppa á
tugþrautarmóti í Þýskalandi/C4
Ungverjar eru hentugir
andstæðingar/C3
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Undir Nausthömrum/B1
Skór hafa sál/B2
Framhaldsskólanemar og framfærslan/B4
Sekkjaspark/B6
Heimanámið/B6
Auðlesið efni/B8
RÚMLEGA 40 björgunarsveitar-
menn ásamt slökkviliði og lögreglu
voru kallaðir út eftir að unglings-
stúlka féll um 20 metra niður
bratta hlíð Múlafjalls í Botnsdal um
hádegisbil í gær. Fjórir skóla-
félagar hennar sem voru henni
samferða lentu í sjálfheldu og var
hjálpað niður af björgunarsveit-
armönnum.
Stúlkan var flutt á Landspítala –
háskólasjúkrahús með TF-SIF,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, en
skv. upplýsingum frá lækni á vakt á
slysadeild eru meiðsl hennar ekki
eins alvarleg og fyrst var talið. Hún
marðist og hruflaðist á baki.
Unglingarnir voru í árlegu skóla-
ferðalagi 10. bekkjar Foldaskóla í
Grafarvogi. Alls voru 65 nemendur
ásamt fimm kennurum í gönguferð
á milli Brynjudals og Botnsdals
þegar slysið varð. Kristinn Breið-
fjörð Guðmundsson, skólastjóri
Foldaskóla, segir að stúlkan hafi
verið í litlum hópi nemenda sem
hafi farið á undan öðrum nem-
endum og kennurum og þar með
brotið gegn fyrirmælum kennara.
Þau hafi farið út af gönguleiðinni
og síðan lent í ógöngum. Nokkrir
komust af sjálfsdáðum til baka en
stúlkunni skrikaði fótur. Að sögn
Friðfinns Freys Guðmundssonar
hjá svæðisstjórn Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar virðist sem hún
hafi fallið um 20 metra milli syllna í
hlíðinni þar til hún stöðvaðist á
grasbala. Björgunarsveitarmenn
sem voru á vettvangi telji mikið
happ að hún skyldi þó ekki renna
lengra niður hlíðina. Eftir þetta
þorðu fjórir félagar hennar sig
hvergi að hræra og biðu hjálpar.
Skv. upplýsingum frá Neyðarlínu
lét annar rútubílstjóri hópsins vita
af óhappinu klukkan 12:12. Símtöl
frá nemendum fylgdu í kjölfarið og
voru margir þeirra ekki alveg viss-
ir um staðsetningu eða hversu al-
varleg meiðsl stúlkunnar væru.
Þrátt fyrir tilmæli um að láta stúlk-
una liggja þar til sjúkralið kæmi
henni til hjálpar hafi verið reynt að
styðja hana niður hlíðina. Fjórir
menn á sjúkrabíl og sérútbúnum
jeppa landflokks Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins fóru á vettvang
og komu þeir í Botnsdal um klukk-
an 13. Eftir það kom í ljós að fjórir
nemendur voru í sjálfheldu í hlíð-
inni og hlúði sjúkraflutningsmaður
að þeim þar til björgunarsveit-
armenn, sem höfðu verið fluttir
upp á fjallið með TF-SIF, komu
þeim til aðstoðar. Stúlkan var síðan
flutt með þyrlu til Reykjavíkur um
einni og hálfri klukkustund síðar
en björgunarsveitarmenn settu
fjórmenningana í línu og fylgdu
þeim niður.
Í fréttatilkynningu frá Landhelg-
isgæslunni kemur fram að beiðni
barst frá lögreglunni í Borgarnesi
um að þyrlan yrði sett í viðbragðs-
stöðu klukkan 12:30 en beiðnin var
afturkölluð af Neyðarlínu 15 mín-
útum síðar. Stundarfjórðungi síðar
óskaði Neyðarlína eftir að þyrlan
yrði sett í viðbragðsstöðu á nýjan
leik og klukkan 13:14 kom beiðni
frá lögreglu um að þyrlan yrði send
á vettvang.
Að sögn Kristins Breiðfjörð var
nemendum brugðið en þeir jöfnuðu
sig þó fljótt og vildu allir halda
skólaferðalaginu áfram. Ætlunin
var að gista í Skorradal í nótt.
Stúlkan var hífð um borð í TF-LÍF úr fjallshlíðinni þar sem björgunarsveitarmenn og slökkviliðsmenn höfðu búið hana undir flutning.
Skrikaði fótur og féll
niður snarbratta hlíð
Stúlka slasaðist í skólaferðalagi og
fjórir nemendur lentu í sjálfheldu
UMFERÐ um Hvalfjarðargöngin
fyrstu átta mánuði ársins var nærri
4% meiri en sama tíma í fyrra. Um
síðustu mánaðamót höfðu um 907
þúsund bílar farið um göngin frá ára-
mótum en tekjurnar námu um 570
milljónum króna, sem er tæplega 2%
samdráttur frá sama tíma í fyrra.
Stjórn Spalar hf. kemur saman til
fundar eftir helgi þar sem gjald-
skrármál verða m.a. á dagskrá.
Að sögn Gísla Gíslasonar, stjórn-
arformanns Spalar og bæjarstjóra á
Akranesi, er talið ólíklegt að gjald-
skráin verði hækkuð frá því sem ver-
ið hefur. Ákveðið hafi verið í upphafi
árs að halda gjaldskránni óbreyttri
ef gengisþróun leyfi það. Sú þróun
hafi verið hagstæð og þrátt fyrir
aukinn kostnað innanlands eigi fé-
lagið að geta staðið við þá stefnu sína
að halda gjaldskránni óbreyttri eins
lengi og hægt sé.
Ástæðan fyrir minni tekjum, að
sögn Gísla, er aðallega sú að fleiri
bíleigendur nýta sér afsláttarkjör en
áður og er hlutfall þeirra af allri um-
ferð um göngin á bilinu 60-65%. Gísli
segir að það sé viðunandi hlutfall og í
samræmi við áætlanir Spalar. Nið-
urgreiðsla lána er sömuleiðis á áætl-
un og segist Gísli almennt vera sátt-
ur við fjárhagsstöðu ganganna í dag.
Áætlanir miðuðust við að göngin
borguðu sig upp á 20 árum þannig að
í kringum árið 2016 þyrfti ekki leng-
ur að innheimta veggjald.
Stefnir í hagnað hjá
Speli á rekstrarárinu
Samkvæmt níu mánaða uppgjöri
Spalar, þar sem reikningsárið hefst í
október, var hagnaður félagsins um
108 milljónir króna miðað við stöð-
una í lok júní sl. Gísli segir að þrátt
fyrir bata í gengisþróuninni síðustu
mánuði hafi það sem tapaðist ekki
skilað sér allt til baka. Þegar verst
lét hafi gengistapið verið 707 millj-
ónir króna en gengishagnaður síð-
ustu mánaða sé nú 277 milljónir
króna. Gísli segir að þótt aukning
umferðar um göngin sé minni nú en
fyrst eftir að þau voru opnuð í júlí ár-
ið 1998 þá geti hún talist mjög eðlileg
miðað við þróun umferðar almennt
hér á landi. Árið 1999 fór um 1 millj-
ón bíla um göngin, um 1,1 milljón ár-
ið 2000, 1,2 milljónir í fyrra og um
907 þúsund fyrstu átta mánuði árs-
ins sem fyrr segir. Gísli segir þessa
þróun vera vel viðunandi og í raun
umfram það sem vænst hafi verið í
upphafi.
Hækkanir á gjaldskrá Hvalfjarðarganga eru taldar ólíklegar
Aukin umferð er um
göngin en minni tekjur
Fíkniefn-
in fund-
ust vegna
hávaða
HÁREYSTI og fyrirgangur í
íbúð í Grafarvogi urðu til
þess að lögreglan í Reykjavík
lagði hald á um 51 gramm af
amfetamíni, 489 e-töflur, 545
grömm af hassi og 103
grömm af kókaíni. Afskipti
lögreglunnar hófust vegna
kvartana nágranna um há-
vaða sem barst frá íbúðinni.
Ríkissaksóknari hefur nú
ákært rúmlega tvítugan mann
fyrir að hafa efnin í sinni
vörslu en talið er að þau hafi
verið ætluð til sölu.
Hald var lagt á mikið
magn vopna
Auk fíkniefnanna fannst
þýfi í íbúðinni og auk þess
lagði lögregla hald á níu hnífa
með allt að 21 cm löngum
hnífsblöðum, sveðju, sex loft-
skammbyssur, startbyssu,
loftriffil, bogarör og skotfæri.
Húsleitin var gerð í desember
2000 en maðurinn hefur einn-
ig verið ákærður fyrir að
kaupa e-töflur og fyrir um-
ferðarlagabrot sem hann
framdi í janúar á þessu ári.
Er hann sakaður um að hafa
ekið bifreið um Reykjavík án
þess að hafa ökuréttindi og
undir áhrifum lyfja og áfeng-
is. Skv. ákæru ók hann síðan
inn í bifreiðageymslu við þá-
verandi heimili sitt í fjölbýlis-
húsi í vesturbænum án þess
að opna bílskúrsdyrnar fyrst
og eyðilagðist hurðin við
áreksturinn.
Grafarvogur
Stofnfjárskrá SPRON
Úrskurð-
urinn var
staðfestur
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að heimilt sé að rita niður upplýs-
ingar úr skrá um stofnfjáreigendur í
SPRON.
Stofnfjáreiganda var í sumar
meinað að rita skrá um stofnfjáreig-
endur í SPRON. Í dómi Hæstaréttar
segir að í hinum kærða úrskurði sé
með réttu sagt að ágreiningur aðila
lúti að því hvað felist í orðunum að
„eiga aðgang“ að skrá yfir stofnfjár-
eigendur sem fjallað sé um í 8. gr.
samþykkta sparisjóðsins. Héraðs-
dómari hafi komist að þeirri niður-
stöðu að í orðunum felist að heimilt
sé að rita upplýsingar úr skránni.
Með þeirri athugasemd og með vísan
til forsendna hins kærða úrskurðar
að öðru leyti sé hann staðfestur.