Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 11
RÁÐSTEFNA undir yfirskriftinni
„Sjálfbær matvælaframleiðsla“
verður haldin á Hótel Sögu nk.
miðvikudag þar sem rætt verður
um mikilvægi ferðaþjónustu og
framleiðslu afurða á sjálfbæran
hátt og í sátt við umhverfið. Ráð-
stefnan er haldin af átaksverk-
efninu Áform sem staðið hefur
undanfarin fjögur ár þar sem
meðal annars hafa verið kannaðir
markaðsmöguleikar á íslenskum
afurðum erlendis á grundvelli
gæða, hreinlætis og hollustu.
Frummælendur á ráðstefnunni
verða Árni M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra, Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra, Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra, Sigurgeir Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri Bændasamtak-
anna, og Elín Berglind Viktors-
dóttir, fulltrúi Ferðaþjónustu
bænda.
Þá munu nokkrir fulltrúar
verslana og veitingahúsa í Banda-
ríkjunum halda erindi en þeir
eru: Roger Berkowich, forstjóri
og aðaleigandi Legal Sea Foods,
Mel Coleman, forstjóri Coleman
Natural Beef, Laurie Rock, mark-
aðsstjóri Whole Foods versl-
anakeðjunnar í New York, Denn-
is O’Donnel, verslunarstjóri hjá
Whole Foods í Washington og
Jeff Tunks, yfirmatreiðslumeist-
ari hjá DC Coast í Washington.
Íslenskt lambakjöt selt í 54
verslunum í Bandaríkjunum
Að sögn Baldvins Jónssonar,
verkefnisstjóra átaksverkefnisins
Áforms, hafa verslanir Whole
Foods á austurströnd Bandaríkj-
anna selt íslenskar afurðir í
verslunum sínum undanfarin ár.
Verslanirnar leggja mikið upp úr
því að koma á framfæri nafni Ís-
lands sem framleiðslulands af-
urða sem byggjast á sjálfbærni
framleiðslunnar, gæðum og
hreinleika, í öllum sínum kynn-
ingum. Þá fjölgar stöðugt veit-
ingastöðum sem selja íslenskar
afurðir á sömu forsendum, að
hans sögn.
Fyrir fjórum árum var íslenskt
lambakjöt selt í fjórum versl-
unum vestanhafs, árið eftir var
kjötið selt í 22 búðum, 33 búðum
í fyrra og í ár er íslenskt kjöt selt
í 54 búðum á austurströnd
Bandaríkjanna, að sögn Baldvins.
„Það sem tengist þessu líka er
auðvitað að þessar verslanir eru
að selja mikið af íslenskum fiski.“
Baldvin bendir á að ef fisk-
urinn sé frá Íslandi sé það sér-
staklega tilgreint á auglýs-
ingatöflu yfir fiskborðinu. Þá er
íslenskt vatn til sölu í sumum
verslananna, íslensk bleikja og
lax, bæði reyktur og ferskur.
„Við horfum eiginlega á þetta
sem heildræna kynningu á Íslandi
inni í þessum búðum sem síðan
tengist ferðaþjónustunni,“ segir
Baldvin.
Hann minnir á í þessu sam-
bandi að Flugleiðir hafi kynnt
starfsemi sína og Ísland í sömu
verslunum í Bandaríkjunum
ásamt öðrum fyrirtækjum sem
eru þátttakendur í Iceland Nat-
urally.
Að sögn Baldvins eru verslanir
Whole Food lúxusverslanir sem
tryggja neytendum að þeir selja
ekki vörur nema hafa sjálfir vott-
að umhverfið sem þær koma úr.
Sem dæmi, bendir hann á, að
fulltrúar verslananna hafi komið
hingað til lands og heimsótt
bændur og verið viðstaddir sauð-
burð og sláturtíð. Að sögn Bald-
vins er tilgangurinn með heim-
sóknum af þessu tagi að
sannfærast um að hér sé stund-
aður búskapur á sjálfbæran hátt
sem þeir telja grundvallar-
atriði til að koma í veg fyr-
ir sjúkdóma og umhverfis-
spillingu.
„Við höfum hægt og bít-
andi verið að þróa þetta
samstarf okkar við þá og
reynt að horfa á þetta frá
þeim sjónarhóli að reyna að
koma fleiri vörum inn í
verslanirnar.“
Í athugun að flytja út
fleiri mjólkurafurðir
„Það er alltaf verið að
fjölga vörutegundum og
enn erum við að skoða
möguleikana á að flytja út
osta og jafnvel einhverjar
mjólkurafurðir.“
Baldvin nefnir að fulltrú-
ar verslana og veit-
ingastaða sem hingað hafa
komið hafi heillast mjög af
því að hér á landi er stund-
aður sjávarútvegur á
grundvelli fiskveiðistjórn-
unarkerfis og telja nauð-
synlegt að allur sjávar-
útvegur í heiminum sé
stundaður með samskonar
hætti.
„Þeir hafa líka litið svo á
að þessi sjálfbæri landbún-
aður sem stundaður er á Íslandi
og felst í blönduðum búskap í
dreifbýli, sé kannski lausnin á því
að koma í veg fyrir sjúkdóma
með því að geta rakið uppruna
dýranna til bóndans,“ segir Bald-
vin.
Hann bendir á að það sem rætt
hafi verið um á leiðtogafundi
Sameinuðu þjóðanna í Jóhann-
esarborg um sjálfbæra þróun séu
Íslendingar í raun nú þegar að
framkvæma. Baldvin ítrekar að
bandarískar verslanir vilji gjarn-
an rækta gott samband við bænd-
ur hér á landi. Þeir hafi sýnt því
áhuga að senda hingað kaupmenn
sem standa bak við búðarborðið
og ræða um Ísland, íslenskar
vörur og íslenska framleiðslu-
hætti.
Fara í göngur í Þjórsárdal
og draga í dilka
Um tuttugu manna hópur er
væntanlegur á ráðstefnuna, bæði
frá verslununum og veitinga-
húsum sem hafa áhuga á að hafa
íslenskan mat á matseðli sínum.
Að sögn Baldvins mun hópurinn
meðal annars fara í göngur í
Þjórsárdalinn og upplifa með
bændum hvernig þeir reka fé af
fjalli og sjá með eigin augum
hvaðan gripirnir koma. Þá munu
þeir fara í réttir og draga í dilka
með bændum og upplifa íslenska
bóndann í íslensku umhverfi, að
hans sögn. Einnig munu banda-
rískir kjötkaupmenn skoða nýja
framleiðslulínu sem Marel hefur
sett upp fyrir Norðlenska ehf. á
Húsavík.
Baldvin nefnir að bandarísku
fulltrúarnir telji einnig afar mik-
ilvægt að íslenskir bændur komi
vestur, jafnvel næsta haust, og
upplifi það hvernig Bandaríkja-
menn selja vörurnar þeirra.
„Þeir hafa óbilandi trú á því að
hægt og bítandi muni fleiri kom-
ast upp á lag með að borða ís-
lenskt kjöt, af því það kemur úr
þessu umhverfi.
En varan er náttúrlega alveg
ný og við erum kannski núna
komnir á alvöru byrjunarreit.
Það er búið að sannfæra menn
um að kjötið sé gott og það hafa
ekki orðin nein mistök í fram-
leiðslunni hjá Norðlenska ehf.
sem hafa staðið sig afar vel,“ seg-
ir Baldvin.
Hann bætir við að á undan-
förnum tveimur árum sé búið að
halda nokkuð góðum stöðugleika
í framleiðslunni sem hafi tryggt
gott viðskiptaumhverfi og sam-
bönd á milli íslenskra bænda og
kaupmannanna.
Baldvin undirstrikar að lamba-
kjötið sé hins vegar árstíðabund-
in vara sem og í því sé fólginn
ákveðinn galli í tengslum við sölu
á kjötinu.
„Eftir því sem okkur tekst að
auka eftirspurn eftir vörunni má
alveg búast við því líka að með
því að lengja sláturtímann og
sölutímabilið eigi menn að fara
hægt í sakirnar.
Við erum með nýja vöru á
markaðnum þar sem er fyrir
gnægð matvæla og það er
gríðarleg samkeppni á
þessu sviði, sem eðlilegt
er,“ segir Baldvin.
Hann ítrekar að þótt enn
vanti upp á að framleiðsla
afurða hér á landi sé full-
komlega sjálfbær hafi rík-
isstjórnin markað mjög
metnaðarfulla stefnu í því
sambandi.
„Staða okkar lands í dag
er svo miklu betri en
flestra annarra ríkja sem
byggist auðvitað á því að
hér eru menn að nýta raf-
orku og hitaorku til upp-
hitunar húsa, svo dæmi sé
nefnt.“
Átaksverkefninu lýkur
um næstu áramót
Átaksverkefninu Áform
lýkur formlega um næstu
áramót en í athugun er
með hvaða hætti verkefn-
inu verði hugsanlega fram
haldið.
„Það sem við höfum ver-
ið að leggja mesta áherslu
á á undanförnum árum er
að reyna að finna það út
hver sé samkeppnisstaða
okkar. Hvaða möguleika
og tækifæri sjáum við fram-
undan.
Þá höfum við líka látið fara
fram og styrkt mjög ötullega líf-
ræna ræktun og reynt að láta
gera jarðvegsrannsóknir á Ís-
landi og gera samanburð á meng-
un í íslenskum matvælum, jarð-
vegi og vatni við erlend matvæli,
jarðveg og vatn.
Á grundvelli þeirra upplýsinga
erum við kannski að koma þeim
skilaboðum til annarra þjóða að
það sé tiltölulega gott að kaupa
íslenskar vörur vegna þess að
þær séu tiltölulega hreinni en
vörur flestra annarra ríkja,“ seg-
ir Baldvin Jónsson.
Erlendir fulltrúar á ráðstefnu um sjálfbærni í framleiðslu og ferðaþjónustu
Vilja kynnast íslenskum
landbúnaði af eigin raun
Baldvin Jónsson verkefnisstjóri.
Morgunblaðið/RAX
TÓBAKSFRAMLEIÐANDINN
British American Tobacco, eitt
stærsta tóbaksfyrirtæki heims,
hefur höfðað mál fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur gegn Jóni
Kristjánssyni heilbrigðisráðherra
fyrir hönd íslenska ríkisins.
Krefst fyrirtækið þess að tiltekin
ákvæði tóbaksvarnalaga nr. 6/
2002 verði dæmd stjórnskipulega
ógild.
Það er fyrirtækið British Am-
erican Tobacco Nordic í Helsinki
sem stendur að málsókninni, en
það er hluti af fyrirtækjasam-
stæðu British American Tobacco.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
halda því fram að ákvæði tóbaks-
varnarlaganna sem banna að tób-
ak sé sýnilegt á sölustöðum, bann
við umfjöllun í fjölmiðlum um tób-
ak og miðlun upplýsinga um tóbak
innan greinarinnar brjóti í bága
við ákvæði stjórnarskrárinnar um
tjáningarfrelsi (73. gr.), friðhelgi
eignarréttar (72. gr.) og atvinnu-
frelsi (75. gr.).
Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Jakob R.
Möller hæstaréttarlögmaður flyt-
ur málið fyrir hönd BAT Nordic.
Roy Herold, framkvæmdastjóri
BAT Nordic, og Joost Keulen, yf-
irmaður lögfræðideildar BAT
Northern Europe, kynntu mál-
sóknina gegn íslenska ríkinu á
fréttamannafundi á Hótel Sögu í
gær. Héldu þeir því fram að það
hvíldi á íslenska ríkinu að sanna
að umrædd ákvæði tóbaksvarna-
laga brytu ekki gegn stjórnar-
skrárvörðum réttindum fyrirtæk-
isins. Að mati fyrirtækisins sé
ríkinu ekki unnt að sýna fram á
þetta og því brjóti ákvæðin gegn
stjórnarskránni.
Gera sér grein fyrir
þeim hættum sem tengjast
reykingum
Fram kom í máli þeirra að fyr-
irtækið gerði sér grein fyrir þeim
hættum sem tengjast reykingum
og það styðji skynsamlegar reglur
um tóbak og aðgerðir gegn reyk-
ingum ungmenna. Aðspurður
sagði Herold að fyrirtækið hafi
einnig höfðað mál af svipuðum
toga á Írlandi en meginástæða
þessarar málsóknar á Íslandi væri
að fyrirtækið vildi verja tjáning-
arfrelsi sitt og fá viðurkennt að
heimilt sé að hafa vörur sýnilegar
á sölustöðum.
Tóbaksfram-
leiðandi hefur
stefnt ríkinu
ÓLAFUR Örn Haraldsson, þing-
maður Framsóknarflokksins og for-
maður fjárlaganefndar Alþingis,
segist munu beita sér fyrir því, í
góðri samvinnu við heilbrigðisráð-
herra og fjármálaráðherra, við gerð
fjáraukalaga, að Landspítalinn – há-
skólasjúkrahús fái þær 30 milljónir
sem þurfi til að hægt verði að halda
heilabilunardeild á Landakoti opinni
áfram. Ólafur Örn segir að spítalinn
hafi ekki gengið nógu langt þegar
hann afturkallaði hluta þeirra breyt-
inga sem hann boðaði í síðasta mán-
uði á öldrunarsviði Landakots.
„Spítalinn lokaði heilabilunar-
deildinni í sumarleyfum og ætlaði
sér ekki að opna hana aftur fyrr en
um áramót. Með því ætlaði spítalinn
að spara um 30 milljónir króna.“
Ólafur Örn segist hafa fundið fyrir
mikilli reiði almennings vegna þess-
ara aðgerða spítalans, og að sú reiði
hafi beinst gegn spítalanum og Al-
þingi. Hann bendir á að Alþingi komi
ekki beint að rekstri spítalans, en vill
beita sér fyrir því að spítalinn fái þá
peninga sem þurfi til að halda um-
ræddri deild opinni.
Formaður
fjárlaganefndar
Vill beita sér
fyrir opnun
heilabilunar-
deildar
LIÐLEGA helmingur Reykvíkinga
er andvígur því að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri leiði lista
Samfylkingarinnar í næstu alþingis-
kosningum en tæp 26% eru því fylgj-
andi, að því er kemur fram í skoð-
anakönnun DV í gær.
Ef aðeins er tekið mið af þeim sem
afstöðu tóku í könnuninni voru 66%
eða tveir af hverjum þremur Reyk-
víkingum á móti framboði Ingibjarg-
ar en tæp 34% voru því fylgjandi.
Ef einnig er tekið mið af þeim sem
ekki tóku afstöðu reyndist rúmlega
helmingur vera á móti framboði
Ingibjargar, tæp 26% vera því fylgj-
andi en 22,5% voru óákveðin.
Lítill sem enginn munur reyndist
á afstöðu eftir kyni. Þegar tekið er
mið af því hvaða flokk menn kusu var
rúmur helmingur R-listafólks á móti
framboði Ingibjargar en 62% af
þeim sem tóku afstöðu. Ríflega 53%
kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru
andvíg framboðinu en 22% voru því
fylgjandi.
Hringt var í 600 manns í könnun-
inni.
Könnun DV
Meirihluti á
móti framboði
borgarstjóra
LÖGREGLUMAÐUR við embætti
sýslumannsins í Kópavogi hefur ver-
ið kærður fyrir kynferðislegt ofbeldi
skv. upplýsingum frá lögreglunni í
Kópavogi.
Ekki fengust upplýsingar um að
hverjum meint brot mannsins beind-
ust eða hvenær þau eru sögð hafa
verið framin. Morgunblaðið hefur
áreiðanlegar heimildir fyrir því að
þau hafi beinst gegn tveimur stúlk-
um sem eru tengdar manninum fjöl-
skylduböndum og að brotin hafi
staðið yfir árum saman.
Rannsókn málsins er í höndum
lögreglunnar í Reykjavík. Umrædd-
ur lögreglumaður er í leyfi, skv. upp-
lýsingum frá lögreglunni í Kópavogi,
og mun embætti ríkislögreglustjóra
taka ákvörðun um hvort honum
verði vikið frá starfi meðan rannsókn
á máli hans stendur yfir.
Lögreglumað-
ur sakaður um
kynferðisbrot
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦