Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.09.2002, Blaðsíða 20
ERLENT 20 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TÖLUR yfir fjölda atvinnulausra í Þýzkalandi voru birtar í gær í síð- asta sinn áður en Þjóðverjar ganga að kjörborðinu, en kosningar til þýzka Sambandsþingsins fara fram hinn 22. þessa mánaðar. Í ágúst- mánuði hélzt fjöldi atvinnulausra í landinu yfir hinu pólitískt við- kvæma marki fjórum milljónum og þótt Gerhard Schröder kanzlari og Jafnaðarmannaflokkur hans (SPD) hafi verið að saxa á forskot borg- aralegu keppinautanna að undan- förnu er ljóst að þessar tölur eru sízt til þess fallnar að hjálpa honum í kapphlaupinu um atkvæðin. Að vísu fækkaði fólki á atvinnu- leysisskrá um nærri 29.000 í ágúst- mánuði frá mánuðinum á undan, niður í 4,018 milljónir, en þetta er 229.000 atvinnulausum fleiri en í ágúst 2001. Stendur atvinnuleysis- hlutfallið nú í 9,6 prósentustigum en var 9,7% í júlí. Þessar sömu töl- ur leiðréttar að teknu tilliti til árs- tíðabundinna sveiflna líta reyndar verr út; þá hækkar atvinnuleysis- hlutfallið frá júlí til ágúst úr 9,8 í 9,9%. Mikill munur er á atvinnu- leysishlutfallinu í þeim héruðum sem áður tilheyrðu austur-þýzka al- þýðulýðveldinu, þar sem það mælist 17,7%, og í hinum auðugri vesturhluta landsins, þar sem það er 7,8%. Aðalkosningaloforð Schröders fyrir kosningarn- ar 1998, þegar hann sigraði Helmut Kohl, var að koma fjölda atvinnulausra niður fyrir 3,5 milljónir. Edmund Stoiber, kanzlaraefni kristi- legu flokkanna CDU/CSU, var enda fljótur að vekja at- hygli á meintri vanhæfni stjórnar Schröders til að finna lausn á at- vinnuleysisvandanum. „Schröder og ríkisstjórn hans hefur ekki hug- mynd um hvernig hægt er að leysa atvinnuleysisvandann,“ sagði Stoib- er á blaðamannafundi. Hagvöxtur innan við eitt prósent Schröder kennir niðursveiflunni á heimsmarkaðnum um og hefur heit- ið því að ganga ákveðnar fram í að þrýsta í gegn breytingum á lögum og reglum um vinnumarkaðinn, en ósveigjanleiki gildandi reglna hefur staðið hagvexti og sköpun nýrra starfa fyrir þrifum. Verkalýðsfélög- in hafa aftur á móti staðið vörð um gömlu reglurnar. Florian Gerster, yfir- maður þýzku vinnumála- stofnunarinnar sem birtir mánaðarlega hinar opin- beru atvinnuleysistölur, sagði á blaðamannafundi að hann ætti ekki von á því að ástandið á vinnumark- aðnum batnaði sem neinu næmi á næstu mánuðum, með tilliti til þess að ekki er búizt við því að hag- vöxtur í Þýzkalandi verði meiri en 0,75% á þessu ári. Ekki bætti úr skák að auk hinna svörtu talna um atvinnuleysið voru í gær birtar tölur yfir veltu verzl- unarinnar í Þýzkalandi. Dróst hún saman í júlímánuði um 1,7% miðað við sama mánuð í fyrra, að frá- dregnum verðbólguáhrifum, jafnvel þótt í ár hafi verið einum fleiri virk- ur dagur í mánuðinum. Og fjár- málaráðuneytið birti tölur yfir verkefnastöðu þýzkra iðnfyrir- tækja, sem þykir góð vísbending um hagvöxt og stöðuna á vinnu- markaðnum næstu mánuði. Dróg- ust pantanir saman í júlímánuði um 0,9%. Þær höfðu samt tekið mikla dýfu í júní, þegar þær minnkuðu um 3,3%. Dökkar horfur í þýzku efnahagslífi vinna gegn endurkjörslíkum Schröders kanzlara 22. september Atvinnulausir yfir fjórum milljónum Berlín. AFP, AP. Gerhard Schröder GÖRAN Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar og leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, hvatti í gær flokkssystkin sín til dáða en síðustu skoðanakannanir fyrir kosningarnar 15. september sýna, að borgaraflokkarnir hafa nú meira fylgi samtals en jafn- aðarmenn og Vinstriflokkurinn. „Ef skoðaðar eru síðustu kannanir má sjá, að óvissan er alger,“ sagði Persson er ásamt Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði 300 manna fund í Kistu, einu úthverfa Stokkhólms. Fyrir hálfu ári höfðu jafnaðar- menn mikið forskot á aðra flokka í skoðanakönnunum en nú sýna þær, að borgaraflokkarnir með Hægriflokkinn í broddi fylkingar hafa meira fylgi en jafnaðarmenn og Vinstriflokkurinn, fyrrverandi kommúnistar, sem lengi hafa stutt jafnaðarmenn á þingi. Jafnaðarmenn hafa nú 34,4% samkvæmt nýrri könnun en voru með 42,4% í mars. Fylgi við Vinstriflokkinn mælist 10,2% og við þessa tvo flokka samtals 44,6%. Samanlagt fylgi við borg- araflokkana er hins vegar 47,4%. Innanlandsmál í brennidepli Stjórnmálaskýrendur segja, að borgaraflokkarnir hafi hagnast á aukinni fjölmiðlaumræðu eftir því sem nær dregur kosningum auk þess sem baráttan snúist nú meira um innanlands- en utan- ríkismál. Persson sagði, að þessi þróun gæti bent til, að kjósendur jafn- aðarmanna hefðu verið of sig- urvissir. Kvaðst hann vona, að heimsókn Blairs yrði til að vekja þá af værum blundi. Könnun sýnir meirihluta borgaraflokka Mikil óvissa fyrir væntanlegar þingkosningar í Svíþjóð Kista. AP. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, er dyggasti stuðnings- maður George W. Bush Banda- ríkjaforseta í baráttunni gegn hryðjuverkum. Það vakti því ekki litla athygli nú í vikunni á fundi um Íraksmálin þegar Blair, þessi annars fremur hlédrægi maður, stillti sér upp frammi fyrir frétta- mönnum með þumalfingurna í beltinu. Hann minnti á ekkert meira en kúreka, á sjálfan forset- ann frá Texas, og það er meira en margir landar hans geta kyngt. Nokkur bresku blaðanna birtu í fyrradag myndir af Blair á ferð um kjördæmið sitt, Sedgefield í Norðaustur-Englandi, og með þumalfingurna í beltinu. „Butch Saddam og The Sedge- field Kid,“ sagði í The Daily Tele- graph undir nærmynd af Blair með hendur í beltisstað. „Ætli Blair sé búinn að vera of lengi á búgarðinum með Dubya [gælu- nafn Bush]? Það benti margt til þess í gær þegar hundtryggi lög- reglustjórinn, mesta skyttan í Durham-sýslu, arkaði eftir aðal- götunni í Sedgefield tilbúinn til bregða byssunni og plaffa niður næsta mann.“ Líkt eftir Bush? Dagblaðið The Mirror var jafn- vel enn neyðarlegra. Í opnufrá- sögn var Blair stillt upp eins og kvikmyndaauglýsingu undir fyr- irsögninni „Ófyrirgefanlegt“. „Tveggja stunda stórmynd með Tony Blair, manni með markmið: Að elta ameríska kúrekann í stríð,“ sagði í blaðinu, sem ham- ast oft gegn fylgispekt Breta við Bandaríkjamenn. Blaðið hafði það eftir „líkams- tjáningarsérfræðingnum“ Robert Phipps, að Blair væri óafvitandi að líkja eftir Bush. Ólík viðbrögð Viðbrögðin við yfirlýsingum Blairs um að Bandaríkjamenn eigi ekki að standa einir í glímunni við Saddam Hussein hafa annars verið með ýmsu móti. Dagblaðið The Sun studdi Blair heilshugar og sagði, að með yfirlýsingum sínum hefði hann sýnt, að hann væri „forystumað- ur, sem vekti traust og stæði við sín orð“. The Daily Mail sagði, að ræða Blairs hefði verið „tilfinn- ingaþrungin og ákveðin yfirlýs- ing“ og um leið eins konar nið- urtalning fyrir stríð. Skopast að kú- rekan- um Blair Tony Blair í Durham með þumalfingurna í beltinu. London. AP. AP ANNAR tveggja bræðra, sem ákærðir hafa verið fyrir að hafa myrt föður sinn, sagði lögreglu við yfirheyrslu að fyrsta höggið með hafnaboltakylfu í höfuð mannsins hefði hljómað „eins og þegar tré brestur eða lendir á steinsteypu“, að því er fram kom á segulbands- upptöku af vitnisburðinum er spil- uð var í réttarsal í Pensacola í Flórída á miðvikudaginn. Drengurinn, Alex King, sagði að morðið á föður þeirra bræðra, Terry King, sem var fertugur, hefði verið sín hugmynd, og bróðir sinn, Derek, hefði framið það. At- burðurinn átti sér stað í nóvember í fyrra, er Alex var 12 ára og Der- ek 13. Í upptöku af vitnisburði Dereks, sem einnig var spiluð í réttarsalnum, kom fram að Derek viðurkenndi að hafa beðið þar til faðir þeirra var sofnaður á heimili þeirra og þá barið hann um það bil tíu sinnum með kylfunni. En bræðurnir hafa dregið þessar játningar sínar til baka og halda því nú fram að vinur fjölskyld- unnar, Ricky Chavis, hafi framið morðið. Þegar réttarhöldin yfir bræðrunum hófust sl. þriðjudag sögðu verjendur þeirra að Chavis væri morðinginn og hefði talið drengina á að taka á sig sökina. Þá sögðu verjendurnir ennfremur að saksóknarinn hefði engar beinar vísbendingar um að drengirnir tengdust dauða föður þeirra. Chavis, sem er fertugur, kom fyrir rétt með öðrum kviðdómi í síðustu viku ákærður um morðið á föður drengjanna. Niðurstöðu þeirra réttarhalda verður haldið leyndri uns réttarhöldunum yfir bræðrunum er lokið. Þeir eru nú 13 og 14 ára og hafa réttarstöðu fullorðinna. Alex sagði í framburði sínum að hann hefði stungið upp á því við bróður sinn að þeir myrtu föður sinn vegna þess að þeir óttuðust að verða flengdir fyrir að strjúka að heiman. Allir sakborningarnir þrír eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi, verði þeir fundnir sekir. Þeir eru líka ákærðir fyrir íkveikju. Lík fórn- arlambsins fannst inni í brennandi húsi þess í Cantonment, skammt frá Pensacola. Chavis er einnig ákærður fyrir ósæmilega hegðun gagnvart Alex. AP Derek King, sem er 14 ára, ber vitni við réttarhöldin í Pensacola. Sakaðir um föðurmorð Pensacola í Flórída. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.