Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FUNDIST hafa áður óþekktir
hellar í Skaftáreldahrauni sem
teljast til merkilegustu hellaupp-
götvana síðari ára. Sumir þeirra
eru mörg hundruð metra langir
og sá stærsti tæpir 2 km að lengd
eða á stærð við stærsta helli
landsins, sjálfan Surtshelli. Það
voru íslenskir og erlendir vís-
indamenn sem fundu hellana og
verður rannsóknarskýrsla um þá
rædd á alþjóðlegri ráðstefnu sem
byrjar í Reykjavík á sunnudaginn.
Ljósmynd/Hellarannsóknafélag Íslands
Einn merkilegasti hellafundur síðari ára
„Mikil ævintýraveröld…“/6
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR, Sam-
fylking og Vinstrihreyfingin – grænt
framboð auka fylgi sitt lítillega frá
síðustu alþingiskosningum fyrir
þremur árum, en Framsóknarflokk-
urinn og Frjálslyndi flokkurinn tapa
fylgi ef marka má niðurstöður nýrr-
ar skoðanakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands fyrir
Morgunblaðið.
Samkvæmt niðurstöðunum naut
Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings
41,7% aðspurðra en fékk í kosning-
unum fyrir þremur árum 40,7% at-
kvæða. Samfylkingin fengi 27,1% en
fékk í kosningunum 1999 26,8% at-
kvæða. Framsóknarflokkurinn fékk
nú 17,6% , en fékk í kosningunum
1999 18,4%, VG fékk 11,7% en fékk í
kosningunum 9,1% atkvæða og
Frjálslyndi flokkurinn fékk nú 1,6%
en fékk 4,2% í kosningunum árið
1999.
27,1% neitaði að svara
Um er að ræða símakönnun sem
fram fór á tímabilinu 24.–31.ágúst.
Úrtakið var 1.200 manns á aldrinum
18–80 ára og var nettósvörun 56,1%.
Þeir sem neituðu að svara voru
27,1% og ekki náðist í 16,8%.
Spurt var: Ef alþingiskosningar
væru haldnar á morgun hvaða flokk
eða lista myndir þú kjósa? Ef fólk
sagðist ekki vita það var haldið
áfram og spurt hvaða flokk eða lista
líklegast væri að það kysi og ef svar
fékkst ekki við því var spurt hvort
líklegra væri að það kysi Sjálfstæð-
isflokkinn eða einhvern annan flokk.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofn-
unar HÍ fyrir Morgunblaðið
Fylgið svipað
og í síðustu
kosningum
Svipuð niðurstaða/10
Íslendingar sækja í
sólina vegna ótíðar
TALSMENN ferðaskrifstofa hér
á landi sem Morgunblaðið ræddi
við í gær, segjast hafa orðið varir
við aukna eftirspurn eftir sólar-
landaferðum nú á haustmánuð-
um. Segja þeir að svo virðist sem
margir hverjir séu orðnir heldur
þreyttir á vætutíðinni að und-
anförnu.
„Fólk kemur til okkar og vill
bara komast í sól,“ segir Páll Þór
Ármann, markaðs- og sölustjóri
hjá Úrvali–Útsýn. Hann segir
mikið hafa verið að gera hjá
ferðaskrifstofunni síðustu tvær til
þrjár vikurnar, en Úrval–Útsýn
býður m.a. ferðir til sólarstaða á
borð við Portúgal, Mallorca, Krít
og Benidorm. Hann segir að þeg-
ar sé að verða uppselt til margra
þessara áfangastaða í september.
„Maður finnur oft fyrir aukinni
eftirspurn þegar veðrið hefur
verið eins og það hefur verið á
undanförnum vikum.“
Sigurjón Hafsteinsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri hjá Terra
Nova–Sól, segir að bókanir hafi
verið líflegar hjá ferðaskrifstof-
unni síðustu vikurnar, en félagið
flýgur m.a. til Portúgals og Spán-
ar. „Maður heyrir á fólkinu sem
er að bóka að það er búið að fá
nóg af veðráttunni,“ útskýrir
hann. „Það er mikið um að fólk
fari í styttri ferðir. Því finnst
jafnvel nóg að komast í sól í viku
og fá þannig tilbreytingu frá
veðrinu hér á landi.“
MARKAÐSVERÐ Baugs hækkaði
um 2,3 milljarða króna eða 10,6% í
viðskiptum gærdagsins í Kauphöll
Íslands og er verðmæti félagsins nú
23,5 milljarðar króna.
Þessi hækkun varð í framhaldi af
tilkynningu um að samkomulag hefði
orðið milli Baugs og breska fjárfest-
isins Philips Greens um að Baugur
seldi Green 20% hlut sinn í Arcadia.
Green gerir nú tilboð í allt hlutafé
Arcadia.
Verði af viðskiptunum mun Green
greiða yfir eitt hundrað milljarða
króna fyrir Arcadia, og hlutur Baugs
fer á rúman 21 milljarð króna. Sölu-
hagnaður Baugs af þessum viðskipt-
um verður 9,5 milljarðar króna.
Markaðs-
verð Baugs
hækkar um
2,3 milljarða
Baugur/18
SJALDAN er ein báran stök, sólar-
minnsti mánuður á Akureyri í
þrettán ár er rétt að baki og ekki
hefur betra tekið við. Á Akureyri
rigndi eins og hellt væri úr fötu í
allan gærdag og muna menn vart
annað eins. Úrkoman mældist tæpir
30 mm frá því klukkan 9 í gær-
morgun til kl. 18 og þá hélt enn
áfram að rigna.
Gert var ráð fyrir að stytta
myndi upp um nóttina eða með
morgninum og að hið þokkalegasta
veður yrði fyrir norðan í dag.
Harðfengir knattspyrnumenn á
Akureyri létu polla og slabb ekki á
sig fá og æfðu af krafti glaðbeittir á
svip. Hvort svipurinn breyttist við
faðmlag við móður jörð er ekki vit-
að.
Morgunblaðið/Kristján
Úrfelli í
Eyjafirði
Skipverji
féll út-
byrðis í
Faxaflóa
SKIPVERJI á dragnótabátnum
Reykjaborg RE-25 bjargaðist giftu-
samlega eftir að hafa fallið útbyrðis á
áttunda tímanum í gærkvöld, en þá
var báturinn í Faxaflóa, um 20 sjó-
mílur norður af Reykjavík.
Rafn Haraldsson, framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöld, að
krani, sem m.a. hefði það hlutverk að
draga veiðarfæri um borð, hefði rifn-
að af dekki bátsins, og farið í sjóinn.
Svo virtist sem kraninn hefði í leið-
inni rekist í skipverjann með þeim
afleiðingum að hann féll líka í sjóinn.
„Skipstjórinn, sem var í stýrishús-
inu, sá atvikið, reif upp hurðina og
fór á eftir skipverjanum,“ sagði
Rafn.
Skipstjórinn náði í
handlegg mannsins
Skipstjórinn, Guðmundur Hall-
dórsson, sagði að hann hefði haldið
sér í bátinn, teygt sig til skipverjans
og náð í handlegginn á honum, þann-
ig að hann hefði getað gripið í kran-
ann. Síðan hefðu aðrir skipverjar
komið til hjálpar og náð þeim báðum
um borð. Aðspurður segir Guðmund-
ur að nokkur alda hafi verið. Alltaf sé
alvarlegt þegar maður fari fyrir
borð. „Með sameiginlegu átaki okkar
allra náðum við honum um borð,“
segir Guðmundur. Skipverjanum
virðist ekki hafa orðið meint af volk-
inu, en hann var nokkrar mínútur í
sjónum. Hann var með hjálm og
klæddur venjulegum sjógalla.
„Hann slapp furðanlega vel,“ segir
Guðmundur.
Eftir atvikið hélt báturinn til lands
og var búist við honum í Reykjavík-
urhöfn um miðnætti, með kranann í
eftirdragi.